Morgunblaðið - 14.01.1999, Blaðsíða 64
34 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Frá vísindum
til verðbréfa
VERSLUNARRÁÐ íslands,
Rannsóknarráð Islands, Aflvaki hf.,
Verðbréfaþing íslands, Eignarhalds-
félagið Alþýðubankinn hf., Kaupþing
hf., Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
efna til ráðstefnu um fjármögnun
nýsköpunar á Hótel Loftleiðum,
föstudaginn 15. janúar milli kl. 13.30
og 16.10.
Dagskráin verður svohljóðandi:
Kl. 14: Opinbert umhverfi áhættu-
fjármögnunar, Finnur Ingólfsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kl.
14.10: Hlutabréfamarkaður fyi'ir
áhættufé í Bandaríkjunum, á
alþjóðavettvangi og NASDAQ hluta-
bréfamarkaðurinn, Alfred R. Berkel-
ey, forstjóri NASDAQ, kl. 15.10:
Samspil rannsókna og þróunar og
tækifæra áhættufjárfesta, Vilhjálm-
ur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
Rannsóknarráðs íslands, kl. 15.20:
Stofnun nýsköpunarfyrirtækja og
fjármögnun á fyrri stigum, Páll Kf'.
Pálsson, framkvæmdastjóri
Nýskögunarsjóðs atvinnulífsins, kl.
15.30: Áhættufjárfestingar á Islandi,
Gylfi Ambjörnsson, framkvæmda-
stjóri Eignarhaldsfélagins Alþýðu-
bankans hf., ki. 15.40: Ráðgjöf við
undirbúning skráningar á verðbréfa-
markað, Jóhann Viðar Ivarsson,
deildarstjóri Kaupþings hf., kl. 15.50:
Islenskur verðbréfamarkaður,
Stefán Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Verðbréfaþings íslands, og kl.
16: Niðurstöður umræðu í ljósi stöðu
og þróunar á Islandi, Vilhjálmur Eg-
ilsson, framkvæmdastjóri Verslunai'-
ráðs Islands og formaður efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis.
Ráðstefnan hefst kl. 13.30. Þátt-
tökugjald er 3.000 kr.
Mótmæla
hækkun á
gjaldskrá
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt samhljóða á fundi
stjómar og fulltrúaráðs Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar:
„Fundur stjórnar og fulltrúaráðs
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, haldinn 11. janúar 1999 á
Grettisgötu 89, mótmælir þeim
gjaidskrárhækkunum sem orðið
hafa undanfarið hjá Reykjavíkur-
borg og öðrum sveitarfélögum í
landinu. Gjaldskrárhækkanir þess-
ar bitna á öllum fjölskyldum og
hafa þegar étið upp þær launa-
hækkanir sem almennt launafólk
fékk um áramótin. Þá er Ijóst að
þær hækkanir sem orðið hafa að
undanfórnu bitna einkum á þeim
sem síst skyldi, bamafjölskyldum
og öldraðum. Lækkun fasteigna-
skatts á móti nýju sorphirðugjaldi
kemur stóreignafólki vel, því sorp-
hirðugjaldið leggst jafnt á alla en
fasteignaskatturinn eftir stærð
eigna.
Rök sveitarstjómarmanna fyrir
þessum hækkunum hafa m.a. verið
þau að launahækkanir kalli á aukin
og ný þjónustugjöld og hærri
gjaldskrár. Þessu mótmælir
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar og telur að með þessari
rökfærslu sé verið að hafa í hótun-
um við launafólk svo það haldi sig á
mottunni þegar kemur að mótun
kröfugerða vegna kjarasamninga á
næsta ári.“
Námskeið
Biblíuskólans
TVÖ námskeið hefjast á næstunni
á vegum Biblíuskólans við Holta-
veg. Svokallað Alfa-námskeið og
námskeið um kristna siðfræði í
ljósi boðorðanna.
