Morgunblaðið - 14.01.1999, Síða 76
Það besta
úr báðum heimum!
unix og NT = hp
OPINKERFIHF
¥tip% hewlett
mHiím packaro
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1, 103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristinn
Heitt og kalt
STARFSMENN Hitaveitunnar voru í óða önn að gera við hitaveitu- þar leið um. Þeir voru að endurnýja hluta úr hitaveitulögninni sem
lögn við Bústaðaveg í gær þegar ljósmyndarí Morgunblaðsins átti liggur frá Reykjum niður í Oskjuhlíð.
Vilja viðræður um kaup
á Aburðarverksmiðjunni
TVEIR hópar fjárfesta, sem buðu
hvor í sínu lagi í Aburðarverk-
smiðjuna hf. í ágúst 1997, hafa nú
sameinast og munu vera tilbúnir
til viðræðna við nefnd um einka-
væðingu ríkisfyrirtækja með
ákveðin kaup í huga. Hóparnir
hafa fengið fleiri fjárfesta til liðs
við sig en það eru einkum forráða-
menn Kaupfélags Eyfirðinga á
Akureyri sem gengist hafa fyrir
þessum viðræðum.
Tvö tilboð bárust í Aburðarverk-
smiðjuna hf. í ágúst 1997 og í októ-
"'Tfcier sama ár hafnaði landbúnaðar-
ráðherra báðum tilboðunum að
fengnu áliti einkavæðingarnefnd-
ar, en hún taldi þau of lág. Hljóð-
aði annað upp á 725 milljónir
króna og hitt 617 milljónir, en
verðbréfafyrirtækið Handsal hafði
talið verðmæti verksmiðjunnar
kringum einn milljarð króna.
Lægra tilboðið var frá nokkrum
kaupfélögum og það hærra frá
fyrirtæki sem nefnist Gufunes.
Með KEA, KÁ og fleiri kaupfélög-
um eru m.a. Sláturfélag Suður-
lands og Sölufélag garðyrkju-
manna. Þessir aðilar og Gufunes-
hópurinn munu nú hafa náð saman
og fengið nokkra fjárfesta, m.a.
Kaupþing, til samstarfs um við-
ræður við einkavæðingarnefnd
með kaup í huga. Myndi eignarað-
ild skiptast jafnt milli þessara
þriggja hópa.
Vilja framhaldsviðræður
Hópurinn vill líta svo á að geng-
ið verði til framhaldsviðræðna við
einkavæðingarnefndina sem hafn-
aði tilboðunum tveimur á sínum
tíma og að verksmiðjan verði ekki
auglýst á ný. Telja forráðamenn
hópsins sig hafa viðræðugrundvöll
um kaup á viðunandi verði. Hafa
þeir rætt við einstaka fulltrúa í
einkavæðingarnefnd en hún ekki
sýnt viðbrögð ennþá og hefur
Morgunblaðið heimildir fyrir því
að óþolinmæði sé tekið að gæta í
hópnum.
Fáist ekki botn í málið fljótlega,
hvort ríkið hafi raunverulegan
áhuga á sölu fyrirtækisins, sé ljóst
að þessir aðilar muni leita eftir
áburðarkaupum frá Þýskalandi
eða Noregi í samkeppni við Aburð-
arverksmiðjuna.
Jólahangikjöt olli
matarsýkingu
Varað við
of hægri
kælingu
TALIÐ er að 14 manns hafi fengið
matareitrun um síðustu jól eftir að
hafa borðað hangikjöt sem hafði verið
látið kólna of hægt í soðinu, en Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur telur að
slík meðferð geti verið mjög varasöm.
I sumum leiðbeiningum um suðu-
meðferð hangikjöts er mælt með því
að kjötið sé látið kólna í soðinu en
Rögnvaldur Ingólfsson hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur varar
fólk við of hægri kælingu soðinna
kjötrétta, þar sem slíkt geti leitt til
þess að dvalargró baktería vakni,
sem verða að lifandi sýklum.
■ Of hæg kæling/20
483 leitað
til Neyðar-
móttöku
FRÁ því að Neyðarmóttaka vegna
nauðgunar á Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur var opnuð í mars 1993 hafa 483
einstaklingar leitað til deildarinnar
vegna kynferðislegrar misnotkunar.
Þar af eru 27 karlmenn. Um er að
ræða fólk á aldrinum 12 ára til 78
ára.
Eyrún Jónsdóttir, forstöðumaður
Neyðarmóttökunnar, segir að mun
fleiri hafi leitað til deildai'innar í
fyrra en á fyrstu árum hennar. Um
helmingsaukningu sé að ræða. Hún
segist telja að ástæðan sé fyrst og
fremst að fólk viti í dag betur af
þessari hjálp og leiti frekar eftir
henni en áður.
■ Grunur um/10
-------------
Játuðu
sprengingar
í Hagaskóla
ÞRÍR drengir hafa játað að hafa ver-
ið valdir að sprengingum í Haga-
skóla fyrstu daga ársins. Ollu þær
nokkru tjóni og var nemendum og
starfsmönnum skólans talin stafa
hætta af þessu framferði.
Lögreglan í Reykjavík hefur unnið
að rannsókn málsins undanfarna
daga og telst það nú upplýst. Játuðu
piltarnir að hafa haft skotelda undir
höndum og verið með þá við skólann
og í honum.
Aðsóknar-
met á
Titanic
BANDARÍSKA stórmyndin
Titanic gnæfði yfir aðrar í að-
sókn á síðasta ári en hana sáu
alls 124.008 manns. Það mun
vera aðsóknarmet í kvikmynda-
hús hér á landi.
Næsta mynd á eftir Titanic
er myndin Ragnarök eða „Arm-
ageddon", en alls seldust á hana
47.660 miðar.
■ Titanic/39
Tíð hálkuslys
á höfuðborg-
arsvæðinu
HANDLEGGS- og fótbrot, svo og ökkla-
brot, hafa verið tíð á höfuðborgarsvæðinu
-*íið undanförnu enda víða hálka á gang-
stéttum. Hlynur Þorsteinsson, læknir á
slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, segir
slysahrinu af þessum toga árvissa í því
hálkufæri sem nú ríkir.
Auk brota á handleggjum og fótleggj-
um segir Hlynur ökklabrot nokkuð tíð en
þau verða einkum er menn hrasa og snúa
Tpökklann undir sér. Þá segir hann talsvert
hafa verið um mjaðmarbrot en aldraðir
verða einkum fyrir þeim. Segir Hlynur
jafnvel nokkuð meira um slík brot að und-
anförnu. Aukinn íjöldi gæti eitthvað
skýrst af því að aldraðir hafa verið meira
á ferðinni, m.a. vegna jólanna. Hlynur
kvaðst hafa á tilfinningunni að aldraðir
notuðu mannbrodda eða aðrar varnir
meira en áður og minnti hann á að slíkt
væri sjálfsögð varúðarráðstöfun.
Tveir hópar skera sig úr
Tveir hópar skera sig nokkuð úr hvað
fjölda varðar á handleggs- og fótbrotum
að sögn Hlyns, en það eru annars vegar
börn og hins vegar eldri konur. Börnin
eru mikið á ferðinni og ærslast og konur
geta verið viðkvæmari fyrir höggum á
handleggi og fótleggi þegar aldurinn fær-
ist yfír. Hlynur sagði brot hjá börnum oft-
ast gróa vel og þau væru yfírleitt ekki erf-
ið viðureignar.