Morgunblaðið - 16.05.1999, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.05.1999, Blaðsíða 33
32 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 33 ...... ..............v STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR * IKJOLFAR flestra kosninga koma upp umræður um það, hvort eðlilegt sé að gera kannan- ir fram á síðasta dag kosninga- baráttu og hvort setja eigi regl- ur, sem banni birtingu á slíkum upplýsingum í ákveðinn tíma fyr- ir kjördag. Rökin, sem færð eru fram fyrir þessu eru þau, að skoðanakannanir geti haft óeðli- leg áhrif á niðurstöðu kosninga. Pessi röksemdafærsla gengur ekki upp. í fyrsta lagi er ekkert óeðlilegt, að þessar upplýsingar komi fram eins og aðrar í kosn- ingabaráttu. Það eru birtar nið- urstöður skoðanakannana um af- stöðu fólks til málefna. Hvers vegna ekki um afstöðu fólks til flokka eða einstakra frambjóð- enda? I öðru lagi er það rétt, sem fram kom í umræðum for- ystumanna stjórnmálaflokkanna fyrir viku, að flokkarnir sjálfír mundu gera slíkar kannanir fyr- ir sig, til þess að sjá hvar þeir stæðu og slíkar upplýsingar mundu óhjákvæmilega leka út til fjölmiðla. Þegar af þessum Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. tveimur ástæðum er fráleitt að banna birtingu skoðanakannana um fylgi flokka t.d. viku fyrir kosningar. En jafnframt er á það að líta, að skoðanakannanir geta haft margvísleg áhrif. Talsmenn Vinstri grænna og frjálslyndra héldu því fram, að niðurstöður skoðanakannana hefðu að ein- hverju leyti fælt kjósendur frá þeirra flokkum. Allir vildu vera í vinningsliðinu. Reynslan sýnir hins vegar, að stjórnmálaflokkar geta hagnýtt sér kannanir, sem eru neikvæðar fyrir þá, sjálfum sér til framdráttar. I nýafstað- inni kosningabaráttu er t.d. al- veg ljóst, að Halldór Ásgrímsson nýtti sér niðurstöður Gallup- könnunar, sem bentu til þess, að Sjálfstæðisflokkurinn væri orð- inn stærsti flokkurinn í Austur- landskjördæmi, til þess að snúa dæminu við og efla stöðu sína og Framsóknarflokksins á nýjan leik. Það má vel halda því fram, að hin neikvæða Gallupkönnun hafi verið eitt það bezta sem fyr- ir utanríkisráðherra kom í kosn- ingabaráttunni. I kosningabaráttunni árið 1983 birti Morgunblaðið skoð- anakönnun, sem sýndi mjög slæma stöðu Alþýðubandalags- ins. Flokkurinn nýtti sér þá stöðu til þess að senda út herkvaðningu til stuðnings- manna sinna með spurningum um það, hvort þeir ætluðu að láta „íhaldið“ fara svona með þá. Sú útrás skilaði Alþýðubandalaginu miklu í kosningunum sjálfum. Þessi tvö dæmi má nefna um það, hvernig flokkar og stjórn- málamenn geta fært sér í nyt skoðanakannanir, sem eru þeim neikvæðar. Sjálfstæðisflokkur- inn kemur hvað eftir annað verr út úr kosningunum en könnun- um. Sú reynsla, sem af því er fengin, er síður en svo vísbend- ing um, að allir vilji vera með þeim, sem er að vinna. Þvert á móti bendir hún til þess, að kjós- endur vilji ekki að einn flokkur verði of sterkur. Það má vel vera, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði komið miklu betur út úr kosningunum nú, ef engar kann- anir hefðu verið birtar. Flest bendir til þess, að skoð- anakannanir eigi eftir að koma enn meira við sögu í stjórnmála- baráttunni hér. Sjálfsagt kemur að því, að einhver aðili prófi að gera könnun á meðal kjósenda þegar þeir koma út af kjörstað og gefí út svokallaða útgöngu- spá, eins og tíðkast í öðrum lönd- um. Þeir sem nú krefjast þess, að takmarkanir verði settar á