Alfa-námskeið verður haldið í
Loftstofunni í Austurstræti 20 og
byrjar 19. janúar og verður til 16.
mars á þriðjudögum einu sinni í
viku. Fjallað verður um lykilatriði
kristinnar trúar, reynt að svara
spurningum þátttakenda og einnig
hópumræður. Sameiginlegar
máltíðir og umræðuhópar efla
kynni og samskipti. Leiðbeinandi
er sr. Kjartan Jónsson. Nám-
skeiðsgjald er 3.900 kr., sem er
kostnaður fyrir mat og námshefti.
Á námskeiðum um Kristna
siðfræði í ljósi boðorðanna verður
lögð áhersla á umfjöllun um frelsi,
synd, sannleikann og virðingu fyrir
lífinu, einkum í ljósi 1. og 6.
boðorðsins. Leiðbeinandi er dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðs-
prestur í Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra. Kennt verður á
miðvikudögum kl. 20-22 frá 20.
janúar til 10. febrúar, samtals 4
skipti. Námskeiðsgjald er 2.000 kr.
Ættfræðinám-
skeið að hefjast
ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN er að
byrja með ný ættfræðinámskeið og
er kennt að Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, en þangað fluttist fyr-
irtækið sl. haust með aðstöðu til
rannsókna og kennslu og sérhæfða
bóksölu í ættfræði.
Boðið er upp á grannnámskeið
fyrir byrjendur og framhaldsnám-
skeið fyrir lengra komna. Á nám-
skeiðunum læra menn til verka við
ættarrannsóknir, fræðast um ætt-
fræðiheimildir, leitaraðferðir og
úrvinnslu í ættarskrám af ýmsu
tagi. Auk þjálfunar í vinnubrögðum
fá þátttakendur gott svigrúm til að
rekja eigin ættir með notkun fram-
heimilda og prentaðra bóka, segir í
fréttatilkynningu.
Leiðbeinandi er sem fyrr Jón
Valur Jensson, guðfræðingur. Inn-
ritun stendur yfir.
BRIDSSKÓLINN
Námskeið á vorönn
hefjast í nœstu viku
Framhald: Hefst þriðjudaginn 19. janúar og stendur
yfir í 10 þriðjudagskvöld frá kl. 19.30-23.00.
Byrjendur: Hefst nk. fimmtudag, 21. janúar og stendur
yfir í 10 fimmtudagskvöld, frá kl. 20.00-23.00.
Nánari upplýsingar og innritun í síma
564 4247 milli kl. 13 og 18 daglega.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Myndir eftir
Sölva Helgason
TIL eru myndir eftir Sölva
Helgason hjá mörgum ein-
staklingum víða um land.
Af skiljanlegum ástæðum
er ekki jafn auðvelt að vita
hvar þær era niðurkomnar
og ef um opinbera aðila
væri að ræða (t.d.
Þjóðminjasafn íslands). Á
þessu ári er fyrirhuguð út-
gáfa á bók um myndlist
Sölva Helgasonar. Væri
æskilegt að allir einkaaðil-
ar, sem eiga myndverk eft-
ii- Sölva, snéra sér til
væntanlegs útgefanda:
Ólafur Jónsson, pósthólf
7077, 127 Reykjavík, eða
hafa samband við hann í
síma 895 9852. Beðið er um
nafn, heimilisfang og síma
viðkomandi og lýsingu á
myndverki (helst ljósrit).
Góðar greinar
í Morgunblaðinu
MIG langar til að benda
fólki á að lesa Viðhorfs-
greinarnar sem birtast í
Moi’gunblaðinu, t.d. grein
Ásgeirs Sverrissonar 8.
janúar. Kristján G. Am-
grímsson færir rök fyrir
því sem hann er að fjalla
um, hvort sem það era
skólamál eða heflbrigðis-
mál, það mætti heyrast
víðar svoleiðis. Þetta era
almennt athyglisverðar og
vel skrifaðar greinar. Svo
er greinaflokkur sem
Súsanna Svavarsdóttir er
að byrja með, Foreldrar
og börn, mér líst mjög vel
á hann. Svo er ég almennt
mjög ánægð með blaðið,
skemmtfleg viðtöl, fjöl-
breytt og skemmtilegt
blað.
