Morgunblaðið - 14.01.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 25
ERLENT
Sharon spáir stofn-
un Palestínuríkis
París, Jerúsalem. Reuters.
HAFT var eftir Ariel Sharon, utan-
ríkisráðherra Israels, í gær að hann
teldi að Palestínumenn myndu
stofna sjálfstætt ríki.
„Sjálfstjórn leiðir til Palestínurík-
is,“ hafði franska dagblaðið Le
Monde eftir Sharon, sem er fyrr-
verandi hershöfðingi. Hann bætti
þó við að Palestínumenn gætu ekki
lýst yfir stofnun sjálfstæðs ríkis
nema samið yrði um það í friðar-
viðræðunum við ísraela.
Utanríkisráðherrann varaði Pal-
estínumenn við því að öll hemumdu
svæðin, sem eru enn á valdi Israela,
yrðu innlimuð í Israel ef þeir lýstu
yfir sjálfstæði án samkomulags við
Israela. „Þetta er ekki spurning um
að við reynum að endurheimta
Gaza, Nablus eða Jenín en öll
svæðin, sem eru undir yfirráðum
okkar, verða það áfram.“
„Watergate-hneyksli" í Israel
Mikil harka hefur færst í kosn-
ingabaráttuna í ísrael og skýrt var
frá því í gær að brotist hefði verið
inn í skrifstofu Stanleys Green-
bergs, ráðgjafa Ehuds Baraks, for-
sætisráðherraefnis Verkamanna-
flokksins í kosningunum 17. maí, í
Washington.
ísraelskir fjölmiðlar lýstu inn-
brotinu sem „Watergate-hneyksli
ísraels“ og skírskotuðu til innbrots-
ins í höfuðstöðvar Demókrata-
flokksins í Washington sem varð til
þess að Richard Nixon sagði af sér
forsetaembættinu 1974.
„Þjófarnir vissu hvað þeir vildu
því þeir tóku aðeijis gögn um kosn-
ingabaráttuna í ísrael,“ sagði Tal
Silberstein, kosningastjóri Baraks.
Ekki er vitað hverjir stálu gögnun-
um en nokkrir þingmenn Verka-
mannaflokksins sökuðu Likud-flokk
Benjamins Netanyahus um að hafa
staðið fyrir innbrotinu.
Réttarhöldin í Malasíu virðast vera að snúast sakbomingimm í hag
Mahathir fyrir
rétt í máli Anwars
Kuala Lumpur, Reuters.
LÖGMENN Anwars Ibrahims,
fyrrverandi fjármálaráðherra Mala-
síu, hafa ákveðið að kalla Mahathir
Mohamad forsætisráðherra í
vitnastúku. Anwar segist vera fórn-
arlamb samsæris aðstoðarmanna
Mahathirs, sem hann telur vilja
eyðileggja starfsframa sinn í stjórn-
málum. Réttarhöldin virðast ætla að
snúast Anwar í hag, en hæstiréttur
féllst í gær á að breyta orðalagi
ákæranna gegn honum þar sem
engar sannanir hafa fundist um
meinta kynferðisglæpi ráðherrans.
I september síðastliðnum var
Anwar vikið úr embætti fjármál-
aráðherra en Mahathir sagði sið-
ferðismat hans ekki hæfa ráðherra.
Réttarhöldin sem hófust í nóvem-
ber hafa vakið heimsathygli vegna
sérstöðu sinnar. Spillingarákærurn-
ar á hendur Anwar eru alls tíu tals-
ins en í fjórum þeirra er fullyrt að
hann hafi misnotað stöðu sína með
því að beita lögregluvaldi til að
knýja andstæðinga sína til að falla
frá ásökunum um kynferðisglæpi.
Nú telst hins vegar sannað að ákær-
urnar um kynferðisglæpi ráðherr-
ans eru úr lausu lofti gripnar og
rétturinn samþykkti í gær beiðni
saksóknara um að breyta orðalagi
ákæranna. í breytingunni er dregið
Anwar Mahathir
Ibrahiin Mohaniad
úr ásökunum um kynferðisglæpi en
ekki er fallið að fullu frá ákærunum.
Anwar sem hefur allan tímann borið
við sakleysi sínu segir saksóknara
sennilega vilja minnka sönnunar-
byrði sína og þess vegna hafi hann
breytt orðalagi ákæranna.
Mahathir útilokar ekki
endurkonm Anwars
Mahathir sagðist í blaðaviðtali
ekki útiloka endurkomu Anwars í
pólitík að réttarhöldunum loknum.
„Ef dómsvöld ákveða að Anwar sé
saklaus er framtíð hans óráðin. Eg
mun ekki hindra þátttöku hans í
stjórnmálum," sagði Mahathir.
Asakanir Anwars um samsæri
forsætisráðherrans og aðstoðar-
manna hans gegn sér verða teknar
fyrir á næstu dögum.
„Kamadýrið“
Rama
BREZKI dýralæknirinn Lulu
Skidmore gælir hér við „kama-
dýrið“ Raina, kynblending
lama- og kameldýrs, sem fædd-
ist á kameldýrarannsóknastöð
Múhammeðs sheiks í Dubai fyr-
ir ári. Raina er við beztu heilsu
á afmælisdaginn, sem er í dag.
„Kamadýrið“ er afurð tilrauna-
verkefnis, sem hófst fyrir þrem-
ur árum og hafði að markmiði
að kalla fram á sjónarsviðið á
ný það dýr sem lamadýrið í
Suður-Ameríku og kameldýrið í
Norður-Afríku hafa þróazt út
frá eftir að heimsálfurnar tvær
hóf að reka hvor frá annarri
fyrir 30 milljónum ára.
Simirm GSM lækkar verð
Þú ert hér
Dæmi ui
SIMINN GSM
www.gsm.is
eftir veróbreytingar sem tóku gildi 1. janúar 1999
MilLiLandasímtöL dagtaxti FLokkur 1 Bretland og Norðurlönd Flokkur 2 ýmis V-Evrópuríki FLokkur 3 Bandaríkin, Kanada o.fl. FLokkur 4 ýmis S- og A- Evrópuríki
GSM áður 47,94 52,94 61,94 69,94
GSM nú* 40,47 45,47 47,47 62,47