Morgunblaðið - 14.01.1999, Page 8

Morgunblaðið - 14.01.1999, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NEI, nei, mig munar ekkert um að lóðsa ykkur yfír götuna, hróin mín, þetta er í leiðinni heim. á/ ^xiáAxxxlxxxjAj - oxj/ ^xxÁXx^xx/tÁxxx^i^tjðui^Áxxvn/ jsuís \ 5. ^xxnnxx/v tiX 2, 7 . jxiÁ/UXXXAs. Perlan er afbragös veitingastaöur þar sem allt snýst um fólk. Kvöldstund í Perlunni er öðruvlsi. Veitingar eru fyrsta flokks og þjónustan snýst um þig meðan þú snýst um borgina. Til að fullkomna rómantíska stund er svo tilvalið að fá sér snúning á dansgólfinu við Ijúfan söng og undirleik Þóris Baldurssonar, Eddu Borg og Birgis Baldurssonar. vv o.xj s pxínnandv Sturla Birgisson matreibslumeistari Perlunnar er fulltrúi fyrir (slands hönd í Bocuse d’or ‘99. Samkvæmt skilgreiningu Steingríms Sigurgeirssonar blaöamanns Mbl. er Bocuse d’or óopinber heims- meistarakeppni einstaklinga í matreiöslu. C^jóáÍicTIT/i/ mexA.{xxAxx/v C cfdíí á/>xxuv iPeafu x fui|'At.nó Fjórir sérvaldir sjávarréttir, hver öörum betri. 0nd woif a/L h "ö QSi Óiá 6 fPe/i£ unni - KAZAYIMA/ U/ Ó O. U.x t, Þar sem allt snýst um fólk Kvikmyndaskóli íslands Stefnan að bjóða lengra nám í haust Inga Björk Sólnes Námskeið í kvik- myndagerð hafa verið haldin á vegum Kvikmyndaskóla íslands frá árinu 1992. Um þessar mundir eru að hefjast tveggja mán- aða námskeið í kvik- myndagerð. Inga Björk Sólnes er framkvæmdastjóri Kvik- myndaskóla íslands. „Upphaflega var það Böðvar Bjarki Pétursson kvikmyndagerðarmaður og forstöðumaður Kvik- myndasafns Islands sem hóf að bjóða þessi nám- skeið og þá í nafni Kvik- myndaskóla íslands sem þá var hluti af öðru fyrir- tæki. I fyrra var síðan stofnað sérstakt fyrir- tæki um Kvikmyndaskóla Is- lands og núna rekum við Böðvar Bjarki skólann í samstarfi, hann er skólastjóri en ég sé um dag- legan rekstur. Skóhnn er nú fluttur í nýtt og betra húsnæði að Viðarhöfða og þar er einnig til húsa kvikmyndafyrirtækið Norðnorðvestur sem er vel búið tækjum og þar er aðstaða hin besta. Við stefnum á víðtækt samstarf við fyrirtækið í fram- tíðinni." - Hvað er tekið fyrir á þess- um námskeiðum? „Þetta er tveggja mánaða námskeið ætlað byrjendum í greininni. Fyrri hluta þess er áhersla lögð á bóklega kennslu og farið í undh’stöðugreinar eins og t.d. leikstjóm, kvikmynda- töku, hljóðvinnslu og kUppingu og nemendur skrifa handrit að 15 mínútna stuttmynd. Þegar námskeiðið er um það bil hálfnað eru valin tvö handrit til framleiðslu. A námskeiðinu eru tveir hópar, annar er á dag- inn og hinn á kvöldin. Þegar bú- ið er að velja handrit úr báðum hópum er farið að framleiða myndirnar og þá tekur við verk- leg kennsla." Inga Björk segir að fagfólk sé fengið til kennslunnar. „Við leggjum áherslu á að fá til okkar starfandi kvikmyndagerðamenn til að kenna. Tækniframfarir eru mjög örar og því skiptir miklu að leiðbeinendur séu starfandi á þessu sviði og fylgist með því sem er að gerast. Núna erum við til dæmis með leiðbeinendur eins og Ágúst Guðmundsson leikstjóra, Kjart- an Kjartansson hljóðmeistara, Ægi J. Guðmundsson kvik- myndatökumann, Sigurð Snæberg Jónsson sem kennir kMppingar og Svein- bjöm I. Baldvinsson sem kennir handrita- gerð. Það má eigin- lega segja að bróður- parturinn af íslensku kvikmyndagerðarfólki hafi með einum eða öðrum hætti komið að skólanum." - Hefur verið mikill áhugi fyrirþessum námskeiðum? „Já það er óhætt að segja það. Það er greinilegt að nám í kvikmyndagerð hefur verið van- rækt í skólakerfinu. Langflestir sem sækja námskeiðin hjá okk- ur eru krakkar á framhalds- skólaaldri eða fólk sem hefur nýlokið stúdentsprófi og er ►Inga Björk Sólnes er fædd í Kaupmannahöfn árið 1962. Hún lauk BA prófi í stjórn- málafræði frá Háskóla Islands árið 1988 og var framkvæmda- stjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík árið 1989 og Lista- hátíðar í Reykjavík árið 1990. Inga Björk starfaði hjá Film Kontakt Nord í Kaupmanna- höfn frá 1991-1993 og var starfsmaður Islensku kvik- myndasamsteypunnar frá 1993-1998. Inga Björk starfar nú sem framkvæmdastjóri Kvikmyndaskóla Islands og Norðnorðvestur. Hún á eina tveggja ára dótt- ur, Sigríði Maríu. óráðið með hvað það vill taka sér fyrir hendur.“ Inga Björk segir að í framtíð- inni vonist hún til að hægt verði að hafa samstarf við framhalds- skólana á þessu sviði og er verið að leggja grunninn að því. - Petta nám veitir fólki engin réttindi? „Kvikmyndagerð er ekki lögverndað starfsheiti og við höfum alltaf tekið sérstaklega fram að námið veitir enga tryggingu fyrir starfi. Kvik- myndagerð er í eðli sínu mjög flókin og erfið grein og þetta námskeið auðveldar þeim sem hafa áhuga á að kynnast faginu og veitir þeim innsýn inn í þennan heim án mikils til- kostnaðar. I einstaka tilfellum hafa svo framleiðendur mynda leitað til okkar eftir aðstoðar- fólki.“ - Hafíð þið boðið upp á önnur námskeið? „í fyrra fórum við af stað með styttri námskeið und- ir heitinu Kvik- myndavinnustofa. Þar lögðum við áherslu á að draga fram sköp- unargleði fólks og hvöttum það til að búa til stuttmyndir. Þau gáfust mjög vel og verða endurtekin í sumar. „ Inga Björk segir að nú stefni aðstandendur skólans að því að bjóða upp á lengra nám í kvik- myndagerð og verið er að leggja grunn að eins árs námi. „Við gerum ráð fyrir að taka inn nemendur í ársnám frá og með haustinu 1999.“ Ársnám sem þetta mun kosta töluvert en Inga Björk segir að kvikmyndagerðamám sé eitt dýrasta nám sem til er. Nám í kvik- myndagerð hefur verið vanrækt í skólakerfinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.