Morgunblaðið - 01.04.1999, Side 16
16 D FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Paskamyndir kvik
Þao kenmr ymissa
grasa í kvikmyndahús-
unum yfír páskahátíð-
ina. Þau bjóða upp á
ævintýramyndir og
spennumyndir og gam-
anmyndir. Arnaldur
Indriðason kynnti
sér úrvalið og skoðaði
hvað Mel Gibson,
Drew Barrymore,
James Ivory og Alicia
Silverstone og margir
fleiri eru að sýsla hér
um páskana.
FRAMHALDSMYNDIR og
endurgerðir setja nokkurn
svip á páskamyndirnar í ár
eins og „Payback“ með Mel Gibson
og „Mighty Joe Young“ og Körfu-
boltahundurinn 2, sem sýnd verð-
ur í Stjörnubíói. Einnig eru í bíó-
unum myndir um ástir og ævintýri
og alvarlegri myndir eins og
Óskráða sagan með Edward
Norton og nýjasta mynd
Merchand/Ivory-hópsins, Her-
mannadóttirin grætur aldrei eða
„A Soldier’s Daughter Never
Cries“, auk bresku glæpamyndar-
innar „Lock, Stock & Two Smok-
ing Barrels". Úrvalið er sæmilega
fjölbreytt og ættu flestir að fínna
eitthvað við hæfi.
Aftur til framtíðar
Tímaferðalagsmyndir nutu
mikilla vinsælda fyrir nokkrum
árum og þær hafa verið að birtast
í undarlegustu formum á síðustu
misserum í myndum eins og „Ple-
asantville" og „Austin Power“.
Ein af þessum nýju myndum sem
ferðast um í tíma og rúmi heitir
„Blast from the Past“ og verður
sýnd í Laugarásbíói og Háskóla-
bíói. Leikstjóri er Hugh Wilson
en með aðalhlutverkin fara
Brendan Fraser, Alicia Silversto-
ne, Christopher Walken og Sissy
Spacek. Um er að ræða gaman-
mynd sem segir af fjölskyldu er
dvalið hefur í 35 ár í skotheldu
neðanjarðarbyrgi sem heimilis-
faðirinn reisti í Kalda stríðinu
þegar Kúbudeilan stóð sem hæst.
Taldi hann öruggt að brotist hefði
út kjarnorkustyrjöld og hefur
ekki hætt sér upp á yfirborðið í öll
þessi ár. Nema nú eru vistir á
þrotum og hann sendir son sinn,
Fraser, til þess að afla birgða og
helst að ná sér í konu ef hann get-
ur. Leikstjórinn Wilson á að baki
ágætlega heppnaðar gamanmynd-
ir eins og „Guarding Tess“ og
„The First Wifes Club“.
Páskamynd Regnbogans er
öskubuskusagan „Ever After“, ást-
armynd frá miðöldum með kunn-
uglegum söguþræði, en myndin er
einnig sýnd í Sambíóunum og
Borgarbíói á Akureyri. Leikstjóri
er Andy Tennant og með aðalhlut-
verkin fara Drew Barrymore,
Anjelica Huston og Dougray Scott.
Endursegir myndin söguna um
Öskubusku með sínu lagi og mun
vera nokkru raunsærri en ævintýr-
ið. Myndin gerist í Frakklandi á
sautjándu öld og það er engin álf-
kona í henni eða talandi mýs. Dani-
elle er ung og falleg kona, vel
menntuð og sjálfstæð, sem heillar
ungan prins upp úr skónum og þarf
auðvitað að hverfa mjög snögglega
af grímuballinu. Huston leikur hina
grimmlyndu stjúpmóður hennar,
Rodmillu, en Scott er prinsinn í
konuleit.
Aðalpáskamynd Sambíóanna
er spennutryllirinn „Payback"
ÚR „Blast from the Past“.
E ndurger ðir
og uppgötvanir
ALLTAF í boltanum; í])róttahundurinn knái.
Barrym°re
BARBARA
Hershey í
„A Soldier’s
Daughter
Never
Cries“.
VINNIE Jones ekki beint fþróttamannslegur í „Lock, Stock“.
með Mel Gibson en hún er endur-
gerð myndar Johns Boormans,
„Point Blank“ eða Af stuttu færi.
Gibson leikur krimma sem svik-
inn hefur verið af félögum sínum
og þegar hann hefur náð sér af
sárum sínum leitar hann hefnda.
Með önnur hlutverk fara De-
borah Unger, James Coburn,
William Devane, Kris Kristoffer-
son og Gregg Henry. Leikstjóri
er Brian Helgeland, sem einnig
skrifar handritið sem byggt er á
bók eftir krimmahöfundinn góð-
kunna Donald E. Westlake. Eitt-
hvað var Gibson óánægður með
framvindu mála þegar Helgeland
hafði skilað myndinni af sér og
vildi taka atriði upp á nýtt og
bæta við öðrum og olli það
nokkrum titringi. „Eg hélt í sann-
leika sagt að ég hefði góðar hug-
myndir fram að færa og bað
Helgeland að skrifa þær niður,“
segir Gibson, sem ekki er óvanur
leikstjórn og hefur m.a. gert
„Braveheart". „Honum leist ekk-
ert á þessar hugmyndir svo ég
spurði hvort hann gæti komið
fram með eitthvað betra og það
gerðist ekki. Eg fékk því annan
handritshöfund til skrafs og ráða-
gerða.“ Málarekstur þessi þykir
sýna að ef stjarnan í Hollywood
er nógu stór þá kemst hún upp
með það sem hún ætlar sér.
