Morgunblaðið - 16.05.1999, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.05.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 37 ----------------------* nokkra kjóla til að sýna Traci. Pú vildir endilega að ég mátaði svarta kjólinn. Auðvitað gerði ég það. Þér leist vel á hann. Þú ljómaðir þegar þú sást mig í honum. Þegar ég kom úr kvöldskólanum eitt kvöldið, brá mér. Sjúkrabíllinn var fyrir utan húsið hjá þér. Ég fór beint yfír. Sá þig liggjandi á gólfinu. Fyrst hélt ég að þú værir dáinn en svo heyrði ég þig tala. Ég var svo hrædd að ég táraðist. Eitt skiptið hringdirðu til okkar. Ég svaraði og þú baðst mig að koma og hjálpa þér, meira að segja á íslensku. Þú hafðir runn- ið úr hjólastólnum og gast ekki lyft þér upp. Ég var alltaf tilbúin til að hlaupa yfir og vera hjá þér, þegar Beverly þurfti að skreppa út, hjálpa þér uppí rúmið eða úr því, og til að fara með þig út. Ég vildi að þú hefðir treyst þér að koma með okkur þegar ég og Helgi fór- um að sjá fallhlífastökkið. Þú hefð- ir haft gaman af því! Þér fannst ég svo falleg. Sagðir að ég yrði „fal- legasta stelpan á ballinu“. Seinasta skiptið sem ég sá þig vakandi var kvöldið sem við Helgi fórum á „Prom“. Við komum til að sýna þér hamingju okkar. Þú tókst fast í höndina á mér og hélst henni. Svo dróstu mig að þér og hvíslaðir í eyra mér. Eftir þetta kom ég í nokkur skipti til þín en vildi ekki vekja þig. Horfði bara á þig í smá stund. Eg vildi óska þess að þú kæmir á útskriftina mína 19. maí. En ég veit að þú verður þar með mér þegar ég labba yfír sviðið. Þú sem hlakkaðir svo til að fara til Is- lands um næstu jól og áramót. Núna verður ekkert úr því. Núna er húsið á móti rosalega tómlegt, það vantar þig, „Uncle Henry“. Vildi að þú hefðir getað verið leng- ur með okkur. Það var svo mikið líf í kringum þig. Ég á eftir að sakna þín mikið. Gatan er ekki söm við sig í dag. Blessuð sé minning þín. Sigrún María Guðjónsdóttir. Kæri frændi. Aldrei óraði mig fyrir því að þú myndir kveðja okkur svona fljótt og snögglega. Ég sem var búinn að bóka þig hérna hjá okkur á hótel jörð langt fram yfir aldamótin. Ef ekki vegna meðfædds létt- leika og góðrar kímnigáfu, þá vegna orðlagðrar þijósku ættarinn- ar. Þegar þú komst hingað til Is- lands fyrir tveimur árum, varstu að tala um að kaupa þér hús hérna til að dvelja hér yfir sumartímann í framtíðinni, og sjálfur ætlaði ég að slappa af við sundlaugarbarminn hjá þér einn og einn vetrarpart með konunni. En svona er þetta nú - mennirnir álykta en Guð einn ræður. Og hans dómi er affarasælast að hlýða og sætta sig við. Það var nú ekki ætlunin að fara að skrifa neina lofrullu um þig enda viss um að það hefðir þú ekki kært þig um, jafn heillyndur og þú varst. En eitt verð ég þó að nefna sem mér kemur í hug eftir áralaga vin- áttu og það er hvað þú varst góður félagi. Þrátt fyrir aldursmuninn varstu mér sem eldri bróðir. Reyndar áttir þú það til að kynna mig sem pabba þinn fyrir vinum þínum í Flórída. Þegar ég kom út til þín fyrir 15 árum til 6 mánaða dvalar tókstu mér opnum örmum og í raun kenndir þú mér það litla sem ég kann í smíðum, og hefur reynst mér notadrjúgt æ síðan. Eins var gestrisnin ríkuleg þegar ég kom til þín í haust með fjölskylduna, til að kveðja þig hinsta sinni. Elsku kallinn minn, nú ertu far- inn í ferðina miklu sem enginn fær umflúið. Ekki veit ég hvort hún er nokkuð lík skemmtísiglingunni sem þú fórst í um Karabíska hafið á sínum tíma, en hitt veit ég, að eftir lifir minning um góðan dreng sem kvaddi langt um aldur fram. Farðu í friði og Guðs blessun fylgi þér. Þinn vinur Birgir Laxdal. VLADIMIR KNOOPF MILERIS Vladimir Knoopf Mileris var fæddur í Kíev, tíkraínu, 15. júní 1916. