Morgunblaðið - 24.06.1999, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra Japans f heimsókn á Alþingi
Hafði kynnt sér sjálf-
stæðisbaráttuna
FORSÆTISRÁÐHERRA Japans,
Keizo Obuehi, hélt af landi brott í
gærmorgun ásamt fjölmennu fylgd-
arliði sínu eftir að hafa heimsótt Al-
þingi og Stofnun Árna Magnússonar.
Olafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri í
forsætisráðuneytinu, kvaddi hann á
Keflavíkurflugvelli fyrir hönd stjóm-
valda og viðstaddir voru einnig Ólaf-
ur Egilsson sendiherra, Jóhann
Benediktsson sýslumaður, Guðni
Bragason siðameistari og Takakiyo
Nomura, sendiherra Japans á Islandi
með aðsetur í Ósló.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
sagði að sér hefði þótt heiður að því
að Keizo Obuchi skyldi gefa sér tíma
til að heimsækja Alþingi. Hann
kvaðst hafa nefnt það í ræðu sinni að
Alþingi íslendinga hefði annan hátt á
en önnur þjóðþing varðandi röðun í
sæti. Á Alþingi væri hlutað um sæti
en ekki raðað eftir flokkum eða kjör-
dæmum. „Hann hafði gaman af því
og sagði í ræðu sinni að það kæmi sér
þá vel að þingmenn væru ekki nema
63 svo þeir þekktust vel því ella
kynni að vakna tortryggni. Það var
líka gaman að heyra að hann hafði
kynnt sér íslenska sögu, hann minnt-
ist Jóns Sigurðssonar og sjálfstæðis-
baráttu íslendinga og lagði áherslu á
vináttu þjóðanna," sagði Halldór.
Forseti Alþingis kvaðst einnig hafa
minnst á það í ræðu sinni að von væri
á japanska þingmanninum Funada
hingað til lands í næsta mánuði en
hann er formaður þess hóps í jap-
anska þinginu sem leggur rækt við
vináttutengsl Islendinga og Japana.
Hann sagði japanska forsætisráð-
herrann þá hafa upplýst að Funada
hefði nýverið kvænst þingmanni úr
hinni deild japanska þingsins og að
svo gæti farið að þau kæmu í brúð-
kaupsferð til Islands.
Skoðaði handrit í Árnastofnun
Vésteinn Ólason, forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonai',
kvaðst hafa sýnt Keizo Obuehi og
konu hans nokkm- merkustu handrit
Islendinga, svo sem Flateyjarbók,
Konungsbók Eddukvæða, Snorra
Eddu og Landnámu og annað aðal-
handrit Grágásar. Hópurinn staldr-
aði við í Árnastofnun í um hálfa
klukkustund en þaðan var síðan
haldið rakleiðis til Keflavíkur. Vél
forsætisráðherrans fór í loftið um kl.
11 og fram undan var þá 13 tíma
beint flug til Japan.
Þótti góð sólþuirkuð
og grilluð loðna
Guðni Bragason siðameistari sagði
aðspurður að allt skipulag og undir-
búningur vegna heimsóknarinnar
hefði gengið upp og engan skugga
borið þar á og ætti það við um alla
framkvæmd dagskrárinnar og inni-
hald hennar. Telur hann heimsókn-
ina Islandi tvímælalaust til fram-
dráttar, meðal annars vegna umfjöll-
unar í japönskum fjölmiðlum, en eins
og fram hefur komið voru um 40
blaðamenn í fylgdarliði forsætisráð-
herrans. Hann sagði að milli 40 og 50
manns hefðu verið hérlendis í nokk-
uð á þriðju viku vegna heimsóknar-
innar og sá hópur væri nú að tínast
Morgunblaðið/Þorkell
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, ávarpar hér Keizo Obuchi, for-
sætisráðherra Japans, á Alþingi í gærmorgfun.
burtu. Sagði Guðni að þessi hópur
hefði komið frá flestum sendiráðum
Japana í Evrópu.
Sverrii' Haukur Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins, og Minoru Tamba, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Japans, áttu viðræðu-
fund í hádeginu í fyrradag og sagði
Sverrir að þai' hefðu þeir farið yíh'
ýmis málefni er vörðuðu samskipti
landanna. Þar hefði til dæmis borið á
góma ýmsar spurningar varðandi
sendiráð Islands í Tókíó sem ráðgert
er að opna árið 2001 og stofnun upp-
lýsingaskrifstofu Japana hérlendis
sem Sverrir segir að sé ráðgerð fljót-
lega en ekki hafi fengist staðfest að
það verði á þessu ári. Einnig voru
rædd samskipti á sviði verslunar,
rætt um ástand í Kosovo og starf
Flóttamannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna þar og fleiri mál.
