Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 28

Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Sýningum lýkur Listasafn Islands 80/90 - Speglar samtímans, sýning á verkum frá Museet for Samtidskunst í Ósló lýkur sunnudaginn 17. janúai’. Safn þetta var stofnað 1988, og nær úrvalið til verka úr eigu safnsins frá síðustu tveim áratugum. Sýningin er hingað komin með styrk Norsk-ís- lenska menningarsjóðsins og voru verkin á sýninguna valin í samráði Listasafns Islands og Museet for Samtidskunst með það fýrir augum að gefa sem breiðast yfírlit yfir strauma og stefnur í myndlist sam- tímans. A sýningunni eru verk eftir marga heimsþekkta listamenn s.s. Jannis Kounnelis, Michelangelo Pistoletto, Pier-Paolo Calzolari, Christian Bolt- anski, Mh’oslaw Balka, Andres Serra- no, Nan Goldin, Cindy Sherman, Bemard og Anna Blume, Esko Mánnikkö, Marie-Jo Lafontaine, Paul McCai’thy, Richard Serra, Marianna Uutinen, Nan Goldin. Rýmisverk og innsetningar, ljósmyndh’ og mynd- bönd í bland við málverk bjóða til við- ræðu og spyija ögrandi nærgöngulla spuminga um hvað felst í því að vera maður í nútíma tæknisamfélagi við aldarlok, segir í fréttatilkynningu. I tilefni sýningarinnar hefur verið gefm út myndskreytt sýningarskrá með greinum eftir Audun Eckhoff, sýningarstjóra við Museet for samtidskunst og Gianni Vattimo, pró- fessor í heimspeki við háskólann í Torino á Ítalíu. Leikaraskipti í Svartklæddu konunni ÞAR sem Arnar Jónsson, annar að- alleikari í Svai’tklæddu konunni, verður að taka sér frí vegna anna í Þjóðleikhúsinu hefur Sjónleikur ráð- ið Viðar Eggertsson til að taka við hlutverki hans. Svartklædda konan er sýnt í Tjarnarbíói og verður fyrsta sýning með Viðari laugardag- inn 16. janúar kl. 21 og er þessi sýn- ing til styrktar Alnæmissamtökin á Islandi. Vinnuhópur vegna staðsetningar tónlistarhúss Mun kynna þrjár til fimm ólíkar tillögur VINNUHÓPUR á vegum Reykja- víkurborgar vinnur nú að tillögum um hvar tónlistarhús og ráðstefnu- miðstöð skuli rísa á hafnarsvæðinu. Stefnt er að því að kynna borgaryf- irvöldum þrjár til fímm ólíkar til- lögur innan fárra vikna en að sögn Stefáns Hermannssonar borgar- verkfræðings, sem stýrir vinnu- hópnum ásamt forstöðumanni borgarskipulags, Þorvaldi S. Þor- valdssyni, er endanlegt markmið hópsins að kynna tvo til þrjá kosti fyrir nefnd sem borgin, mennta- mála-, samgöngu- og fjármálaráðu- neyti munu skipa vegna byggingar mannvirkisins. Stefán segir hópinn hafa þann fyrirvara á vinnu sinni að fjárfestir í hóteli, sem fyrirhugað er að reisa í tengsíum við tónlistarhús og ráð- stefnumiðstöð, er ekki enn kominn upp á yfírborðið. „Eðli málsins samkvæmt munum við ekki loka málinu fyrr en hans sjónarmið eru komin fram.“ Góð aðkoma og nóg af bflastæðum Borgarverkfræðingur segir að mörgu að huga í þessu efni, ekki síst umferðarskipulagi Kvosarinn- ar. Segir hann mikilvægt að tón- listarhús og ráðstefnumiðstöð verði þannig staðsett að aðkoma sé sjá- anleg og góð, helst glæsileg, bæði Vinnan með fyrir- vara þar sem fjár- festir í hóteli er ekki kominn fram fyrir gangandi og akandi gesti. Segir Stefán brýnt að ekki verði skortur á bílastæðum við mann- virkið, auk þess sem ágætt aðgengi að og frá þeim verði að vera tryggt. Æskilegt þykir að bflastæðin nýtist tónleikagestum á kvöldin en gest- um í miðborginni á daginn. Stefán segir að miðað sé við óbreytt gatnakerfí á svæðinu en ekki sé útilokað að hnikað verði lít- illega til ef nauðsyn krefur. Hugsanlegt er að skiptistöð Strætisvagna Reykjavíkur við Hafnarstræti verði færð í tengslum við framkvæmdimar en Stefán fullyrðir að eftir sem áður verði kappkostað að strætisvagnafarþeg- ar fái jafn