Morgunblaðið - 01.04.1999, Síða 24
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FULLTRÚAR styrkþega Styrktarfélags vangefinna.
Sundstaðír Hátíðisda£ar
Skírdagur Föstud.langi Laugardagur Páskadagur II. páskadagur
Árbæjarlaug Opið 8:00-20:30 opið 10:00-18:00 opið 8:00-20:30 opið 10:00-18:00 opið 8:00-20:30
Breiðholtslaug opið 10:00-18:00 lokað Opið 8:00-20:00 lokað opið 10:00-18:00
Grafarvogslaug opið 10:00-20:00 lokað Opið 8:00-20:30 lokað opið 10:00-20:00
Laugardalslaug opið 10:00-18:00 lokað opið 8:00-20:00 opið 10:00-18:00 Opið 10:00-18:00
Sundhöllin opið 10:00-18:00 lokað opið 8:00-19:00 lokað Opið 10:00-18:00
Sundl. Klébergi opið 11:00-17:00 lokað opið 11:00-17:00 lokað opið 11:00-17:00
Vesturbæjarlaug Opið 9:00-17:00 lokað Opið 8:00-19:00 lokað opið 9:00-17:00
Styrktar-
félag van-
gefinna
veitir styrki
Á 40 ÁRA afmælisárinu sem nú
er að ljúka ákvað stjórn Styrkt-
arfélags vangefinna að styrkja
nokkur félög sem miða að þátt-
töku þroskaheftra í sínu starfi.
Var eftirtöldum félögum veitt-
ur styrkur til starfsemi sinnar:
Átaki, félagi þroskaheftra,
íþróttafélagi fatlaðra í Reykja-
vík, íþróttafélaginu Osp, Leiklist-
arklúbbnum Perlufestinni,
Iþróttafélaginu Gáska og
Iþróttafélaginu Björk. Voru þess-
ir styrkir afhentir í kaffisamsæti
í fundarsal félagsins.
Helsti viðburður afmæiisársins
var vegleg hátíð á Broadway,
Hótel Islandi, í september, en
hana sóttu um þúsund manns. Af-
mælishátíðin var öll tekin upp á
myndband og geta áhugasamir
fengið það keypt á skrifstofu fé-
Iagsins. Margar góðar gjafir og
hlýjar kveðjur bárust félaginu á
þessum tímamótum og fyrir það
eru færðar alúðarþakkir.
--------------
Landsfundur
Húmanista-
flokksins 1999
HÚMANISTAFLOKKURINN
hélt landfund sinn laugardaginn
27. mars að Fosshótel Lind
Reykjavík. Á fundinum var sam-
þykkt kosningastefnuskrá flokks-
ins vegna alþingiskosninganna í
vor.
Kjörin var stjóm Húmanista-
flokksins en hana skipa: Júlíus
Valdimarsson, talsmaður, Meth-
úsalem Þórisson, Kjartan Jónsson,
Ragnar Sverrisson, Sigrún Þor-
steinsdóttir, Birgitta Jónsdóttir,
Stefán Bjargmundsson, Jón Eyj-
ólfsson og Sigmar B. Hilmarsson.
Húmanistaflokkurinn mun bjóða
fram í öllum kjördæmum í Alþing-
iskosningum í maí nk., segir í
fréttatilkynningu.
------♦-♦-♦---
Breytt
starfsheiti
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi tilkynning til birtingar:
„Hér með tilkynnist að útskrift-
arnemendur Fiskvinnsluskólans
vorið 1999 munu taka upp heitið
Fisktæknir í stað Fiskiðnaðarmað-
ur. Átta nemendur munu útskrifast
þann 14. maí 1999.
Útskriftarárgangur Fiskvinnslu-
skólans vorið 1999.“