Morgunblaðið - 14.02.1999, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Glutrum ekki niður
einstöku tækifæri
Frá Karli Ormssyni:
NÚ ER kjósendum boðið upp á að
velja um óvenju marga flokka eða
flokksbrot við kosningarnar í vor.
Alltaf eru einhverjir kjósendur sem
láta ginnast af gylliíjoðum nýira
framboða því miður. Aldrei hefur
verið meiri ástæða fyrir kjósendur
sem hafa komið sér í skuldir vegna
húsnæðiskaupa eða námslána að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Sam-
kvæmt skoðanakönnun er unga
fólkið fyrirmynd annarra með
stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn.
Það gerir sér ljóst hvað mikið er í
húfi að haldið verði áfram stjóm
stöðugleikans. Það er alveg víst
sem dagur kemur eftir nóttu að ef
við kjósum vinstra samkrullið rýk-
ur verðbólgan upp úr öllu valdi og
þar með skuldir okkar. Það er
fljótasta leiðin beint í gjaldþrot ef
kjósendur eru svo óheppnir að hér
skapist möguleiki á vinstra sam-
stai-fi.
Ungu kjósendur, vinstra liðið
hefur engar töfralausnir, það vitið
þið. Það takmarkar auðséð dóm-
greindarleysi A-flokkanna að þeir
færi gull og græna skóga þótt þeir
sameinist á lista er fáheyrt. Vinstri
flokkarnir lýsa því yfír að þeir ætli
að stefna að vinstristjórnarmynstri
eftir kosningar. Það hefur alltaf
endað með ósköpum. Höfnum
vinstra samkrulli, munum að sporin
hræða. Það hefur tekið Sjálfstæðis-
flokkinn langan tíma að rétta við
þjóðarbúið eftir vinstri stjórnir.
Rfldsstjórn Davíðs Oddssonar hef-
ur komið verðbólgunni niður í
lægstu tölu sem sést hefur á lýð-
veldistímanum. Sjálfstæðismenn
segja, við höldum áfram á sömu
braut það er besti mælikvarðinn.
Þótt stefna okkar sé frjáls sam-
keppni vil ég segja og reyndar
skora á frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins að láta skynsemi ráða þar
sem prófkjörum er ekki lokið, láta
ekki aldagræðgi koma ykkur í koll
með að sækjast mörg eftir fyrstu
sætum og skapa særindi sem seint
gróa. Glutrum ekki niður þeim
góðu möguleikum sem við höfum til
að Sjálfstæðisflokkurinn nái hrein-
um meirihluta á Alþingi fyrir
stundar hagsmuni. Það eru mörg
sorgleg dæmi um staði sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur náð hrein-
um meirihluta en allt verið eyðilagt
vegna innbyrðis hagsmunaá-
rekstra. Slíkum frambjóðendum
ber að hafna í prófkjöri alveg skil-
yrðislaust. Það eru sannarlega von-
brigði hjá þeim kjósendum sem
vinna að heilindum fyrir flokkinn að
sjá starf sitt enda á þann veg. En
munum, að vinstri stjórnum hefur
aldrei tekist að sitja út heilt kjör-
tímabil, þeim hefur alltaf tekist að
koma á óðaverðbólgu. Við vitum
hvað við höfum. Það unga fólk sem
ekki þekkir visntri stjórn getur
spurt foreldra sína, þeir þekkja
þær.
KARL ORMSSON,
fyrrverandi deildarstjóri.
Yfírlýsing
Frá Porgeirí Porgeirsyni:
VARANLEG bilun í hugbúnaði yf-
irstjórnenda Þjóðskrár hefur valdið
því að kennitalan 300433-3409 er
ónothæf.
Ef sú tala er slegin inn á leitar-
streng skrárinnar kemur upp fom-
eskjuleg ss-manna stafsetning á
nafninu mínu, en því formi nafnsins
hef ég ekki treyst mér til að gegna
síðan í ársbyrjun 1988, að ég breytti
stafsetningu kenninafnsins til sam-
ræmis við lýðræðislegri skoðanir
nútímans.
Fólk sem vill hafa samband við
mig er beðið að nota þá stafsetn-
ingu, sem skráð er í vegabréf nr. A
68331, út gefið af lögreglustjóranum
í Reykjavík í umboði ráðuneytis
dómsmála þann 5. mars árið 1990.
Þar er nafnið skráð svo:
Þorgeir Þorgeirson og þannig er
það réttilega skrifað í samræmi við
lífskoðun og vilja þess sem nafnið
ber. Ofannefnd kennitala gildir þó
áfram um einkafyrirtæki mitt, Les-
hús.
ÞORGEIR ÞORGEIRSON,
rithöfundur.
Meðvirkni (Codependences)
Helgarnámskeið um meðvirkni verður helgina 27. febrúar.
Þroskandi 16 tíma námskeið yfir eina helgi. Skráning er þegar hafin. Kvöldámskeið
hefst 23. febrúar. Fjallað verður m.a. um tiLfinningar, mörk, varnir, stjórnun og stjórn-
Leysi og hvernig hægt er að efla sjálfstraustið
Ráðgjafastofa Ragnheiðar Óladóttur, Síðumúla 33.
Námskeið - stuðninqshópar - viðtöl - tilfinninqavinna.
Nánari upplýsingar i síma: 568 7228 og 897 7225. E-mail: ragnh@mmedia.is
Vinalínu Rauða krossins og Rauðakrosshúsið
bráðvantar fleiri sjálfboðaliða
Rauðakrosshúsið er neyðarathvarf og símaþjónusta fyrir börn og
unglinga og Vinalínan er símaþjónusta fyrir 18 ára og eldri.
Ef þú ert 25 ára eða eldri, hefur 10-12 klst. aflögu á mánuði og vilt
láta gott af þér leiða þá vantar okkur sjálfboðaliða til að svara í síma
Vinalínunnar og Rauðakrosshússins og sinna tilfallandi verkefnum í
Rauðakrosshúsi.
Kynningarfundur verður haldinn í Sjálfboðamiðstöð að Hverfisgötu
105, Reykjavík, sunnudaginn 14. febrúar kl. 20.00. Nánari upplýsingar
fást í Sjálfboðamiðstöð, í símum 551 8800 og 561 6720.
ER SKIPTINEMAÁR Á VEGUM AFS EITTHVAÐ FYRIR ÞIG?
Katrín AFS nemi í Hong Kong 1998-99 ásamt tveimur bekkjarsystrum|
Erum að taka á móti umsóknum til landa
með brottför í júlí-september 1999.
Ennþá er möguleiki á dvöl í
Bandaríkjunum, Brasilíu, Ekvador,
Guatemala, Thailandi, Þýskalandi
og fleiri löndum.
Insólfsstræti 3,
sími 552 5450
www.itn.is/afs
TIL LEIGU
Austurstræti I6
Reykjavík
Jarðhæð - götuhæð um 474 m2
brúttó, mikil lofthæð, ásamt kjallara
sem er um 497 m2.
í dag Reykjavíkur Apótek.
Lögfræðistofan sf.
Pétur Þór Sigurðsson hrl.
Borgartúni 3 I
Sími 562 2311
Rauðakrosshúsið
sími8005151
Vinalínan
sími 800 6464
Fréttir á Netinu
vjti>mbl.is
ALLTA/= eiTTHV'A-EJ NÝTT