Morgunblaðið - 16.05.1999, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 57
FOLK I FRETTUM
ERLENDAH
Bergþór Pálsson
óperusöngvari
fjallar um geisladisk
Andrea Bocelli,
Sogno.
Undurfögur og
töff söngrödd
SUMIR halda því e.t.v. fram, að sú
staðreynd að Andrea Bocelli er
blindur, hafi fleytt honum áfram, af
því að fólki finnist hrífandi að
blindur maður geti staðið jafnfætis
öðrum í mis-
kunnarlaus-
um sam-
keppnis-
heimi tón-
listargróða-
hyggju. En
þegar
grannt er
skoðað, er
slík hugs-
un angi af
fordóm-
um, því
að jafn-
rétti
verður
ekki náð
fyrr en
fotlun,
kyn-
ferði, litarháttur, kynhneigð
o.s.frv. hætta að koma málinu við
þegar rætt er um hæfileika. Best
ég reyni þá að koma mér að því
sem kemur málinu við!
Eitt er víst að Bocelli er gæddur
undurfagurri og hrikalega „töff‘
söngrödd og ekkert skrýtið, að hún
hefur gert hann að alþjóðlegri
stjömu. En stundum er sagt að
maður sem á annað foreldri hvítt
og hitt svart, eigi erfitt með að
samsama sig öðrum hvorum kyn-
stofninum, þar sem hvorki svartir
né hvítir líti á vesalings manninn
sem hluta af sér. Kannski á það við
ANDREA BocelJi,
um söngvara sem hafa ítök í popp-
og óperuheiminum samtímis.
Hvorum megin er Andrea Bocelli
eiginlega? Eða er hann báðum
megin og nær að sameina þessar
greinar söngheimsins í hamingju-
sömu hjónabandi?
Heyrst
hefur að
Bocelli
vinni nú að
hljóðritun á
La Bohéme
eftir Puccini,
þar sem
hann syngur
undir stjóm
Zubin Mehta.
Áður hefur
komið út aríu-
plata með
Bocelli, en það
verður spenn-
andi að heyra
hvemig honum
gengur að feta
sig í heilu ópera-
hlutverki, því að
vissulega læðist sú hugsun að
manni, að svona rödd njóti sín bet-
ur í rómantískri óperatónlist. Það
verður líka fróðlegt að vita hvemig
óperuunnendur taka slíkri útgáfu
með þessum „kommersíal" lista-
manni. En er ekki Roberto Alagna
„kommersíal" listamaður þó hann
syngi bara ópera? Einnig má gera
ráð fyrir að ýmsir sem þekkja
BocelÚ af poppinu einu saman,
leggi í fyrsta skipti eyra við ópera-
tónlist og uppgötvi þar með
ómældar víddir, sem þeir hafa farið
á mis við og er það ekki bara gott
mál?
Sogno er sem sagt að
hluta ítalskt sykurpopp, sem renn-
ur ljúflega og átakalítið fram hjá.
Platan þykist ekki vera neitt annað
og sem slík er hún ósköp „sæt“.
Textamir fjalla gjaman á bjart-
sýnan hátt um gildi þess að vera
sterkur gagnvart áföllum í hafsjó
lífsins og undursamleika ástarinn-
ar, sem er afskaplega auðvelt að
samsama sig við ef maður er und-
ursamlega ástfanginn. Ekki spillir
fyrir, að til liðs við Andrea koma
t.d. Celine Dion í The Prayer, bæn
um að við finnum ljósið og geymum
það í hjörtum okkar, innleiðum
frið, réttlæti, bræðralag og von, en
útrýmum ofbeldi; Eros Ramazzotti
í Nel cuore lei, hugleiðingu um feg-
urð kærleikans. E.t.v. finnst sum-
um yrkisefnin væmin, en platan
vinnur á við hlustun, einkum vegna
einlægninnar í rödd Bocellis. Þeg-
ar allt kemur til alls er einlægni
andstæða væmni, hversu við-
kvæmnislegt sem efnið er. Og þar
sem söngvarinn er einlægur og há-
músíkalskur tilfinningamaður með
gullbarka, má jafnvel flokka sumt á
plötunni undir gæsahúðarefni, t.d.
Cantico, sem ætti að geta orðið
jafnvinsælt og Con te partiro af
plötunni Romanza, sem allur heim-
urinn hefur nú heyrt. Cantico er al-
vörulag, sem ég marka af því að ég
var með það á heilanum meðan ég
var úti í búð að kaupa pasta og
grænmeti.
I heild er platan áheyrileg og
vonandi dreymir þær milljónir sem
kaupa plöturnar hans Bocellis um
bræðralag og kærleika á jörðinni.
Þá er vel.
MorgunblaðiðAJón Svavarsson
SKJÖLDUR Siguijónsson og
Agla Egilsdóttir voru með ein-
dæmum glæsileg á grímuballinu.
HRINGIR og
Magga Stína héldu uppi
stemmningunni góðu.
Mjög '
hátíðlegt
Á MIÐVIKUDAGSKVÖLD var
haldinn grímudansleikur í Iðnó, þar
sem fólk mætti í sínu fínasta og fékk
svo afhenta grímu við innganginn.
Hringir og Magga Stína léku fyrir
dansi, og fannst söngkonunni mjög
gaman þetta kvöld.
„Það var rosalega skemmtilegt, al-
veg geðveikt. Það verður alltaf svo
skemmtileg stemmning þegar fólk
kemur saman til að gera eitthvað al-
veg sérstakt. Það voru allir mjög fín-
ir með grímu, og þannig varð ballið
svo hátíðlegt. Ekkert líkt dimmisjón
þar sem maður ælir um leið og mað-
ur kemur inn. Ég misskildi þetta
reyndar og hélt að þetta væri furðu-
fataball og mætti því með kanínu-
eyru.“
COSMETIC
hár o? ne?lur
Ef þú vilt bæta húö þína, hár og neglur reyndu þá Silica Forte
- þú finnur stóran mun eftir 3 til 6 mánuði!
Kísill (Silica) er eitt mikilvægasta
steinefnið fyrir líkamann. Hann fyrirfinnst
meðal annars í elftingu og kísilþörungum.
Silica Forte inniheldur einstakt kísilþykkni
sem er mjög auðugt af flavóníðum.
BÆTT MEÐ © VÍTAMÍNI
Dreifing;
Éh
GÍIsaehF sími 533 3232
1 lif T i T I i T I i T T i T 11T I i T UT T i T
Föt á alla fjölskylduna
á frábæru verði!
fATAMARICAbURINN QZ£NSAS\/ec;i 7
om ALLA VfíQA FHA11-11
f A f_T A T T j f T j ▼ T j f_T j f T j ▼ Tjf UT T j 1 ]
4T