skoðanakannanir munu vafalaust halda því fram að útgönguspár geti verkað neikvætt fyrir þá, sem eru að tapa. En með sama hætti og aðrar kannanir geta þær gefið þeim hinum sömu tækifæri á kjördag til þess að safna saman sínu liði og gera nýja útrás og jafna metin. SKOÐANAKANNANIR OG KOSNINGAR Fegurst er Brandi ábóta lýst í Svínfell- inga sögu og Steinunni systur hans þá ekki síður. Samkvæmt rítúalinu ætti henni að vera lýst sem hús- ffeyju Hrafnkels í sögu hans, en henni bregður að sjálfsögðu ekki einu sinni fyrir í þessari kven- mannslausu karlasögu. Brandur hefði þá líka lýst henni einsog gert er í Svínfellinga sögu. Þá er engum sérstökum atburði í Svínfellinga sögu lýst með þeim hætti að minni sterklega á frásögn Hrafnkels sögu, ekki einu sinni þeg- ar Ormssynir koma í Kirkjubæ og Ögmundur leitar skjóls í kirkjunni, því að lýsingin á því, þegar þeir Sámur sækja Hrafnkel heim og reka hann frá Aðalbóli, er allt ann- ars eðlis. Það var heldur óvenjuleg- ur viðburður, því að Hrafnkell var goði og stórhöfðingi, en Ögmundur enginn goðorðsmaður, þótt fyrir- ferðarmikill væri. En hann er held- ur fálátur og minnir á Eyvind Bjarnason sem var fáskiptinn mað- ur einsog segir í Hrafnkels sögu, en það var Hrafnkell ekld. Mér er ómögulegt að sjá að Ögmundur í Kirkjubæ sé lykillinn að honum. En margar skýringar Hermanns Pálssonar á framkomu og tilfinning- um persóna Hrafnkötlu er þó áleitið umhugsunarefni og næsta frumleg- ar. Hermann hittir naglann t.a.m. á höfuðið þegar hann sýnir fram á samræmi milli þess að háður er fé- ránsdómur eftir höfðingjann (í Kirkjubæ og á Aðalbóli) „dómur þessi er svo harður, að höfðinginn (þ.e. Hrafnketill og Ögmundur) verður að heita má eignarlaus eft- ir“. Einnig er það rétt hjá Her- manni að Svartleggja, exi Ögmund- ar, er „vopn að skapi Hrafnkels, enda hefur hann öxi eina vopna, er hann fer að Einari smalamanni sín- um. Það kemur vel heim við skap- gerð Hrafnkels, er Ögmundur biður menn sína ganga fyrst til matar og lætur þá ekki vita fyrr en síðar, hvert starf hann hefur fyrirhugað þeim þennan morgun. Þeir Hrafnkell og Ög- mundur eru báðir fá- málugir menn og dul- ir.“ Þetta má til sanns vegar færa, þótt hér sé ritskýrandinn fremur að lesa útúr textanum kenningum sín- um í hag en að þetta sé beinlínis sagt með þeim hætti í sögunni sem fullyrt er. Sú tilgáta Hermanns Páls- • sonar, að Oddur Þórarins- son gangi ljósum logum í Hrafnkels sögu einsog honum er lýst af venju- legri snilld Sturlu Þórðarsonar í ís- lendinga sögu, eru ævintýralegar vangaveltur og harla langsóttar, einsog dæmin sem Hermann tekur sýna raunar og sanna. Dæmin sem hann tilfærir eru of almenn til að vera eftirminnileg. Hitt þykir mér öllu merkilegra þegar hann bendir á að hlutverk griðkonunnar sem er sendiboði Hrafnketils er sótt í Droplaugarsona sögu. Þessi önnur kvenpersóna Hrafnkötlu er ekki einu sinni hugarfóstur höfundar! Þá er einungis hin griðkonan eftir hjá þessum kvenmannslausa höfundi, sem þætti víst ekki merkilegur í jafnréttisbaráttu okkar tíma. Þá er hitt og harla athyglisvert þegar Hermann Pálsson sýnir fram á skyldleika milli þess er Hrafnkell hafnar goðum og orða Alexanders í sögu hans: „Ég hygg það hégóma að trúa á goð,“ sagði Hrafnkell, en Alexander segir: „Mikill hégómi, segir hann, að trúa slíku.