Morgunblaðið - 07.05.1999, Blaðsíða 56
s56 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Herbjðrt Péturs-
dóttir fæddist á
Kirkjubaí í Vest-
mannaejjum 26.
febrúar 1951. Hún
lést á Landspítalan-
um 2. maí síðastlið-
inn. Foreldrar Her-
bjartar voru Lilja
Sigfúsdóttir, f. 11.
október 1917 í
Egilsstaðakoti í
Flóa, d. 15. október
1990, og Pétur Guð-
jónsson, f. 12. júlí
1902 á Oddsstöðum í
Vestmannaeyjum, d.
21. ágúst 1982. Systkini Her-
bjartar eru: 1) Jónína Ósk, f.
12.11. 1926, búsett á Raufar-
höfn. 2) Guðlaug, f. 25.9. 1928,
búsett á Þórshöfn. 3) Guðlaugur
Magnús, f. 5.8. 1931, búsettur að
Norðurbæ, Rangárvöllum. 4)
Jóna Halldóra, f. 18.8. 1933, bú-
sett í Reykjavík. 5) Guðjón, f.
31.7. 1935, d. 25.1. 1985, var bú-
settur á Selfossi. 6) Guðrún
Rannveig, f. 10.12. 1939, búsett í
Garði. 7) Arni, f. 4.2. 1941, d.
9.10. 1996, var búsettur í Garða-
bæ. 8) Brynja, f. 16.8. 1946, bú-
sett í Garði.
Hinn 2. desember 1972 giftist
Herbjört eftirlifandi manni sín-
um, Guðna Þór Ólafssyni frá
Hjarðartúni, f. 6. apríl 1952.
Foreldrar hans vom Guðrún
Olga Stefánsdóttir, f. 12.3. 1926,
d. 24.9. 1995, og Ölafur Sigfús-
son, f. 29.9. 1923, d. 18.4. 1991.
Börn Guðna og Herbjartar eru:
1) Ólafúr Teitur, f. 2.10. 1973,
búsettur í Reykjavík, fréttamað-
ur, unnusta Engilbjört Auðuns-
dóttir, f. 5.7. 1972. 2) Pétur Rún-
ar, f. 27.3.1975, búsettur í Kópa-
Kveðja til elsku Hebbu.
Hjartkær systir, horfin heimi frá,
hetja sönn, það sýndu þrauta árin.
Um liðna tíð ég Ijúfa minning á,
er ljómar björt og skín í gegnum tárin.
Frá æsku heima átti ég kærleik þinn,
sem aldrei brást og var þitt aðalsmerki,
þín gæði breiddu gæfu á veginn minn,
þú göfug kona varst í orði og verki.
Nú hér á jörð er hinsta kveðjan múi,
p helguð ástarþökk og djúpum trega.
Sem gimsteinn fagur geymd er minning þín
og guði fahn systir yndislega.
Þín systir
Bryiya
Herbjört Pétursdóttir er nú látin
langt um aldur fram og er það mikið
áfall fyrir okkur öll, fjölskyldu henn-
ar og vini. Herbjört var móðursystir
mín, en einungis einu ári eldri og
tókst með okkur góð vinátta strax í
bamæsku, vinskapur, sem hélst alla
tíð. Herbjört er fædd og uppalin á
Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og þar
hófust kynni okkar fyrir tæpum 40
árum. Ég bjó í Reykjavík, en kom til
Eyja í heimsókn á sumrin og sótti
stíft að fá að heimsækja Herbjörtu,
enda stutt að skokka yfir túnin milli
Oddstaða og Kirkjubæjar.
Reykjavíkurdaman ég viidi gjam-
an koma sínum siðum að í leikjum
okkar og það fór verulega fyrir
bijóstið á mér 8-9 ára gamalli að
Hebba frænka notaði dós undan
skóáburði, ftdlan af sandi, sem stein
- þegar við vomm að hoppa í
„París“. Maður notar ekki svona
dollur, sagði ég hneyksluð, en þessi
frænka mín hló og útskýrði að svona
væri gert í Eyjum. Ekki batnaði það
þegar Hebba kvenkenndi „París-
inn“, sagði „hún Parísin", þegar það
átti að segja „hann Parísinn". Ég
var reiðubúinn í heljarinnar slag um
þetta meridlega mál, en Herbjört
brosti góðlátlega og með glettni í
augum útskýrði hún fyrir mér að
hvort tveggja gæti verið rétt. Þama
vogi, deildarstjóri.
3) Ámi Þorlákur, f.
