Morgunblaðið - 24.06.1999, Side 12

Morgunblaðið - 24.06.1999, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Avarp Halldórs Asgrímssonar á þingi Evrópuráðsins í Strassborg Evrópa á tímamótum Strassborg. Morgunblaðið. HALLDÓR Ásgrímsson ávarpar þing Evrópuráðsins í Strassborg. HALLDOR Asgrímsson utanrík- isráðherra ávarpaði þing Evrópu- ráðsins sem formaður ráðherra- nefndarinnar, í Strassborg í gær. Stöðugleikasáttmálinn fyrir stríðshrjáð lönd Suðaustur-Evr- ópu, hlutverk Evrópuráðsins í al- þjóðlegu friðarsamstarfí, fjár- skortur mannréttindadómstólsins og inntaka nýrra aðildarríkja voru ofarlega á baugi í ræðu ráðherr- ans. I ávarpi sínu tók Halldór undir skoðanir starfsfélaga sinna um að Evrópa stæði í dag frammi fyrir mestu prófraun sinni til marga ára. Hann sagði það von ráðherra- nefndarinnar að stöðugleikasátt- málinn fyrir stríðshrjáð lönd Suð- austur-Evrópu, sem innsiglaði lausn Kosovo-deilunnar 10. þessa mánaðar í Köln, legði grunninn að þróun lýðræðis og langvarandi friði á Balkanskaganum. Náið og skilvirkt samstarf alþjóðastofn- ana, þar á meðal Evrópuráðsins, er að mati Halldórs forsenda þess að markmið stöðugleikasáttmál- ans verði að veruleika. Undirrót stjórnmálasamtarfs Evrópuríkja sé, og hafí alltaf verið, sameining álfunnar í stað sundrungar og átaka þjóða hennar á milli. Með hliðsjón af þessari framtíð- arsýn sagði hann það skyldu aðild- arríkja Evrópuráðsins að aðstoða lönd Balkanskagans við að upp- fylla staðla þess um lýðræði, mannréttindi og við uppbyggingu stofnana er stjórna á grundvelli laga og réttar. Kynnti niðurstöður Bosníu-ferðarinnar í framhaldi af þessu kynnti Hall- dór þinginu niðurstöður ferðar sinnar til Bosníu-Hersegóvínu, en á næstunni mun aðildarumsókn landsins að Evrópuráðinu verða tekin til umfjöllunar af þinginu. Enn væri langt í að landið gæti uppfyllt öll skilyrði Evrópuráðsins en þróun mála á komandi misserum myndi skera úr um hæfni þess sem og annarra landa að sameinast Evrópu. Ferlið sé afar viðkvæmt en engu að síður mikilvægt að Evr- ópuráðið sýni ófullburða lýðræðis- ríkjum álfunnar hluttekningu sína og hefji viðræður um aðild þein-a. „Með því sýnum við vilja okkar til að styðja framþróun lýðræðis í fyrrverandi aðildan-íkjum sam- bandslýðveldis Júgóslavíu sem er eina tryggingin fyrir langvarandi friði í suðausturhluta Evrópu. Og sá friður er í þágu Evrópu allrar," sagði utanríkisráðherra. Halldór lagði áherslu á mikilvægi Evrópuráðsins sem elstu starfandi stjómmálastofnunar álfunnar og minntist á þau fjölmörgu verkefni sem ráðið hefði nú þegar komið á laggimar í hjálparsamstarfí á Balkanskaganum. Fyiár skömmu veitti þróunarsjóður Evrópuráðsins óháðum hjálparstofnunum styrk upp á tvær milljónir evra sem renna eiga til aðstoðar flóttamanna í Albaníu og Makedóníu. Evrópu- ráðið telur jafnframt mikilvægt að vekja sérstaka athygli á ofbeldi gegn konum í þeim stríðum sem herjað hafa á Balkanskaganum og að veitt verði fjárhagsaðstoð þeim til hjálpar svo fljótt sem auðið er. Beitir sér fyrir nánara samstarfi við ESB og ÖSE Halldór sagði samvinnu Evrópu- ráðsins við systurstofnanir sínar, Evrópusambandið og ÖSE, afar mikilvæga og á erfiðum tímum sem þessum væri vert að beita sér fyrir skilvirkari samvinnu stofnananna á milli. Sem formaður ráðherranefndar- innar mun hann ásamt aðalfram- kvæmdastjóra Evrópuráðsins halda fund með forseta ÖSE í Reykjavík 31. ágúst og með starf- andi forseta ESB sjötta október næstkomandi. Ljóst er að pólitísk ábyrgð Evr- ópuráðsins hefur aukist stórlega samfara stjómarfarsbreytingunum í Austur-Evrópu. I dag eiga sautján ríki Austur-Evrópu aðild að Evrópuráðinu og önnur fímm bíða þess að umsókn þeirra verði tekin til umfjöllunar. Samfara þessari öru þróun hafa fjárútlát Evrópuráðsins sem og Mannrétt- indadómstólsins stóraukist. Fjármagn verði nýtt á skilvirkari hátt Til að mæta aukinni fjárþörf segir Halldór það nauðsynlegt að nota fjármagn á skilvirkari hátt sem eflaust þýði sparnað í bæki- stöðvum framkvæmdastjórnarinn- ar í Strassborg. Halldór sagðist ennfremur fara þess á leit við að- ildarríkin að gjöld þeirra verði hækkuð á næsta ári um hálft pró- sent sem hann segir afar lága upp- hæð á móts við þau brýnu verkefni er Evrópuráðið standi frammi fyr- ir. Auglýsingum á sumarflöskum Vífil- fells ehf. mótmælt Omerktar 2 1 flöskur framleidd- ar fyrir Aktu-taktu AÐ SÖGN Þorsteins M. Jóns- sonar, forstjóra Vífílfells ehf., verður að mestu komið til móts við óskir eigenda söluskálans Aktu-taktu. Þeir hafa sent verk- smiðjunni bréf með ósk um að framleiddar verði hálfs lítra og tveggja lítra flöskur af kóki og diet-kóki án auglýsinga íyrir keppinauta söluskálans á borð við McDonalds, Subway, Amer- ican Style og Domino’s. Þorsteinn segir að tveggja lítra flöskm- af kóki og diet-kóki verði framleiddar ómerktar fyr- ir Aktu-taktu og í stað hálfs lítra flaskna verði söluskálanum boðnar hálfs lítra dósh' þar sem ógemingur sé að fjölga vöruúm- erum á lager yfir háannatím- ann. „Við erum því miður ekki í stakk búin til að framleiða ómerktar hálfs lítra flöskur handa söluskálanum. Við getum boðið þeim ómerktar tveggja lítra flöskur af kóki og diet-kóki. Yfir háannatímann eigum við fullt í fangi með að anna eftir- spum og lagerrými er fullnýtt. Við getum því boðið söluskálan- um ómerktar hálfs lítra dósir af kóki og diet-kóki og vonum að eigendumir verði ánægðir með þá lausn,“ segir Þorsteinn. Prestastefna á Kirkjubæjarklaustri Biðu heilags sakra- mentis í rigningunni SÉRA Sighvatur Karlsson, prestur á Húsavík, og séra Bragi Benedikts- son, prestur á Reykhólum, virðast báðir hrifnir af hatti Sighvats, þar sem þeir gæða sér á veitingum í garði Jóns Helgasonar að Seglbúðum. VEÐRIÐ lék ekki við presta þegar þeir gengu til altaris í bænhúsinu á Núpstað við Lómagnúp í Fljóts- hverfi um klukkan ellefu í gær- morgun. Þeir þurftu því að bíða í rigningunni eftir að meðtaka sakra- mentið því að bænhúsið er ekki stórt, það rúmar einungis um 35 manns. Þar gaf svo biskup íslands, sr. Karl Sigurbjömsson, hið heilaga sakramenti. Bryndís Malla Elídótt- ir, sóknarprestur á Kirkjubæjar- klaustri, og Kristján Valur Ingólfs- son, rektor í Skálholti, þjónuðu fyr- ir altari. En það var bjartara yfir þátttakendum prestastefnu en veðrinu og sungu menn og konur „Kyrie“ fyrir utan bænhúsið. Reist á fyrstu öldum kristni Bænhúsið á Núpstað er ein af ör- fáum torfkirkjum á landinu. Kirlq- an var aflögð árið 1765 en 1930 var bænhúsið friðlýst og 1961 var það endurvígt. Það er nú í eigu Þjóð- minjasafnsins. Kirkjan var reist á íyrstu öldum kristni að þvi talið er, vegna þess að hún er af sömu stærð og stíl og fjölmargar kirkjur sem vora reistar hér á fyrstu öldum eft- ir kristnitöku. Sr. Sigurjón