“ Þessar setningar benda eindregið til sömu ættar; að þama sé einn og sami höfundur á ferð, Brandur ábóti. í raun er ekkert Mkt með • Hrafnkatli og Ögmundi Helgasyni í Svínfellinga sögu. Hrafnkell er óumdeilanlegur höfð- ingi sögunnar, en Ögmundur einsog hver annar hryðjuverkamaður í gervi Sturlungaaldar-höfðingja. Sámur í Hrafnkötlu er ekkert líkur Sæmundi Ormssyni í Svínfellinga sögu sem er hálshöggvinn að lokum ásamt Guðmundi bróður sínum. Þeir Ormssynir minna ekkert á Ey- vind frekar en Sámur Bjamason sé eftirmynd Sæmundar Ormssonar eða þeirra bræðra. Og það hlægir mig að Þórður kakali sé fyrirmynd Þjóstarssona, en þó öllu fremur að ein glæsilegasta persóna Sturlunga sögu, Oddur Þórarinsson, eigi að vera persónugerður í Einari smala- manni! Þetta em þó tilgátur Hermanns Pálssonar og með eindæmum hve auðveldlega og sannfærandi honum tekzt að flétta harmsögulegar per- sónur Svínfellinga sögu inní Hrafn- kötlu. Margt virðist svipað á yfir- borðinu, en er þó gjörólíkt þegar skáldskapur Hrafnkötlu er borinn saman við raunvemleikann í Svín- fellinga sögu. Samt heldur Her- mann vel á máli sínu, ekki síður en Barði Guðmundsson þegar hann spann sinn vef úr Njálu og Ljós- vetninga sögu og persónustrefí 13. aldar. Tilgátur og ritskýringar beggja þessara fræðimanna era eft- irminnilegar, og raunar lygilegar, og gefa engum skáldskap eftir. En þá er líka að sjálfsögðu það helzt notað sem nýtist í slíkum saman- burði. Það er engu líkara en púslu- spilið gangi upp og er það ritskýr- ingarlegt afrek útaf fyrir sig. Her- manni tekst þetta að sumu leyti bet- ur en Barða, þó að samanburður hans sé fjarstæðukenndari með köflum, en sannfæringarkrafturinn svoi mildll að göldram er líkastur. Á hitt er þó að sjálfsögðu hægt að fallast með Hermanni Pálssyni að ýmsir atburðir Hrafnkels sögu „virðast... bergmál frá viðburðum, sem gerðust með Freysgyðlingum um miðja 13. öld...“ og á það einnig við um Njálu einsog Barði hefur bent á. Þá era samsvaranir í stíl Alexanders sögu og Hrafnkötlu með þeim hætti að rittengsl era augljós, einsog Hermann Pálsson hefur sýnt fram á. M. HELGI spjall REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 15. maí ÞAÐ ER umhugsunar- efni í ljósi sögulegrar reynslu, hvers vegna samstarf Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar- flokks í rfldsstjórn hef- ur gengið svo miklu bet- ur nú en fyrr á árum. Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur og ólust upp í Sjálfstæðisflokknum, ef svo má að orði komast, muna þá tíð, að ekkert var fjarlægara í huga Sjálfstæðismanna en samstarf við Framsóknarflokkinn. Hörð átök voru á milli þessara tveggja flokka á fjórða áratugnum og trúnaðarbrestur varð á milli formanna þeirra, Ólafs Thors og Hermanns Jónassonar, snemma á fimmta áratugnum. Með myndun Nýsköpunar- stjórnarinnar sýndi Ólafur að það var hægt að stjóma landinu án Framsóknarflokks- ins. Stjórnarsamstarf flokkanna tveggja á sjötta áratugnum gekk erfiðlega og Her- mann Jónasson ákvað að standa utan seinni ríkisstjórnar þeirra, sem mynduð var 1953, og hóf í þess stað undirbúning að því að útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá landsstjórninni, sem honum tókst 1956. Það var á margra vitorði, að Bjami Benediktsson hóf könnun á því á síðasta kjörtímabili Viðreisnarstjórnarinnar, hvort hægt væri að endurnýja samstarf þáverandi stjórnarflokka með Alþýðu- bandalaginu. Þær hugmyndir mættu harðri andstöðu innan Sjálfstæðisflokksins og þar var framarlega í flokki Eyjólfur Konráð Jónsson, þáverandi ritstjóri Morg- unblaðsins og varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins. Þegar