Morgunblaðið - 24.06.1999, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Veður seinkaði pollum
á leið til Eyja
POLLAMÓTIÐ í Vestmannaeyjum
hefst í dag og munu um það bil
1.000 ungir knattspyrnumenn
reyna með sér í íþróttinni í Eyjum
um helgina. Flugfélag Islands fór
þrjár ferðir í gærkvöldi og Islands-
flug nokkrar ferðir.
Að sögn Einars Friðþjófssonar
hjá ÍBV var búist við um 1.000
keppendum, um 150 fararstjórum
og stórum hópi foreldra, þannig að
alls verði allt að 2.500 aðkomu-
menn í Eyjum um helgina. Til
dæmis kemur Stjarnan með 70
keppendur en 108 foreldra til
Eyja.
Einar Friðþjófsson sagði að
góðu veðri væri spáð í dag og
keppnishaldið myndi ekki raskast
hvað sem samgöngutruflunum liði,
hins vegar var útlit fyrir að setn-
ingarathöfn mótsins, sem halda
átti í gærkvöldi, yrði frestað þar til
í kvöld.
Sálffreinir söguhetjur
Islendingasagna
NORSKI geðlæknirinn Jon Geir
Hpyersten varði _ doktorsritgerð
sína um persónur íslendingasagn-
anna við læknadeild háskólans í
Bergen í Noregi sl. laugardag, en
ritgerðin ber á norsku heitið Per-
sonlighet og awik eða Persónuleiki
Þrír hand-
teknir við
mótmæli
ÞRIR menn voru handteknir við
bandaríska sendiráðið í Reykjavík í
gærkvöldi. Að sögn lögreglu létu
þeir, ásamt fleirum, ófriðlega þegar
þeir mótmæltu heræfíngunni Norð-
ur-Víkingi 99. Mennimir voru enn í
haldi lögreglu seint í gærkvöldi.
Talsverður hópur herstöðvaand-
stæðinga safnaðist saman fyrir utan
sendiráðið og mótmælti þar heræf-
ingum með slagorðum og svörtum
fánum. Að sögn lögreglu lét lítill
hluti hópsins ófriðlega og hurfu þá
flestir hinna af staðnum.
Mennirnir grýttu sendiráðið og
bfla sem stóðu fyrir utan það og
drógu svartan fána að hún á flagg-
stöng sendiráðsins. Mótmælin stóðu
stutt yfir, líklega um eina klukku-
stund. Þrír menn voru handteknir og
voru þeir yfirheyrðir í gærkvöldi. Að
sögn lögreglu virtist sem áfengi
hefði verið haft um hönd.
Fyrr um daginn safnaðist hópur,
sem nefnir sig andstæðinga gegn
heræfingum, saman í Hljómskála-
garðinum. Þar var fyrirhugað að
herþyrla lenti í tengslum við heræf-
inguna Norður-Víking. Hætt var við
lendinguna en ekki hefur verið skýrt
frá ástæðu þess. Lögreglan hafði
ekki upplýsingar um hvort sami hóp-
ur manna hefði verið á ferð á báðum
stöðum.
Morgunblaðið/Hákon Agústsson
MÓTMÆLENDUR drógu svartan fána að hún við bandaríska sendiráðið.
og frávik. í undirtitli ritgerðarinnar
kemur fra_m að hún fjalli um per-
sónuleika Islendingasagnanna eink-
um söguhetjanna í Brennu-Njáls
sögu og ef niðurstöður hennar eru
skoðaðar kemur m.a. í ljós að allt
bendi til þess að persónurnar
Skarphéðinn og Hallgerður hafi
verið með svokallaðar félagslegar
persónuleikaraskanir. Skarphéðinn
hafi til að mynda verið með svo-
nefndar geðklofalíkar persónuleika-
raskanir eða geðklofalíkar tilhneig-
ingar og að Hallgerður hafi haft
svonefnda sjálfsdýrkunar persónu-
leikaröskun, sem þýðir m.a. að hún
hafi bara hugsað um sjálfa sig og
ekki myndað nein tilfinningaleg
tengsl við aðra. Njáll hefur á hinn
bóginn ekki verið greindur með
slíkar persónuleikaraskanir.
