Morgunblaðið - 14.01.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 31
LISTIR
ASKUR, sefgras og tágar.
„Ljós, ljós, ljós“
LIST OG HÖJVJVUJV
Stöólakot
KÖRFULJÓS
MARGRÉT GUÐNADÓTTIR
Opið alla daga frá 14-18. Til 24. jan-
úar. Aðgangur ókeypis.
ÍSLENZKUR listiðnaður og iðn-
hönnun eru í stöðugri gerjun, ásamt
því að viljinn til átaka á sviðunum
virðist ótakmarkaður. Þetta gerist
þótt markaðssetningin sé stórum
minni en hún ætti að vera, eða nán-
ast engin, og kraftarnir dreifðir. A
stundum vinna iðkendurnir í smá-
hópum, en þó er mest um einstak-
lingsframtak að ræða, að viðbættu
einhverju hliðarstarfí til að ná end-
um saman. Öll starfsemi á listavett-
vangi krefst þó ekki aðeins að við-
komandi helgi sig alfarið iðju sinni,
heldur er oftar en ekki þörf á aðstoð,
jafnvel í málaralist en þar veit ég
dæmi um allt að 25 aðstoðarmenn
nafnkenndra málara ytra. Hug-
myndirnar skipta þar öllu, en út-
færslan kann að vera það mikið mál
að þörf sé á sérmenntuðu fagfólki, en
þetta er heimur sem ráðamenn hafa
afar takmarkaða þekkingu á hér á
útskerinu. Reglulega sjáum við ný
og ný dæmi þess að fólk er vakandi
fyrir gildi skapandi handíða, en þessi
mál komast ekki á hreint fyrr en við
fáum okkar upplýsandi listiðnaðar-
safn. Ekki frekar en að myndlistar-
mál komist á hreint fyrr en menn
geta gengið að miðstöð íslenzkrar
sjónmenntasögu frá upphafí, en öll
söfnin okkar eru orðin að sýningar-
sölum.
Þetta kom upp í hugann á sýningu
Margrétar Guðnadóttur í Stöðlakoti,
því þótt þetta sé frumraun hennar,
minnir hún á sitthvað sem listiðnaðar-
söfnin ytra telja sér skylt að rækta
eftir þvi sem efni standa til. Margrét
dvaldi rúman hálfan síðasta áratug í
Bandaríkjunum, þar sem hún hlaut
menntun sína í listum, aðallega í rík-
islistaháskólanum í Connecticut,
vefnaði og körfugerð í öðrum skóla,
auk þess að sækja fjölda námskeiða í
körfuvefnaði hjá listafólki víðs vegar
um Bandaríkin, og, eftir nokkurt hlé,
í Ærö í Danmörku og Maine í Banda-
ríkjunum. Námskeið vega þannig
þungt í námsferli Margrétar, sem
segir okkur fyrst og fremst að hún
hafí aflað sér margs konar reynslu á
vettvanginum, en námskeið eru þó
takmörkunum háð eins og margur
veit, þótt naumast hafi þau minna
vægi en annakerfið í listaskólum, með
nýjum kennai'a í hverri lotu.
Verkin í Stöðlakoti bera þó ekki
svip af því að Margrét hafí lært víða,
því þótt þau séu hin fjölbreytilegustu
í efni og formgerð, eru þau í grunni
sínum samstæð. Formrænn einfald-
leiki og traust vinnubrögð eru höfuð-
kostir þeirra og um leið sterkasta
hlið Margrétar, sér einkum stað í
lömpum úr rafmagnssnúrum, sem
eins og spretta fyrú'hafnarlaust upp
úr engu að segja má, sem einmitt er
eðli gildrar sköpunar. Vel er staðið
að sýningunni, skráin einstaklega
notaleg og smekkleg hönnun, til eft-
irbreytni fyrir hinar minni sýningar.
Undirstrikar þá fágun og einlægni
sem er aðal þessarar frumraunar...
Bragi Asgeirsson
GroupTekaAG
IQKQ Eldunart
3 stk.í
l (verö mic
pakka
kr. 36.900
stgr.
miðast við að keypt séu 3 stk. eða sambærilegt).
Innifalið í tilboði:
Innbyggingarofn, af fullkomnustu gerð með
grilli og grillteini, HT490 eða HT490ME.
Helluborð 4ra heilna, með eða án stjómborðs.
Vifta TUB60, sog 370 m3 á klst..
VERSLUN FYRIR ALLA I
ifLDSÖI
IRSLUNJ
- tryggi
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
verÖi!
□ FNUNAR-
SJDÐUR
LÍFEYRIS RÉTTI N DA
Traustur sjdður - Trygg framtíð
Lögum samkvæmt Ler öllum launjjegfum og sjálfstætt starfandi
mönnum að greiáa til lífeyrissjóðs. Margir ^reiða til starfs-
greinasjóða í samræmi við kjarasamninga. Aðrir, einkum
einyrkjar, kafa val um ]pað kvert ]peir skila lögfkundnum
lífeyrisiðgjölclum. Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda er kjörinn
lífeyrissjóður fyrir ])á.
• Lífeyrisréttindi félagfa Söfnunarsjóðs lífcyrisréttinda eru
með kví kesta sem lífeyrissjóðir veita.
• Ei^nastaða kans er góð og eru eignir 20% umfram
sku ldk indingar.
• Sjóðurinn er sjötti stærsti lífeyrissjóður landsins með um
6 ])úsund gfreiðandi féla^a.
•Yfir 90 Jaúsund manns kafa greitt til sjóðsins frá stofnun
kans.
•Lán til sjóðfélaga nema allt að 2 milljónum króna.
Séreignardeild sjóðsins tók til starfa um áramótin og tekur við
viákótarspamaði sjóáfélaga og annarra sem svo kjósa.
Samkvæmt lögfum er ])aá skylda Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
aá taka viá iðgfjöldum Jjeirra sem ekki eiga sjálfsagfða aáild að
öðmm sjóáum.
Traustur lífeyrissjóður tryggir góðan
lífeyri. Frá áramótum gefst öllum
starfandi mönnum tækifæri að
gfreiáa til lífeyrissjóða 2% til
viðkótar ])ví sem lögfkundið er
ogf er sú fjárkæðfrádráttar-
kær frá skatti.
Nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu sjóðsins að
Laugavcgi 13 • Sími 552 Q5Ó1
Netfang upp1@sofnunarsjoAur.is
SÖFNUNARSJOÐUR
LÍFEYRISRÉTTINDA