Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 46

Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 46
>46 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ HSM pappírstætarar Leiðandi merki - Margar stærðir Þýzk gæði - Örugg framleiðsla J. ÓSTVfllDSSON HF. Skipholti 33. 105 Revkjovík, sími 533 3535 FRÉTTIR Dagur umhverfísins 25. apríl RÍKISSTJÓRNIN ákvað í fyrradag, að tillögu Guðmundar Bjamasonar umhverfisráðherra, að lýsa 25. apríl sérstakan dag umhverfisins. Dagurinn er hugs- aður sem hvatning til skólafólks og almenning að kynna sér betur samskipti manns og náttúra og sem tækifæri fyrir stjómvöld, félagasamtök og fjölmiðla til að efla opinbera umræðu um um- hverfismál. „Umhverfisráðherra ákvað eftir samráð við fulltrúa áhuga- samtaka og atvinnulífs að ástæða væri til þess að halda upp á sér- stakan dag helgaðan umhverfis- málum á íslandi, eins og gert er í mörgum löndum. Alþjóðlegur dagur umhverfisins, skv. yfirlýs- ingu Sameinuðu þjóðanna, er 5. júní en sú dagsetning þótti ekki henta íslenskum aðstæðum þar sem mikilvægt þótti að hvetja skólafólk til að vinna að verkefn- um tengdum umhverfismálum. Því þótti 25. apríl henta vel, þar sem sá dagur ætti að henta skólafólki, hann er í sumarbyrjun þegar flestir fara að huga að úti- vist og hann er fæðingardagur Sveins Pálssonar, eins fyrsta náttúrufræðings Islendinga. Sveinn var sá maður íslenskur sem e.t.v. fyrstur vakti máls á þeirri hugsun sem nú gengur undir heitinu „sjálfbær þróun“, en hann skrifaði um eyðingu ís- lenskra skóga og sagði illa með- ferð þeirra skaða hag komandi kynslóða. Umhverfisráðherra hyggst halda upp á dag umhverfisins á þessu ári m.a. með veitingu við- urkenninga fyrir starf að um- hverfismálum. Það er von ráðu- neytisins að sem flestir noti tækifærið og haldi upp á daginn á þann hátt sem hæfir tilefni hans,“ segir í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. 'V > www.everest.is Eyjaslóð 7 Reykjavík sími 511 2200 www.seglagerdin.is BRIPS Umsjón Arnór (I. Ragnarsson Bridsfélag Hreyfils Farið er að síga á seinni hlutann í barómetemum hjá bílstjórunuin og hafa Heimir Tryggvason og Arni Már Björnsson þægilega forystu í mótinu. Þeir eru með 167 yfir meðalskor en næstu pör eru þessi: Gísli Tryggvason - Leifur Kristjánsson 120 Flosi Ólafsson - Sigurður Olafsson 113 Jón Sigtryggss. - Skafti Bjömsson 109 Ragnar Bjömsson - Danjel Halldórss. 90 Sigurður Steingrímss. - Óskar Sigurðsson 90 Spilað er á mánudagskvöldum í Hreyfilshúsinu. Bridsfélag Hafnarljarðar Fyrstu þrjár umferðirnar í Mon- rad-sveitakeppni BH og SIF voru spilaðar mánudaginn 11. janúar. 14 sveitir taka þátt í mótinu. Eftir fyrsta kvöldið eru þessar sveitir efstar: Guðmundar Magnússonar 63 Drafnar Guðmundsdóttur 58 Njáls Sigurðssonar 55 TNT 54 Högna Friðþjófssonar 52 Einnig er reiknað út árangur para með svokölluðum fjölsveitaútreikn- ingi og eru þessi pör efst: Jóhann Magnússon - Kristinn Karlsson 18,78 Guðmundur Magnússon - Gílsi Hafliðason 18,50 Einar Sigurðsson - Ómar Olgeirsson 18,17 Njáll G. Sigurðss. - Þorsteinn Kristmundss. 17,97 Guðbrandur Sigurbergss. - Friðþj. Einarss. 17,53 Mótið heldur áfram mánudaginn 18. janúar. Reykjanesmót um helgina Reykjanesmótið í sveitakeppni verður haldið helgina 16.-17. janúar í félagsheimili brids- og hestamanna í Reykjanesbæ og hefst spilamennska kl. 10 á laugardaginn. Mótslok ráðast nokkuð af þátttöku, en stefnt er að því að ljúka spilamennsku í tæka tíð til að flestir þeir sem búa innan svæð- isins eigi þess kost að snæða kvöld- verð heima hjá sér á eðlilegum tíma. Sveit Sigfúsar vann Suður- landsmótið í sveitakeppni Suðurlandsmót í sveitakeppni í brids var spilað í Hveragerði 8.-9. janúar 1999 með þátttöku 10 sveita. Eftir æsispennandi lokaumferð varð sveit Sigfúsar Þórðarsonar hlut- skörpust, en sveitum Helga Her- mannssonar og Mjólkurbús Flóa- manna tókst hvorugri að nýta sér tap Sigfúsar í síðustu umferð til að skjót- ast á toppinn. Sveitir Garðars Garð- arssonar og Kristjáns Más Gunnars- sonar háðu einnig harða baráttu um fjópða sætið, sem gaf rétt til þátttöku á Islandsmóti í sveitakeppni. Báðar sveitirnar unnu sinn leik, Kristján vann þó heldur stærri sigur, og nægði það honum til að komast áfram. Úrslit urðu annars þessi: Sveit Sigfúsar Þórðarsonar 172 (Sigfús Þórðarson, Gunnar Þórðarson, Guð- mundur Gunnarsson, Auðunn Hermannsson, Brynjólfur Gestsson). Sveit Helga Hermannssonar 168 (Helgi Hermannsson, Kjartan Jóhannsson, Kristinn Þórisson, Ómar Olgeirsson). Sveit Mjólkurbús Flóamanna 166 (Ólafur Steinason, Runólfur Jónsson, Þröstur Ámason, Sigfinnur Snorrason, Ríkharður Sverrisson). Sveit Kristjáns Más Gunnarssonar 158 Sveit Garðars Garðarssonar 157 Einnig vai’ reiknaður fjölsveitaút- reikningur og urðu efstu pör þessi: Helgi Hermannss. - Kjartan Jóhannss. 18,74 Brynj. Gestsson - Auðunn Hermannss. 18,53 Ólafur Steinason - Þröstur Ámason 17,41 Daníel Lee Davis - Magnea Bergvinsd. 17,12 Bjöm Snorrason - Guðjón Einarsson 17,00 Keppnisstjóri var Stefán Jóhanns- son og stóð hann sig eins og alltaf með miklum sóma. Bridsfélag Suðurnesja Eftir 3 umferðir af 11 í sveitarokki, hefur nýmyndað par forustu ásamt gömlu refunum úr Sandgerði. Hér er staðan: Sigriður Eyjólfsd. - Sigfús Ingvason 63 Bjöm Dúason - Karl Einarsson 63 Hafsteinn Ögmundss. - Gísli Isleifss. 57 Amór Ragnarsson - Karl Hermannss. 51 Jóhannes Sigurðss. - Svavar Jenssen 50 Um næstu helgi verður Reykja- nesmótið í sveitakeppni haldið að Mánagrund og hefst kl. 10 laugar- daginn 16. jan. Keppnisgjald er 10.000 kr. á sveit. Skráning í síma 421 2287, Kjartan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.