Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR KARLSSON Guömundur Karlsson fædd- ist í Reykjavík 2. október 1927. Hann lést á heimili sínu 15. júni síðastliðinn. Foreldrar Guð- mundar voru Margrét Tómas- dóttir ljósmóðir og Karl Guðmundsson, rafvélavirkjameist- ari og sýningar- stjóri í Tjarnarbfói og síðar í Háskóla- bíói. Þau eru bæði látin. Systkini Guð- mundar eru Ásta Guðrún, f. 6.10. 1926, látin; Hrefna Sigríð- ur, f. 25.1. 1930, húsmóðir í Reykja- vík; Anna Kristjana, f. 2.1. 1932, látin; Margrét Björk, f. 15.1. 1933, látin; Kristinn, f. 18.2. 1935, járnsmiður í Reykjavik; Tómas, f. 20.2. 1937, látinn; Einar, f. 7.3. 1939, búsettur í Reykjavík; Ragnar, f. 22.4. 1942, búsettur í Reykjavík. Guðmundur kvænt- ist 21.10. 1951 Árnýju Hrefnu Árnadóttur, f. 21.10. 1933, fulltrúa. Hún er dóttir Árna Snjólfssonar sjó- MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR + Margrét Pétursdóttir, Vest- urgötu 61, Akranesi, fædd- ist í Geirshlíð í Flókadal 21. ^ janúar 1902. Hún lést á Sjúkra- húsi Akraness 31. maí síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 8. júní. Nú er kvödd Margrét Pétursdótt- ir á Akranesi og vil ég minnast hennar og þakka í fáum orðum. Á vordögum fyrir tuttugu árum kom ég fyrst í hús Öddu, Sólbergs og Margrétar, móður Öddu, á Vest- urgötunni, en ég undirrituð hafði þá nýverið hitt Bjöm Steinar er síðar varð eiginmaður minn. Ég hef oft ■hugsað um það síðan hvað það hljóti að hafa verið skrítin reynsla fyrir bæði móður hans og ömmu að sjá „drenginn sinn“ hitta konuna sem hann vildi verða samferða um lífið. Og þegar konan var með ólíkan bakgrunn og lífsreynslu þá var skiljanlegt að þær færu sér svolítið hægt við fyrstu kynni. En fljótt var mér þó tekið sem einni af fjölskyld- unni og þar hef ég verið síðan og hafa þessi tengdafjölskyldubönd verið mér afar mikils virði, enda er fólkið allt traust, rausnarlegt og hjartahlýtt. Frá fyrstu kynnum dáðist ég að Margréti, þessari dugnaðarkonu, sem hafði unnið hörðum höndum að því að byggja dætrum sínum gott líf. Hún var alla tíð sterk, ákveðin, sjálfstæð og hélt þeim eiginleikum til síðustu stundar. Þegar bama- börnin komu Iifði hún fyrir þau og hafði alltaf tíma til að hlusta og með framkomu sinni og fordæmi gaf hún þeim dýrmæta gjöf sem þau nú geyma í hjarta sínu og huga. í mínu minni er mynd af fallegri gamalli konu í grænni kápu í miðjum garðinum að hlúa að grænmetinu og fínnst mér sú mynd vera eins konar tákn um persónuleika hennar er hún hlúði eftir bestu getu að sínu fólki. Kæra Margrét, að leiðarlokum vil ég þakka af hjarta allt sem þú gerð- ir fyrir mig og fyrir að vera bömum mínum elskuleg langamma og langalangamma. Ef ég þekkti þig rétt þá veit ég að þú vilt engum það að leggjast í sorg út af brottfór þinni en eitt er víst að við munum sakna nærveru þinnar og munum geyma minningu um íslenska kjarnakonu af bestu gerð með okk- ur um ókomin ár. Dætram og aðstandendum öllum votta ég inni- lega samúð. Hrefna Harðardóttir. f H t S S K I F ) A R S J Ó D V K í S N H F. AðaLfundur Fimmtudag-inn 1. júlí 1999 kl. 14:00, Hótel Sögu Dagskrá: 1. Skýrsla stjómar. 