Morgunblaðið - 14.02.1999, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Risarnir Real Madrid og Barcelona mætast í spænsku knattspyrnunni í dag
15 ár frá síðasta sigri
Madrid á Camp Nou
Viðureignir „risanna“ í spænskri
knattspymu, Real Madrid og
Barcelona, eru ekki venjulegú’
kappleikir. Segja má, með nokkrum
ýkjum þó, að þjóðfélagið allt á Spáni
fylgist með leikjum þessum og und-
irbúningnum fyrir þá. Innlifunin er
lyginni líkust, algengt er að menn
þjóti út £ glugga eða út á svalir og
öskri „gooooooool“ (mark) þegar
átrúnaðargoðunum tekst að koma
boltanum í net andstæðinganna og
eftir leikinn er það venja að aðdá-
endur sigurliðsins aki um götur
stærstu borga Spánar æpandi,
flautandi og öskrandi í hamslausum
fógnuði. Skemmtilegri kvöldstundir
bjóðast ekki á hverfískránni.
Liðin mætast á Camp Nou, heima-
velli Barcelona, kl. 16 að íslenskum
tíma í dag, sunnudag (Sýn kl. 15.55).
Þessi tímasetning er óvenjuleg því
venjan hefur verið sú að leikir þessir
fari fram á laugardagskvöldum og að
þeir séu sýndir beint í opinni dag-
skrá. Vegna flókinna deilna um út-
sendingarrétt varð niðurstaðan hins
vegar sú að leikurinn verður sýndur
í áskriftai'sjónvarpi. Mun það mál
allt trúlega hafa einhver eftirmál
enda eru það talin mannréttindi á
Spáni að almenningi gefist tækifæri
til að fylgjast með knattspymuleikj-
um í opinni útsendingu.
Hatur
Hatrinu sem ríkir á milli öfga-
fyllstu stuðningsmanna þessara liða
fá menn aðeins trúað kynnist þeir
því af eigin raun. Sögulegar ástæð-
ur eru m.a. fyrir þessu en í tíð
Franeisco Franco, einræðisherra á
Spáni, var heimavöllur Barcelona
eini staðurinn í landinu þar sem
menn gátu óhræddir talað kata-
lónsku. Þjóðemishyggjan er enn
æði djúpstæð í Katalóníu og þar
bendla menn Madrid-liðið við mið-
stjórnina í höfuðborginni og kúgun-
ina í tið Francos.
Liðin eiga þó ýmislegt sameigin-
legt. Þannig eru þau hin einu ásamt
Athletic de Bilbao sem ekki hafa
fallið úr spænsku fyrstu deildinni í
knattspymu.
Harla óvenjulegt er að leikmenn
fari á milli þessara liða. Af þeim
leikmönnum sem verða á vellinum
er framherjinn Luis Enrique hjá
Barcelona sá eini er leikið hefur í
treyju beggja liða. Ýmsir frægir
kappar hafa hins vegar afrekað það
og má þar nefna Danann Michael
Laudmp og þýska herkilinn Bernd
Schuster.
Óvildin er þó ekki bundin við
áhangendur liðanna. Forráðamenn
þeirra hafa oftlega deilt hart á opin-
berum vettvangi og ekki sparað
stóryrðin. Greinilegt er hins vegar
að menn hafa reynt að slá á spenn-
una fyrir leikinn í dag og hefur und-
irbúningurinn einkennst af óvenju-
legri hófsemi.
Óánægja í herbúðum
Real Madrid
Hætt er því við að spennan verði
ekki jafn yfirþyrmandi og venjulega
þegar þessi lið berjast á knatt-
spymuvellinum. Leikurinn er hins
vegar venju fremur mikilvægur,
sigur myndi tryggja Barcelona
vænlega stöðu á toppi spænsku
fyrstu deildarinnar. Og tölfræðin er
Barcelona hliðholl, Real Madrid
hefur ekki farið með sigur af hólmi í
15 ár á Camp Nou.
Þótt Real Madrid sé aðeins þrem-
ur stigum á eftir meistumnum fyrir
þennan mikilvæga leik er staða lið-
anna ólík mjög um þessar mundir.
Erfiðleikar hafa hrjáð Real Madrid,
óeining hefur komið upp í leik-
Stórliðin í spænsku knattspyrnunni,
Real Madrid og Barcelona, leiða saman
hesta sína í Katalóníu 1 dag. Ásgeir
Sverrisson fjallar um viðureignina og þá
sérstöðu sem leikir þessara liða njóta
í spænsku knattspyrnunni.
Reuters
FRÁ fyrri leik liðanna í september. Fernando Hierro, fyrirliði Real
Madrid, skilur Brasilíumanninn Rivaldo eftir í grasinu.
mannahópnum og á síðasta heima-
leik gegn Real Valladolid gerðist
það að áhorfendur bauluðu á leik-
menn og létu óánægju sína með
frammistöðu liðsins í ljós með því að
veifa vasaklútum svó sem hefð er
fyrir á Spáni. Barcelona hefur aftur
á móti gengið allt í haginn að und-
anfómu. Liðið hefur unnið sjö síð-
ustu leiki sína þó svo að frammi-
staðan í síðasta leik gegn botnliði
Extremadura á útivelli (1-2) hafi
ekki verið yfírtak sannfærandi.
