Morgunblaðið - 16.05.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.05.1999, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Þrír reynsl- unni ríkarí ÞRÍR ungir og efnilegir leik- menn eru komnir aftur í her- búðir Skagamanna eftir skamma dvöl með öðrum lið- um. Það eru þeir Unnar Val- geirsson, sem lék undir stjóm Teits Þórðarsonar hjá eist- nesku meisturunum í Flora Tallin, og Freyr Bjamason og Jón Þór Hauksson, sem báðir vom í láni hjá SkaUagrími í 1. deildinni á síðustu leiktíð. Sigursælir Skaga- menn SKAGAMENN hafa verið sigursælastir íslenskra knatt- spymuliða á þessum áratug, unnið íslandsmeistaratitilinn 1992,1993,1994,1995 og 1996 og bikarmeistaratitilinn 1993 og 1996. Alls hafa Skagamenn raunar orðið Islandsmeistar- ar sautján sinnum og sjö sinn- um bikarmeistarar. Æftá Laugar- vatni LOGI Ólafsson, þjálfari Skagamanna, er íþróttakenn- ari að mennt og hefur m.a. unnið við kennslu á Iþrótta- kennaraháskólanum að Laugarvatni í vetur. Þar hafa Skagamenn einmitt æft síð- ustu daga, fóm þangað á uppstigningardag og æfðu á grasvelli við góð skilyrði. „Það er mikilvægt að ná hópnum saman og æfa á grasi, en ekki hefur verið hlaupið að því í vor. Það er stutt í að Islandsmótið hefjist og ég vil hafa mína menn klára í slaginn. Það er mikil- vægt að byrja vel, þótt ég sé ósammála því að það skipti öllu máli. KR-ingar sýndu það í fyrra. Þeir gerðu sex jafntefli í fyrri umferðinni en komust samt í hreinan úr- slitaleik undir lokin. Það sýn- ir okkur að allir leikirnir átján skipta máli, en ekki að- eins þeir fyrstu,“ segir Logi. Skagamenn leika við Vík- inga á heimavelli í 2. umferð og eiga svo Fram og Keflavík. „Þetta verða aUt mjög erfiðir leikir og geta ráðið miklu,“ segir þjálfarinn. KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Þorkell LOGI Ólafsson, þjálfari Skagamanna, ásamt tveimur af sínum mönnum - Jóhannesi Harðarsyni og Alexander Högnasyni. Logi Ólafsson, þjálfari Skagamanna, telur að sitt lið verði á svipuðu róli og áður Hefð fýrir topp- baráttu á Akranesi LIÐINU hefur gengið ágætlega í vorleikjunum og mér finnst hafa verið stígandi í þessu hjá okkur,“ segir Logi Ólafsson, þjálfari Skagamanna, sem leika opnunarleik íslandsmótsins gegn KR- ingum í Frostaskjóli nk. þriðjudag. „Ég finn fyrir mikilli tilhlökkun hjá sjálfum mér, leikmönnum liðsins og þeim sem að því standa. Það er ávallt gaman þegar íslandsmótið hefst, því þá sjá menn loksins laun erfiðisins eftir langt og strangt undirbúningstíma- bil.“ Eftir Bjöm Inga Hrafnsson Skagamenn eru eitt sigursælasta lið íslenskrar knattspymu og þar á bæ eru ávallt gerðar miklar kröfur. „Það er hefð fyrir toppbaráttu á Akranesi og þar ætl- um við að vera í sum- ar. Við lentum í þriðja sæti í fyrra og þess vegna hljótum við að stefna á að gera enn betur nú,“ segir þjálfarinn. Logi segir að gott gengi í deilda- bikarkeppninni sýni að liðið sé á réttri leið og enn eigi eftir að slípa tvo leikmenn í framlínunni. Það eru þeir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, sem er í láni frá Walsall á Englandi, og Kári Steinn Reynisson, sem kominn er aftur á Akranes eftir dvöl hjá Leiftri á Ólafsfirði. „Þeir eiga eftir að komast betur inn í hlut- ina og eins eiga þeir Ragnar Hauks- son og Baldur Aðalsteinsson eftir að fá sín tækifæri," segir Logi, en Baldur kom frá Völsungi á Húsavík og þykir mikið efni, ekki orðinn tví- tugur. „Sigurður Ragnar leikur með okkur þar til í júlí og þá er mikil- vægt að aðrir séu tilbúnir að taka við.