2. Staöfesting- ársreiknings. 3. Ákvöröun um þóknun til stjórnarmanna. 4. Tillaga um breytingar á 9. grein samþykkta félagsins. 5. Ákvörðun um hvernig fara skuli meö afkomu félagsins á liðnu reikningsári. 6. Tillaga um heimild til stjórnar um kaup á eigin bréfum félagsins. 7. Kosning stjórnar félagsins skv. 21. grein samþykkta. 8. Kosning endurskoðenda félagsins skv. 28. grein samþykkta. 9. önnur mál. LANPSBRÉFHF. www.landsbref.is Sími 535 2000 manns óg Hrefnu Þorsteinsdótt- ur húsmóður. Þau eru bæði lát- in. Börn Guðmundar og Hrefnu eru 1) Karl, f. 24.12. 1954, d. 27.4. 1988, stýrimaður í Garða- bæ, var kvæntur Hólmfríði Birnu Sigurðardóttur sjúkraliða og áttu þau fóstur- son. 2) Ásdis Elín, f. 14.1. 1961, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Claus Hermanni Magnússyni vélstjóra og eiga þau tvö börn. 3) Hrefna Margrét, f. 13.7.1962, nemi í Hafnarfirði og á hún þijár dætur. 4) Anna, f. 25.1. 1968, fulltrúi í Kópavogi, gift Árna Sæmundi Unnsteinssyni sölustjóra og eiga þau einn son. Guðmundur útskrifaðist úr fiskimanna- og farmannadeild Stýrimannaskólans 1952. Hann stundaði sjómennsku á ýmsum skipum til ársins 1960 er hann hóf störf hjá Skýrsluvélum rík- isins og Reykjavíkurborgar. Árið 1965 hóf hann störf hjá varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli sem kerfisfræðingur og vann þar til ársins 1996. Guð- mundur var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Brúar á Kefiavíkurflugvelli og var fyrsti forseti hans. Utför Guðmundar fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mann setur hljóðan þegar maður fær fréttir af láti góðs vinar, sest niður og fer að íhuga það sem gerðist meðan hann lifði. Þannig leið mér þegar ég las tölvupóstinn frá henni Önnu sem sagði mér að Guð- mundur Karlsson hefði látist aðfar- anótt 15. Júní. Þó að ég hafí vitað að Guðmundur ætti ekki mörg ár eftir vill maður ósjálfrátt, og kannski af eigingimi, að hann hefði lifað miklu lengur. Guðmundur og hans fjöl- skylda var mér eins og min eigin fjölskylda; ef mér gekk vel glöddust þau með mér og ef mér gekk illa gerðu þau allt til þess að hjálpa mér. Sem betur fer voru góðu stundirnar fleiri og þeirra minnist ég helst. Mér era ógleymanlegar allar þær stundir sem við eyddum í spjall og gaman- mál á Lindarflötinni þar sem Karl heitinn og Guðmundur kepptust um að fínna spaugilegar hliðar á tilver- unni og lífínu. Það var lífsgleðin sem einkenndi þessar stundir, stundir sem ég mun aldrei gleyma því þær kenndu mér að horfa brosandi á lífið og njóta þess. Þeir feðgar kenndu mér að sjá spaugilegu hliðarnar á vandamálunum og að það var ekkert svo slæmt að ekki væri hægt að leysa þau. Fjölskyldulífíð á Lindarflötinni er einstakt, það einkennist af trausti, virðingu og glaðværð. Þar sem allir taka tillit hver til annars og leggja sig alla fram um að hjálpa hver öðr- um. Þetta er fyrirmynd sem ég hef reynt að