Morgunblaðið - 24.06.1999, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Ljósmynd/Eldsmiðurinn
Ættarmót fjölgaði í
kvennahlaupi
Hornafirði - Kvennahlaupið var
hlaupið á tveimur stöðum í Horna-
fjarðarbæ á laugardaginn. Um
morguninn var hlaupið í Suðursveit,
þar hljóp 91 kona, en í Suðursveit
búa um 110 manns. í Suðursveit var
ættarmót og er það ástæðan fyrir
þessari góðu þátttöku þar.
Á Höfn var hlaupið eftir hádegi
og tóku þar þátt 166 konur, á báð-
um stöðum voru allt frá börnum í
vögnum og upp úr. Fyrst var hlaup-
ið á Höfn fyrir sjö árum og er þetta
því í áttunda sinn, í byrjun voru um
100 konur sem voru með en nú var
áætlað að um 220 hornfirskar konur
hefðu hlaupið. Fjölgun milli ára hef-
ur verið nokkuð jöfn.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
KONUR á Egilsstöðum hita upp undir leiðsögn Lillýjar Viðarsdóttur.
Konur á öllum aldri hlupu
Egilsstöðum - Um 160 konur
tóku þátt í kvennahlaupi ISI á
Egilsstöðum á kvenréttindadag-
inn 19. júní. Boðið var upp á
fjórar vegalengdir, 2, 5, 7 og 10
km. Konurnar voru á öllum aldri
og hituðu sig vel upp fyrir
hlaupið.
Kynningar-
miðstöð á
Vesturlandi
Morgunblaðið/Ingimundur
HÖFUNDAR að skýrslunni „Stefnumótun í ferðaþjónustu á Vestur-
landi 1998-2005“, Bjarnheiður Halldórsdóttir og Sigríður Þrúður
Stefánsdóttir.
Borgarnesi - Upplýsinga- og
kynningarmiðstöð Vesturlands
var formlega stofnuð á fundi
ferðaþjónustuaðila sem fram fór
á Hótel Borgarnesi 2. maí sl.
Stofnun UKV er fyrsta stofnun
slíkrar miðstöðvar hér á landi.
Frumkvæðið að stofnun UKV
kom frá Atvinnuráðgjöf Vestur-
lands en hugmyndin kom fyrst
fram í stefnumótun fyrir ferða-
þjónustu á Vesturlandi sem unn-
in var af ferðamálafræðingunum
Bjarnheiði Hallsdóttur og Sigríði
Þrúði Stefánsdóttur. Sigríður
Hrönn Theodórsdóttir atvinnu-
ráðgjafi hefur að undanförnu
unnið að stofnun UKV sem hún
sagði að væri ætlað að vera móð-
urstöð upplýsingaöflunar og
miðlunar fyrir ferðaþjónustu á
Vesturlandi. Ennfremur verður
miðstöðin samstarfsvettvangur
sameiginlegra markaðsmála
ferðaþjónustuaðila í kjördæminu.
Á aðalfundi Samtaka sveitarfé-
laga í Vesturlandskjördæmi sem
haldinn var í október sfðastliðinn
var gerð sú samþykkt að SSV
greiði 70% af kostnaði við UKV
að því tilskildu að ferðaþjónustu-
og hagsmunaaðilar greiddu 30%
mótframlag. Það verk hefur
gengið framar vonum að sögn
Sigríðar Hrannar og mikill hug-
ur er í fólki að sameina krafta
sína við markaðssetningu lands-
hlutans.
Hlutverk UKV verður meðal
annars fólgið í því að veita inn-
lendum og erlendum ferðamönn-
um upplýsingar um framboð á
ferðaþjónustu á Vesturlandi, sem
og á landsvísu, með það markmið
að beina ferðamannastraumi inn
í landshlutann. Einnig sé það
markmið með stofnun UKV að
vera leiðbeinandi aðili við
fræðslu- og kynningarstarf innan
greinarinnar auk þess að skipu-
leggja, þegar fram líða stundir,
sameiginlega markaðssetningu
landshlutans út á við. UKV er
einkahlutafélag í eigu aðildarfé-
laga sem greiddu stofngjald sem
hlutafé og munu eftir það greiða
árlega framlag til rekstursins.
Á stofnfundinum var kosin
þriggja manna stjórn miðstöðv-
arinnar. f aðalstjórn voru kosin:
Guðrún Bergmann, Hellnum,
Gunnar Sigurðsson, Akranesi og
Óli Jón Ólason, Reykholti. I vara-
stjórn voru kjörin: Guðrún Egg-
ertsdóttir, Bjargi, Borgarnesi,
Tryggvi Konráðsson, Arnarstapa
og Sigríður Gróa Kristjánsdóttir,
Akranesi.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
HITAÐ upp fyrir hlaupið í Akurholti.
