Morgunblaðið - 14.01.1999, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999 61
FRÉTTIR
GEIR Sverrisson og' Jóhanna Rósa Ágústsdóttir, íþróttamenn ársins
í Kópavogi 1998.
fþróttafólk heiðrað
í Kópavogi
Stuðningur ríkis-
stjórnar við hand-
verk samþykktur
RÍKISSTJÓRNIN hefur sam-
þykkt tillögur forsætisráðherra um
aðgerðir til að styðja við þá ein-
staklinga og félagssamtök, sem
leggja stund á handverksgreinar.
Þar er gert ráð fyrir að verkefni,
sem rekið hefur verið undir nafn-
inu Handverk og hönnun undan-
farin ár, verði haldið áfram og
veittar til þess 13 m.kr. á ári frá
forsætisráðuneyti, félagsmálaráðu-
neyti og Framleiðnisjóði landbún-
aðarins. Þeir aðilar tilnefni jafn-
framt fulltrúa í stjóm verkefnisins
en 15 manna fagráð tryggi fagleg
sjónarmið í stefnumótun.
Markmið starfsemi Handverks
og hönnunar verði að stuðla að
vexti handverks, bættri menntun
og þekkingu handverksfólks og efl-
ingu gæðavitundar í gi-eininni. Til
að ná markmiðunum mun verkefn-
ið veita þjónustu um land allt þar
sem lögð verður stund á ráðgjöf,
söfnun og dreifingu þekkingar, auk
þess sem þarna verður vettvangur
þróunar í íslensku handverki.
I stefnumörkun ríkisstjórnarinn-
ar fyi'ii' handverk er einnig stefnt
að því að fjögurra ára áætlun verði
gerð um fjárhagslegan stuðning
stjómvalda við verkefnið. Jafn-
framt verði komið á skipulögðu
námi fyrir starfandi handverksfólk.
Einnig þurfí að draga úr mismun á
álagningu virðisaukaskatts milli
listamanna og handverksfólks ann-
ars vegar og milli bændafólks og
þéttbýlisbúa sem stunda handverk
hins vegar. Þá er stefnt að auknum
stuðningi við starfsemi Heimilis-
iðnaðarfélags Islands og verði fé-
laginu falið að standa fyrir átaki í
ráðgjöf um þjóðbúninga í þeim til-
gangi að fleiri skarti þjóðbúningi
árið 2000 en annars.
Athugasemd
frá Verkamanna-
félaginu Hlíf
VEGNA athugasemdar frá ÍSAL í
Morgunblaðinu 13. janúar sl. vill
Verkamannafélagið Hlíf taka eftir-
farandi fram:
„í athugasemd ÍSAL segir:
„Skautleifar frá ISAL era endur-
nýttar. Meginhlutinn er sendur til
endurvinnslu, þ.e. til gerðar nýiTa
skauta hjá skautaverksmiðju
Aluchemie í Rotterdam og ákveðin
kornastærð, sem hentar Sements-
verksmiðjunni á Akranesi er end-
urnýtt þar.“
Fomáðamenn ÍSAL gleymdu að
minnast á að bróðurparturinn af
því efni sem þeir segja að sé endur-
nýttur í Sementsverksmiðjunni er
nýttur til framleiðslu u.þ.b. 3000
tonna af kragasalla sem notaður er
til þess að verja tinda skautgafla
sem skautin hanga á í keranum.
Um 30% af sallanum er tjara. Þessi
salli, framleiðsla hans og ryk frá
skautleifum hefur verið umkvört-
unarefni starfsmanna í
skautsmiðju ISAL í áraraðir, þó
ekki hafi verið kvartað yfír því í
fjölmiðlum. Sementsverksmiðjan
fær aðeins brot af þessum kola-
salla.
I áratugi hafa Hlíf og tránaðar-
menn félagsins ítrekað óskað eftir
að aðbúnaðar- og mengunarmál í
skautsmiðju verði leyst. Ryk-
hreinsikerfíð í skautsmiðju sér
ekki um að halda skautsmiðjunni
hreinni eins og að er látið liggja í
athugasemd ISAL. Mengunarmæl-
ingar hafa sýnt að það era staðir í
skautsmiðju þar sem mengun er
við og yfír hættumörkum.
Um leið og Hlíf krefst þess að
mengunarmálum í skautsmiðju
verði komið í eðlilegt og mann-
sæmandi horf þá varar félagið for-
ráðamenn ISAL við að vera með
blekkingarleiki í aðbúnaðarmálum
verkafólks."
Athugasemd frá
Þórólfi Gíslasyni
Fyrirlestur
um kvóta-
kerfið
HANNES Hólmsteinn Gissurar-
son, prófessor í stjómmálafræði,
heldur fyrirlestur í boði Hollvina-
samtaka Háskóla íslands laugar-
daginn 16. janúar nk. í Gyllta saln-
um á Hótel Borg og hefst hann kl.
