Morgunblaðið - 01.04.1999, Blaðsíða 26
j26 D FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NUfíD- OG
LÍKAMSMEÐFERÐ
Kæru viðskiptavinir
Nú hef ég flutt starfsemi mína í Faxafen 14,
þar sem líkamsræktarstöðin Hreyfing er.
Eg býð ófram upp á ýmsar tegundir af nuddi,
verk|ameðferð og slökun.
Aðgangur að sturtum og gufubaði.
HEIMASJÚKRAÞJÁLFUN
Nú hef ég hafið starfsemi sem heimasjúkraþjálfari. Það þýðir að þeir
sem ekki komast í endurhæfingu á stofur, geta fengið þá þjónustu
heim til sin eftir tilvísun læknis og með samþykki tryggingalæknis.
NUDD- OG LÍKAMSMEÐFERÐ
SJÚKRAÞJÁLFUN
Guðrún Þura Kristjánsdáttir. Laugarásvegi 7,104 Reykjavík,
símar 899 0680 og 588 3881.
Morgunblaðið/Þorkell
BRUNNUR í Tete-héraði í norðvesturhluta Mósambik en það svæði fór mjög illa
í borgarastyijöldinni sem ríkti í landinu í nærri tvo áratugi.
Heilnæmt
vatn ræður lífi
og dauða
Sífellt fjölgar þeim
jarðarbúum sem ekki
hafa aðgang að hreinu
og heilnæmu vatni.
Jóhannes Tómasson
tíndi saman fróðleik
og vangaveltur um
vatnið og Þorkell
Þorkelsson myndaði
vatnsverkefni hjá
Hjálparstarfi
kirkjunnar
í Mósambik.
EKKI er óalgengt að neysluvatn sé sótt þennan hátt, fatinu stungið í
holu eftir yfirborðsvatni eða í opinn brunn. Slíkt vatn er mjög mengað
og er ungbarnadauði oft mikili vegna þessa.
VATN ræður úrslitum um það
hvort við lifum eða deyjum. Fái
mannslíkaminn ekki vatn til daglegs
brúks dregur fljótt af honum og
hann tekur að visna. Hérlendis er
vatnið sjálfsagður hlutur en því er
ekki svo farið um nærri þrjá millj-
arða manna sem ekki hafa aðgang
að hreinu og heilnæmu vatni. Pess
vegna hefur Hjálparstarf kirkjunn-
ar ákveðið að halda áfram að styðja
vatnsöflun í Mósambik og leitar nú
til landsmanna eftir stuðningi með
framlög til þess í páskasöfnun sinni.
Helsti vandinn við neysluvatnið í
þriðja heiminum, í hitabeltislöndum
Afríku, Suður-Ameríku og Asíu, er
að oft eru vatnsbólin opin og óvarin.
Þar geta því skordýr lifað góðu lífi,
sníkjudýr og annar ófógnuður sem
ber með sér malaríu, svefnsýki,
gulu og fleiri sjúkdóma milli manna
sem erfitt er að ráða við, ekki síst
þar sem heilbrigðisþjónusta er í lág-
marki. Pá eru vatnsbólin oft langt
utan við þorp og bæi og því þurfa
íbúar, oftast konur eða ungar stúlk-
ur, að sækja vatn og bera langar
leiðir heim. Pá getur kannski verið
freistandi að taka vatn úr lélegum
HEIMAFÓLK vinnur sjálft að gerð brunnanna og segir Þorkell Þorkelsson Ijósmyndari það aðdáunarverða
og skilvirka aðferð. Þannig nýtist fjármunirnir vel. Lútherska heimssambandið, sem Hjálparstarf kirkjunnar
er f sambandi við, sér um að útvega nauðsynlegt efni, svo sem sement og búnað og leggur til verkstjórn.