Morgunblaðið - 14.01.1999, Qupperneq 68
68 FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Eurovision hefst í Jerúsalem 29. maí
Selma keppir fyrir
Islands hönd
SELMA Björnsdóttir hefur ver-
ið fengin til þess að syngja fyrir
Islands hönd í Eurovision,
söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva. Selma söng sem
kunnugt er aðalhlutverkið í
söngleiknum Grease í Borgar-
leikhúsinu í fyrra.
Hún vill ekki tjá sig um málið
að svo stöddu þar sem lagið
hefur enn ekki verið samið og
ekki hefur verið ákveðið hver
verða henni til fulltingis í
keppninni.
Þorvaldur B. Þorvaldsson mun
semja lagið ásamt Selmu. Þau
gerðu sem kunnugt er tónlistina
við síðustu kvikmynd Hilmars
Oddssonar, Sporlaust, og hafa
haldið samstarfinu áfram eftir
það. „Við höfum verið að semja
fleiri lög en það er ekki komið á
neitt stig,“ segh- hún.
Eurovision fer fram í Jerúsal-
em í Israel 29. í maí en þaðan
- var söngkonan Dana
International sem vann keppn-
ina í fyrra. „Við hefjumst handa
strax á morgun enda verður
lagið að vera tilbúið 15. mars.
Þá verður það sent, út,“ segir
Selma.
En er hún með fleiri járn í
eldinum? „Það er mest lítið,“
svarar hún. „Ég er danshöfund-
ur fyrir Nemendamótið í Versl-
unarskólanum en annars fer ég
bara á fullt í þetta verkefni.
Ætli það verði ekki ærin vinna.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SELMA Björnsdöttir keppir fyrir Islands hönd í Eurovision.
' *
' ■
DANA syngur sigurlagið í Eurovision 1998,
IHVIMliITS
hefst í *í;
Allt að 70%
Bolirfrákr. 990
Buxur frá kr. 3.500
Skór á allt að
50% afslœtti
Herrapeysur
frá kr. 1.900
Dömupeysur, skyrtur
og buxur frá kr. 1.900
Úlpur frá kr. 3.900
NYTT KORTATIMABIL
Kringlunni,
sími 533 1718
WHOOPI með tveimur öðrum gamanleikurum, Billy Crystal
og Robin Williams.
Whoopi kynnir
Oskarsverðlaunin
OG VINNINGSHAFINN er...
Whoopi Goldberg. Nú þegar ekki
er enn búið að birta tilnefningar til
Oskai’sverðlaunanna er gamanleik-
konan Whoopi Goldberg þó komin
með sinn vinning, en síðasta þriðju-
dag var hún valin sem kynnir há-
tíðarinnar 1999.
Þetta er í þriðja skipti sem
Whoopi Goldberg kynnir hátíðina
og sagði hún í samtali við fjölmiðla
vestanhafs að hún væri himinlifandi
yfir starfanum. „Hver hefði trúað
að ég myndi styðja Oskarsverð-
launahátíðina inn í nýja öld,“ sagði
leikkonan brosmilda, en ekki er víst
að allir séu henni sammála um ald-
arlokin, en það er önnur saga.
Whoopi, sem vann Oskarsverð-
laun sem besta leikkona í aukahlut-
verki árið 1991 fyrir hlutverk sitt í
„Ghost“, stjórnaði verðlaunaaf-
hendingunni í fyrsta skipti árið
1994 og síðan aftur árið 1996, og
fyrir frammistöðuna fékk hún til-
nefningar til Emmy-sjónvarps-
verðlaunanna.
Oskarsverðlaunahátíðin verður
haldin 21 mars í Dorothy Chandler
Pavilion í Los Angeles og verður
henni sjónvarpað beint á ABC
sjónvarpsstöðinni.
Gil Gates, framleiðandi verð-
launahátíðarinnar, sagðist mjög
ánægður með valið á Whoopi.
„Hún er ótrúleg. Þegar ég bað
hana um að kynna Oskarsverðlaun-
in í fyi-sta skipti heillaði hún áhorf-
endur upp úr skónum með
skemmtilegri framkomu og góðum
bröndurum... Frábærir gamanleik-
arahæfileikar hennar gera hana að
fullkomnum kynni hátíðarinnar,“
bætti hann við.
Billy Crystal, sem hefur kynnt
Oskarsverðlaunin sex sinnum alls,
og var kynnirinn í fyrra, þáði ekki
boð um að endurtaka leikinn.
Björk tilnefnd
til Grammy
-verðlauna
► TÓNLISTARMYNDBAND við lag Bjarkar,
Bachelorette, er tilnefnt til Grammy-verðlaun-
anna í fiokki stuttra tónlistarmyndbanda, en
41. Grammy-verðlaunahátíðin fer fram í
Shrine Auditorium í Los Angeles 24. febrúar
næstkomandi. Leiksljóri myndbandsins er
Michael Gondry en Georges Bermann og Julie
Fong eru framleiðendurnir.
Þau myndbönd sem keppa til úrslita í þess-
um flokki eru auk „Bacheloret1e“ „Pink“ með
Aerosmith, „Ray of Light“ með Madonnu, „All
Around the World“ með Oasis og „Do the
Evolution" með Pearl Jam. Myndböndin verða
að hafa verið gefin út á timabilinu 1. október
1997 til 30. septcmber 1998.
LEIKLIST OG TÓNMENNT
BARNA OG UNGLINGA
Þórey
Ásta Nanna
Leiklist
4-6 ára
10-12 ára
13-15 ára
Leiklist
7-9 ára
Tónmennt.
4 5ára ffáRJWÝ
■Húste
s. 551 5103