Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
JÓN Steinar Gunnlaugsson hrl. flytur erindi sitt.
FJÖLMARGIR lögfræðingar sóttu fundinn á þriðjudagskvöld.
Jón Steinar Gunnlaugsson um kenningar
um fleiri en eina tæka niðurstöðu í lögfræði
Kenningar sem
veikja starf dómstóla
JÓN Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttai-lögmaður sagði á opn-
um fundi Lögfræðingafélags Is-
lands sl. þriðjudagskvöld, að hann
velti því fyrir sér hvort nokkuð
væri fremur til þess fallið að veikja
starf dómstóla en kenningar Sig-
urðar Líndals lagaprófessors og
fleiri um margar jafnréttar niður-
stöður í lögfræði og um lagasetn-
ingarvald dómstóla.
„Hætt er við að svona kenningar
frá mönnum, sem allir halda að
eigi að taka alvarlega, séu til þess
fallnar að draga úr þeim nauðsyn-
lega aga, sem dómarar verða að
temja sér í störfum sínum, og auka
líkurnar á að niðurstöður þeirra
verði byggðar á sjónarmiðum, sem
ekki leyfast í lögfræði,“ sagði Jón
Steinar og sagði að með kenning-
um sínum hefði Sigurður Líndal
vísast gi’aflð undan dómstólum og
veikt þá.
Jón Steinar lýsti í framsöguræðu
sinni á fundinum þeim sjónannið-
um sínum, sem hann hefur áður
sett fram opinberlega, að hann
væri ósamþykkur þeirri kenningu
að oft ætti dómari val um réttar-
heimildir, sem beita mætti til að
komast að niðurstöðu um álitaefni,
en samkvæmt kenningunni sé hlut-
verk dómstóla ekki einungis að
fínna gildandi réttarreglur, heldjar
einnig að setja nýjar reglur. „Ég
tel reyndar kenninguna beinlínis
hættulega, þar sem hún er til þess
fallin að greiða leið lögfræðinga,
þ.m.t. dómara, að niðurstöðum,
sem ráðast af vildarsjónarmiðum
þeirra, fremur en hlutlausri beit-
ingu réttarreglna,“ sagði Jón
Steinar.
Hugsunin háð takmörkunum
en meginviðhorfið
verður að vera klárt
„Starf dómara við úrlausn á rétt-
arágreiningi hlýtur að beinast að
því að leita uppi réttarheimildina
sem við á og beita henni, en ekki að
búa nýja til. Dómstólar setja ekki
lög. Menn verða við þetta starf að
ganga út frá því að einungis ein
niðurstaða sé rétt. Málið snúist um
að fínna hana. Þetta þýðir auðvitað
ekki að hin rétta niðurstaða sé
alltaf augljós eða blasi við mönn-
um,“ sagði Jón Steinar. „Hún kann
að vera torfundin og menn kann
meira að segja að greina á um hver
hún sé, þó að allir séu eftir bestu
vitund að reyna að fínna hana. All-
ar mannlegar hugsanir eru háðar
alls konar takmörkunum. En meg-
inviðhorfið verður að vera klárt.
Málið snýst um leit að þeirri rétt-
arheimild sem beita beri og þar
með að hinni einu réttu niðurstöðu.
Ég tel að grundvallarhugmyndin
um réttarríkið krefjist þess, að
menn nálgist úrlausnir sínar á
þennan hátt. Þar er meginkrafa
um að réttarstaða manna skuli ráð-
ast af almennum lagareglum, sem
fari ekki í manngreinarálit og gildi
jafnt fyrir alla. Þessi krafa birtist
berum orðum í 61. gr. stjórnar-
skrárinnar, þar sem segir að dóm-
endur skuli í embættisverkum sín-
um fara einungis eftir lögunum.
Fallist menn á, að til séu fleiri en
ein mismunandi en jafnréttar nið-
urstöður í einu og sama álitaefninu,
hafa þeir sagt skilið við þessa meg-
inkröfu réttarríkisins, því þeir hafa
þá samþykkt að ekkert sé athuga-
vert við að dæma tvö sambærileg
mál á tvo mismunandi vegu. Réttur-
inn er þá ekki lengur einn. Það er
líka forsenda fyrir starfsemi rétt-
ai-ríkisins, að réttarreglan sem við á
sé þegar til, þegai' þau atvik verða
sem skera þarf úr um. Það getur
aldrei gengið að leiðin til að skera
úr ágreiningsmálum felist í að vísa
þeim til aðila, sem í tilefni ágrein-
ingsins fær heimild til að setja nýja
reglu. Henni verði svo beitt með aft-
urvirkum hætti til að leysa úr hon-
um,“ sagði lögmaðurinn.
