Morgunblaðið - 14.02.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 31
Hann var fyrsti barinn sem opnað-
ur var í sveit á íslandi og tók hátt í
þrjú ár að fá leyfi til að selja þar
áfengi. Hætturnar voru taldar leyn-
ast víða, bændur gátu verið ölvaðir
við að slá og svo framvegis, en leyf-
ið fékkst að lokum. En með tilkomu
bjórsins breyttust drykkjuvenjur
viðskiptavinanna töluvert og okkur
fannst kominn tími til þess að
breyta. Barinn var orðið bam síns
tíma svo við lokuðum honum, end-
urgerðum Gamla bæinn og opnuð-
um þar sveitakaffíhús sem hefur
slegið rækilega í gegn,“ segir Pét-
ur.
Gamli bærinn var byggður árið
1912 af Einari Friðrikssyni, langa-
langafa Péturs, og börnum hans, til
þess m.a. að bæta gestamóttöku í
Reykjahlíð. Pétur segir að senni-
lega sé þetta með fyrstu húsum á
landinu sem byggt var í þeim til-
gangi. „I húsinu býr andi og saga
sem okkur fannst sjálfsagt að varð-
veita,“ segir Pétur. Hann bendir
jafnframt á að á kaffíhúsinu sé eft-
irspurn eftir þjónustu allan daginn
og nýtingin mun betri en nýting
barsins forðum daga.
,Á- kaffíhúsið koma viðskiptavinir
sem vilja sneggri þjónustu en þeir
sem koma inn í sal. I boði eru léttir
réttir, en jafnframt þjóðlegir og
sumir einkennandi fyrir byggðar-
lagið. Við seljum íslenska kjötsúpu í
hádeginu og hún rýkur út. Fólk vill
fá eitthvað nýtt. A öllum matsölu-
stöðum hringinn í kringum landið
færðu venjulegan skyndibita, ham-
borgara, pylsur og samlokur. Við
vildum bjóða upp á íslenskan
skyndibita og kjötsúpan selst vel
sem slíkur," segir Pétur. Að auki
eru að sjálfsögðu ferskur silungur
beint úr vatninu, reyktur silungur
og hverabrauð á boðstólnum.
Aðeins heimabakað
brauð á boðstólum
Allt brauð sem selt er með mat á
hótelinu er heimabakað. Móðir Pét-
urs hefur lengi séð um að baka allt
brauð og þar á meðal hverabrauð,
sem hún bakar á jarðhitasvæðinu í
Bjarnarflagi. „Viðskiptavinir okkar
eru mjög ánægðir með að fá mat
sem er sérstakur fyrir þetta svæði.
Hverabrauðið, silungurinn og kjöt-
súpan eru mjög vinsælir réttir,
bæði meðal Islendinga og erlendra
ferðamanna," segir Pétur.
Pétur segir að veitingastaðirnir
tveir sem reknir eru á hótelinu bæti
hvor annan upp, fremur en að taka
viðskipti hvor frá öðrum. „Þessir
tveir veitingastaðir keppa sín á
milli en gera það að verkum að úr-
valið verður meira fyrir gesti,“ seg-
ir Pétur. Aðspurður segist hann
ekki hræðast aukið framboð gisti-
heimila og hótela við Mývatn, en á
síðasta ári var til dæmis opnað
Lykilhótel á Skútustöðum. „Við
fundum satt að segja ekkert fyrir
því þegar hótelið var opnað á
Skútustöðum, en það er hluti af
aukinni samkeppni sem myndast
hefur á svæðinu. Það er mjög gott
að hafa heilbrigða samkeppni og að
því leyti til fínnst mér það mjög já-
kvætt að það komi fleiri hótel inn á
svæðið sem selja gistingu í háum
gæðaflokki. Það heldur manni bet-
ur við efnið og gerir samkeppnina
heiðarlegri. Eg hlakka virkilega til
að takast á við það næsta sumar,“
segir Pétur.
Hótel Reynihlíð er í dag með 41
herbergi, öll tveggja manna, nema
tvö. Öll eru þau búin baðherbergi,
síma, útvarpi og kaffibakka. Her-
bergin eru þó töluvert ólík og bera
með sér tíðaranda ólíkra tíma, þótt
þeim hafí mörgum verið breytt aft-
ur hin síðustu ár.
Þegar hótelið var opnað árið
1949 voru þar um 20 herbergi án
baðs, en síðan hefur þeim verið
breytt töluvert, stækkuð og bætt
við baðherbergi. Álma með 11 her-
bergjum var tekin í notkun 1960, og
önnur með 8 herbergjum árið 1967.
Árið 1981 voru 18 herbergi byggð
auk fundarsalar, og 1988 voru sjö
ný herbergi tekin í notkun. Hótelið
hefur tekið miklum breytingum frá
því það var tekið í notkun árið 1949,
en þrátt fyrir það ríkir þar alltaf
sami fjölskylduandinn og gestrisni
sem virðist vera fjölskyldunni í blóð
borin.
Pernjaijeijt I Strípur
írákr. 1.800 I írá Iu\ 1.900
v i. Hárgreiðslustofan Edda
______________Sólheimum 1, sími 553 6775_
EUppipg
kr. ðOO
Mæla mig hvar?
Braun eyrnahitamælirinn fæst
í apótekum, góöur fyrir mig
og mömmu.
ThermoScan brRur
irgvrirtrt
fr tofaifúú ut>
Opið hjá okkur í
Aðalstræti 9,
sunnudaginn
14.febrúar frá
kl. 13.00 til 16.00
Líttu inn og fáðu bækling
Starfsfólk Ferðaskrifstofu Reykjavíkur
^enidorm
^ 39,9fin
meðflugvai*,-~
cþarsein
FER0ASKRIFSTOFAI,
REYKJA YIKLJR
AÐALSTRÆTI9, SÍM1552 3200
FAX SS2 9935 - NETFANC:frek@islandia.is
mmmmmar
^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmHmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm