Morgunblaðið - 24.06.1999, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bandarískur verðbréfamiðlari hverfur með rúma 200 milljarða í farteskinu
New York, Greenwich. The Daily Telegraph, AP.
ÓFÉLAGSLYNDUR verðbréfa-
miðlari sem notaði stjömuspá til
leiðbeiningar um fjárfestingar er
horfinn sporlaust með sem svarar
rúma 200 milljarða króna í fartesk-
inu. Hefur ekkert til hans spurst síð-
an í byrjun maí. Bandaríska alríkis-
lögreglan, FBI, telur að um geti ver-
ið að ræða stærsta þjófnað sem
nokkurn tíma hefur verið framinn.
Þetta er rúmlega tvisvar sinnum
stærri upphæð en Nick Leeson tap-
aði í verðbréfaviðskiptum á sínum
tíma, og varð breska Barings-bank-
anum að aldurtila. Verðbréfamiðlar-
inn Martin Frankel er 44 ára Banda-
ríkjamaður og stundaði sín vafasömu
viðskipti innan veggja glæsihúss síns
í Greenwich, útborg New York, þar
sem Mel Gibson, Diana Ross og
ýmsir Wall Street-milljónamæring-
ar voru nágrannar hans. Frankel
notaði bankareikninga upploginna
fyrirtækja í Bandaríkjunum, Karíba-
hafseyjum og Sviss til þess að koma
undan fjármunum sem honum var
falið að ávaxta.
Órekjanlegar eigur
Lögregla leitar nú Frankels um
allan heim. Joseph Dooley, fulltrúi
FBI, sagði: „Hann þvoði þessa pen-
inga, notaði þá til að kaupa órekjan-
legar eigur.“ Fyrir sjö árum var
Frankel bannað um aldur og ævi að
stunda hlutabréfaviðskipti eftir að
kvartað var yfir því að um einn mOlj-
arð Bandaríkjadollara vantaði í sjóð
sem hann stýrði. En þá stofnaði
Frankel Liberty National-verðbréfa-
fyrirtækið, án þess að fá fyrir því op-
inbert leyfi, og hélt áfram að versla.
Frankel fjárfesti á skuldabréfa-
markaði fyrir tryggingafélög í sex
ríkjum í Bandaríkjunum. Þessi trygg-
ingafélög voru tekin til skiptameð-
ferðar þegar þau gátu ekki gert grein
fyrir fjárfestingum í Liberty
National. Rannsakendur telja að hátt
í sjötíu milljarðar króna af þeim fjár-
festingum séu horfnir, ásamt um 145
milljörðum sem Frankel fjárfesti í
sínum eigin „mannúðarsamtökum",
með aðsetur á Jómfrúreyjum, Stofn-
un heilags Frans frá Assisí. Markmið
Einn stærsti þjófn-
aður sögunnar
Ekkert hefur spurst til bandaríska verðbréfamiðlarans Martins
Frankels í tæpa tvo mánuði, né heldur er vitað hvað hefur orðið
um rúmlega 200 milljarða króna sem hann hafði höndlað með.
Eigi sá grunur við rök að styðjast, að Frankel hafí stolið þessum
fjármunum, þá er hann einn stórtækasti þjófur sem sögur fara af.
stofnunarinnar var sagt
vera að hjálpa veikum
börnum, en rannsakend-
ur telja það einungis
hafa verið yfirvarp.
Grunsamleg
umboðslaun
The New York Times
greinir frá því að sam-
kvæmt dómsskjölum
hafí Frankel farið að
með eftirfarandi hætti:
Hann hafi stjómað eða
haft tengsl við nokkur
fyrirtæki og fram-
kvæmdasjóði, er hafí
keypt meirihluta í trygg-
ingafélögunum. Smám
saman hafí þessi fyrir-
tæki beint verðbréfavið-
skiptum til fyrirtækis
Frankels, sem hafi gert
honum kleift að tæma sjóði þeirra.
Hann notaði flókið færslunet til að
hylma yfir áfangastaði fjármunanna.
Til dæmis fjárfesti einn trygginga-
takinn í neti Frankels 30 milljónir
dollara, eða rúma tvo milljarða ís-
lenskra króna, hjá verðbréfafyrir-
tækinu Pradential Securities í New
York. Frankel færði þá peninga síð-
an á nafn Bloomfield Investments,
sem hann stýrði frá
heimili sínu.
Því næst voru pening-
arnir símsendir til sviss-
neska bankans United
Bank of Switzerland í
gegnum útibú hans í
Stamford í Connecticut-
ríki, og skömmu seinna
lagðir inn á reikning
númer 70026 í bankan-
um Banque SCS Alli-
ance í Sviss. Rannsak-
endur hafa komist að
því, að greiðslur til fólks
er vann fyrir Frankel
höfðu verið teknar út af
þeim reikningi.