Raúl gegn Rivaldo
Sérstaka athygli vekur að tveir
markaháestu rhennimir í spænsku
knattspymunni munu leika listir
sínar í viðureigninni í dag. Þar ræð-
ir um Brasilíumanninn Rivaldo sem
hefur 12 sinnum sent knöttinn í
mark andstæðinga Barcelona á
þessari leiktíð og snillinginn unga
Raúl González sem hefur gert 13
mörk og er nú óðum að ná fyrri
styrk eftir heldur dapurlega
frammistöðu á síðasta keppnistíma-
bili. Raúl, sem er aðeins 21 árs gam-
all, barg Real Madrid í viðureign-
inni við Valladolid (3-2), skoraði þá
öll mörkin og það þriðja á síðustu
mínútu leiksins. Er hann enda hald-
inn í guðatölu af áhangendum liðs-
ins sem aftur á móti kvarta undan
því að stjömurnar leggi sig ekki
fram og sýni félagi sínu ekki til-
hlýðilega virðingu.
Skelfileg vamarmistök Femando
Sanz, sonar Lorenzo Sanz, forseta
Real Madrid, í þeim leik urðu einnig
til að auka á spennuna í herbúðum
liðsins og haft er fyrir satt að Fern-
ando hinn ungi vilji fyrir alla muni
losna frá félaginu. Hann telji bæði
aðdáendur liðsins og félaga sína á
knattspymuvellinum leggja á sig
fæð ef ekki hatur. Er þjálfarinn,
Hollendingurinn Guus Hiddink,
vændur um að hafa enga stjóm á
leikmönnum, enda ljóst að liðið er
ekki að leika þá knattspyrnu sem
það á að vera fært um.
Luis van Gaal, landi Hiddinks,
hefur aftúr á móti tekið gleði sína á
ný eftir erfitt tímabil fyrir áramót.
Barcelona hefur að vísu tapað
fimm leikjum en liðið skorar
grimmt, hefur gert 45 mörk auk
þess sem hollensku leikmennirnir
virðast loks ætla að standa undir
væntingum. Þá hafa þeir Rivaldo
og Portúgalinn Luis Figo leikið
sérlega vel að undanförnu. Þessir
tveir menn bera öðrum fremur
uppi leik Barcelona-liðsins. Figo
leggur jafnan upp mökk af mörk-
um á hverri leiktíð enda sérlega
skapandi leikmaður.
Rivaldo hefur sýnt og sannað að
þar fer einstaklega hæfileikamikill
leikmaður og fjölhæfur er hann.
Þannig hefur hann gert sex mörk
með vinstri fæti, tvö með þeim
hægri og fjögur með skalla á þess-
ari leiktíð. I fyrra gerði Rivaldo,
sem er 26 ára og vakti fyrst veru-
lega athygli er hann lék með
Deportivo La Corunya 1996-1997,
alls 19 mörk þannig að hann á góða
möguleika á að gera enn betur í ár
Reuters
LEIKMENN Barcelona fagna marki Patricks Kluivert (f.
miðju) i leiknum á Santiago Beranbéu í þriðju umferð
spænsku deildarkeppninnar.
enda var hann keyptur til félagsins í
stað landa síns Ronaldos.
Jafntefli í síðasta leik
Liðin mættust í þriðju umferð 29.
september síðastliðinn á Santiago
Bernabéu, heimavelli Real Madrid.
Um 80.000 áhorfendur sáu liðin þá
gera 2-2-jafntefli í skemmtilegum
leik. Mörk Barcelona skoruðu þeir
Patrick Kluivert og Sonny Ander-
son. Bæði mörk Real gerði Raúl og
víst er að þessi dýrlingur áhang-
enda liðsins getur vel hugsað sér að
bæta í sarpinn á heimavelli erkifj-
endanna. Og biðin eftir sigri á
Camp Nou er orðin löng; Real Ma-
drid lagði Katalóníumennina síðast
að velli þar 26. febrúar 1984 (1-2).
Sigur í dag myndi því reynast
vítamínsprauta fyrir liðið sem sætir
nú dagvaxandi þrýstingi. Jafntefli
telst vel viðunandi en stóru tapi
verður eingöngu líkt við náttúru-
hamfarir.
Bjartsýnin í herbúðum Real Ma:
drid hlýtur þó að vera hófleg. í
leikjum þessara liða á seinni árum
hefur Barcelona sigrað 41 sinni, 11
leikjum hefur lokið með jafntefli en
þeir hvítklæddu hafa unnið 16 leiki.
Sex síðustu leikina á Nou Camp
hafa heimamenn unnið.
Vonir Real Madrid felast í því að
lykilmenn á borð við Predrag Mi-
jatovic og Roberto Carlos taki loks
að sýna sitt rétta andlit auk þess
sem liðið má ekki við því að Raúl
bili. Mijatovic fór vel af stað á þess-
ari leiktíð en hefur átt við meiðsli
að stríða. Enginn vafi leikur hins
vegar á að hann er einn hættuleg-
asti framherji í heimi þegar hann
mætir heill til leiks. Ætla verður að
landsliðsmaðurinn Fernando Mori-
entes verði í framlínunni en hann
hefur verið iðinn við kolann að und-
anförnu og sallað inn mörkum þeg-
ar honum hefur verið hleypt af
varamannabekknum. Þá binda
áhangendur Real vonir við að Fern-
ando Hierro, einn besti leikmaður
Spánverja, geti leikið á ný eftir
meiðsli.
Leikir þessara liða eru að öllu
jöfnu þeir mikilvægustu í spænsku
deildarkeppninni. Viðureignin í dag
verður hins vegar sérlega spenn-
andi, þótt jafnan sé mikið í húfi.
Tímasetningin verður að vísu að
teljast afar óhagstæð en víst má
heita að menn setji hana ekki fyrir
sig og þyrpist á krána til að samein-
ast fyrir framan sjónvarpið í tak-
markalausri ást sinni á knattspyrn-
unni.