Með eindæmum nútímaleg sýn
I samtali við Morgunblaðið segir
Hoyersten, að margt í texta íslend-
ingasagnanna bendi til þess að höf-
undar þeirra hafi haft afar nútíma-
legar hugmyndir um sálarfræði
mannsins. Á Hpyersten þar m.a. við
að persónuleiki söguhetjanna sé í
sögunum ávallt skilgreindur út frá
þremur þáttum; líffræðilegum, sál-
arfræðilegum og félagslegum þátt-
um. Þá hafi höfundar íslendinga-
sagnanna lagt áherslu á mismun-
andi persónuleika með því að vísa til
dygða eða lasta og þar að auki verið
sér meðvitandi um frávik einstakra
persónuleika frá „hinu almenna",
þ.e. ekki bara út frá félagslegu sjón-
armiði heldur einnig út frá hinu sál-
arfræðilega. I þessu sambandi
bendir Hpyersten á að hinar raun-
sæju og oft á tíðum nákvæmu per-
sónulýsingar íslendingasagnanna
hafi gert honum kleift að sálgreina
söguhetjumar í samræmi við þær
fræðilegu aðferðir sem viðurkennd-
ar eru í sálarfræði og geðlækning-
um í dag.
í inngangi ritgerðarinnar bendir
Hpyersten m.a. á að Heimskringla
og Islendingasögurnar hafi löngum
verið þekktar fyrir persónulýsingar
sínar og sálfræðilegt innsæi og seg-
ir hann að það hafi vakið áhuga sinn
á því að rannsaka nánar hvaða
skilning höfundarnir hafi haft á sál-
arlífi mannsins. Niðurstöður rann-
sóknarinnar hafi síðan leitt í ljós,
eins og fyrr segir, að sá skilningur
hafi verið með eindæmum nútíma-
legur og ólíkur því sem við hefði
mátt búast af mönnum sem voru
uppi á þrettándu öld. Kemst
Hpyersten m.a. að því í ritgerð
sinni, sem er yfir 260 síður, að skiln-
ingur manna á sálarfræði á fyrr-
nefndum tíma hafi m.a. verið mót-
aður af heimspeki- og guðfræði-
kenningum samtímans en hugsan-
lega einnig af evrópskum klaustur-
skólum sem þá voru við lýði og
heimspeki Aristótelesar, svo fátt
eitt sé nefnt.
Kjarvalsverk í sölu
Verð um 400
þúsund kr.
KJARVALSMÁLVE RKIÐ
sem Svíi einn festi kaup á fyrir
litlar fimmhundruð krónur á
flóamarkaði í Svíþjóð íyrir
skömmu verður væntanlega
sett í sölu hérlendis í júlí. Að
sögn Tryggva P. Friðrikssonar,
listmunasala hjá Galleríi Fold,
verður verkið sett í sölu hjá
galleríinu þegar það kemur úr
hreinsun og viðgerð í næsta
mánuði.
Tryggvi segir að verkið verði
verðmetið þegar það komi úr
viðgerð en hann giskar á að
verð þess verði í kringum
400.000 krónur.
I
Skólastjórnendur Mýrarhúsaskóla starfa áfram samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar
Tólf mánaða reynslutími
til eflingar skólastarfs
BÆJARSTJÓRN Seltjamamess
samþykkti samhljóða í gær tillögu
frá skólanefnd um eflingu skóla-
starfs í Mýrarhúsaskóla. I sam-
þykktinni felst að skólastjómendum
Mýrarhúsaskóla verður ekki sagt
upp störfum. Skv. heimildum Morg-
unblaðsins vai' þeim tilkynnt fyrir
skömmu að þeir væra leystir frá
störfum tímabundið eða fram að
bæjarstjómarfundinum sem hald-
inn var í gær, í kjölfar úttektar ráð-
gjafarfyrirtækisins Skref fyrir
skref ehf. um stjórnun og samskipti
í Mýrarhúsaskóla.
