Morgunblaðið - 14.02.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 25
Morgunblaðið/Kristinn
TAGGARAR og spreyjarar hafa hér látið hendur standa fram úr ermum.
séð til þess að myndimar séu snyrti-
legar og til prýði. Asa bendir einnig
á að með því að úthluta ungmennum
æíingasvæðum, þar sem þau mættu
úða að vild, væri hugsanlega hægt að
draga úr krotinu annars staðar í
borginni.
Reykjavík i sparifötunum
Arnfinnur Jónsson, skólastjóri
Vinnuskólans, segir að að beiðni
borgarstjórans hafí vinnuskólinn
gert sérstakt átak til að hreinsa
veggjakrotið síðastliðið sumar. „Við
gerðum það enda er það okkar hlut-
verk að fegra og hreinsa borgina,"
segir Arnfínnur. „Við lögðum tals-
verða vinnu í að fínna efni sem hægt
væri að nota og væri bæði gott og
hættulaust og fundum efni sem er
flutt inn frá Svíþjóð. Best er ef hægt
er að þrífa sem mest þannig að
veggjakrotið dofni og mála síðan yf-
ir. Við reyndum að gera þetta í sam-
vinnu við aðrar stofnanir, svo sem
rafmagnsveituna, Landssímann og
SVR en flestar eru þær með fólk til
að þrífa þetta fyrir sig. En þetta er
svo viðamikið að það er erfítt að eiga
við þetta,“ segii- hann.
Arnfinnur segir enn fremur að í
fyrrahaust hafí verið haldin ráð-
stefna í Stokkhólmi um veggjakrot
og var m.a. borgarstarfsmönnum
annarra non-ænna borga boðið til
hennar. Niðurstaða ráðstefnugesta
var m.a. sú að eina vonin til að upp-
ræta veggjakrot væri sú að láta ekki
deigan síga og hreinsa það jafnóðum.
Asa, sem sat einmitt ráðstefnuna,
tekur undir með Arnfinni og segir að
best reynist að fjai-lægja veggjakrot
innan sólarhrings frá því það er
krotað. Umsjónarmaður byggingar,
verslunareigandi eða húseigandi
gæti t.d. haft það fyrir sitt fyrsta
morgunverk að þrífa og mála
veggjakrot sem sprautað hefur verið
kvöldið áður á veggi í hans umsjá. Sá
sem krotar gefst að lokum upp enda
tiljgangslaust að merkja sér staðinn.
„Osnyrtilegt umhverfi býður upp á
veggjakrot,“ segir Asa og bendh' á
að veggjakrotararnir leggi þann
skilning í útkrotaða veggi að hér sé í
lagi að úða.
A borgarráðsfundi 19. janúar var
samþykkt tillaga um að stofna
starfshóp til að skipuleggja umhverf-
is- og fegrunarátak í borginni í til-
efni þess að hún verður ein af menn-
ingarborgum Evrópu á næsta ári.
Verkefnið heitir Reykjavík í spari-
fötunum. Búið er að tilnefna fulltrúa
í starfshópinn og er Helgi Pétursson,
fulltrúi R-listans, formaður hans.
Markmið átaksins verður að virkja
einstaklinga, félagasamtök og fyrir-
tæki í borginni, í samstarfi við borg-
aryfírvöld, að bæta og fegra borgina
og þá sérstaklega miðborgina og
önnur áberandi svæði. Sérstaklega
er nefnt að skipuleggja skuli átak til
að hreinsa veggjakrot. Mælst er til
þess að viðhald og framkvæmdh’ til
að fegra umhverfið fái forgang um-
fram önnur verkefni bæði í ár og á
árinu 2000.
AÐALFUNDUR ÍSLENSKA
HUGBÚNAÐARSJÓÐSINS 1999
Aðalfundur Islenska hugbúnaðarsjóðsins hf. verður
haldinn fimmtudaginn 18. febrúar 1999. Fundurinn
verður í Ársal, Hótel Sögu og hefst kl. 16:00.
Dagskrá:
* Hefðbundin aðalfundarstörf skv. 4.06 grein samþykkta
félagsins.
* Tillaga um heimild stjórnar félagsins um að auka hlutafé
félagsins með sölu nýrra hluta.
* Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum
skv. 55. grein hlutafélagalaga.
* Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins og þær tillögur sem fyrir liggja má nálgast
viku fyrir fund á skrifstofu félagsins að Skútuvogi la, Reykjavík.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fúndarstað.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, verða
að gera það skriflega.
GDK isdn símstöðvar
Fullkomin síma- og
samsk*
@LG
ISDN símstöðvar
&HSBEBHS
Siðumúla 37-108 Reykjavík
S. 588-2800 - Fax 588-2801
TOLVUBOKRDRGAR S
A morgun hefjast hinir árlegu ^ \ I
tölvubókadagar i verslun okkar.
Af því tilefni höfum við pantað — Bpr’T^
fjöldann allan af nýjum titlum.
Ef þú átt ekki heimangengt er dJma
WWW.boksala.is einföld og örugg Leið til
að nálgast mörg þúsund bókatitLa.
Myndræn framsetning auðveLdar þér vaLió.
Við sendum hvert á land sem er.
Sendingarkostnaður fyrir hverja sendingu er aðeins 200 kr. ™
bók/&.l&. /túdLeivtK
Ufl ZrlL ri
Stúdentaheimilinu við Hringbraut • Sími: 5700 777
25-70% afsláttur
LVUBOHfí
6,003 7 03
o