Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 07.05.1999, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 53, sonar og Guðrúnar Þórðardóttur, ár- ið 1932. Þar átti hún heimili til ársins 1987 er amma lést og fléttaðist líf hennar saman við líf fjölskyldu minnai- með vina- og tryggðabönd- um á báða bóga. Guðríður vann öll sín störf af stakri prýði og samvisku- semi. Hún var nákvæm og vandvirk við allt sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var mjög flink í höndunum, saumaði, heklaði, prjónaði og gerði við og var allt handbragð hennai- vandað. Hún kenndi mér ýmislegt gagnlegt, en sumt gerði hún svo vel að ég lagði aldrei í að reyna að leika það eftir. Hún saumaði listavel út og enn eru til bróderuð sængnrverasett frá hennar hendi. Hún reyndist fjöl- skyldu minni afar vel og vil ég þakka þann kærleika og trúmennsku alla. Guðríður var mjög fróðleiksfús og hafði lifandi áhuga á því sem var að gerast, ekki síst í íþróttum og var oft spennt að horfa á sjónvarpssending- ar af íþróttaleikjum. Hún eignaðist ekki börn en hún var afar barngóð kona og þeirrar gæsku nutum við ómælt sem um- gengumst hana sem börn. Hún heklaði fallegar treyjur og skó á ungabörn og gaf í sængurgjafir og prjónaði hosur og vettlinga handa þeim er þau urðu eldri. Hún sýndi bömum lifandi áhuga og þolinmæði, fylgdist með áhugamálum, námi og lífi. Hún var óþreytandi að spjalla og leika við börn. Oft bakaði hún flatkökur og pönnukökur og alltaf gaf hún þeim börnum bita sem voru svo heppin að vera nálægt henni við þau verk. Enn veit ég ekkert betra en pönnukökur beint af pönnunni og mjólkursopa með. Alla tíð var Guðríður mér einstaklega góð og margar minningar koma upp í hug- ann nú þegar hún er búin að kveðja. Við vorum stundum einar heima í nokkurn tíma þegar ég var lítil og þá hugsaði hún sérstaklega vel og samviskusamlega um mig. Hún gerði sér far um að elda mat sem hún vissi að mér fannst góður og oft rifjuðum við það upp, þegar hún eldaði uppáhaldsmatinn minn. Var hann með ýmsum ráðum látinn vera í matinn í nokkra daga því að aldrei fékk ég leið á þessu hnossgæti. En ekki vissi ég hvort hún fékk sig fullsadda á réttinum. Heill heimur minninga tengist sumarbústað afa og ömmu í Kjósinni, þar sem fjölskyldan átti öll góðar stundir saman, sérstak- lega á tímabilinu meðan barnabörn afa og ömmu voru lítil. Þá var AGA- vél í eldhúsinu og fannst öllum börnum spennandi að sjá þegar Guðríður skaraði í glóðina og hellti koksinu á vélina. Sólskinsdagarnir voru svo miklu fleiri á sumrin þegar ég var lítil heldur en þeir eru nú. Þessum dögum tengjast minning- arnar sérstaklega. Þá var fugla- söngur í lofti og ilmur úr grasi. Þá var farið niður að á til að vaða, skola úr þvotti og verka lax. Þá var setið í horninu, farið í sólbað í lautinni, drukkið úti og oftar en ekki borðað- ar heitar pönnukökur sem Guðríður hafði bakað, að ógleymdu heita kan- elbrauðinu. Ekki má gleyma ágúst- kvöldunum sem henni fannst svo rómó og einhvers staðar í minning- unni um þau kvöld hljóma lög sung- in af Hauki Morthens, Ragnari Bjarnasyni, Leikbræðrum, Smára- kvartettinum og einnig Alfreð Clausen. 24. febrúar sl. varð Guðríður ní- ræð og var ánægjulegt að vera með henni þá. Hún naut dagsins mjög vel og gladdist í hópi vina og ætt- ingja. Guðríður hélt heimili fyrir sig í nokkur góð ár eftir að amma dó, en þegar heilsu hennar hrakaði fluttist hún á Droplaugarstaði þar sem hún átti heima í fáein ár og naut mjög góðrar aðhlynningar. Ég þakka öllu hjúki'unar- og starfsfólki á Droplaugarstöðum innilega fyrir umhyggjuna við Guðríði. Einnig vil ég þakka læknum og starfsfólki á Vífilsstöðum fyrir góða umönnun. Guðríður skilur eftir stórt skarð í mínu lífi og fjölskyldu minnar, sem ekki verðui' fyllt upp í. Hún var orð- in háöldruð og hún var hluti af lífinu sem er ekki lengur. Hún mun lifa í hugum okkar sem þótti vænt um hana. Guð blessi minningu hennar. Guðrún Edda. + Kjartan Stein- ólfsson fæddist 10. október 1926. Hann lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans 26. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jóhanna Bjarna- dóttir, látin, og Steinólfur Beni- diktsson, látinn. Fósturfaðir Kjart- ans var Gísli Gísla- son, látinn. Kjartan kvænt.ist Sigríði Erlu Þorláksdóttur hinn 17. júlí 1948. Börn þeirra Elsku pabbi. Það er sárt að setja línur á blað til að kveðja þig. Þó ég viti að við ráðum aldrei okkar næt- urstað. Við vorum svo vongóð að þú mundir koma hress til okkar aftur eftir þessa aðgerð því þú hafðir tek- ist svo oft á við stórar aðgerðir og gengið vel. En þú fórst í þína hinstu ferð og ég á erfitt með að sætta mig við að eiga ekki eftir að hitta þig. En minningarnar sem streyma fram núna um liðna tíð eru ljúfar. Ég man þegar þú komst eitt sinn heim af sjónum og hafðir keypt þrí- hjól handa Láka bróður á leiðinni heim, hvað þú varst montinn að sjá hann hjóla. Eða þegar Gummi bróð- ir fæddist og þú kallaðir hann alltaf GK.sex, því hann er sjötti af okkur systkinunum. Ekki er hægt að gleyma sunnudagsbfltúrunum sem enduðu alltaf með því að höfnin og bátarnir voru skoðuð. Eftir að þú smíðaðir tjaldvagninn leð varla sú helgi á sumrin að þú og mamma færuð ekki í útileigu. Þá kom spurningin hvert fara þau núna því þið tókuð ávallt ákvörðun í Artúnsbrekkunni hvort farið væri um Suðurlandsveg eða Vesturlands- veg. Alltaf fannst þér gaman að hringja og segja: Við skruppum að- eins út fyrir bæinn og lentum á Isa- firði eða á Akureyri. Þig munaði ekkert um að fara vestur á firði eða norður í land þó að það væri bara frá föstudegi til sunnudags. En fyrir níu árum komst þú til mín í hjólhýsið á Laugarvatni og þú hreifst strax af staðnum og ákvaðst að setjast þar að með vagninn. En ekki leið langur tími þar til þú fékkst þér hjólhýsi. Það var gaman að fylgjast með ákafa þínum við að koma þér fyrir og oft þurftir þú að ræða við Gumma minn hvernig þið ættuð að hafa ýmislegt sem var á döfinni hjá ykkur. Og þegar pallurinn var smíðaður í takt við harmonikkutóna sem Ein- ar, einn af íbúum svæðisins, þandi þá ljómaðir þú af gleði og ánægju. Ég veit að við eigum öll eftir að sakna þín, sérstaklega Viktor Ingi eldri sonur Gumma bróður, þú kall- aðir þá bræður alltaf skæruliðana þína. Ég vil þakka þér fyrir allar sam- verustundirnar á Laugarvatni hvort sem það var úti á palli við kertaljós eða í fortjaldinu mínu við að hlusta á harmonikkuleik hjá Einari og Gumma. Ég vil trúa því að þér líði vel núna og góður guð gæti þín. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Erla María. Morgunninn var fallegur en um- hverfið virtist framandi, tilfinningin líkt og við værum stödd á framandi stað, allt fremur óraunverulegt. Við vorum á leiðinni á spítalann, læknir- inn hafði hringt og sagt ættingjun- um að koma, hjartað var veikt og vildi ekki slá lengur, stundin var komin. Þetta er það eina sem við vitum fyrir víst að á eftir að liggja fyrir okkur öllum, að deyja, og við erum aldrei viðbúin sársaukanum og tilfinningaringulreiðinni sem fylgir dauðanum, reiðinni út í al- mættið, en smám saman tínir mað- eru: 1) Erla María, f. 16.10. 1946. 2) Jó- hanna Guðrún, f. 27.11. 1948. 3) Þói'- ir, f. 24.12. 1949. 4) Birgir, f. 7.4. 1951. 5) Þorlákur, f. 16.11. 1958. 6) Guð- mundur, f. 30.3. 