Morgunblaðið - 14.02.1999, Side 1
37. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Ómar
__________VETRARSTILLUR VIÐ GULLFOSS
Léttir yfír lyktum mála-
ferlanna gegn Clinton
Washington. Reuters.
Öfgafullir gyðingar í ham
Ótti við
blóðug átök
Jerúsalem. Reuters.
LEIÐTOGAR bókstafstrúaðra gyðinga í
Israel ætla að stefna hundruðum þúsunda
manna saman í Jenísalem í dag til að mót-
mæia nýuppkveðnum dómi hæstaréttar
landsins. Er óttast, að til uppþota geti
komið en vaxandi ágreiningur er meðal
Israela um hve mikill þáttur trúariegra
kennisetninga eigi að vera í daglegu lífi.
Allt frá stofnun Israels hefur verið tekist
á um það hvort ríkið eigi að lúta aimennum
lýðræðisreglum eða kennisetningum gyð-
ingdómsins en nýlegur dómur hæstaréttar
fyilti loks mælinn að dómi liinna bók-
stafstrúuðu. Þar voru almenn mannrétt-
indi tekin fram yfir trúarlögmálið og með-
ai annars efast um lögmæti þess að undan-
skiija tugi þúsunda bókstafstrúarmanna
herþjónustu.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra
Israels, reyndi án árangurs að fá rabbíana
til að hætta við fundinn í dag en Ezer
Weizman, forseti Israeis, segist óttast, að
hann geti endað með blóðsúthellingum.
Hóta borgarastyrjöld
Bókstafstrúarmenn eru ekki nema 10%
Israela en stjórnmálaflokkar þeirra ráða
miklu um stjórnarmyndun í landinu. Einn
helsti leiðtogi þeirra, Ovadia Yosef, sagði í
siðustu viku, að hæstaréttardómararnir
væru útsendarar hins illa og hafa ýmsir
lagt til, að hann verði kærður fyrir þau
ummæli. Stuðningsmenn hans hóta hins
vegar borgarastyrjöId verði hann dæmdur.
Bin Laden
„horfinn“
Islamabad. Reuters.
SAUDI-Arabinn Osama bin Laden, sem sak-
aður hefur verið um að standa að baki ýms-
um hryðjuverkum, er „týndur“ og ekki vit-
að hvort hann er innan landamæra
Afganistans. Skýrði talsmaður Talebana-
stjórnarinnar í Kabúl frá þessu í Pakistan í
gær.
Talsmaðurinn, Maulvi Mohammad
Haqqani, sagði, að bin Laden, sem var tal-
inn dveljast í borginni Kandahar í suður-
hluta Afganistans, hefði ekki fundist þar á
föstudag og væri nú ekkert vitað uni dval-
arstað hans. „Gestur okkar er horfinn,"
sagði hann við fréttamann Reuters-frétta-
stofunnar.
Bin Laden er talinn hafa skipulagt
hryðjuverkin við bandarisk sendiráð í Aust-
ur-Afríku á síðasta ári en talsmaður Tale-
bana sagði, að Kabúlstjórnin hefði ekki beð-
ið hann að yfirgefa landið.
ALMENNINGUR í Bandaríkjunum og raun-
ar fólk víða um heim fagnaði því í gær, að
málaferlunum gegn Bill Clinton, forseta
Bandaríkjanna, skyldi vera lokið. Ymsir
repúblikanar og einkum saksóknarar fulltrúa-
deildarinnar átöldu hins vegar öldungadeild-
ina fyrir að hafa sýknað forsetann af tveimur
ákærum, sem vörðuðu embættismissi. Sögðu
þeir, að deildin hefði grafið undan málatilbún-
aði þeirra, aðallega með því að hafna beinum
vitnaleiðslum, en lögðu samt áherslu á, að þeir
væru ekki í neinum hefndarhug.
„Við lögðum staðreyndirnar á borðið, vísuð-
um til viðeigandi laga og fyrri málsmeðferðar
í öldungadeildinni og þá urðu sumir þingmenn
hræddir,“ sagði Steve Buyer, fulltrúadeildar-
þingmaður repúblikana fyrir Indiana. „Ég
harma, að þeir skyldu ekki hafa farið eftir
sannfæringu sinni og samvisku."
Niðurstaðan í öldungadeildinni er mikið
áfall fyrir repúblikana og sérstaklega fyrir
það, að íyrir hvorugri ákærunni fékkst ein-
faldur meirihluti, hvað þá aukinn meirihluti
eða tveir þriðju atkvæða, sem til þurfti.
Saksóknarar segja
öldungadeildina hafa
eyðilagt málið
Sögðu saksóknararnii-, að málið hefði verið
eyðilagt er öldungadeildin hafnaði beinum
vitnaleiðslum en lét sér nægja myndbands-
upptökur af viðtölum við þrjú vitnanna, þau
Monicu Lewinsky, Vernon Jordan, náinn vin
Clintons, og Sidney Blumenthal, ráðgjafa for-
setans.
Þrátt fyrir ósigurinn kváðust saksóknar-
amir ekki sjá eftir neinu og vildu nú taka aft-
ur til við venjuleg þingstörf.
Hyde segir nóg komið
Að lokinni atkvæðagreiðslunni skoraði
Henry Hyde, formaður dómsmálanefndar
fulltrúadeOdarinnar og oddviti sak-
sóknarannna, á Kenneth StaiT, sem rannsak-
aði málið gegn Clinton, að höfða ekki sjálf-
stætt mál á hendur forsetanum eins og hann
hefur látið liggja að. „Það yrði engum til góðs
eftir allt það, sem við höfum gengið í gegn-
um,“ sagði Hyde.
Bandarískur almenningur hefur almennt
látið í ljós feginleik með, að þessum málum
skuli nú lokið og sömu sögu er að segja af
fólki í öðrum löndum. Fyrrverandi sendiherra
Itala í Bandaríkjunum sagði, að öll heims-
byggðin varpaði öndinni léttara en evrópskir
leiðtogar vildu ekki láta neitt eftir sér hafa
annað en það, að um þetta mál hefði öldunga-
deildin fjallað og nú væri því lokið.
Clinton sterkari eftir?
Fréttaskýrendur efast um, að réttarhöldin
gegn Clinton hafi veikt stöðu hans á alþjóða-
vettvangi og sumir telja raunar, að þau hafi
beinlínis styrkt hann. Frammámenn víða um
heim, sem fæstum hafi fundist mikið til um
yfirsjónir hans, muni nú meta hann sem af-
burðastjórnmálamann.
■ Repúblikanar/6
Viðskiptin færast
á suðvesturhornið
Stefnan felst
í fólkinu
FIÍ
28