15. Fyrirlesturinn nefnist „Fiskur,
eignir og réttlæti".
„Þar mun Hannes Hólmsteinn
fyrst ræða um og svara gagnrýni
Þorsteins Gylfasonar heimspeki-
prófessors á kenningar lagapró-
fessoranna Sigurðar Líndals og
Þorgeirs Orlygssonar um eðli
veiðiheimilda og túlkun þjóðar-
eignarákvæðis laga um stjórn fisk-
veiða. Kenningarnar hefur Þor-
steinn sett fram í bókinni Réttlæti
og ranglæti. Sérstaklega verður
rætt um þá spurningu, hvort upp-
hafleg úthlutun veiðiheimilda hafí
verið ranglát, eins og Þorsteinn
heldur fram.
Síðan mun Hannes Hólmsteinn
ræða nýgenginn dóm Hæstaréttar
um að úthlutun veiðileyfa stríði
gegn jafnræðisreglu og atvinnu-
frelsisákvæði stjórnarskrárinnar.
Að fyrirlestrinum loknum verða
fyrirspurnir og umræður," segir í
fréttatilkynningu.
Skólaakstur
í samræmi við
úrskurð
SKÓLAAKSTUR með nemendur
frá Hvolsvelli og Hellu til Selfoss
hófst að nýju eftir áramót í sam-
ræmi við úrskurð Samkeppnisráðs.
Ráðið úrskurðaði á þá leið að fyrir-
tækinu Austurleið væri óheimilt að
misnota markaðsráðandi stöðu sína
með þeim hætti að breyta áætlun
sinni. Þá fengu nemendur kost á
afsláttarfargjöldum á þessari leið.
Austurleið hafði annast þennan
akstur um fjórtán ára skeið en varð
undir í útboði um þennan akstur til
þriggja ára. Bergur Sveinbjöms-
son, sem varð hlutskarpastur í út-
boðinu, kærði háttsemi Austurleiða
til Samkeppnisráðs seinasta haust,
og kveðst hafa verið mjög sáttur
við úrskurð ráðsins.
„Austurleið hefur fylgt úrskurð-
inum eins og eðlilegt er og í stað
þess að aka með skólabömin ekur
fyrirtækið samkvæmt fyi'ri áætlun
klukkan níu á morgnana. Það er
gott að yfirvöld samkeppnismála
halda hlutunum í réttu horfi,“ segir
Bergur.
Um 74 nemendur fara frá Hvols-
velli og Hellu til Selfoss á morgn-
ana og aftur til baka síðdegis.
Norðurland vestra
Prófkjör
Samfylkingar
SAMFYLKINGIN á Norðurlandi
vestra hefur ákveðið að efna til
prófkjörs vegna framboðs til al-
þingiskosninga 8. maí nk.
Prófkjörið er opið öllum og fer
fram 6. febrúar. Framboðsfrestur
rennur út 20. janúar.
Alþýðubandalag og Alþýðuflokk-
ur á Norðurlandi vestra.
Steindór Haraldsson
JÓHANNA Rósa Ágústsdóttir,
Gerplu, og Geir Sverrisson, Breiða-
bliki, voru kjörin íþróttakona og
íþróttakarl Kópavogs 1998.
Jóhanna Rósa Ágústsdóttir,
Gerplu, er þolfimikona. Hún hefur
stundað fímleika hátt í tvo áratugi.
Fyi'st í áhaldaleikfimi og síðar í
trompfímleikum þar sem hún varð
margfaldur Islandsmeistari. Hún
hefur í þrígang orðið íslandsmeist-
ari í þolfimihóp Gerplu en á árinu
varð hún íslands- og bikarmeistari
í þolfimi einstaklinga. Á heims-
meistaramótinu í þolfimi náði hún
ágætisárangri.
Geir Sverrisson er frjálsíþrótta-
maður úr Breiðabliki. Geir er einn
Prdfkjör Samfylkingar
á Reykjanesi
Framboðs-
frestur rennur
út á morgun
FRESTUR til að tilkynna þátttöku í
prófkjöri Samfylkingar á Reykjanesi
rennur út á morgun. Þríi' stefna á
fyrsta sæti listans, en það eru al-
þingismennirnir Ágúst Einarsson,
Guðmundur Árni Stefánsson og
Rannveig Guðmundsdóttir.
Þeir sem hafa tilkynnt þátttöku í
prófkjörinu fyrir hönd Alþýðubanda-
lagsins eru Lúðvík Geirsson, blaða-
maður og bæjarfulltrái, Sigiíður Jó-
hannesdóttir alþingismaður og Val-
þór Hlöðversson, blaðamaður og
fyrrverandi bæjarfulltrúi. Sigríðui'
og Valþór segjast stefna á 2. sæti
listans, en Lúðvík segist tilbúinn til
að taka hvaða sæti sem er á listan-
um.