1970. Barnabörnin eru nítján og barnabarnabörnin tólf. Utför Kjartans fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnar- firði í dag og hefst athöfnin klukkan 15. ur saman brotin og fyrirgefur guði og sjálfum sér og eftir sitja allar góðu stundirnar og þakklæti fyrir það sem var. Kjartan er nú kominn á stað þar sem hann getur hlaupið um á tveim- ur jafnfljótum frjáls eins og fuglinn, laus við hækjumar. Annars kvart- aði hann aldrei undan þeim örlögum að hafa misst fótinn, því var bara tekið eins og hverju öðru sem að höndum bar. Hans aðaláhugaefni síðustu árin voru börnin og afkom- endurnir og hvað þau væra að gera, hvernig gengi að mála húskofann, gera við bflinn og hvernig liði ef ein- hver var veikur. Hjólhýsið á Laug- arvatni var líka mikill gleðigjafi síð- ustu árin og það eni margar ferðir sem farnar voru austur að Sigríðar- stöðum, húsið nefndir þú Sigi'íðar- staði bara til þess að stríða tengda- mömmu og ekki má gleyma Spánar- ferðunum til Dúdda og Maite sem þið tengdamamma nutuð alveg sér- staklega vel. Ég veit við eigum eftir að hittast aftur, allt hefur sinn tíma. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín tengda- dóttir, Arnþrúður. Mig langar að minnast afa míns í örfáum orðum. Afi Kjartan hefur þurft að ganga í gegnum margt á undanförnum árum. Af hetjuskap og ekki síst þrautseigju barðist hann af krafti og hafði alltaf betur. En nú kom að því að þrautseigja og hetjuskapur dugðu ekki til. Afi þurfti að fara í erfiða hjartaskurð- aðgerð sem hann lifði ekki af. Segja má að örlögin hafi gripið inn í og gefið okkur ættingjunum og vinum fáeina daga í viðbót með honum afa því að pláss hafði losnað svo að að- gerðina átti að framkvæma nokkrum dögum fyrr en áætlað hafði verið. Allt var tilbúið og afi beið eftir að verða sóttur en á sein- ustu stundu hafði eitthvað komið upp á þannig að allt var orðið fullt á gjörgæslu og þar með frestaðist að- gerðin. Þessir fáu en dýnnætu dag- ar voru afa og ekki síst okkur ætt- ingjunum mjög dýrmætir. Eg hitti afa síðast á sumardaginn fyi-sta. Honum leið vel og varð tíð- rætt um þá góðu umönnum sem hann hafði fengið á spítalanum „það vildu bara allir gera allt fyrir hann“. Sem kemur víst fáum á óvart sem þekktu afa því að hann var góður maður. Það er svo skrítið að sama hve gamall maður verður alltaf neit- ar maður að horfast í augu við það að nánir ættingjar manns og vinir geti horfið af braut. Ég trúði því statt og stöðugt að afi minn myndi hafa þetta af á „þrjóskunni". Ég leyfði engri annarri hugsun að kom- ast að. Enda bar síðasta stund okk- ar afa þess merki, við töluðum um framtíðina, útskrift mína úr háskól- anum næsta haust og að þá yrði hann afi nú farinn að hressast. Eg hefði viljað segja svo mai'gt annað við þig, elsku afi minn, hefði ég við- urkennt fyrir sjálfri mér hversu erf- ið þessi aðgerð væri og hverjar lík- urnar væru í raun á að við hittumst aftur. Ég vil þakka fyrir þann tíma sem ég hef átt með þér, elsku afi minn, þær minningar eru mér dýr- mætar. Elsku amma Sigga, þú varst afa dýrmætur lífsförunautur. Missir þinn er mikill og er hugur okkar allra hjá þér og biðjum við góðan Guð að styrkja þig og styðja. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfú og góðu kynni af alhug þakka hér. Pinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Fai' þú í Mði Mður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyiir allt og allt (V.Briem) Þitt barnabam Ása Sigríður Þórisdóttir. Þegar ég sit hér og hugsa um hann afa Kjartan eru mér efst í huga öll þau veikindi sem hann þurfti að ganga í gegnum, en alltaf náði hann að hrista þau af sér. En þriðjudaginn 27. aprfl síðastliðinn átti afi Kjartan að fara í aðgerð og allt leit bara alveg ljómandi vel út. En svo varð það þvi miður verra. Þegar ég vaknaði á þriðjudags- morgninum fannst mér eins og dag- urinn ætlaði að verða eitthvað öðru- vísi en aðrir dagar. Það var skýjað og kalt í veðri en þó gægðust sólar- geislarnir við og við til jarðar. Ég fór í skólann eins og alla aðra daga, og það var mjög erfiður dagur framundan enda vorprófin að skella á. Síðan átti ég eyðu um ellefuleytið og ákvað að