Ánægður lesandi.
Um mína sólóplötu,
Insol
FLESTIR tónlistargagn-
íýnendur eru á því að mik-
fl lægð sé yfir íslenskum
hljómplötumarkaði og tón-
listarlífinu yfirleitt, það er
langt frá því að einhvers
konar bylting hafi orðið í
íslensku tónlistarlífí á und-
anförnum árum, í líkingu
við t.d. rokkbyltinguna,
hippabyltinguna eða pönk-
byltinguna. En sum verk
geta brotið upp tímann,
þótt þau séu hunsuð. Ég
tel að góð tónlist sé ekki
endflega byltingartónlist,
eitthvað sem er efst á
baugi eða frumlegt, heldur
eitthvað sem stenst tímans
tönn og hefur um leið eitt-
hvað að segja samtiman-
um, og öllum tímum.
Þegar ég gaf út fyrstu
plötuna mína fyrir síðustu
jól var takmark mitt að
skapa eyrnakonfekt, tón-
list sem lifir af eigin
rammleik. Hún er tflvalin í
útvarpsþætti, rómantíska
sem og kröftuga. Hún er
tilvalin fyrir fólk sem vill
skynja töfra tónlistarinnar
í öllum sínum styrk, heima
eða annars staðar. Þetta er
sameiningarplata, hún er
jafnvel hentug fyrir al-
heimsmarkað, enda er hún
á ensku.
Hvaða hagsmunum
þjóna fjölmiðlamenn sem
auglýsa sömu listamennina
ár eftir ár á kostnað hinna
litt þekktari? Eru þeir
ekki að viðhalda stöðnun-
inni sjálfir?
Ingólfur Sigurðsson,
Digranesheiði 8.
Frá Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur
ÞÖKKUM af alhug allar
styrkveitingar til Mæðra-
styrksnefndar. Með ykkar
hjálp gerðuð þið okkur
kleift að veita um 1100 ein-
staklingum og fjölskyldum
aðstoð fyidr síðustu jól.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur.
Njálsgötu 3, Reykjavík.
Tapað/fundið
Glötuð föt
á Skuggabarnum
SKUGGABARINN, Póst-
hússtræti 11, hefur síðast-
liðið ár fatað sig vel upp af
viðskiptavinum sínum. I
dag, fimmtudag, milli kl
14-18 gefst viðskiptavin-
um kostur á að koma á
Skuggabarinn og athuga
hvort glötuð flík sé þar.
Þær flíkur sem ekki kom-
ast til skfla verða sendar
tfl Rauða krossins.
Hagkaupspoki týndist
HAGKAUPSPOKI með
nýjum fótum týndist
annaðhvort á leið á stræt-
isvagnastöðina á Miklu-
brautinni eða í leið 111 á
leið inn í Mjódd. Skflvís
finnandi hafi samband í
sima 557 3331.
Dýrahald
Stórt kanínubúr
fæst gefins
STÓRT kanínubúr fæst
gefins. Upplýsingar í síma
554 1060.
Tveir kettlingar
fást gefins
TVEIR 5 vikna kettlingar
fást gefins. Upplýsingar í
síma 568 2049.
SKAK
Ilmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á hinu
árlega nýjársskákmóti í
Hastings í
Englandi. Ivan
Sokolov (2.620),
Bosníu, hafði
hvitt og átti leik
gegn Englend-
ingnum Jim
Plaskett (2.455).
25. Dg5! - Bxel
(Eða 25. - Rc4
26. Dh6 - gxhó
27. Rg5 og vinn-
ur) 26. De5+ -
Hf6 27. Rexf6 -
Rc4 28. Dxel -
gxh5 29. Bd7 og
Plaskett gafst
upp.