Það voru yfirvöld í
Mississippi sem fyrst
komust á snoðir um að
Frankel hefði eitthvað
óhreint í pokahominu,
og það sem vakti athygli þeirra var
hversu lág umboðslaun fyrirtæki
Frankels tók. Nokkur tryggingafé-
lög í ríkinu höfðu beint hlutabréfa-
viðskiptum fyrir allt að 14 milljarða
dollara til fyrirtækisins, Liberty
National, og það hafði einungis tekið
um 40 þúsund dollara í umboðslaun.
Þótt verðbréfamiðlarar séu famir að
veita mikinn afslátt nú á tímum virt-
ist þetta vera of gott til að geta verið
satt. Og sú var raunin.
Innsigluð handtökuskipun
Rannsóknarkviðdómur hefur verið
að kanna mál Frankels síðan um
miðjan maí. Hefur verið gefin út inn-
sigluð handtökuskipun á hendur
honum, að því er haft var eftir ónafn-
greindum heimildamönnum innan
lögreglunnar. Hann hefur þó ekki
verið ákærður fyrir glæp, að sögn
The New York Times.
Enginn lögfræðingur hefur lýst því
yfir að hann sé fulltrúi Frankels, og
fjölskylda hans í Toledo í Ohio, þ.á m.
móðir hans, tjáði The Bla.de of Toledo
að ekkert hefði heyrst frá honum í
nokkrar vikur. Hann er ókvæntur.
I apríl eyddi Frankel rúmlega
einni milljón dollara, eða rúmum sjö-
tíu milljónum íslenskra króna, í
verslunum Baccarat, Tiffany og Gi-
anni Versace og í ferðalög til Rómar,
Genfar og London.
Fyrir tveim árum fannst 22 ára
stúlka, sem sögð var hafa verið „hálf-
gildings starfsmaður og/eða unn-
usta“, hengd í húsi sem Frankel hafði
á leigu skammt frá heimili sínu. I ljós
kom að stúlkan hafði fyrirfarið sér.
Nágrannar höfðu kvartað yfir því við
lögreglu hversu margt fólk, þ.á m.
AP
EINA ljósmyndin af
Frankel, sem fundist
hefur, er þessi skólaár-
bókarmynd frá 1970.
margar ungar konur, hefði verið að
koma og fara úr húsinu á öllum tím-
um sólarhrings. Heimkeyrslan var yf-
irleitt þéttskipuð Bensum.
Það var í síðasta mánuði sem sjálf-
virkur brunaboði kallaði slökkvilið til
heimilis Frankels. Slökkviliðsmenn-
irnir komust að því að reykskynjarar
höfðu farið í gang vegna reyks frá
skjalahrúgum er brunnu í tveim ar-
inum. Meðal þess sem fannst hálf-
brunnið var minnislisti. Minnisatriði
númer eitt var: „Peningaþvætti ...
koma $ til Israels til að fá þá aftur.“
Alríkislögreglumenn fundu einnig
stjömukort og á einu þeirra var
spurningalisti: „1. Fer ég í fangelsi?
2. Kemur Tom upp um mig? 3. Ætti
ég að fara? 4. Ætti ég að senda pen-
inga aftur frá útlöndum? 5. Verður
allt í lagi með mig?“ Einnig fundust
athuganir á framsalssáttmálum
Bandarikjanna við ýmis ríki, til
dæmis Brasilíu og ísrael.
Maður sem sagðist heita Frankel
hringdi út af eldsvoðanum, en þegar
yfirvöld fóru fram á að fá að hitta
hann var skellt á.
Grisham leiðinlegur
í samanburði
Limúsínubílstjórar greindu frá því,
að daginn áður en bruninn varð hefðu
þeir flutt til Kennedy-flugvallar
nokkuð af þeim tugum einstaklinga
sem Frankel hafði í vinnu á þeim 90
tölvum sem voru í húsi hans. Það
hafði verið innréttað sem skrifstofu-
húsnæði og voru þaðan beinar línur
til Verðbréfaþings New York og ann-
arra markaða. Að sögn nágranna
voru gífurlega öflug innbrotsvarnar-
kerfi í húsinu, og Frankel yfírgaf það
ekki nema í fylgd lífvarða.
Hann var fölleitur, því að hann fór
sjaldan úr húsi. Nú leikur grunur á
að hann hafi flúið land, og hefur ekk-
ert til hans spurst síðan 5. maí.