“ Fjölmargir erlendir leikmenn hafa leikið með Skagamönnum á undanförnum ánim, en nú bregður Spáin: 3. sæti svo við að enginn er á samningi - enn sem komið er. „Það gæti nú breyst á næstunni,“ segir Logi. „Við gætum þurft að styrkja hópinn með erlendum leikmanni, jafnvel frá annarri heimsálfu," bætir hann við. Skagamenn hafa einmitt haft auga- stað á framherja frá Suður-Afríku og mun hann væntanlegur til liðs- ins. Logi er einn af reyndari þjálfur- um landsins, gert Víkinga og Skagamenn að íslandsmeisturum og stjómað landsliði kvenna og karla. Reynslan hlýtur að skila sér í þjálfuninni, en Logi segist þó alltaf leita eftir nýjungum og hann hafi að mörgu leyti farið nýjar brautir á undirbúningstímabilinu. „Þetta er talsverð breyting frá í fyrra. Ég ákvað að gefa ekki frí strax eftir lok mótsins í fyrra, heldur lékum við knattspymu fjómm til fimm sinnum í viku framundir miðjan nóvember, bæði á grasi og möl. Þá fyrst var tekið frí, en þó með þeim formerkj- um að menn mættu á tvær af þrem- ur æfingum á viku og hlypu eða lyftu lóðum og héldu sér þannig í æfingu. Eftir áramót hófum við svo æfingar af fullum krafti á nýjan leik og höfum æft fimm til sex sinnum í viku síðan. Þetta finnst mér að hafi skilað sér í ánægðari leikmönnum og betra liði. Það er nefnilega engin ástæða til að hætta að leika knatt- spyrnu í september, fara þá í frí og byrja svo aftur þegar vonlaust er að iðka íþróttir utandyra vegna veðurs. Knattspyma er heilsársíþrótt og mér fannst tímabært að breyta æf- ingum til samræmis við það sem gerist og gengur erlendis." Þetta var ekki eina breytingin, því Logi ákvað einnig að minnka leikmannahópinn verulega. „Ég vildi gera æfingamar markvissari og því urðu nokkrir leikmenn að hætta. Því fylgdi auðvitað viss sárs- auki, en ég taldi það betra fyrir lið- ið,“ segir Logi Þjálfarinn telur líklegt að deildin verði afar jöfn að þessu sinni, ekk- ert lið muni stinga önnur af og allt að sex lið geti slegist í toppbarátt- unni. „Við ætlum að vera þar og Eyjamenn, KR-ingar og Leifturs- menn sömuleiðis. Ég get líka séð fyrir mér að Fram og Keflavík geti verið í hópi efstu liða og þessi fjöldi sýnir að deildin verður jöfn. Ég vil engu liði á íslandi svo illt að spá því fallbaráttu, en bragðið getur til beggja vona hjá nýliðunum og eins Grindvíkingum. Þó hefur skapast hefð fyrir því að nýliðar geti komið á óvart og víst er að þessi lið verða ekki auðunnin." En Skagamenn ætla ekkert að gefa eftir í baráttunni, frekar en venjulega? „Nei, það er alveg á hreinu. Við ætlum okkur í toppbaráttuna og munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að svo megi verða. Ég tel mig líka vera með lið til þess, svo lengi sem lykilmenn haldast heilir," segir Logi Ólafsson. AKRANES Nýir leikmenn Gunnlaugur Jónsson, frá Örebro Kári Steinn Reynisson, írá Leiftri Baldur Aðalsteinsson, frá Völsungi Ólafur Þór Gunnarsson, frá ÍR Unnar Valgeirsson, frá Flora Tallin, Freyr Bjamason, frá Skallagrími Jón Þór Hauksson, frá Skallagrími Farnir Þórður Þórðarson, til Norrköping Steinar Dagur Adolfsson, til Kongsvinger Dean Martin, til KA Slobodan Milisic, til KA Jóhannes Karl Guðjónsson, til Genk Sigursteinn Gíslason, til KR Guðjón Skúli Jónsson, til FH Ruslan Moussayev, til Eistlands Zaur Tagizade, til Eistlands, Zoran Ivsic, til Júgóslavíu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.