Þá hafa Jón Gunnarsson, fyrrver-
andi varaþingmaður Alþýðuflokks-
ins, og Valdimar L. Friðriksson,
fiskeldis- og stjórnmálafræðingur,
lýst yfir þátttöku í prófkjörinu.
Nýtt nafn
sveitarfélags
tilkynnt í dag
TALNINGU atkvæða í atkvæða-
greiðslu um nýtt nafn sveitarfélags-
ins Húnaþings, sameinaðra sveitar-
félaga Húnavatnssýslu, er lokið og
besti spretthlaupari landsins. Hann
varð bikarmeistari með Breiðabliki
á 2. deildinni í frjálsum og Islands-
meistari fatlaðra í 6 greinum á ár-
inu. Stærsta afrek Geirs á þessu ári
vann hann á heimsmeistaramóti
fatlaðra í Birmingham í sumar. Þar
sigraði hann í 100 og 200 m hlaupi
og varð þriðji í 400 m.
Iþróttakona og íþróttakarl Kópa-
vogs fengu að launum veglega far-
andbikara sem og eignarbikara. Þá
afhenti Sigurður Geirdal bæjar-
stjóri þeim ávísun frá bæjarstjórn
Kópavogs í þakklætis- og viður-
kenningarskyni fyrir framlag
þeirra til íþróttanna í Kópavogi á
árinu.
verður nýja nafnið tilkynnt á fundi
sveitarstjórnar í dag kl. 16.
Kosning fór fram dagana 4.-12.
janúai- og kusu alls 231 einstaklingur
úr sýslunni, en kosningarétt höfðu
allir 16 ára og eldri. Kosið var um
þrjú nöfn, Vestur-Húnabyggð, Húna-
þing vestra og Vestur-Húnaþing.
Valt út í skurð
BÍLVELTA varð rétt norðan við
Borgarnes í gær við golfVöllinn
Hamar klukkan 16. Ökumaðurinn
missti vald á fjórhjóladrifinni fólks-
bifreið sinni í hálku og velti henni út
af veginum og hafnaði á þakinu ofan
í skurði. Ökumann sakaði ekki en
bifreiðin skemmdist töluvert.
Mirabelle
opinn
íjanúar
VEGNA fréttar í Morgunblað-
inu í gær hafa eigendur veit-
ingastaðarins Mirabelle, Anna
María Pitt og Elvar Aðalsteins-
son, óskað eftir því við Morgun-
blaðið að því verði komið á
ft'amfæri að tæki og búnaður
veitingastaðarins Mirabelle,
ásamt nafni staðarins, verði
áfram í eigu þeirra. Eigendur
Grand rokk eignist aðeins leigu-
samning hússins sem veitinga-
staðurinn hefur verið í frá því í
mars í fyrra. Mirabelle verði op-
inn áfram í janúar, en allt sé
óráðið um framhaldið að því
loknu.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Þórólfi
Gíslasyni, kaupfélagsstjóra á Sauð-
árkróki, vegna gi-einar sem birtist í
blaðinu í gær um prófkjör fram-
sóknarmanna á Norðurlandi
vestra:
„Ég undrast skrif Morgunblaðs-
ins þar sem blaðið gerir mér upp
skoðun varðandi prófkjör fram-
sóknarmanna á Norðurlandi
vestra, sérstaklega hvað varðar
stuðning við ákveðinn frambjóð-
anda í 2. sæti á listanum. Undirrit-
aður hefur ekki skrifað upp á
stuðning eða á nokkurn hátt gefið
til kynna stuðning við nokkurn
frambjóðanda í 2. sæti listans,
hvorki Áma Gunnarsson, Elínu
Líndal né Herdísi Sæmundardótt-
ur. Hitt ætti öllum að vera ljóst, að
Kaupfélag Skagfirðinga tekur á
engan hátt þátt í þessu prófkjöri
frekar en öðrum. Starfsmönnum
þess er að sjálfsögðu frjálst að hafa
pólitískar skoðanir, bæði hvað-
varðar flokka og persónur.
Mér þykir miður að Morgunblað-
ið, sem vandaður fréttamiðill, skuli
leyfa sér að birta frétt varðandi
persónulegar skoðanir mínar án
þess að gera minnstu tilraun til
þess að hafa samband við mig, hvað
þá annað.“
ÁHUGAFÖLK
um skilvirkari heilbrigðisstefnu: Nlunið IAN0SÞINGIÐ 23. - 24. jan.
að Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin).
Viðboðum breytingar
FRJALSt )I 0KKURINN
Hlíðasmári 10, 200 Kópavogur. Sími 564-6050. Fax 564-2090.
Netfang: frjalslyndiflokkurinn@centrum.is