23.12. 1980, nemi. 4)
Lilja írena, f. 6.6.
1983. 5) Eysteinn
Guðni, f. 16.8. 1984.
6) Uppeldisdóttir
Sólrún Dögg Áma-
dóttir, f. 29. 5. 1973,
búsett að Lindar-
bergi á Vatnsnesi,
sjúkraliði, sambýlis-
maður Ágúst Frím-
ann Jakobsson, f.
7.3. 1972, þeirra
barn er Jakob Gísli,
f. 17.2. 1998.
Herbjört varð stúdent frá
Menntaskólanum í Hamrahlið
1972 og tók BA-próf frá Háskóla
Islands með bókasafnsfræði sem
aðalgrein 1979. Hún vann sem
bókavörður í hálfu starfi við
Bókasafn Kópavogs 1978-79,
var í hlutastarfí hjá Fræðslu-
deild kirkjuiinar 1990-91, rak
ferðaþjónustu á Melstað frá
1986 og var kennari og bóka-
vörður við Laugarbakkaskóla
1998-99. Hún var formaður Fé-
lags bókasafnsfræðinema
1977-78, formaður Ferðamála-
félags Vestur-Húnvetninga frá
stofnun þess árið 1991-96, for-
maður Ferðamálasamtaka Norð-
urlands vestra frá stofnun
þeirra 1993-94 og ritari
1995-97, og varaformaður Hag-
félagsins ehf. (Atvinnuþróunar-
félags Vestur-Húnvetninga) frá
1991-96.
Kveðjuathöfn fór fram frá
Kópavogskirkju fimmtudaginn
6. maí.
títför Herbjartar fer fram á
Melstað í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
kynntist ég hinni brosmildu, ljúfu en
bráðgáfuðu írænku minni og öðlað-
ist strax mikla virðingu fyrir henni
sem góðri manneskju. Næsta minn-
ing er frá unglingsárunum þegar
Hebba gerðist mikill aðdáandi
hljómsveitarinnar Hljóma, svo að
mér þótti nóg um. Leiðir skildu um
tíma, þegar við fórum í menntaskóla
hvor í sitt héraðið. Aftur lágu leiðir
saman, þegar hún flutti á á Álfhóls-
veginn í Kópavogi, en ég var að
vinna í sömu götu og skaust gjaman
til hennar í hádeginu. Nú var hún
komin í heimspeki í Háskólanum
með elsta son, Olaf Teit, nýfæddan,
en eiginmaðurinn Guðni Þór stund-
aði guðfræðinám í Háskólanum.
Eitthvað lýsti ég áhyggjum mínum
af framtíð hennar sem
prestsmaddömu, sem ég áleit heldur
dauflega og engan veginn nógu
spennandi fyrir hana. Hebba brosti
glaðlega og með sama umburðar-
lyndi og hún útskýrði fyrir mér allt
um dolluna og „Parísina" í Vest-
mannaeyjum sagði hún mér sinn
hug um framtíðina og enn treystust
vinaböndin milli okkar frænd-
kvenna. Árin liðu og fyrr en varði
var komið að fermingum á Melstað í
Miðfirði, þar sem Hebba og Guðni
Þór hafa búið mestan sinn búskap. I
„Gamla húsið“, þar sem Hebba og
Guðni ráku lítið gistiheimili í frí-
stundum, safnaðist saman vinafólk
Hebbu og Guðna og fjölskyldur
þeirra beggja. Hver ferming varð að
stórviðburði og fjölskylduhátíð, sem
lengi munu lifa í minningunni. Við
Hebba töluðum saman í síma rétt
fyrir páska og ég var að gantast við
hana að þetta væri ómögulegt vor,
að fá ekki að koma í fermingu á Mel-
stað. Hún hló og bauð mig velkomna
hvenær sem væri, þótt engin væri
fermingin.
Við töluðum ekki mikið um
ki-abbameinið, sem hún hafði barist
við af ótrúlegu æðruleysi í fleiri
mánuði. Það var ekki í hennar stíl að
kvarta, þrátt fyrir erfiðar lyfjameð-
ferðir bæði hér heima og erlendis.