Næsti nágranni hans, Charles Da-
vidson, kvaðst einungis hafa séð
hann tvisvar á fimm árum. George
Dale, tryggingaeftirlitsmaður í Miss-
issippi, sagði: „Við höfum aldrei séð
neitt í líkingu við þetta. Skáldsögur
Johns Grishams eru blátt áfram leið-
inlegar í samanburði."
Assad Sýrlands-
forseti hrósar
Ehud Barak
Jerúsalem, London. Reuters.
FORSETI Sýrlands, Hafez al-
Assad, fór lofsamlegum orðum um
Ehud Barak, nýkjörinn forsætis-
ráðherra Israels, að því er breskur
blaðamaður sem nýlega átti tal við
þá báða, skýrði frá. Mun Barak
einnig hafa vottað Assad virðingu
sína. Vekja þessi ummæli vonir um
að friðarviðræður milli ríkjanna
verði teknar upp að nýju.
Blaðamaðurinn Patricks Seale
skiifar fyrir arabíska dagblaðið al-
Hayat, sem gefið er út í London, og
kvað hann Assad hafa sagt að
Barak væri heiðarlegur maður sem
nyti mildls traust og væri augljós-
lega staðráðinn í að koma á friði
milli n'kjanna tveggja. Barak hrós-
aði einnig Assad og sagði hann hafa
eflt Sýrland mjög, en það væri mik-
ilvægt til að halda stöðugleika í
Mið-Austurlöndum. Kvaðst Barak,
að sögn Seales, vera spenntur að sjá
hvort möguleiki væri á að semja frið
við Sýrland.
Friðarviðræður
teknar upp að nýju?
Sýrland og ísrael eiga enn form-
lega í stríði síðan Israelar hernámu
Gólan-hæðirnar í Sexdagastríðinu
árið 1967. Hinn jákvæði tónn í um-
mælum Assads og Baraks vekur
vonir um að friðarviðræður milli
ríkjanna, sem slitnuðu árið 1996
eftir að Benjamin Netanyahu tók
við völdum í Israel, verði nú teknar
upp að nýju.
Assad sagði við Seale að „ekki
hefði verið hægt að eiga við“ Net-
anyahu, forvera Baraks, því hann
hefði verið umkringdur af „of-
stækismönnum“. Nú væri staðan
hins vegar gjörbreytt og þunga-
miðjan í ísraelskum stjórnmálum
hefði færst nær miðju. Sagðist
Assad trúa því að raunverulegur
friðarvilji væri nú fyrir hendi í
Israel.
Aðspurður hvemig honum litist
á að taka friðarviðræður upp að
nýju, sagði Assad að ekki væri um
að ræða að byrja upp á nýtt, heldur
að taka upp þráðinn þar sem frá
var horfið, og byggja á þeim ár-
angri sem þegar hefði náðst. Sagði
Assad að Yitzhak Rabín, fyrrver-
andi forsætisráðherra Israels,
hefði í meginatriðum fallist á að af-
henda Sýrlendingum Gólan-hæð-
iraar, áður en hann féll fyrir morð-
ingjahendi árið 1995.
Barak hefur ekki heitið því opin-
berlega að Golan-hæðimar verði
afhentar, en hefur sagt að þjóðar-
atkvæðagreiðsla verði haldin um
þá friðarsamninga sem kunna að
verða gerðir. Þá hefur hann heitið
því að ísraelskir hermenn verði
kvaddir heim frá suðurhluta Lí-
banons innan árs, en það krefst
samvinnu við Sýrlendinga. Hafði
Seale eftir Barak að eina leiðin til
að tryggja varanlegan frið í Mið-
Austurlöndum væri með samkomu-
lagi við Sýrland.
Reutera
Mikið mannfall í
átökum í Kólumbíu
AÐ minnsta kosti sextíu og
fimm féllu í átökum milli
marxískra uppreisnarmanna í
Kólumbíu og hersveita ríldsins
eftir að uppreisnarmennimir
reyndu að brjóta sér leið að
bækistöðvum helsta óvinar síns
í Nudo de Paramillo-fjallasvæð-
inu.
Að sögn talsmanna hersins
létust a.m.k. 32 hermenn sem er
mesta mannfall hersins frá því
formlegar friðarviðræður hófust
við uppreisnarmennina í FARC-
sveitunum. Ekki er þó gert ráð
fyrfr að þessir atburðir komi í
veg fyrir að viðræðum verði
fram haldið.
Alpalúðra-
keppni
í Sviss
RÚMLEGA 200 manns komu sam-
an á fjallinu Mannlichen á
Bernarölpunum í Sviss á dögun-
um til að taka þátt í stærstu
alpalúðrakeppni heims. Sviss-
neskur drengur leggur hér eyrun
við einn lúðranna, en Svisslend-
ingar hafa notað þá til að hóa
saman fénaði og sem herlúðra.