Prófkjör haldið hjá Sjálfstæðisflokknum 1 Austurlandskjördæmi á laugardag
Tekist á um
forystusætið
Þrír bjóða sig fram í forystusæti Sjálfstæðisflokksins á Austur-
landi í prófkjöri sem fram fer á laugardag, þingmaður og tveir
reyndir sveitarstjórnarmenn. Helgi Bjarnason spáir í spilin.
Albert Arnbjörg Ólafur
Eymundsson Sveinsdóttir Ragnarsson
SJÖ bjóða sig fram í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Austurlandskjör-
dæmi vegna undh'búnings komandi
alþingiskosninga. Prófkjörið fer
fram næstkomandi laugardag.
Egill Jónsson, alþingismaður frá
Seljavöllum í Homafírði, sem
skipað hefur fvrsta sætið á lista
Sjálfstæðisflokksins í undanfórnum
kosningum, hefur ákveðið að draga
sig í hlé og snýst baráttan í próf-
kjörinu því mest um forystusæti
listans. Þótt flokkurinn hafí nú tvo
þingmenn í kjördæminu er efsta
sæti listans eina „örugga" þingsæt-
ið. Þríi' sjálfstæðismenn bjóða sig
fram í fyrsta sætið, Albert Ey-
mundsson skólastjóri, Arnbjörg
Sveinsdóttir alþingismaður og Ólaf-
ur Ragnarsson sveitarstjóri.
Þrír sækjast eftir 1. sætinu
Arnbjörg Sveinsdóttir er frá
Seyðisfirði og var þar í bæjarstjóm.
í prófkjöri fyrir síðustu alþingis-
kosningar var hún valin til að skipa
annað sæti listans og náði kosningu
á þing. „Ég hef verið alþingismaður
í fjögur ár og kynnst vel starfínu og
kjördæminu. Aður var ég í efsta
sæti lista til sveitarstjórnar. Mér
finnst það liggja beint við að sækj-
ast eftir forystusætinu,“ segir Arn-
björg. Nái hún efsta sætinu verður
hún að öllum líkindum eina konan
sem veitir frámboðslista á vegum
Sjálfstæðisflokksins forystu við
næstu alþingiskosningar.
Fyrirfram verður að telja að Arn-
björg ætti að hafa forskot á keppi-
nauta sína vegna stöðu sinnar sem
sitjandi alþingismaður. En Albert
Eymundsson og Ólafur Ragnarsson
keppa ótrauðir að sama marki enda
segja þeir að forystusætið sé laust
eftir að Egill Jónsson ákvað að
hætta á þingi.
Albert Eymundsson er skóla-
stjóri Hafnarskóla í Hornafírði.
Hann var tíu ár í hreppsnefnd
Hafnar og bæjarstjórn Hornafjarð-
ar, meðal annars sem formaður
bæjarstjórnar og bæjarráðs og for-
maður Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi. Þá hefur
hann unnið mikið að félagsmálum á
öðrum vettvangi, ekki síst í íþrótta-
hreyfingunni. Albert segist sækjast
eftir fyrsta sætinu á grundvelli
þeirrar vinnu sem hann hefur unnið
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og al-
mennt að félagsmálum og hugsjóna
um að bæta samfélagið. „Þegar ég
fann hvatningu fólks til að fara í
framboð gat ég ekki hafnað því að
gefa kost á mér og tel að það ætti
ekki að koma þeim á óvart sem
fylgst hafa með störfum mínum til
þessa,“ segir Albert.
Ólafur Ragnarsson hefui' verið
sveitarstjóri á Djúpavogi í tólf ár og
gegnt fjölda trúnaðarstarfa á vett-
vangi sveitarstjómarmála í héraði og
á landsvísu. „Ég tel mig hafa öðlast
mikla reynslu af störfum mínum og
hef mikinn áhuga á málefnum lands-
byggðarinnar og þjóðmálum al-
mennt,“ segir Ólafur þegar hann er
spurður um ástæður þess að hann
sækist eftir fyrsta sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins. Fyrir fjórum árum
varð Ólafui’ í 5. sæti í prófkjöri og
skipaði það sæti við kosningamar.