Hún sagði mér frá kennslunni og
vinnu sinni á bókasafni skólans. Vit-
andi að hún var fárveik spurði ég
varlega hvort þetta væri ekki svolít-
ið mikið, en fékk glaðlegan hlátur í
símann að jú, jú hún gæti nú ekki
meira en þetta og væri stundum
svolítið þreytt. Sex vikum seinna er
hún dáin og einmitt á þeim degi sem
Guðni maður hennar var að ferma
bömin í sókninni. Fermingardagur-
inn, sem hafði verið okkur fjölskyld-
unni til svo mikillar gleði sl. vor,
þegar yngsti sonurinn Eysteinn
Guðni var fenndur, og eins árinu áð-
ur, þegar einkadóttirin, Lilja Irena,
var fermd, var nú dagur sorgai- og
söknuðar. Það verða þung sporin
heim á Melstað að fylgja Herbjörtu
heim. En ég ber slíka virðingu fyrh-
frænku minni Herbjörtu að í minn-
ingunni munu gleðin og bjartsýni
taka við af hinni þungu sorg, sem á
okkur hvflir núna. Við Eggert og
Björgvin sendum Guðna Þór og
bömum þeirra Herbjartar okkar
innilegustu samúðai'kveðjur.
Guðrún Sigurgeirsdóttir.
Þótt svalar kyljur æði um auðan svörð
Hver endurminning titrar í lífsins gígju.
Öll sporin hennar féllu sem fræ á jörð
- sem fyrirheit um vor er-blómgast að nýju.
Hún sjálf var fegursta ljóðið serm lífið gaf.
Svo lyftast duftsins söngvar að heiðum blá-
um.
Þess vængur blikar bjartast við dauðans haf.
Bjarminn rís yfir múrum þöglum og gráum.
(Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum.)
Það var sem dimmur skuggi legð-
ist yfir vorbjartan daginn þegar
okkur barst lát Herbjartar Péturs-
dóttur. Það er svo erfítt að sætta sig
við þennan dóm. Hún var alltaf svo
dugleg og sterk og hafði svo rnikið
að gefa. Ég varð þeirrar gæfu að-
njótandi að kynnast Herbjörtu en
það má með sanni segja að „öll spor
hennar féllu sem fræ á jörð - sem
fyrirheit um vor er blómgast að
nýju“. Hún hafði til að bera einstaka
hlýju og gleði sem hún veitti þeim
sem hún umgekkst. Kynni okkar
hófust fyrir 20 árum þegar ég byrj-
aði að vinna í Bókasafni Kópavogs,
þá var hún starfandi þar og Ijómaði
af starfsorku og gleði. Hún skipu-
lagði barnastarf í Bókasafni Kópa-
vogs sem hefur verið fastur þáttur í
starfi safnsins síðan. Seinna starfaði
svo Pétur sonur hennar á safninu og
er hann okkur öllum, sem vinnum
þar, afar kær. Eftir að Herbjört
flutti með eiginmanni sínum, séra
Guðna Ólafssyni, að Melstað urðu
samfundimir færri en vináttan
hélst. Það voru góðar stundir þegar
hún mátti vera að því að líta við í
heimsókn á ferðum sínum í bæinn
og þá var sem hlýtt bros hennar
veitti sólskini inn á heimilið. For-
eldrum mínum var hún einstakur
vinur. Við þökkum hverja stund sem
við áttum með henni.
Það er gott að ylja sér við minn-
ingarnar og þær eru margar og góð-
ar. Ég minnist sérstaklega heim-
sókna að Melstað með foreldrum
mínum. Mér verður oft hugsað til
þess hversu mikfll kærleikm- og
hlýja ríkti þar á heimilinu og hversu
samhent fjölskyldan var. Orð fá ekki
lýst þeirri sorg sem fyllir hjörtu
okkar sem þekktum Herbjörtu og
þmfum nú að kveðja hana. Harmur
eiginmanns og bama er þó stærstur.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
þau í þeirra miklu sorg. Með innileg-
um samúðarkveðjum frá okkur
hjónum og foreldrum mínum, Val-
borgu og Guðmundi.
Emilía Guðmundsdóttir.
Andlát Ilerbjartar Pétursdóttur á
Melstað kom okkur öllum í opna
skjöldu. Við vissum að skæður sjúk-
dómur hafði þjakað hana um skeið,
en enginn bjóst við að ævilokin væru
svo skammt undan. Bjartsýni henn-
ar og fjölskyldunnar var slík að von-
ir voru bundnar við lengri samfylgd.
Minningamar tengjast mörgum
þáttum, allt frá því þau hjón sóttust
eftir að koma í héraðið. Séra Guðni
Þór og Herbjört komu þá til að
kynna sér aðstæður í Melstaðar-
prestakalli og kom það í hlut minn
að taka á móti þeim hjónum og sýna
þeim umgjörð safnaðarins á
Hvammstanga. Þá strax kom í ljós
hinn mikli áhugi Herbjartar á starfi
manns síns og einnig á högum og lífi
þess fólks sem byggði þetta hérað.