Bæjarstjómin samþykkti í gær
að staðið verði að 12 mánaða verk-
efni um uppbyggingu skólastarfs-
ins. Er tekið fram að skólastjóra,
aðstoðarskólastjóra og öðram
starfsmönnum sé treyst til að vinna
að því uppbyggingarstarfi.
Búið að skilgreina
vandann
„Við ætlum að setja skólann í tólf
mánaða reynslu og við vonumst til
að allir sýni sitt besta. Við eram viss
um að fólk gerir það,“ sagði Sigur-
geir Sigurðsson bæjarstjóri í sam-
tali við Morgunblaðið.
Tillagan var samþykkt í bæjar-
stjóminni án umræðu í upphafi
bæjarstjómarfundar í gær.
Sigurgeir sagði að íylgst yrði
mjög rækilega með uppbyggingu
skólastarfsins næstu tólf mánuði því
nú sé mönnum ljós vandinn sem við
sé að glíma. „Það er búið að skil-
greina hann og nú ætlum við að
berjast gegn honum og koma
stjómun og rekstri skólans í það
horf sem við viljum að skólinn okk-
ar verði í,“ sagði hann.
Bæjarstjóri sagði að aldrei hefði
verið um fomlegar uppsagnir
skólastjómendanna að ræða og
skólanefnd Mýrarhúsaskóla hefði
ekki sent bæjarstjórn formlega til-
lögu þess efnis. Hann sagði að um-
ræða um brottvikningu skólastjórn-
endanna stafaði líklega af því að til-
lögur ráðgjafarfyrirtækisins gerðu
ráð fyrir þessum möguleika.
Efla á stjórnun,
skipulag og samskipti
„Bæjarstjórn hefur ekki gengið
frá því. Bæjarstjóm tekur þarna
aðrar tillögur frá ráðgjafarfyrirtæk-
inu þar sem segir að skólinn verði
settur á tólf mánaða reynslu til þess
að koma sínum málum í lag. Við
beram þá von í brjósti að það tak-
ist,“ sagði hann.
Samþykkt bæjarstjórnar frá í
gær er svohljóðandi: „Bæjarstjóm
Seltjarnarness samþykkir að standa
að 12 mánaða verkefni um upp-
byggingu skólastarfs í Mýrarhúsa-
skóla frá og með næsta hausti, sem
miðar að því að efla stjómun skól-
ans, skipulag og samskipti. Tilgang-
urinn er að bæta þjónustu við nem-
endur og starfsskilyrði starfsfólks.
Ákvörðun bæjarstjómar tekur mið
af skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins
Skref fyrir skref ehf. um stjórnun
og samskipti innan skólans. Skóla-
stjóra og aðstoðarskólastjóra og
öðrum starfsmönnum skólans er
treyst til að vinna að því uppbygg-
ingarstarfi sem við blasir. Skóla-
nefnd Seltjarnarness er falið að
vinna að málinu í ljósi ákvörðunar
bæjarstjómar."
Skýrsla Skref fyrir skref
„handónýtt plagg“
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands íslands, sagðist í gær
vonast til að starfsfólk Mýrarhúsa-
skóla gæti nú tekið höndum saman
og unnið sig út úr vandanum. „Eg
tel að þetta fyrirtæki, skólanefndin
og bæjarstjórnin hafi í raun og veru
unnið skólastarfi þama mjög mikið
ógagn og það er spurning hvort
styrkur þeirra sem starfa við skól-
ann er nægur til þess að vinna sig
upp úr því, þannig að skólastarf bíði
ekki hnekki. Auðvitað vona ég að
svo verði,“ sagði Eiríkur.
Hann sagði einnig að álit sitt á
fyrirtækinu Skref fyrir skref hefði
ekkert breyst. „Ég lít á þessa
skýrslu sem þeir gerðu sem hand-
ónýtt plagg,“ sagði hann.
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
; Eitt mark nægði Skaga-
: mönnum til sigurs / C2
Jón Arnar keppir í tugþraut
í Svíþjóð / C1
Sérblöð í dag
SllMminirálm
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
i2srauit