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík hinn 9. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru: Alexander Knoopf Mileris, læknir í Kiev og kona hans Nina Mileris, Iyfjafræð- ingur. Vladimir var einbirni. Hann kom til íslands í septem- ber 1939. Hann kvæntist 1942 Fjólu Steinsdóttur, f. 27. maí 1923. Þau fluttust til Sierra Le- one 1947, en aftur til fslands 1993. Synir þeirra eru: 1) Oleg, f. 1941, sam- býlisk. Nina. 2) Alexander, f. 1943, eiginkona Nadia. Þau eiga tvö böm. 3) Georg, f. 1947. Fyrri kona hans var Carmen og eiga þau tvö börn. Sambýlis- kona Georgs er María Svenson. 4) Henry, f. 1949, d. 1973. títför Vladimirs verður gerð frá Bústaðakirkju, mánudaginn 17. maí og hefst at- höfnin klukkan 13.30. í septembermánuði 1939, rétt eft- ir stríðsbyrjun, var á siglingu nærri ströndum Islands skip frá Memel, Litháen, og meðal háseta ungur maður, sem mátti eiga von á að verða „tekinn í herinn“ - einhvem stórveldisherinn - um leið og skipið kæmi til heimahafnar, en sú hugsun var honum ekki að skapi. Hann tók það ráð að stökkva fyrir borð, og mun hafa þurft kjark til að gera slíkt, úti fyrir „úrgum ströndum" óþekkts lands, sem gerólíkt var öllu sem hann hafði alist upp við. En til lands komst hann og var honum veitt aðhlynning og fékk brátt vinnu, enda óhandlatur. Vladimir reyndi fyrir sér með vinnu á mörgum sviðum, meðan hann var hér, almenna verka- mannavinnu, sjómennsku, kaup- mennsku, og í stýrimannaskólann fór hann og gekk vel. Þar kom að hann kynntist stúlku, Fjólu, sem var ein af þrettán börnum Steins og Valgerðar að Litla-Hvammi í Mið- firði, og þar með móðursystir kon- unnar minnar. En þegar stríðinu var lokið, vaknaði með honum sá ásetningur að leita tækifæra í fjar- lægum löndum; hélt hann til Eng- lands með fjölskyldu sína og hugðist fara til Suður-Afríku þar sem tæki- færin biðu. Keypti hann skip í Englandi, ásamt tveim öðrum, til þess að sigla þangað - en skipið strandaði við Sierra Leone (Freetown). En þar var þá góð skip- un á málum undir verndarvæng Breta. Vladimir kom þar upp veit- ingarekstri, í útjaðri borgarinnar, lyrstur manna á þeim slóðum, og vann fjölskyldan öll þar að. Á þess- um stað áttu þau Vladimir og Fjóla heimili og starfsvettvang í 45 ár. Eignuðust þau fjóra syni, hina gervilegustu menn, en misstu þann yngsta af slysfórum (1973). Vladimir var frá Kíev, Úkraínu og af rússnesku og þýsku foreldri - Alexander Knoopf Mileris, læknir, og Nina Mileris, lyfjafræðingur, hétu þau. Hann fæddist árið 1916, rétt íyrir byltinguna og þegar drengurinn var sjö ára varð móðirin að flýja með hann til Litháen, en Alexander var þá í keisarahemum og til hans spurðist aldrei eftir þetta; en Vladimir ólst síðan upp hjá móðurfólki sínu í Litháen. Og þegar hann óx úr grasi beindi athafnaþráin honum að sjómennsk- unni, til að afla sér