Síðar lágu leiðir okkar saman í
stjóm Hagfélagsins og Ferðamála-
félagi V-Hún. sem hún veitti forastu
um árabil. Herbjört var ófeimin við
að starfa í karlahópi Hagfélagsins,
lagði margt til mála og fylgdi því eft-
ir af sinni einurð, en einnig af hóg-
værð. Þegar Guðni og Herbjört tóku
við Melstaðarprestakalli, hafði
prestur ekki setið Melstað um skeið.
Þau vora ekld í vafa um að þar vfldu
þau búa og hefja staðinn aftur til
vegs og virðingar. Til viðbótar því,
að hugsa myndarlega um heimili sitt
og sinna félagsmálum samfélagsins,
ráku þau hjón ferðaþjónustu í gamla
prestsbústaðnum á Melstað. Veit ég
að margir ferðalangar sóttu þangað
aftur og aftur, m.a. vegna hins heim-
ilislega umhverfis sem Herbjört bjó
þeim í gamla húsinu, sem er eitt
elsta steinhús í héraðinu og var forð-
um samkomuhús sveitarinnar. Það
var að komast í hefð, að ég liti inn til
þeirra hjóna síðdegis á aðfangadag
jóla. Leið mín liggur að jafnaði þann
dag að leiði fóður míns í kirkjugarð-
inum á Melstað og var þá ekki kom-
ist undan að setjast inn í eldhús,
þiggja kaffibolla og smakka á þýskri
jólaköku. Samræður fóru jafnan vítt
og breitt, einkum við húsmóðurina,
en húsbóndinn sat með pípu sína og
sagði sína skoðun í vel völdum orð-
um. Kannski verða þessar stundir
dýrmætastar í minningu minni um
Herbjörtu Pétursdóttur.
Ég og fjölskylda mín biðjum
henni blessunar og Guð að styrkja
fjölskylduna á Melstað.
Karl Sigurgeirsson.
Við hjónin kynntumst Herbjörtu
þegar hún nam bókasafnsfræði við
Háskólann. Hún var góður nemandi
og hvetjandi samstúdent. Hún hafði
yndi af samræðum um flest málefni
líðandi stundar en helst um heim-
speki og gátur lífsins. Það var gam-
an að kynnast rökvisi hennar og
kankvísi er í odda skarst í orðasenn-
um.
Hún valdi sér lokaritgerðarefnið
Almenn tengsl og lýsir það viðhorfi
hennar til fags bókasafnsfræðinga
að hún lagði svo mikla áherslu á já-
kvæð samskipti fólks, bæði í leik og
starfi. Svo mikla áherslu vildi hún
leggja á þennan þátt að hún var ekki
ánægð með íslenska orðið jákvæðni
og vildi bæta um betur með því að
smíða nýyrðið jávirkur og jávirkni.
Með því vildi hún bæta heiminn og
með jávirkni sinni æ síðan hefur
Herbjört sannarlega bætt heiminn
fyrir okkm-, sem fengum að kynnast
henni.
Sem bókasafnsfræðingur vann
hún gott starf í Bókasafni Kópavogs
og lagði m.a. grann að sögustundum
fyrir yngstu notenduma. Að hverju
verki gekk hún með áhuga og já-
kvæðu hugarfari og var því hvers
manns hugljúfí, þægilegur og
skemmtilegur samstarfsmaður.
Til marks um jávirkni hennar og
dagfarsprýði sagði hún að sér líkaði
vel við rigningu og rok - henni þætti
hún svo öragg við að heyra regnið
lemja og rokið öskra. Þetta viðhorf
hefur hún ef til vill tileinkað sér í
Vestmannaeyjum þar sem hún ólst
upp og bar ávallt hlýjar taugar til.
Á þessum árum kynntumst við
einnig manni hennar, sr. Guðna Þór,
og fylgdumst með þegar bömin
komu hvert af öðra, Ólafur Teitur,
Pétur Rúnar, Ámi Þorlákur, Lflja
Irena og Eysteinn Guðni. Herbjört
tók þá ákvörðun snemma að vera
heimavinnandi móðir og setja þar
með bömin sín og fjölskylduna í
öndvegi. Okkur kollegum hennar
þótti miður að missa hana úr heimi
bókavarða og fannst hún fóma ör-
uggum frama fyrir heimilishald.