góða þjónustu og áður, bæði í miðborginni og ekki síður við hið nýja mannvirki. Auk borgarverkfræðings eiga borgarskipulag, umferðardeild Strætisvagna Reykjavíkur, hafnar- stjóri og bílastæðasjóður fulltrúa í vinnuhópnum. A meðfylgjandi teikningum get- ur að líta fjórar tillögur sem koma til álita. Fyrstu þrjár eru frá breskum aðila, B. Engle, en sú síð- asta frá íslenskum, Studio Granda. Allar eru þær unnar í samvinnu við borgarskipulag og borgarverk- fræðing. í fyrstu tillögunni er gert ráð fyrir að tónlistarhús, ráðstefnu- miðstöð og hótel rísi austan við Faxaskála. Samkvæmt þessari til- lögu myndi mannvirkið teygja sig út fyrir núverandi landsvæði en, að sögn Stefáns, ættu engin vanda- mál að fylgja stækkun lands til austurs. Önnur tillaga gengur út frá því að mannvirkið rísi vestar og nái yf- ir Faxaskála. Næði þessi tillaga fram að ganga þyrfti að bæta lítil- lega við land til austurs. I þriðju tillögunni er mannvirkið látið standa milli Austurstrætis og Geirsgötu sem færð yrði til norð- urs. Þetta myndi þýða að fjarlægja yrði hluta af Faxaskála. Fjórða tillagan gerir ráð fyrir tveimur mannvirkjum. Tónleika- húsi og ráðstefnumiðstöð milli Tryggvagötu og Geirsgötu og hót- eli suðaustur af Faxaskála. Efri hótelhæðir yrðu þá byggðar yfir skálanum. Byggingamar yrðu tengdar með göngubrú yfír Geirs- götu. ■ Hefði gríðarlega þýðingu/D3 Lífsspekileg spilamynd KVIKMYJVÐIR Regnboginn ROUNDERS irk'k Leikstj: John Dahl. Handrit: David Levier og Brian Koppelman. Aðal- hlutverk: Edward Norton, Matt Damon, Famke Janssen, Gretchen Mole, John Malkovich, John Turt- urro og Martin Landau. Miramax Films 1998. ERFIÐ spil, auðveld spil, út- hverfaspil, miðborgarspil, heið- arleg spil, óheiðarleg spil... eru heimur þeirra sem vinna fyrir sér með því að spila póker. Lög- fræðineminn Mike hættir að spila eftir að hafa misst aleiguna, en það er erfitt að standast freistinguna þegar æskuvinurinn Ormur losnar úr fangelsi. Það eru ungleikararnir ólíku Matt Damon og Ed Norton sem fara með hlutverk Mikes og Orms. Ed er einn allra besti leik- ari sem hefur komið fram á sein- ustu árum, og er eins og öll hans hlutverk séu skrifuð fyrir hann. Hins vegar finnst mer Matt Damon hafa komist aðeins of langt á fallega brosinu einu sam- an. Því miður hafði ég ekki full- komna trú á þeirri innilegu vin- áttu sem á að ríkja þeirra á milli og skiptir meginmáli í myndinni. Til þess eru þeir of ólíkir á allan hátt, og Matt Damon var ekki nógu sannfærandi. Rounders er kvikmynd sem kemur víða við í heimi hins mannlega breyskleika, og þyrfti í raun ekki að fjalla um pókerspil. En myndin gefur skemmtilega sýn inn í þann sérstaka heim, sem er okkur meðaljónunum hulinn. Auk þess sem hann myndar skemmtilega andstæðu við lögfræðiheiminn sem vinur okkar Mike hrærist einnig í. Martin Landau er í hlutverki gamla, góða og vitra lögræðings- ins, sem gefur unga manninum ráð i lífsvandræðum. John Turt- urro (sem aldrei klikkar) er vin- urinn klári, snillingurinn úr spilaheiminum sem ræður unga manninum heilt í spilaklípu. Af vörum þessara gáfumanna hrýt- ur hin dýpsta lífsspeki: „Reyndu ekki að vera annað en þú ert“, „Þú velur ekki örlög þín“, „Reyndu alltaf að bæta spilin á hendi“, svo eitthvað sé nefnt. Ég man samt ekki hver sagði hvað. Mér sýnist á öllu að þessi mynd fjalli annars fyrst og fremst um heiðarleika í hvívetna; í vináttu, spilum og gagnvart öðrum. Hvað sem hver les út úr henni, þá er þessi býsna skemmtileg og oft spennandi töffaramynd með góðri tónlist, skemmtilegum karakterum, spil- um, rússneskum hreim og jafn- vel smá blóði. Hildur Loftsdóttir t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.