Morgunblaðið - 01.04.1999, Page 30
30 D FIMMTUDAGUR 1. APRÍL Í999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Verum vel á verði
um páskahelgina
UMFERÐARRÁÐ hefur sent frá sér eftir-
farandi fréttatilkynningu:
„Framundan eru nokkrir frídagar hjá
flestum, eitt lengsta samfellda frí á árinu.
Þess vegna leggja margir upp í ferðalög,
lengi-i og skemmri, njóta þess að vera úti í
náttúrunni eða heimsækja vini og kunn-
ingja.
Undirbúningur ferðarinnar skiptir
miklu máli til að vel takist. Þá þarf að fylgj-
ast með veðurspá og leita upplýsinga um
færð á vegum á þeirri leið sem fyrirhugað
er að fara. Akstursskilyrði geta breyst
mjög snögglega og því þurfa ökumenn að
vera við öllu búnir. Þjónustudeild Vega-
gerðarinnar verður opin alla dagana, mis-
lengi þó. Á skírdag, laugardag og annan í
páskum verður opið frá klukkan 8-22, á
föstudaginn langa frá klukkan 8-12 og á
páskadag frá klukkan 8 til 20. Símanúmer
þjónustudeildarinnar er 1777 og þá gildir
einu hvar fólk er statt á landinu. Upplýsing-
ar eru tiltækar í textavarpi númer 470 og
áfram. Veffang Vegagerðarinnar er:
www.vegag.is
I fréttum útvarpsstöðva eru veittar
upplýsingar um færð á vegum, en einnig
verða útsendingar í Utvarpi Umferðarráðs
á flestum útvarpsstöðvum á skírdag, laug-
ardag og síðdegis á annan dag páska.
Með hækkandi sól hættir sumum öku-
mönnum til að auka hraða meira en góðu
hófi gegnir. Það getur haft alvarlegar af-
leiðingar í för með sér og sömuleiðis er
ástæða til að vara fólk við framúrakstri við
hættulegar aðstæður, en á undanförnum
vikum hefur verið hægt að rekja alvarleg-
ustu slysin í umferðinni til slíks aksturslags.
Rétt er að leggja áherslu á að fólk aki ekki
framúr á vegum með heila óbrotna miðlínu.
Slíkar línur eru eingöngu þar sem ekki er
hægt með fullu öryggi að sjá bíla sem hugs-
anlega koma á móti. Á þessum árstíma ger-
ir það ökumönnum erfitt fyrir að línurnar
eru víða orðnar ógreinilegar eftir veturinn.
Notkun bílbelta er lagaskylda, og þá er
ljóst að öll skynsemisrök sýna fram á gildi
þeirra. Allir sem sitja í bíl í akstri eiga að
spenna beltin, hvar sem þeir sitja í bílnum.
Með því má hugsanlega koma í veg fyrir
óbætanlegan skaða. Áfengi og akstur má
aldrei eiga samleið. Ár hvert verða mörg al-
varleg slys sem rekja má til ölvunaraksturs.
Þá á við jafnt um akstur á vegum og utan
vega. Slys á vélsleðamönnum hafa orðið all-
mörg nú að undanförnu. Þeir eru hvattir til
að sýna aðgát og tillitssemi, ekki síst þar
sem göngu- og skíðafóik er á ferð. Umferð-
arráð sendir ferðafólki óskir um' góða ferð
og farsæla og örugga heimkomu."
Páskadagskráin í allri sinni mynd
Dagskrárblað Morgunblaðsins er nú með breyttu sniði og enn
ríkara að innihaldi en áður. f blaðinu er páskadagskrá allra
sjónvarps- og útvarpsstöðva á einum stað. Meðal efnis í blaðinu
er viðtal við leikarana í páskamynd RÚV sem Hilmar Oddsson
leikstýrir, yfirlit yfir allar beinar útsendingar frá íþróttaviðburðum,
kvikmyndayfirlit, krossgáta, fræga fólkið og stjörnurnar og fjölmargt
annað sem skemmtilegt er að lesa yfir hátíðina.
Hafðu Dagskrárblað Morgunblaðsins nálægt sjónvarpinu
yfir páskana!
Gleðilega páska.
Leikfimi fyr-
ir konur 60
ára og eldri
SJÚKRAÞJÁLFUNIN Táp ehf.,
Hlíðasmára 14 í Kópavogi, mun
eftir páskana standa fyrir leikfimi-
námskeiði fyrir konur 60 ára og
eldri. Um er að ræða sex vikna
námskeið sem hefst þann 12. apríl
og verður kennt á mánudag og
miðvikudag kl.13.15-14.
Á námskeiðinu verður lögð
áhersla á jafnvægisæfingar,
styrktaræfíngar fyrir bolvöðva,
reista líkamsstöðu og æfingar sem
stuðla að auknu öryggi við hreyf-
ingar daglegs lífs. Leikfimi þessi
hentar vel konum með beinþynn-
ingu, segir í fréttatilkynningu. Tólf
konur eni í hverjum hópi.
Leiðbeinendur verða sjúkra-
þjálfaramir Rakel Gylfadóttir og
Þórhildur Olafsdóttir. Allar nánari
upplýsingar fást hjá sjúkraþjálfur-
um Táps.
---------------
Vornám-
skeið gegn
reykingum
NÆSTU vikunámskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun NFLI í
Hveragerði hefjast 12. api-íl, 26.
apríl og 3. maí. Fullt er þann 12.
apríl en nokkur pláss laus á hin síð-
ari. Fleiri námskeiðum verður eft
til vill komið á, segir í fréttatilkynn-
ingu.
„Þátttakendur á hverju nám-
skeiði eru oftast tíu til fimmtán.
Námskeiðið tekur sex daga, frá
mánudegi til sunnudags. Hver
þátttakandi greiðir 17.500 kr. eða
22.400 kr. en verðmunurinn felst í
gistiaðstðunni.
Gert er ráð fyrir að þátttak-
endur hafi drepið í síðustu sígar-
ettunni við upphaf námskeiðs og
reykingar eru ekki leyfðar meðan
á því stendur," segir ennfremur.
--------------------
Morgunkaffi hjá
KFUM
og KFUK á
páskum
KFUM og KFUK býður til fagnað-
ar í aðalstöðvum sínum við Holta-
veg í Reykjavík sunnudaginn 4.
apríl kl. 9 til að minnast og fagna
upprisu frelsarans Jesú Krists frá
dauðum og til að njóta saman sam-
félags og morgunhressingar, segir
í fréttatilkynningu.
Kl. 20.30 verður síðan hátíðar-
samkoma á páskum í aðalstöðvum
KFUM og KFUK. Ritningarlest-
ur, vitnisburður og bæn flytur
Ragnheiður Arnkelsdóttir, skrif-
stofustjóri KFUM og KFUK. Ung
stúlka, Olöf Inger Kjartansdóttir
syngur einsöng og sr. Sigurður
Sigurðarson vígslubiskup flytur
hátíðarræðu. Allir eru velkomnir.