Morgunblaðið - 07.05.1999, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 07.05.1999, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999 75, FRÉTTIR Fuglaskoðnnarferð Ferðafélagsins FERÐAFÉLAG íslands og Hið ís- lenska náttúrufræðifélag efna til árlegrar fuglaskoðunarferðar sinnar laugardaginn 8. maí og er þetta í þrítugasta skipti sem slík ferð er farin. í fréttatilkynningu segir: „Fuglaskoðunarferðin er ekki aðeins merkileg fyrir þær sakir að hafa verið farin samfellt í 30 ár heldur er ekki síður merkilegt að haldið hefur verið utan um talningu á þeim fuglategundum sem sést hafa í ferðununum al- veg frá upphafi sem var árið 1970. í ferðunum hafa sést frá 36 tegundum í fyrstu ferðinni og upp í 59 tegundir líkt og var í ferð síðasta árs. Auk algengra fuglategunda hafa sést ýmsar sjaldséðari tegundir svo sem taumönd, bláönd, skeiðönd, blesuhæna og landsvala. Af teg- undum sem aðeins hafa sést einu sinni eru ískjói og skeggþerna. Margar tegundir hafa sést í öll- um ferðunum. Leiðsögn hefur jafnan verið höndum sérfræðinga og annarra áhugamanna um fuglaskoðun. I ferðinni hinn 8. maí sem hefst kl. 10 frá BSI, austanmegin og Mörkinni 6 verður farið um Bessastaði, Garðskaga, Sand- gerði, Hafnir og Reykjanes, en stansað eftir aðstæðum og litast um. Gott er að hafa sjónauka og fuglabók meðferðis. Þetta er kjörin ferð fyrir alla fjölskyld- una. Kompusala „fósturfor- eldra“ barna á Indlandi KOMPUSALA til styrktar fá- tækum börnum á Indlandi verður haldin í Kolaportinu helgina 8.-9. maí. Öllu söluand- virðinu verður varið til styrkt- ar tvennum samtökum sem Hjálparstaif kirkjunnar hefur starfað með á Indlandi en þau vinna eingöngu meðal hinna fá- tækustu. Fénu verður varið til menntunar bama og því að forða þeim frá vinnuþrælkun. Starfið á Indlandi verður kynnt í máli og myndum. Að sölunni stendur hópur „fósturforeldra" barna sem eru í umsjá þessara samtaka. Hóp- urinn hefur heimsótt börnin og kynnt sér aðstæður þeirra. Hann hefur aflað fjár með reglulegu millibili til þess að bæta aðstöðu þeirra, ýmist með kaupum á námsgögnum eða leiktækjum eða með því að styrkja athvarf og kvöldskóla fyrir börn í skuldaánauð. HLJÓMSVEITIN Taxi frá Færeyjum. Færeysk hljómsveit á Kaffi Reykjavík Kosningadag- ur á Lauga- veginum LAUGAVEGSSAMTÖKIN gang- ast fyrir ýmsum uppákomum á morgun, kjördag. I fréttatilkynn- ingu frá samtökunum kemur fram að frambjóðendur allra flokka í Reykjavíkurkjördæmi munu heim- sækja Laugaveginn á morgun milli kl. 14 og 16. „Af öðrum uppákomum má nefna að leiklistar- og myndlistar- nemar ætla að bregða á leik og sýna listir sínar. Félagar frá Taflfélaginu ætla að skora á þá sem þora. Línudansarar frá Danssmiðj- unni, eða þeir Jóhann Örn og félag- ar, taka sporið fyrir utan Lands- bankann. Skólahljómsveit Kópavogs tekur lagið og Alda Björk Ólafsdóttir söngkona treður upp og áritar plötu sína fyrir utan Skífuna. Krakkar frá ITR ætla að sjá um andlitsmálun. Ymis fyrirtæki verða með kynn- ingu á vöru og þjónustu, eins og t.d. Emmess ís, Vífilfell og Flakk- ferðir, Daníel Ólafsson verður með kaffi og Mackintosh-kynningu fyrir utan Kjörgarð og mun Kodak- bangsinn einnig kíkja í heimsókn. Ýmsar verslanir bjóða upp á skemmtiatriði í verslunum sínum og má t.d. nefna að hjá GK mun trompetleikarinn Óskar Guðjóns- son spila fyrir viðskiptavini og í verslununum Obsession og Body Shop verður boðið upp á förðun. Ýmsar verslanir ætla út með vörur sínar til að skapa markaðs- stemmningu og verða flestir versl- anir með tilboð af ýmsu tagi,“ segir í fréttatilkynningu. A laugardögum er frítt í alla stöðumæla eftir kl. 14 og frítt í öll bílastæðahús. LEIÐRÉTT Rangfeðraður í BLAÐINU í gær í myndatexta við frétt um fjölumdæmisþing Lions- hreyfingarinnar var Elías Rúnar Elíasson sagður vera Gunnarsson. Beðist er velvirðingar á mistökun- um. Rangt ártal í BLAÐINU á fimmtudag í and- látsfrétt um Ásu Pálsdóttur vai- villa í fæðingarári hinnar látnu þar sem stóð 1984 í stað 1983, sem er rétt fæðingarár. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum. FÆREYSKA hljómsveitin Taxi leikur á Kaffi Reykjavík fóstudags- kvöldið 7. maí frá kl. 22-00.30 en hljómsveitin var valin besta hljóm- sveit Færeyja á dögunum. Hljómsveitin er í Reykjavík á vegum Bæjarstjórnarinnar í Þórs- höfn og Norræna hússins. Hljóm- sveitin leikur á opnun á vörukynn- ingu í Perlunni 6. maí og er sú kynning liður í samstarfi Reykja- víkurborgar og Þórshafnar. Hljómsveitin er einnig að kanna aðstæður til plötuupptöku í Reykja- vík og hefur verið í sambandi við hljómsveitina Land og syni. Stöndum vörð um stöðugleika. Kii FRAMS0KNARFL0KKURINN Vertu með á miðjunni HKIOS HHkt\11HV, ítUt Sýning -Trésmíðavélar 5.-13. maí 1_____ Kynnum nýjustu tækni ------í trésmíðavélum Verkfæri, lakk- og málningardælur, yfirborðsefni, húsgagnafittings, loftpressur o.fl. Nýjar gerðir af sambyggðum trésmíðavélum. OPIP: 13.30 til 19.30 virka daga 10.00 til 19.00 um helgar Hvaleyrarbraut 18, 220 Hafnarfirði, sími 565 5055. FRAMSÓKNARFLOKKURINN Vertu með á miðjunni Cream SPF IH) crem frá etli Arden Kynning í dag, fimmtudag og á morgun, föstudag. Austurstræti 16, sími: 511 4511.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.