Bjarni varð var við þá andstöðu breytti hann um tón og vakti at- hygli á því í samtölum við flokksmenn sína, að það væri a.m.k. hægt að vinna með hluta Alþýðubandalagsins og vísaði þá til Lúðvíks Jósepssonar. Markmið hans var að koma í veg fyrir, að Sjálfstæðisflokkur- inn þyrfti að ganga til samstarfs við Fram- sóknarflokkinn, ef Viðreisnarstjórnin héldi meirihluta sínum ekki fjórða kjörtímabilið í röð, sem telja mátti ósennilegt. Raunar sagði Bjarni sumum vina sinna, að hann mundi ekki sjálfur taka sæti í ríksstjórn, ef Sjálfstæðisflokkurinn neyddist til að eiga stjórnarsamstarf við Framsóknar- flokkinn. Vegna þessarar forsögu var lítil hrifning yfir því í Sjálfstæðisflokknum, þegar Geir Hallgrímsson myndaði rikisstjóm sína sumarið 1974 eftir stórsigur Sjálfstæðis- flokksins í þingkosningunum þá, þegar flokkurinn fékk 42,7% greiddra atkvæða, hæsta hlutfall í sögu lýðveldisins. Sam- starf flokkanna tveggja í þeirri ríkisstjóm var vel viðunandi. Þó voru þar hnökrar á. Margir töldu á þeim tíma, að það væri óheppilegt, að fyrrverandi forsætisráð- herra sæti sem fagráðherra í ríkisstjórn, og víst er um það, að a.m.k. í einu tilviki gerði Olafur Jóhannesson, sem þá var dómsmálaráðherra, Geir Hallgrímssyni erfitt fyrir í samningaviðræðum við Breta um landhelgismálið. Sú tilfinning Sjálfstæðismanna var eftir sem áður sterk, að samstarf við Fram- sóknarflokkinn í ríkisstjórn væri ekki æskilegur kostur. Eftir kosningaósigur stjómarflokkanna vorið 1978 bauð Sjálf- stæðisflokkurinn Alþýðuflokki upp á Við- reisnarsamstarf undir forsæti Alþýðu- flokks. Því tilboði var hafnað. Eftir desem- berkosningarnar 1979 var enn gerð tilraun af hálfu Sjálfstæðisflokks til þess að mynda ríkisstjóm án aðildar Framsóknar- flokks. Þá var þess freistað að skapa jarð- veg og andrúmsloft fyrir nýrri nýsköpun- arstjóm með þátttöku Alþýðubandalags, áratug eftir að Bjami Benediktsson hafði reifað slíkar hugmyndir. Andstaða við þær hugmyndir var hörð innan Alþýðubanda- lagsins og þá ekki sízt hjá Svavari Gests- syni. Samstarf Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks gekk nokkuð vel í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 1983 til 1987 en miður í þriggja flokka stjórn Þorsteins Pálssonar frá 1987 til 1988. Hins vegar eru þess engin dæmi síðustu sjötíu ár að sam- starf þessara tveggja flokka hafi gengið jafn vel og á síðasta kjörtímabili og að jafn mikið traust hafi skapazt á milli helztu for- ystumanna flokkanna og nú. Hvað veldur? Ekki sömu hagsmunir og áður HER KEMUR margt til sögunnar. Fyrst ber að nefna, að Davíð Oddsson, forsætisráðherra, hefur augljóslega lagt á það sérstaka áherzlu, að treysta samstarf flokkanna á síðustu fjómm ámm. Hann hefur nánast í hvert skipti, sem ráð- herrar Framsóknarflokksins hafa orðið íyrir aðkasti, tekið upp hanzkann fyrir þá og varið þá og gekk raunar svo langt í þeim efnum síðustu daga kosningabarátt- unnar, að mörgum Sjálfstæðismönnum þótti nóg um. Þetta hefur hins vegar leitt til þess, að traust og trúnaður hefur skap- azt á mflli hans og helztu forystumanna Framsóknarflokksins. Þeir treysta honum og hann þeim. Það hefur auðveldað Davíð Oddssyni að taka þessa afstöðu, að staða hans innan Sjálfstæðisflokksins hefur ver- ið og er mjög sterk og hefur enn eflzt við að skila Sjálfstæðisflokknum yfir 40% at- kvæðamagni í kosningunum, sem flokkn- um hafði ekki tekizt að ná frá árinu 1974. Þá er á það að líta, að Halldór Ásgríms- son, formaður