Gætu komið á óvart
Fjórir sjálfstæðismenn bjóða sig
fram í önnur sæti listans. Aðal-
steinn Jónsson bóndi á Klausturseli
í Jökuldal, formaður Landssam-
bands sauðfjárbænda, sækist eftir
2. sætinu. Hilmar Gunnlaugsson
lögmaður á Egilsstöðum biður um
stuðning í 2.-4. sætið. Jens Garðar
Helgason frá Eskifirði, nemi við
Háskóla íslands, býður sig fram í 4.
sætið. Sömuleiðis Kári Ólason verk-
taki á Árbakka á Norður-Héraði.
Erfítt er að meta stöðuna í
baráttunni um 1. sæti listans. Um-
ræðan fyrir austan hefur að undan-
förnu þróast þannig að menn telja
að keppnin sé fyrst og fremst á milli
Arnbjargar og Alberts og að Ólafur
eigi minni möguleika. Ekki er unnt
að fullyrða neitt um það. Sjálfur
kannast Ólafur ekki við þetta og tel-
ur framboð sitt hafa styrkst undan-
farna daga.
Bæði Ambjörg og Albert virðast
eiga fylgi um allt kjördæmið, þótt
bakland Arnbjargar sé vitanlega
Seyðisfjörður og Fljótsdalshérað og
Albert eigi sitt bakland í Homafírði.
Hvorugt virðist þó eiga eindreginn
stuðning í sínum heimahéraðum.
Þannig eiga báðir mótframbjóðend-
ur Alberts nokkurt fylgi í
Hornafirði, til marks um það nefna
heimildarmenn að Egill Jónsson
alþingismaður lýsi í einkasamtölum
yfir stuðningi við Ambjörgu í 1.
sætið. Þá á Arnbjörg ekki sama
stuðning á Seyðisfirði og áður. For-
ystumenn flokksins í kjördæminu
skiptast á milli þeirra en þó virðist
meirihluti formanna sjálfstæðis-
félaganna hallast að stuðningi við
Albert Eymundsson.
Ekki er endilega víst að þeir
frambjóðendur í forystusætið sem
ekki ná markmiðum sínum nái
næstu sætum þar á eftir. Hugsan-
legt er að sú barátta sem er á milli
frambjóðendanna leiði til þess að
aðrir frambjóðendur komist upp á
milli þeirra. Einna líklegastir til að
ná árangri í því efni og koma þannig
á óvart era Aðalsteinn Jónsson og
Jens Garðar Helgason. Sá síðar-
nefndi er talinn hafa staðið sig sér-
staklega vel á kynningarfundum
frambjóðenda.
Gott upphaf kosningabaráttu
Kynning frambjóðenda fer fram
með hefðbundnum hætti nema hvað
kjördæmisráð stóð fýrir sameigin-
legri fundaferð frambjóðendanna
um allt kjördæmið. Að sögn Jónas-
ar Þórs Jóhannssonar, formanns
kjördæmisráðs, komu frambjóðend-
urnir saman fram á þrettán fundum
dagana 4. til 11. janúar og kom á
fjórða hundrað Austfirðinga á fund-
ina. Ekki kom fram málefnalegur
ágreiningur milli frambjóðenda en
þeir notuðu tækifærið til að kynna
sig og störf sín.
Ólafur Ragnarsson segir að
fundaferðin hafí verið vel heppnuð
og skemmtileg. Hún hafí þjappað
frambjóðendum vel saman og íbúar
fjórðungsins fengið glögga mynd af
væntanlegum frambjóðendum
Sjálfstæðisflokksins. „Þetta er
styrkur fyrir flokkinn og vekur at-
hygli á listanum í heild, gott upphaf
á kosningabaráttunni fyrir komandi
kosningar,“ segir Ai'nbjörg.
Prófkjörið er opið. Rétt til þátt-
töku eiga allir flokksbundnir sjálf-
stæðismenn, 16 ára og eldri, og þeir
stuðningsmenn á kosningaaldri sem
undirrita stuðningsyfirlýsingu við
flokkinn.
Kjörstaðir verða almennt opnir
frá klukkan 10 til 20 á laugardag og
ef kjörnefnd tekst að ná saman
kjörkössum verða atkvæði talin á
Egilsstöðum aðfaranótt sunnudags.