hringja heim og athuga hvort allt hefði ekki gengið vel með afa Kjai-tan, en þá fékk ég þessa frétt, að hann væri dáinn. Ég var lengi að átta mig á því hvað hefði gerst því að afi Kjartan var svona afi sem myndi aldrei deyja. Hann var bara svo sterkur að maður bjóst síst af öllu við að hann myndi fara frá okkur. Maður kippti sér í raun- inni ekkert upp við það að hann væri að fara á spítala því hann kom alltaf aftur heim. Minningarnar eru margar og þá eru mér efst í huga jólin og sumrin. A aðfangadagskvöld sat afi alltaf við jólatréð með jólasveinahúfu og las á alla pakkana sem voru oft svo margir að erfitt var að sjá í stofu- gólfið. Svo á surnrin er maður fór að heimsækja ömmu og afa í hjólhýsið á Laugarvatni. Þangað var alltaf gott að koma því þar fékk maður frið og maður gat sofið eins lengi og maður vildi. Laugarvatn var annar af uppáhaldsstöðum afa, en hinn staðurinn er Spánn. Þar var afi alltaf ánægður og langaði helst alltaf til að vera þar. Svo vildi líka svo heppilega til að ég var að skoða myndaalbúm heima hjá ömmu og þá fann ég mynd af mér svona u.þ.b. 2-3 ára úti í Viðey og afi situr með mig og er að gefa mér kaffi úr teskeið. Ég man nefnilega mjög vel eftir þessu og finnst mér það skrítið vegna þess hve lítil ég var. En afi Kjartan á eftir að lifa vel og lengi í minningum okkar. Jæja, afi, þá ætla ég að fara að kveðja þig, ég bið að heilsa afa Braga og ömmu Steinu. Ég á eftir að sakna þín mjög mikið og er ör- ugglega ekki ein um það. Passaðu okkur nú vel. Elsku amma Sigga, núna bíður afi bara eftir þér, en þú skalt samt ekkert vera að drífa þig frá okkur. Ég elska þig, amma mín! Þín Steinunn Ósk. Kæri afi. Ég er núna farinn að muna allt það sem við höfum gert saman um tíðina. Það var leiðinlegt að þú þurftir að fara en það sem Guð vill er best. Kannski var þetta fyrir bestu, kannski fannstu sársauka en þú varst bestur og gast yfirbugað allt. Ég man þegar við ætluðum að fara í ferð út í Sandgerði og Garð en pabbi beygði í vitlausa átt og við enduðum í Bláa lóninu og vorum að skoða strendurnar þar hjá. Þar voru ekki teknar myndir því að myndavélin þín var batteríslaus og enginn var með myndavél nema þú. Ég man líka þegar ég var í pössun hjá þér og ömmu og við fórum nið- ur og kepptum í billard við ein- hverja aðra menn sem voru þarna. Ég verð að segja að ég sakna þess að hafa þig ekki hérna. Alltaf á hverjum jólum beið maður spennt- ur eftir því að komast til þín og ömmu og til að hitta alla. Þú kallað- ir mig stundum litla skarfinn. Ég man líka eftir spilakvöldunum. Al- veg sama hvort við vorum heima eða uppí sveit þá spiluðu þú og amma alltaf við pabba og mömmu en það er ekki lengur hægt. Ég mun alltaf muna eftir þér. Það var sárt að sjá þig á spítalanum, en ég hefði samt ekki viljað hafa sleppt því að hafa hitt þig í síðasta sinn. Ég veit ekki hvort þú fannst nær- veru mína eða ekki, samt sem áður var hugur minn þungur þann tím- ann. Ég skal annast ömmu eins vel og ég get. Mér fannst ég missa þig of fljótt og mun alltaf og alltaf muna þær góðu minningar sem við áttum saman. Ég á ekki eftir að hitta þig fljótlega, ekki einu sinni næstu árin nema að þú birtist mér í draumi eða bara sem sýn úti á vegi. Svo ég þakka þér hér með í þessu bréfi fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég gef þér þessi orð til minja: Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta, á gi'ænum gi'undum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. Megi Guð passa þig og vemda. Þinn einlægur Þorlákur Þór. Birting afmælis- og minn- ingargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi i textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-ski'áa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. KJARTAN STEINÓLFSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.