Morgunblaðið - 24.06.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
139. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Utanríkisráðherrar fjögurra ESB-landa skoða aðstæður í Kosovo að afloknum stríðsátökum
AP
KOSOVO-Albanar í bænum Urosevac í Suður-Kosovo efndu til mótmæla í gær en þeir eru ósáttir við þær
ráðagerðir að rússneskir og grískir hermenn leysi bandaríska liðsmenn KFOR-friðargæslusveitanna
senn af hólmi í Urosevac. Óttast þeir að Rússar og Grikkir muni ekki reynast þeim jafn vinsamlegir.
Skotið á liðs-
menn KFOR
Mitrovica, Velika Krusa. Reuters.
BANDARÍSKIR liðsmenn KFOR-
friðargæslusveitanna skutu einn
mann til bana og særðu tvo í bænum
Zegra í Suðaustur-Kosovo í gær eftir
að gerð hafði verið árás á þá, að sögn
talsmanna Bandaríkjahers. A sama
tíma handtóku franskir hermenn
þrjá Kosovo-Serba í Mitrovica í
Norður-Kosovo eftir að til skotbar-
daga hafði komið þegar Frakkamir
reyndu að koma nokkrum Kosovo-
Albönum til bjargar, sem orðið höfðu
fyrir aðkasti Serbanna.
Greint var frá því í gær að ný
fjöldagröf hefði fundist í nágrenni
Mitrovica og er talið að þar sé að
finna lík um 180 Kosovo-AIbana.
Utanríkisráðherrar fjögurra Evr-
ópusambandsríkja, Þýskalands,
Frakklands, Bretlands og Italíu,
voru í Kosovo í gær í því skyni að
skoða aðstæður að afloknum stríðsá-
tökum í héraðinu. Áttu þeir bágt
með að leyna viðbjóði sínum er þeim
voru sýndar brunnar líkamsleifar
rúmlega eitt hundrað manna í fjölda-
gröf í þorpinu Velika Krusa í Suður-
Kosovo.
„Hér sér maður svart á hvítu
hvaða fyrirskipanir [Slobodan]
Milosevic [Júgóslavíuforseti] gaf
hersveitum sínum og fyrh’ það verð-
ur að koma lögum yfír hann,“ sagði
Robin Cook, utanríkisráðherra Bret-
lands. „Hafi ég haft einhverjar efa-
semdir um réttmæti ákvörðunar
vesturveldanna; að efna til hernaðar-
aðgerða til að frelsa Kosovo undan
þessari ógnarstjóm, þá em þær
horfnar eins og dögg fyrir sólu nú,“
bætti Cook við.
Stjómvöld í Sviss samþykktu í gær
að verða við beiðni stríðsglæpadóm-
stóls Sameinuðu þjóðanna, sem í síð-
asta mánuði ákærði Milosevic fyrir
stríðsglæpi, og frysta allar innistæður
Júgóslaviuforseta í svissneskum
bönkum. Allar eignir fjögurra ann-
arra, sem ákærðir vom um leið og
Milosevic, vora einnig frystar.
Blair segir stríðandi fylkingar á N-írlandi á síðasta snúningi með að leysa deilumál sín
Ottast öldu ofbeldis takist
ekki að höggva á hnútinn
Belfast, London. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að stríðandi fylkingar
á Norður-írlandi væm á allra síðasta snúningi með að höggva á þann hnút
sem kominn er á friðarumleitanir í héraðinu. Á miðvikudag rennur út frest-
ur sem deilendum hefur verið gefinn til að leysa „afvopnunardeiluna“
svokölluðu og hvatti Blair þá í gær til að láta tækifærið ekki renna sér úr
greipum. Rynni friðarsamkomulagið frá því í fyrra út í sandinn væri „eng-
inn vafi á að alda ofbeldis skylli á íbúum héraðsins að nýju“.
Rúmlega
200 milljörð-
um stolið
New York. The Daily Telegraph, AP.
GRUNUR leikur á að bandarískur
verðbréfamiðlaii hafi stungið undan
sem svarar rúmlega tvö hundmð
milljörðum króna, og til hans sjálfs
hefur ekkert spurst í tæpa tvo mán-
uði. Bandaríska alríkislögreglan seg-
ir að um geti verið að ræða umfangs-
mesta þjófnað í sögunni.
Miðlarinn heitir Martin Frankel
og stundaði viðskipti sín á heimili
sínu í glæsihúsi í útborg New York.
Ekki virðist vera að fullu ljóst hvern-
ig Frankel fór að því að koma þess-
um fjármunum undan, en að sögn
bandaríska blaðsins The New York
Times virðist sem hann hafí svindlað
á tryggingafélögum, sem hann fékk
til að beina verðbréfaviðskiptum til
fyrirtækis sem hann hafði stofnað,
án þess að hafa til þess tilskilin leyfi.
Frankel sjálfur er horfinn og telja
bandarísk lögregluyfirvöld líklegt að
hann hafi flúið land og kunni að hafa
farið til Brasilíu eða Israels.