Þegar fram liðu stundir og við
kynntumst þessari fjölskyldu betur
sáum við hve hárrétt ákvörðun
hennar var: með uppbyggingu og
ræktun fjölskyldu sinnar skapaði
HERBJÖRT
PÉTURSDÓTTIR
Herbjört meiri fjársjóð hamingju og
farsældar heldur en nokkur starfs-
frami hefði getað fært henni - og
þeim.
Herbjört byggði upp gistiþjón-
ustu fyrir ferðamenn í gamla prests-
húsinu á Melstað af sinni alkunnu
alúð og dugnaði og í tengslum við
það starf kynntist fjölskyldan
mörgu góðu fólki frá öllum heims-
homum.
Við hjónin heimsóttum fjölskyld-
una á Melstað eins oft og við gátum
og áttum þar margar yndislegar
samverastundir. Enga aðra
fjöskyldu þekkjum við sem býr yfir
jafn mikilli samstöðu og samstill-
ingu, andlegum styrk og hamingju
eins og fjölskyldu þeirra Herbjartar
og Guðna Þórs. I hvert eitt sinn fór-
um við frá þeim betri manneskjur,
með ljúfar minningar, sem endast
munu okkur alla tíð. Ekki síst er
þetta mikilvægt á sorgai-stundu
þegar móðir og eiginkona er kölluð
burt svo fljótt. Hún Herbjört átti í
stríði við óvæginn og erfiðan sjúk-
dóm og hún barðist hetjulega og
æðralaust til hinstu stundar.
Síðasta sunnudag var sannarlega
sumar í Kópavoginum, við hjónin úti
í garði við vorstörf full af sumar-
gleði. Um kvöldið dró ský fyrir sólu í
fyllstu merkingu þess orðs og það
ský grúfir enn yfir. Bjarta brosið
hennar mun ekki framar taka fagn-
andi á móti okkur þegar við komum
að Melstað. Þó er huggun harmi
gegn að brosi sínu og hlýhug hefur
hún sáð í böm þeirra Guðna Þórs og
þess munum við njóta um ókomna
framtíð.
Við hittumst fyrst þegar við vor-
um við nám í bókasafnsfræði við
Háskólann. Strax á fyrsta ári vor-
um við saman í stjóm nemendafé-
lagsins og þar með hófst vinátta
okkar. I byrjun héldum við fundi
heima hjá þeim hjónum í Kópavog-
inum, síðan komum við í kvöld-
heimsóknir og þar kynntumst við
Guðna og sonum, þeim Olafi Teiti
og Pétri Rúnari, þá eins og tveggja
ára. Kátínan og glettnin var alltaf
við völd jafnvel svo að okkur fannst
við vera hálf þung í samanburði.
Um síðustu páska hélt Herbjört
enn kátínu sinni og glettni. Aldrei
heyrðist hún kvarta, alltaf var hún
jafn jákvæð í veikindum sínum. Við
minnumst hennar þegar við fóram
að byggja í Kópavoginum og hún
kom með volgar pönnukökur til að
stytta okkur stundirnar. Við minn-
umst hennar þegar þið komuð til
okkar, nýkomin frá Þýskalandi,
með þriðja soninn Arna Þorlák, við
minnumst hennar þegar við kom-
um ár eftir ár norður og fyrstu árin
kom hún svo stolt til dyra með nýj-
an fjölskyldumeðlim í fanginu,
fyrst Lilju Irenu og síðan Eystein
Guðna. Oft var spjallað og rætt um
lífið og tilverana og tóku börnin
ekki síður þátt í þeim samræðum
en við hinir fullorðnu. Hún var
miklu duglegri að hringja og
spjalla en við. Hún lifðir lífinu og
ræktaði böm sín, eiginmann og
heimili og gaf sér tíma meðan við
hin tókum þátt í lífsgæðakapp-
hlaupinu, voram í skóla, unnum úti,
fóram á fundi, námskeið og þess
háttar. Hún vissi hvað hún vildi og
vann að sínu með yfirvegun og ró
en ávallt með glettni og kátínu.
Við eram þakklát fyrir að hafa
fengið að eiga Herbjörtu að vini, og
biðjum guð að blessa minningu
hennar og veita böraunum og eigin-
manni styrk í sorginni. Við kveðj-
um Herbjörtu og biðjum henni
guðs blessunar með þessum orðum:
Skrifuð á blað
verðurhúnvæmin,
bænin, sem ég bið þér,
en geymd í hugskoti
slípast hún eins og perla
ískel
viðhveijahugsun
semhvarflartilþín.
Anna Sigríður Einarsdóttir og
Hrafn Andrés Harðarson.
• Fleirí minningargreinar um
Herbjörtu Pötursdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.