Fjölmennt
hlaup í fá-
mennri sveit
Eyja- og Miklaholtshreppi - Um
66 konur og stúlkur tóku þátt í
Kvennahlaupinu í Eyja- og Mikla-
holtshreppi. Þar af var a.m.k.
helmingurinn „aðkomukonur" sem
staddar voru á ættarmóti á Hótel
Eldborg. Þátttakendur byrjuðu
upphitun um hálftíma fyrir hlaup
en hlaupið var frá Akurholti og
niður í Laugargerði. Eftir hlaupið
var boðið upp á svaladrykk og frítt
var í Kolviðarneslaug fyrir þátt-
takendur. Veðrið var milt og hélst
þurrt eftir mikla vætu undanfarna
daga.
Markaðsátak í Vogum á Vatnsleysuströnd
Morgunblaðið/Björn Blöndal
JÓHANNA Reynisdóttir, sveitarstjóri í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Ætla að
fjölga íbúum
í1000 á
næstu árum
Keflavík - „íbúafjöldinn í Vogum
nú er 710 manns en markiðið
með þessari markaðssetningu er
að fjölga þeim í 1000 á næstu ár-
um. Verkefnið er spennandi því
þetta er í fyrsta sinn sem heilt
sveitarfélag er markaðssett frá A
til Ö á þennan hátt,“ sagði Jó-
hanna Reynisdóttir, sveitarstjóri í
Vogum á Vatnsleysuströnd, í við-
tali við Morgunblaðið um átak
sem Vogamenn standa nú að til
að fjölga íbúum.
Jóhanna sagði að ástæðan fyrir
þessu átaki væri fyrst og fremst
sú að 1000 manna sveitarfélag er
mun hagstæðari rekstrareining
en 700 og kostnaður sem fylgir
því að taka við 300 nýjum íbúum
er minni en tekjurnar sem þeir
gefa af sér. Helsta skýringin væri
sú að rekstrarkostnaður grunn-
skólans hækkaði lítið þótt þar
bættust við um 70 nemendur.
Skólinn væri einsetinn og kenn-
arar væru allir faglærðir að ein-
um undanteknum.
Jóhanna sagði að það væri at-
hyglisvert að á síðustu 10 árum
hefði orðið 15% fjölgun íbúa í
Vogum sem væri mesta aukning
á Suðurnesjum. „Um síðustu
aldamót voru þó fleiri íbúar í
Vogum eða 750 og á vetrarver-
tiðum voru hér allt að 2000
manns. Þá voru íbúar hér tölu-
vert fleiri en íbúar Keflavíkur og
Grindavíkur til samans,“ sagði
Jóhanna.
„Einn mikilvægasti kosturinn
við Voga er góð staðsetning, ná-
lægð við höfuðborgarsvæðið og
alþjóðaflugvöll og að fljótlega
stefnir í að Reykjanesbrautin
verði tvöfölduð." Jóhanna sagði
að í raun væri höfuðborgarsvæð-
ið og Suðurnes eitt atvinnusvæði
sem væri kostur og að margir
kysu einmitt að vinna í höfuð-
borginni en búa í rólegra um-
hverfi. Gott framboð væri af fjöl-
breyttum lóðum og þær væru allt
að 50% ódýrari en á höfuðborg-
arsvæðinu.
Gisti- og veitingaskipið
Thor í Húsavíkurhöfn
Morgunblaðið/Silli
GAMLA varðskipið Þór hefur fengið
nýtt hlutverk á Húsavík.
Húsavík - Sjóferð-
ir Amars á Húsa-
vík, sem gera út
hvalaskoðunar-
bátana Moby
Dick og Keikó,
hafa keypt gamla
varðskipið Þór,
sem síðast gekk
undir nafninu Sæ-
björg og þjónaði
sem skólaskip
Slysavarnaskól-
ans. Hefur skip-
inu verið breytt í
gisti- og veitinga-
skip, sem verður í
sumar í Húsavík-
urhöfn og á þar að veita almenna
gisti- og veitingaþjónustu.
Eigendur Sjóferða Amars em
hjónin Amar Sigurðsson og Ásdís
Jónsdóttir og hafa þau í vetur látið
gera breytingar á skipinu, sem nú er
orðið fljótandi hótel, eitt sinnar teg-
undar á landinu og nýr kostm- í
ferðaþjónustunni, og verður þjónust-
an rekin undir nafninu Thor.
í skipinu era nú 20 kojur en fyrir-
hugað er að bæta þar við 18, svo alls
verði 38 gistirúm. Á efra dekki er
veitingasalur fyrir 40 manns og á
neðra dekki er hægt að dekka fyrir
80 manns og í góðu veðri verða borð
og stólar á dekki fyrir 40 manns.
Arnar hugsar sér að koma fyrir í
skipinu lítilli sögusýningu um störf
Landhelgisgæslunnar bæði með
myndum og hlutum og þar eru nú
hinar heimsfrægu togvíraklippur,
sem notaðar voru í þorskastríðinu.
Skipið hefur hafnarpláss á Húsa-
vík til 15. september en ekki er ráð-
legt talið að hafa það þar yfir vetur-
inn og einnig má þá gera ráð fyrir
þrengslum í höfninni, en ekki er enn
ákveðin staðsetning skipsins í vetur.
Bæjarbúum var á dögunum boðið
til vígsluathafnar í Thor og var
mönnum þar vel veitt og fannst
þeim þar vistlegt og þægilegt að
dvelja.