■ Einn stærsti þjófnaður/26
Þau „endanlegu" tímamörk sem
bresk stjórnvöld hafa sett fyrir því
að komið verði á laggirnar heima-
stjórn á N-írlandi með aðild allra
flokka nálgast nú óðfluga. Sam-
bandssinnar sitja fast við sinn keip
og neita að að setjast í stjórn með
Sinn Féin nema hernaðarvængur
flokksins, IRA, byrji afvopnun fyrst
og skiptir engu þótt mjög hafi verið
þrýst á David Trimble, leiðtoga
stærsta flokks sambandssinna
(UUP), og tilvonandi forsætisráð-
herra í heimastjórninni, að draga
úr kröfum sínum hvað þetta varðar.
Vakti nokkum ugg í gær að
Trimble lét sér fátt um öll „endanleg"
tímamörk finnast því við bætist að
um aðra helgi nær „göngutíð" sam-
bandssinna í Oraníureglunni árlegu
hámarki við Drumcree í Portadown
en þar hefur komið til harðra átaka
undanfarin sumur vegna deilna um
rétt Óraníumanna til að ganga í gegn-
um hverfi kaþólikka þar í bæ.
Mowlam hafnar kröfum
um afsögn
Það kynti enn undir spennu þeg-
ar IRA-maðurinn Patrick Magee,
hinn alræmdi „Brighton-sprengju-
maður“, var látinn laus úr fangelsi á
þriðjudag eftir aðeins þrettán ár í
fangelsi. Friðarsamkomulagið kveð-
ur að vísu á um lausn allra fanga
öfgahópanna á N-írlandi haldi þeir
vopnahlé sín. Líklegt þykir hins
vegar að IRA hafi komið að morð-
um, sem framin vom nýverið, og
gagnrýndi Trimble Mo Mowlam, N-
Irlandsmálaráðherra bresku stjórn-
arinnar, harkalega fyrir að taka
ekki harðar á meintum vopnahlés-
brotum IRA.
Sagði Trimble að Mowlam væri
rúin öllu trausti hjá n-írskum sam-
bandssinnum og vora ummælin
túlkuð sem krafa um afsögn ráð-
herrans.
Mowlam lét köll um afsögn sína
sem vind um eyru þjóta en sagði að
hún myndi ekki hika við að segja af
sér embætti teldi hún sig til trafala
hvað viðkemur friðammleitunum á
N-írlandi. Kvaðst hún hins vegar
ekki telja að svo væri.
Svört
skýrsla um
norskar
kjötafurðir
Ósló, Morgunbladid.
SLÁANDI mikið magn af
bakteríum, sem myndað hafa
mótstöðu gegn fúkalyfjum, er í
norsku kjúklinga- og svína-
kjöti, að því er ný rannsókn á
norskum kjötvömm hefur leitt
í ljós. Sérfræðingar segja e.t.v.
ekki ástæðu fyrir fólk að hætta
að leggja sér norskt kjöt til
munns en telja fyllstu ástæðu
til að niðurstöðunum verði
gefin gaumur.
Nákvæmlega fjórum árum
eftir að innleitt var í Noregi
bann við því að setja fúkalyf í
alifuglafóður hefur eftirlits-
stofnun, sem starfar á vegum
ríkisins, upplýst að í helmingi
þeirra sýna sem tekin vora hafi
fundist bakteríur sem myndað
hafa mótstöðu gegn fúkalyfj-
um.
Afar viðnámsfærar bakterí-
ur, bakteríur sem myndað hafa
mótstöðu gegn minnst þremur
tegundum fúkalyfja, fundust
aukinheldur í innihaldi 31%
alls svínakjöts sem rannsakað
var.
Þessar upplýsingar þykja af-
ar slæm tíðindi fyrir norskan
landbúnað og álitshnekkir fyrir
bændur í Noregi en þeir hafa
um áraraðir markaðssett land-
búnaðarvörur sínar undir vöm-
merkinu „gott frá Noregi“, og
hefur það átt að gefa til kynna
að ýtrastu gæðakröfum sé
framfylgt við framleiðslu af-
urðarinnar og að norskar kjöt-
vörur séu gjörólíkar þeim
„varasömu" matvömm sem
komi frá meginlandi Evrópu.
Öcalan varar við blóðbaði
verði hann tekinn af lífí
Öcalan
Rrfm, Mudanya. Reuters.
KÚRDALEIÐTOGINN Abdullah Öcalan hefur
varað stjómvöld í Tyrklandi við miklu blóðbaði
verði hann líflátinn. „Ef dauðarefsingu verður
framfylgt mun það hafa mjög neikvæðar afleið-
ingar, það mun kosta milda blóðtöku sem leitt
gæti til valdaráns," sagði Öcalan í gær.
Réttarhöldin yfir Ócalan héldu áfram í gær
eftir tveggja vikna hlé. Öcalan hélt lokaræðu
sínu úr glerbúri sem hann er látinn sitja í með-
an á réttarhöldunum á Imrali-fangelsiseyjunni
stendur. Drap Öcalan þar, í fyrsta sinn frá því
að réttarhöldin hófust, á baráttumál Kúrda.
Öcalan sagði það í höndum tyrkneskra
stjómvalda að binda enda á aðskilnaðarstríð
Kúrda með því að leyfa Kúrdum að hefja út-
sendingar og tungumálakennslu á kúrdísku, en
tyrknesk stjómvöld hafa lagt bann við slíku.
Öcalan varaði stjórnvöld við því að virða um-
mæli hans að vettugi og sagði það geta leitt til
enn frekari blóðsúthellinga.