fjár og þekking- ar. En það starf varð upphaf að langri og breytilegri ævi-leið, eins og nú var lítillega minnst á, og mun- ar þar þó vitanlega mest um dvölina í Freetown. Þegar aldurinn fór að færast yfir og synimir að taka við rekstrinum, fluttust þau hjónin aft- ur til íslands, og keyptu sér íbúð við Skálagerði, þar sem Fjóla býr nú. Vladimir var þá orðinn heilsutæpur, en Fjóla annaðist hann þannig, að allir dáðust að, og lánsamur er hver, sem eignast slíkt ævikvöld. Það held ég einkenni öll systkini hennar, að þau vanrækja ekki sína. Vladimir kom mér fyrir sem hæg- látur, góðlyndur og gamansamur maður, sem vildi gjaman spjalla um liðna tíma. Þegar ættfólk konu hans og minnar hittist, tók ég mér oft sæti hjá honum og fannst mér, að honum þætti vænt um það. Óska ég honum nú gæfu og geng- is á nýjum leiðum í þessum merki- lega heimi, sem við öll byggjum og erum hluti af. Þorsteinn Guðjónsson. t Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, GUÐMUNDAR HANNESAR EINARSSONAR, Eystri Leirágörðum. Ólöf Friðjónsdóttir, Adolf Einarsson, Pálmi Þ. Hannesson, Valgerður Kristjánsdóttir, Magnús I. Hannesson, Andrea Björnsdóttir, Guðríður S. Hannesdóttir, Ulrich Kastenholz. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, VLADIMIR KNOPF MILERIS, Skálagerði 5 Reykjavfk, sem lést á heimili sínu í Reykjavík sunnu- daginn 9. mai, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 17. maí kl. 13.30. Fjóla Steinsdóttir Mileris, börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær sonur minn, bróðir og frændi, STEFÁN ÁGÚST SOTO, Philadelphiu, Pennsilvaniu, Bandaríkjunum, andaðist mánudaginn 28. desember 1998. Minningarathöfn verður í Fossvogskapellu mánudaginn 31. maí, kl. 13.30. Sigríður Benediktsdóttir Soto, Jakob R. Garðarsson, Katrín M. Soto, Marco B. Soto og aðrir ættingjar hins látna. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SIGURÐUR ÁRNASON, lést á sjúkrahúsi f Mexíkó föstudaginn 14. maí. Jarðarför auglýst síðar. Guðrún Kolbrún Jónsdóttir, Árni B. Sigurðsson, Sigurður Þór Sigurðsson, Þóra K. Sigurðardóttir, Rut Sigurðardóttir, Sturla Sigurðsson, Álfheiður Erla Sigurðardóttir. t Sonur minn og bróðir okkar, HELGI HJÁLMARSSON, Hæðargarði 2, Reykjavík, lést þriðjudaginn 20. apríl síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Bera Kristjánsdóttir, Hulda Valtýsdóttir, Kristján Jóhannsson, Sólrún Hjálmarsdóttir, Sævar Hjálmarsson og aðrir aðstandendur. Móðir okkar, t RAGNA SIGURÐARDÓTTIR frá Arnarvatni, lést á Kumbaravogi fimmtudaginn 13. maí. Ormur Hreinsson, Styrmir Hreinsson, Helga Hreinsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR ÓLAFSSON bakarameistari, Skólastíg 14, Stykkishólmi, lést á St. Fransiskussjúkrahúsinu fimmtudaginn 13. maí. Fyrir okkar hönd og annarra ástvina, Ingveldur Sigurðardóttir. t Minningarathöfn um elskulega móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU HÁLFDÁNARDÓTTUR, Álfheimum 34, verður haldin í Langhoitskirkju á morgun, mánudaginn 17. maí, kl. 10.30. Útförin fer fram frá Svalbarðsstrandarkirkju þriðjudaginn 18. maí kl. 13.30. Ásta L. Jónsdóttir, Þórir Sigurbjörnsson, Jens Jónsson, Minerva Sveinsdóttir, María M. Jónsdóttir, Gísli Ögmundsson, Bjarni H. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.