Framsóknarflokksins, hefur töluvert önnur sjónarmið en forverar hans. Steingrímur Hermannsson lagði mikla áherzlu á samstarf til vinstri eins og faðir hans, Hermann Jónasson, gerði einnig og raunar líka þeir Eysteinn Jóns- son og að nokkru leyti Ólafur Jóhannes- son. Viðhorf Halldórs Ásgrimssonar til stjórnmála hefur alla tíð mótast fyrst og fremst af þörfum atvinnuveganna, vafa- laust vegna þess umhverfis sem hann er sprottinn úr, og þess vegna hefur hann að mörgu leyti átt málefnalega meiri samleið með Sjálfstæðisflokknum en vinstriflokk- unum. Meginskýringin er hins vegar áreiðan- lega sú, að Framsóknarflokkurinn á nú ekki sömu hagsmuna að gæta og áður. Al- veg fram á síðasta áratug var það eitt helzta hlutverk Framsóknarflokksins að efla stöðu Sambands ísl. samvinnufélaga og dótturfyrirtækja þess og samvinnu- hreyfingarinnar yfirleitt. Þessi fyrirtæki voru í harðri samkeppni við einkafýrirtæk- in, sem Sjálfstæðisflokkurinn stóð vörð um. Þessi hagsmunagæzla flokkanna beggja gat skipt sköpum á haftaárunum og hægt er að færa rök fyrir því, að Sam- bandsveldið hafi byggzt upp í skjóli henn- ar. Togstreitan á milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var því ekki bara af pólitískum eða persónulegum toga. Hún endurspeglaði þau átök, sem fram fóru á milli tveggja blokka í viðskipta- og at- vinnulífi landsmanna. Hrun Sambandsins og samvinnuhreyf- ingarinnar yfirleitt í atvinnulífinu, sem sjá má síðustu leifarnar af í vandamálum Kaupfélags Þingeyinga og að nokkru leyti Kaupfélags Eyfirðinga, hefur valdið því að Framsóknarflokkurinn er ekki jafn bund- inn af slíkum hagsmunum og áður. Að vísu er augljóst, að flokkurinn hugar að þeim hagsmunum eins og glögglega kom fram í umræðum um endurskipulagningu banka- kerfisins fyrir tæpu ári en engu að síður er ólíku saman að jafna miðað við það, sem áður var. Mörg þeirra fyrirtækja, sem áð- ur voru hluti Sambandsveldisins, búa nú við blómlegan rekstur og eiga við gjör- breyttar aðstæður sömu hagsmuna að gæta og önnur einkafyrirtæki í landinu. Þess vegna fer ekki á milli mála, að sjónarmið Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks fari í vaxandi mæli saman í mál- efnum atvinnulífsins og þar er ekki að finna sömu tilefni til átaka á milli flokk- anna og áður. Við þetta bætist, að Davíð Oddsson hefur lagt meiri áherzlu á að túlka og halda fram málefnum lands- byggðarinnar en jafnvel nokkur annar for- maður Sjálfstæðisflokksins. Þetta hefur komið mörgum á óvart vegna þess, að PW8i£ f SLIPPNUM Morgunblaðið/Árai Sæberg Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf sótt meginfylgi sitt til þéttbýlisins á suðvestur- horni landsins. Hins vegar hafa þessar áherzlur í málflutningi formanns Sjálf- stæðisflokksins á tveimur síðustu kjör- tímabilum áreiðanlega átt töluverðan þátt í góðri útkomu og sterkri stöðu Sjálfstæð- isflokksins í öllum landsbyggðarkjördæm- um utan Vestfjarða, þar sem sérstakar að- stæður ríktu í kosningabaráttunni. Þó er Ijóst að Sjálfstæðisflokkurinn kom betur út úr kosningunum þar en búast mátti við. Framsóknarflokkurinn hefur alltaf byggt stöðu sína í íslenzkum stjórnmálum á hagsmunagæzlu fyrir landsbyggðina. Og vegna þess, að kveðið hefur við nýjan tón í Sjálfstæðisflokknum í landsbyggðarmál- um, eiga flokkarnir einnig meiri samleið að þessu leyti en áður. Þegar staðan í stjórnmálum er skoðuð ofan í kjölinn kemur í ljós, að það eru breyttar aðstæður og nýjar áherzlur