I heimsókninni hafði japanski for-
sætisráðherrann á orði oftar en einu
sinni að sólþun-kuð og grilluð loðna
væri eftirlætisréttur sinn. Guðni
Bragason sagði að eftir Þingvallaför
ráðherrans hefði honum verið boðinn
þessi eftirlætisréttur hans, og reynd-
ar hákarl með, þegar hann kom á
Loftleiðahótelið og hitti Japana sem
búsettir eru á íslandi. Þetta hefði
tekist með útsjónarsemi Einars 01-
geirssonar og starfsmanna hans og
tók ráðherrann hraustlega til matai'
síns. Minntist hann á þetta góðgæti
sem sér hefði verið boðið og lýsti
ánægju sinni með það.
Möðrudalur
Jökuldals;
heiði
Vaðbrekka
Dimmu
gljúfury
VeStur- f
| öræfi
Snæfell,
25 km
SIIVll 551 9800.
□g aSvöru
fjallaskór
□g cillt þar
gönguskar
TECmii
á milli
alpina’
www.come.to/utlsport
Laugavegí 25 Simi b5l 9SI0&
S?OTT
ÚTIVISTARBÚÐIM
viðUmfer&rmiðstöðna
Dimmugljúfur
í nýjan búning?
ÚTLIT og yfirbragð Dimmu-
gljúfra myndi breytast töluvert
ef hugmyndir um virkjun Jök-
ulsár á Dal yrðu að veruleika,
eins og sjá má á meðfylgjandi
tölvumynd. Leiðangursmenn
sem sigldu 20 km leið um
Dimmugljúfur á tveimur
gúmmíbátum og kajökum um
síðustu helgi fóru um um öll
gljúfrin og þar með talið þann
hluta sem hyrfi undir yfírborð
miðlunarlóns yrði Jökla virkjuð.
Meginstífla miðlunarlóns
virkjunarinnar, sem kölluð hef-
ur verið Kárahnúkavirkjun og
yrði um 500 MW, yrði sam-
kvæmt áætlunum Landsvirkjun-
ar við Innri Kárahnúk, þar sem
gljúfrin eru um 90 m djúp.
Stífluveggurinn yrði engin smá-
smíði, um 185 metra hár, þar af
95 metra yfir gljúfurbarminum
og er gert ráð fyrir að magn
fyllinga í hann yrði 9,2 milljónir
Morgunblaðið/RAX
LEIÐANGURSMENN fyrir
neðan þverhnípta klettaveggi á
þeim stað í gljúfrunum sem að-
alstíflustæði miðlunarlóns
Kárahnúkavirkjunar er fyrir-
hugað. Stífluveggurinn yrði
engin smásmíði. Mesta hæð
hans samkvæmt áætlunum
Landsvirkjunar yrði 185 metr-
ar, lengd yrði 760 metrar og
reiknað er með að í hana fari
um 9,2 milljónir m:l af efni.
m3. Þá er gert ráð fyrir að miðl-
unarlónið rúmi um 1.880 gíga-
lítra vatns og nái inn að Vatna-
jökli, en meðfylgjandi myndir
tala sínu máli um þær breyting-
ar sem yrðu á umhverfinu.
DIMMUGLJÚFUR séð úr lofti þar sem horft er til suðurs og inn að
Vatnajökli. Til vinstri á myndinni er Innri-Kárahnúkur og fyrir miðri
mynd er Sandfell. Leiðangurinn hófst við ármót Sauðár og Jöklu sem
varla sjást á myndinni en eru efst til hægri. Aðalstífla Hálslóns næði
upp í miðjan Innri-Kárahnúk og Sandfell, sem er fyrir miðri mynd,
yrði að eyju í lóninu.
TÖLVUMYND af útliti Dimmugljúfra og umhverfi þeirra eins og þau
yrðu ef Kárahnúkavirkjun yrði að veruleika. Hæð stíflunnar, 185
metrar, yrði á við hæð þriggja Hallgrímskirkjuturna. Þar af yrðu 95
rnetrar stíflunnar yfir gljúfurbarminum. Allur innri hluti gljúfranna
hyrfi undir vatn, en ytri hluti þeirra, sem jafnframt er dýpsti og hrika-
legasti hlutinn, yrði norðan stíflunnar. Virkjun árinnar myndi gera
það að verkum að áin yrði mun vatnsminni en hún er nú, enda yrði
hún leidd í jarðgöngum niður í Fljótsdal.