Morgunblaðið - 07.05.1999, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
r
ISLENSKIR
vinstrimenn eiga þess
nú kost eftir nær sjö-
tíu ára klofninga- og
átakasögu að skapa
stóran og öflugan jafo-
aðarmannaflokk að
norrænni og evrópskri
fyrirmynd.
I’að hefur kostað
forystufólk A-flokk-
anna, Þjóðvaka og
Kvennalista þrotlausa
vinnu og að sjálfsögðu
átök að koma Samfylk-
ingu íslenskra jafnað-
armanna saman. Þau
eiga mikinn heiður
skilinn fyrir. Unnið
var undir mikilli tímapressu og því
eðlilegt að ýmsir bamasjúkdómar
væru áberandi í þeirri kosninga-
baráttu sem lýkur á morgun.
Oflugur minnihlutahópur í Al-
þýðubandalaginu undir forystu
Steingríms J. Sigfússonar, Ög-
mundar Jónassonar og Hjörleifs
Guttormssonar tafði þessa vinnu
og gerði allt sem í þeirra valdi stóð
árin 1997 og 1998 til að eyðileggja
möguleikann á sameiningu ís-
lenskra jafnaðarmanna. Reynt var
í hvívetna að gera við þá málamiðl-
anir um alla skapaða hluti bæði um
form og innihald. Þeir kusu að
kljúfa sig út og eftir að hafa lesið
bæði kosningastefnuskrá þeirra og
Samfylkingarinnar
sýnist mér þeirra eina
málaefnalega réttlæt-
ing fyrir enn einum
klofningi íslenskra
vinstrimanna vera sú,
að Island skuli segja
sig úr NATO og aldrei
ganga í Evrópusam-
bandið.
Eg hef í rúm tutt-
ugu ár tekið þátt í
störfum tveggja ís-
lenskra smáflokka,
Alþýðubandalags frá
1977-1991 og Alþýðu-
flokks frá árinu 1991
til þessa dags. Eg
leyfí mér að fullyrða
eftir þá reynslu að ætli stjórnmála-
flokkur að standa undir því lýð-
ræðislega hlutverki sem honum
ber, þ.e. að móta vel ígrundaða
stefnu í helstu málaflokkum, gera
flokksmönnum sínum kleift að
taka þátt í þeirri vinnu og síðan að
ná stefnumálum sínum fram í
kosningum, þá verður hann að
vera af ákveðinni stærð. Litlir
flokkar eins og við íslenskir
vinstrimenn höfum til þessa þekkt
geta ekki staðið undir þessu hlut-
verki. Samfélag okkar og pólitísk
úrlausnarefni verða æ flóknari. Sú
aukna fagmennska sem það krefst
og sem einkennir allt okkar samfé-
lag verður að ná inn í stjórnmála-
Kosningar
Tækifæri til að skapa
með Samfylkingunni
öflugan stjórnmála-
flokk, segir Margrét S.
Björnsdóttir, sem í
stærð og afli keppir við
Sjálfstæðisflokkinn um
áhrif og mótun íslensks
samfélags tuttugustu
og fyrstu aldarinnar.
flokkana. Slíkt næst ekki í litlum
flokkum, fyrir því hef ég tuttugu
og tveggja ára reynslu.
Eg skora á íslenska vinstrimenn
að glutra ekki niður því sögulega
tækifæri sem þeir loksins fá í
kosningunum á morgun. Tækifæri
til að skapa með Samfylkingunni
öflugan stjórnmálaflokk, sem í
stærð og að afli keppir við Sjálf-
stæðisflokkinn um áhrif á mótun
íslensks samfélags tuttugustu og
fyrstu aldarinnar.
Höfundur er fölagi í
Alþýðuflokknum.
FOSTUDAGUR 7. MAI 1999 65
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynning
í dag í
Hringbrautar Apóteki
kl. 15-19,
Snyrtistofunni Paradís,
Laugarnesvegi 82, kl. 14-18,
Stjörnu Apóteki, Akureyri,
kl. 14-18 og
Apóteki Vestmannaeyja,
kl. 11-16.
- Kynningarafsláttur -
FRAMSOKNARFLOKKURINN
Vertu með á miðjunni
_________UMRÆÐAN_________
Ætla íslenskir vinstri-
menn að glutra niður
sögulegu tækifæri?
Margrét S.
Björnsdóttir
Vönduð leðursófa*iGtt frá Ítalíu
fást í ijósu og svörtu.
Kringla og Smáratorg
HAGKAUP
«
Meira úrval * betrikaup