í mál- flutningi beggja stjórnarflokkanna, sem hafa leitt til þess, að svo gott samstarf hef- ur tekizt á milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Og einmitt af þessum ástæðum er ósennilegt, að nokkuð bregði út af í þeim málefnaviðræðum, sem hafnar eru á milli flokkanna um endurnýjun stjórnarsamstarfsins. Það fer auðvitað ekki á milli mála, að til eru þeir innan Framsóknarflokksins, sem hugsa á annan veg. Sjónarmið þeirra end- urspeglast í dagblaðinu Degi, sem heldur uppi markvissri baráttu fýrir því, að Framsóknarflokkurinn myndi ríkisstjórn til vinstri. Sú barátta byggir hins vegar á gömlum pólitískum forsendum og tekur ekki mið af þeim veruleika, sem hér hefur verið gerður að umtalsefni. Ný viðhorf í atvinnu- lífinu ÞAU NYJU viðhorf í atvinnulífinu, sem valda því, að Fram- sóknarflokkurinn er frjálsari af hags- munagæzlu fýrri ára í stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, endurspeglast ekki sízt í því, að Vinnuveit- endasamband Islands og Vinnumálasam- bandið eni að sameinast í nýjum Samtök- um atvinnulífsins. Sú sameining er líka vís- bending um annað, sem er að gerast í við- skiptalífmu. Hin gömlu dótturfyrirtæki Sambandsins hafa verið að eflast á ný á þessum áratug og um skeið virtist svo, sem hér væru að myndast aftur tvær öflugar viðskipta- blokkir. Annars vegar hin hefðbundnu einkafýrirtæki og hins vegar Sambands- fýrirtækin gömlu, sem hafa verið að endur- nýja sig og styrkja stöðu sína. Báðum aðilum er hins vegar orðið ljóst, að eins konar viðskiptastríð á milli þeirra háir vexti fýrirtækjanna. Þeir eru staðnað- ir í skotgröfunum. Þess vegna má sjá ýmis merki þess, að fyrirtækin eru að nálgast hvert annað og leita samstarfs. Viðræður sl. haust á milli fulltrúa SH og ÍS mörkuðu ákveðin þáttaskil í þessum efnum, þótt þær hafi ekki leitt til sameiningar fýrirtækj- anna. Samstarf Olíufélagsins og Guðmund- ar Kristjánssonar, útgerðarmanns á vett- vangi Básafells, er vísbending um það sama. Á næstu árum má gera ráð fyrir, að samstarfið innan hinna nýju Samtaka at- vinnulífsins og margvíslegir sameiginlegir viðskiptahagsmunir leiði til aukinnar sam- vinnu á milli fýrirtækja, sem áður til- heyrðu hinum gömlu viðskiptablokkum, sem byggðust á hagsmunum, sem eru liðin tíð. Þessi þróun á eftir að sjást með marg- víslegum hætti í samstarfi Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks. En jafnframt vekur hún alveg nýjar spurningar fýrir pólitíska andstæðinga þessara tveggja flokka. Hvernig ætla þeir að skapa sér nýja vígstöðu í stjórnmálun- um í átökum við flokka, sem alla öldina hafa tekizt á en eiga nú svo margra sam- eiginlegra hagsmuna að gæta að búast má við æ nánara samnstarfi þeirra í milli á næstu árum? Samfýlkingin þarf að finna trúverðugt svar við þeirri spurningu, ætli hún að eiga raunhæfa möguleika á að kom- ast til valda í fýrirsjáanlegri framtíð. Við- reisnarstjórn sömu flokka sat að völdum þrjú kjörtímabil í röð eins og menn muna. „Þegar staðan í stjórnmálum er skoðuð ofan í kjölinn kemur í Ijós, að það eru breyttar aðstæð- ur og nýjar áherzlur í máiflutningi beggja stj órnarflokkanna, sem hafa leitt til þess, að svo gott samstarf hefur tek- izt á milli Sjálfstæð- isflokks og Fram- sóknarflokks. Og einmitt af þessum ástæðum er ósenni- legt, að nokkuð bregði út af í þeim málefnaviðræðum, sem hafnar eru á milli flokkanna um endurnýjun stjórnar- samstarfsins.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.