Breska bylgjan lifir enn góðu
lífi í „Lock, Stock & Two Smoking
Barrels" er segir af nokkram fé-
lögum sem verða sér úti um pen-
inga með óheiðarlegum hætti.
Fótboltastjarnan Vinnie Jones er
einn af leikurum myndarinnar,
sem Guy Ritchie leikstýrir, en
aðrir sem fram koma eru m.a.
Nick Moran, Dexter Fletcher, Ja-
son Flemyng og Jason Statham.
Leikarinn Tom Cruise á að hafa
sagt eftir að hann sá myndina:
Þessi mynd rokkar!
Disneymyndin „Mighty Joe
Young“, sem Ron Underwood
leikstýrii-, er endurgerð hálfrar
aldar gamallar myndar með sama
nafni um risavaxna górillu sem
flutt er frá Afríku til Los Angeles
og skapar neyðarástand. Upp-
runalega myndin var eins konar
King Kong-mynd með nokkru
minni apa og sama má segja um
þessa. Charlize Theron, Bill
Paxton og Peter Firth fara með
aðalhlutverkin en apinn stóri er
unninn með tölvumyndum og leik-
brúðum.
Háskólabíó fnimsýnir um pásk-
ana nýjustu mynd James Ivory
sem heitir „A Soldier’s Daughter
Never Cries“. Samstarf Ivorys,
Ismael Merchants og handritshöf-
undarins Ruth Prawer Jhabvala
hefur skilað mörgum merkilegum
myndum eins og Herbergi með út-
sýni og Dreggjar dagsins.
Dóttir James Jones
Myndin gerist á sjöunda og átt-
unda áratugnum og segir af fjöl-
skyldulífi fyrrverandi hermanns
úr seinni heimsstyrjöldinni sem
orðinn er frægur rithöfundur og
býr í París ásamt eiginkonu sinni
og dóttur. í myndinni heitir höf-
undurinn Bill Willis og er leikinn
af Kris Kristofferson en hún er
byggð á ævisögulegri bók Kaylie
Jones, dóttur rithöfundarins
James Jones, sem skrifaði Héðan
til eilífðar og framhaldið, „The
Thin Red Line“. Sagan er sögð frá
sjónarhóli dótturinnar og fjallar
um þroskaárin í lífi hennar og
hvemig hún tekst á við breyting-
arnar sem verða á unglingsárun-
um, vonbrigði, aðskilnað og dauða.
Önnur páskamynd bíósins er
Óskráða sagan eða „American Hi-
story X“ með Edward Norton í að-
alhlutverki. Hún gerist á meðal
nýnasista í Bandaríkjunum og er
leikstýrt af Tony Kaye, sem lenti í
útistöðum við framleiðandann,
New Line Cinema, þegar hann
fékk ekki að ljúka myndinni eins
og hann vildi. Norton er einn af
efnilegri leikurum Bandaríkjanna
af yngri kynslóðinni og vakti fyrst
athygli sem maður grunaður um
morð í lagatryllinum „Primal Fe-
ar“ og sem lögfræðingur klám-
kóngsins Larrys Flynts í mynd
Milos Foi-mans „The People vs.
Larry Flynt“.
Stjörnubíó framsýnir um pásk-
ana fjölskyldumynd sem heitir
„Airbud 2: Golden Receiver" og
er sjálfstætt framhald
Körfubolta-
hundsins. I
þetta sinn leggur
hinn fjölhæfí
íþróttahundur
körfuboltaskóna á
hilluna erí tekur að
leika amerískan fót-
bolta með góðum ár-
angri. Leikstjóri er
Richard Martin en
með aðalhlutverkin
fara Kevin Zegers,
Cynthia Stevenson,
Gregory Harrison og
Nora Dunn. Fyrri myndin
naut nokkurra vinsælda og
framleiðendumir, sem ætl-
uðu alltaf að gera röð
mynda um íþróttahundinn,
töldu gott að breyta um
íþróttagrein í annairi mynd-
inni. „Þetta er allt annað ævin-
týri,“ er haft eftir framleið-
andanum Robert Vince.
Myndin segir af piltinum
Josh sem misst hefur föður
sinn og er ekkert alltof hrif-
inn af nýja manninum í lífi
móður sinnar. Til þess að
þurfa ekki að vera í of mik-
illi návist við þau skráir
hann sig í ruðnings-
boltalið skólans, en því
hefur satt að segja ekki
vegnað vel að undan-
fórnu. Það á eftir að
breytast þegar hundur
Josh, Buddy, tekur'
óvænt að skipta sér af leiknum.