Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 23
Verð á fiskimjöli og
lýsi aftur á uppleið
Verð á loðnumjöli frá íslandi 1995-99
Pund tonnið, verð í hverjum mánuði
Heimsmarkaðsverð á lýsi 1995-1999
Dollarar tonnið, CIF í Evrópu, mánaðarlegt
MARKAÐUR fyrir íslenskt mjöl
og lýsi virðist ætla að verða ámóta í
ár og á liðnu ári og verðið er á upp-
leið eftir að hafa verið með lægra
móti í ársbyrjun. Útflutningur er
aðallega til Bretlands, Danmerkur
og Noregs en samtals voru flutt út
liðlega 81 þúsund tonn af mjöli og
tæplega 28 þúsund tonn af lýsi
fyrstu fjóra mánuði ársins. Mjölút-
flutningurinn er um 37% af útflutn-
ingi 1998 en tæplega þriðjungur
hefur verið fluttur út af lýsi saman-
borið við allt árið í fyrra.
Verð á mjöli var í hámarki í nóv-
ember og desember 1997 þegar
tonnið fór í 490 pund, um 59.000
krónur. Það var um 470 pund í
september en hefur síðan lækkað
jafnt og þétt. Var um 370 pund í
janúar og um 255 pund í mars en
er nú komið í um 280 pund. Amóta
verðbreytingar hafa verið á lýsi.
Það hækkaði með hverjum mánuð-
inum 1997 og tók mikinn kipp í
fyrra. Tonnið fór hæst í 770 dollara
í júlí og meðalverðið var 727 dollar-
ar á liðnu ári en hefur lækkað mik-
ið á líðandi ári. Var 465 dollarar í
janúar, 300 dollarar í mars Og hef-
ur verið um 280 dollarar að undan-
förnu.
Áhrifa E1 Nino gætir enn
Heimsframleiðsla á fiskimjöli
hefur ekki aukist aftur í það sem
hún var eftir samdráttinn sem heiti
straumurinn E1 Nino olli í Suður-
Ameríku í fyrra en þá var heims-
framleiðslan aðeins 4,7 milljónir
tonna. Gert er ráð fyrir að hún
Utlit er fyrir
meiri framleiðslu
verði 5,7 milljónir tonna í ár en í
meðalári hefur hún verið um 6,5
milljónir tonna.
Framleiðslan er minni en gert
var ráð fyrir, fyrst og fremst vegna
þess að ríkisstjómin í Chile bann-
aði makrílveiðar við Suður-Chile til
31. ágúst eftir að veiðst höfðu um
400.000 tonn en upphaflegi kvótinn
var tvær milljónir tonna.
Gert er ráð fyrir að heimsfram-
leiðsla á lýsi verði 990.000 tonn en
var 770.000 tonn á liðnu ári. Um
55% lýsisins er notað í fiskeldi en
hlutur þess í smjörlíki og brauði
eykst með lægra verði.
Botninum náð
„Eg hef á tilfmningunni að verð-
fallið sé ekki lengur til staðar,“
segir Jón Reynir Magnússon, for-
stjóri SR-Mjöls og formaður Fé-
lags íslenskra fískmjölsframleið-
enda, við Morgunblaðið. „Við höld-
um að kominn sé botn í málið og
hreyfing upp á við er nóg til þess
að leyfa sér að vona að það versta
sé afstaðið. Hins vegar er verðið
enn frekar lágt.“
Þó verð virðist fara hækkandi
segist Jón Reynir ekki sjá fram á
miklar hækkanir í bráð. „Það getur
tekið nokkurn tíma því jurtaafurð-
irnar sem við keppum við, bjóðast
á lágu verði. Eins tekur tíma fyrir
menn, sem skiptu yfír í jurtaafurð-
ir í fyrra þegar verð á lýsi og mjöli
var í hámarki, að átta sig á því að
þeir þurfa að fara að kaupa fyrri
afurðir aftur.“
I mars kom fram í Morgunblað-
inu að þegar loðnuframleiðslan var
sem mest var lítil sala vegna verð-
falls. Fyrir vikið varð mikil birgða-
söfnun hjá íslenskum framleiðend-
um og var talið að um 15.000 tonn
af óseldu mjöli og nokkur þúsund
tonn af lýsi væru í erlendum
birgðageymslum auk birgða innan-
lands. Jón Reynir sagði að allt tal
um birgðir væri viðkvæmt og vildi
ekki staðfesta neinar tölur en sagði
að ástandið hefði breyst til hins
betra. „Þetta hefur mjatlast út og
ég held að engin vandræði séu
lengur þess vegna.“
Meiri framleiðsla
Rúmlega 606 þúsund tonn af
loðnu bárust til íslenskra fiski-
mjölsverksmiðja á iiðinni vetrar-
vertíð. A líðandi vertíð hefur verið
landað liðlega 30 þúsund tonnum af
kolmunna, þar af um 8.000 úr er-
lendum skipum, og liðlega 93 þús-
und tonnum af síld úr norsk-ís-
lenska stofninum. Hins vegar hefur
spum eftir mjöli og lýsi verið á ró-
legu nótunum, að sögn Jóns Reyn-
is. „Hún er frekar hæg og við vær-
um ekki í sérstaklega góðum mál-
um væri bullandi framleiðsla. Að
því leyti hefur það hjálpað okkur
að aflinn hefur komið inn í róleg-
heitum. Þetta hefur verið svolítill
kolmunni og svolítil síldveiði en
ekki í neinu rosalegu magni enda
ekki allar verksmiðjur í gangi.“
Fyrstu mánuði ái-sins var útlitið
ekki bjart en heldur virðist vera að
rofa til. „Þegar allt virðist vera að
fara niður á við, ekki er séð fyrir
endann á því og engin eftirspum,
er auðvitað þungt í mönnum hljóð-
ið en verðið hefur botnfallið og ef
eitthvað er er það að fara í rétta
átt. Menn hafa getað selt birgðir
og gæla við að árið geti orðið býsna
gott hvað hráefni snertir. Fyrri
hluti ársins er góður miðað við árin
á undan og ástæða til að vera von-
góður hvað varðar veiðar og fram-
leiðslu, en ég tel líkur á að meira
verði framleitt á þessu ári en í
fyrra.“
nrriH
DRESS
MANN
Ath Sendum í póstkröfu. Grænt númer 800-573
Simi 562-9730
'EGI 18 B - REYKÆEK