Einarsson, sem var prestur á Kirkjubæjarklaustri í 35 ár og lét af embætti sl. haust, segir að þessu til sönnunar megi benda á að bænhúsið sé jafnstórt og Þjóð- hildarkirkja á Grænlandi, sem Þjóðhildur, kona Eiríks rauða, lét reisa þar. Bænhúsið er alveg eins nú og þegar það var endurbyggt á 17. öld. Sigurjón segir vitað með vissu að búið hafi verið að reisa bænhúsið fyrir árið 1200 því að þess er getið í vísitasíu Brynjólfs Sveinssonar biskups. Siguijón messaði á Núp- stað árlega um verslunarmanna- helgi. Eyjólfur og Filippus Hann- essynir búa á Núpstað. Þeir era báðir á tíræðisaldri. Um klukkan eitt var snæddur hádegisverður í garðinum á Segl- búðum, heimili Jóns Helgasonar. Veðrið hélt uppteknum hætti, en hin háu, sextíu ára gömlu tré í garðinum hjá Jóni skýldu fólkinu. Móðir hans, Gyðríður, átti mikinn þátt í að Kapellan á Kirkjubæjar- klaustri var byggð, að sögn dr. Sig- urðar Árna Þórðarsonar, verkefnis- stjóra safnaðarappbyggingar. Hún bað bændur í sveitinni um að gefa eitt lamb á ári til byggingar kapell- unnar. Þetta gerðu eitt hundrað bændur í Skaftafellssýslu í sex ár. Þegar kapellan var vígð var hún nánast skuldlaus, að sögn Sigurðar, því að sagan segir að kapellulömbin hafi alltaf skilað sér heim af fjalli og að mestur fallþungi lamba hafi ver- ið hjá kapellulömbum. Fjórir fyrrverandi prestar úr Stóra-Núpsprestakalli Því næst var haldið að Lang- holtskirkju í Meðallandi, sem reist var árið 1863, í rútum, því að veðrið bauð ekki upp á helgigöngu. A leið- inni var ekið fram hjá Efri-Steins- mýri þar sem dr. Sigurbjörn Ein- arsson er fæddur. Samleið með Kristi í smæð okkar og sorg var yfirskrift hugvekju dr. Sigurbjörns Einarssonar. Aður en hún hófst var sunginn sálmurinn „Þú, guð sem veist og gefur allt“ eftir Sigurbjörn. I hugvekjunni sagði hann frá því að hann ætti sín- ar fyrstu minningar frá því þegar hann sat á hné afa síns fyrir aftan prédikunarstólinn. Hann hvatti til þess að fólk veitti guði rúm í lífi sínu. Hann talaði um það hversu erfitt lífið hefði verið á Islandi á öldum áður og hve miklar fórnir það hefði kostað, þrautsegju og trú, að við sem nú lifum urðum til. Hversu mikilvægt það væri að við hugleiddum það hvers væri krafist af okkur og hverju við skil- um af okkur. Ófétið hún Katla Dr. Sigurbjörn sló einnig á létt- ari strengi og sagði kirkjugestum sögu frá þeim degi er Katla gaus árið 1918 en Sigurbjörn man þann dag vel. Þá var veður með eindæm- um gott. Tvær systur bjuggu á næsta bæ við fjölskyldu hans. Ónn- ur þeirra ákvað að fara í fjöra. Hún fann þar tunnu og hugði sér gott til glóðarinnar því brátt var komið að sláturtíð. Tunnan var stór og því varð hún að velta henni á undan sér. Þegar hún er nýlögð af stað skall á mikið myrkur en hún gafst ekki upp heldur paufaðist heim með tunnuna. Þegar heim kom var hún spurð hvort hún hefði ekki orð- ið hrædd. Hún neitaði því, sagðist hafa haldið að það væri kominn dómsdagur. En hefði hún vitað að þetta væri ófétið hún Katla - þá hefði hún orðið hrædd. Klukkan ellefu í gærkvöldi var svo miðnæturmessa í gamla kirkju- garðinum við Kapelluna á Kirkju- bæjarklaustri. I dag hefst dagurinn með morgunbænum í Kapellunni. Síðan verður kynnt ný námskrá í fermingarfræðslu. Jafnréttisnefnd kirkjunnar verður síðan kynnt sem og krisnihátíðir prófastsdæmanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.