Úrslitin í Hastings að
þessu sinni urðu: 1. Ivan
Sokolov 7 v. af 9 möguleg-
um, 2.-6. Speelman, Emms
og Sadler, Englandi,
Ponomaiev, Úkraínu og
Shipov, Rússlandi 5 v., 7.-9.
Mfles og Plaskett, Englandi
og Fressinet, Frakklandi
S'Æ v., 10. Saltajev, Ús-
bekistan 214 v.
HVÍTUR leikur og vinnur.
HOGNI HREKKVISI
Br hann nú oJéur kotninn mtb éa/báiancLi
Víkverji skrifar...
KUNNINGI Víkverja brá sér á
skíði í upphafi skíðatíðar í
Bláfjöllum. Fólk hafði tekið vel við
sér og var greinilega orðið
óþreyjufullt að komast á skíði og
fá svalt og frískt fjallaloftið í lung-
un eða svo hélt kunninginn.
Skólafólk var í jólafríi þessa daga
og leyndi sér ekki að fréttir af
óvæntri opnun skíðasvæðisins féllu
í góðan jarðveg hjá börnum og
unglingum, sem voru í áberandi
meirihluta með skíði sín og
snjóbretti.
Það sem vakti hins vegar óhug
kunningjans voru reykingar ung-
linganna við lyftuhús, framan við
veitingaskálann og jafnvel í lyftun-
um. Piltar, rjóðir í kinnum og ekki
sprottin grön, og stúlkur á svipuðu
reki vora sífellt að kveikja sér í
vindlingum svo stöðug reykinga-
lykt var í loftinu þá þrjá tíma sem
maðurinn var á skíðum. Síðan var
stubbunum hent í snjóinn og ekki
hugsað um það meir.
Kunninginn hugsaði með sér að
mikið hlyti krökkunum að þykja
það gott að geta verið í friði frá
umvöndunum hinna eldri og reykt
áhyggjulaust við þessa fínu
íþróttaiðkun sem skíða- og
snjóbrettamennskan er. Næði
hann augnsambandi við reykinga-
fólkið leit það flóttalega undan
eins og það skammaðist sín fyrir
að blanda saman íþróttum og
reykingum.
Margir voru örugglega nýbyrj-
aðir að reykja og ákvað kunning-
inn, að næst þegar hann sæi ung-
lingana í Bláfjöllum reykja,
ætlaði hann að athuga hvernig
þeir brygðust við ef hann spyrði
einhvern þeirra nokkurra spurn-
inga um reykingarnar í biðröðinni
eftir stólalyftunni. Sumir kalla
slíkt nöldur en eigi að síður ætlar
maðurinn að ræða við nokkra
ósjálfráða reykingamenn næst
þegar hann fer á skíði og muna
svörin.
EKKI er skrifari þeirrar
skoðunar að óspektirnar í
Hagaskóla séu einangrað fyrir-
bæri og aðeins að finna í þeim
skóla. Ostýrilátan hóp nemenda
er ábyggilega að finna í öllum
skólum þar sem nokkrir baldnir
strákar fara fremstir í flokki. Oft
áður hefur skrifari hejrrt talað um
kínverja og flugelda í öðrum skól-
um þó ekki hafi verið um jafn al-
varlega atburði að ræða og í
Hagaskóla. Þar hafa atburðir hins
vegar farið úr böndum að undan-
förnu og það er beinlínis skylda
foreldra, kennara og nemenda að
taka höndum saman til að koma í
veg fyrir frekara tjón á starfi og
orðstír þessa merka skóla. Það er
þó ekki nóg að einblína á Haga-
skólann. Skólafólk og foreldrar al-
mennt þurfa að líta á atburði síð-
ustu vikna sem víti til varnaðar og
kannski að líta sér nær en gert
hefur verið. Agaleysi er alltof víða
í skólakerfinu og annars staðar í
samfélaginu.