tileinka mér og dætur mín- ar segja að mér hafí tekist vel til. Guðmundur og Hrefna, ég vil þakka ykkur sérstaklega fyrir þessa leiðsögn sem þið veittuð mér með því að vera mér góð fyrirmynd. Það er erfitt fyrir mig að koma orðum að söknuði mínum. Guðmundur er far- inn og kemur aldrei aftur, hann skil- ur eftir tóm sem ekki er hægt að fylla. En ég veit að hann hefur kennt okkur öllum að við eigum ekki að dvelja við það sem við ráðum ekki við heldur að horfa fram á veginn, finna björtu hliðarnar og njóta þeirra. Hrefna, Anna, Ásdís, Hrefna og Fríða, hafið mínar bestu kveðjur og fjölskyldu minnar, vinsemd og samúð. Guð geymi ykkur öll og varðveiti. Ykkar vinur í Florida, Pétur Már Sigurðsson. Handrit afmœlis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stúttnefni undir greinunum. Hraðskák- keppni tafl- félaga: Hellir - T.R. í kvöld SKAK Hellisheimilið, Þnnglabakka 1 HRAÐSKÁKKEPPNI TAFLFÉLAGAÁ SUÐVESTURLANDI 24. júní 1999 HRAÐSKÁKKEPPNI taflfélaga á Suðvesturlandi stendur nú sem hæst. Átta taflfélög taka þátt í keppninni, sem er útsláttarkeppni. I fyrstu umferð fóra leikar þannig: Tf. Garðabæjar-Tf. Reykjanes- bæjar 72-0* T.R. - Taflfélag Kópavogs 481/2- 23‘/2 Hellir - Sf. Grand-Rokk 46-26 Sf. Hafnarfjarðar - Taflfélag Akraness 54-18 Það vora því Taflfélag Garða- bæjar, Taflfélag Reykjavíkur, Hellir og Skákfélag Hafnarfjarð- ar sem unnu sér rétt til þátttöku í undanúrslitum. Þar keppa saman: Tf. Garðabæjar - Sf. Hafnar- fjarðar Hellir - T.R. Garðabær og Hafnarfjörður tefldu á þriðjudagskvöld. Hafn- firðingar sigraðu með 461/ vinningi gegn 25/2 vinningi Garðbæinga. Hafn- firðingar hafa þar með unnið sér sæti í úrslitakeppninni. Hellir og T.R. mæt- ast hins vegar í kvöld, fímmtudag- inn 24. júní, klukk- an 20. Teflt verður í Hellisheimilinu og era áhorfendur vel- komnir til að fylgj- ast með þessari spennandi keppni. Þessi tvö sterkustu félög landsins hafa skipst á um að sigra á þessu móti, hafa bæði unnið tvisvar sinnum. Jón Viktor efstur á Boðsmótinu Jón Viktor Gunnarsson er efstur fyrir síðustu umferð á Boðsmóti T.R. með 5/2 vinning. Mótið er sjö umferðir. Annar er Sigurður Daði Sigfússon með 5 vinninga. í S.-A. sæti era Arnar E. Gunnarsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson með 4/2 vinning. Síðasta umferð fór fram í gærkvöldi. Mótið er hluti af Bik- arkeppninni í skák. Kasparov skorar á heiminn Kasparov býður nú öllum skákmönnum að taka þátt í skák sem tefld er á Netinu. Fyrir- komulagið er svipað og þegar Karpov tefldi á sama hátt í gegn- um Netið í ágúst 1996. Þeir sem tefla gegn Kasparov greiða at- kvæði um hvaða leik skuli velja. Kasparov hóf taflið með því að leika kóngspeðinu fram um tvo reiti og þátttakendur svöruðu með því að velja Sikileyjarvörn. Leikinn er einn leikur á dag. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni zo- ne.msn.com/. Einnig er tenging yfír á síðuna af heimasíðu Taflfélagsins Hellis: www.sim- net.is/hellir. Minningarmót um Petrosian Nú stendur yfír minningarmót um Tigran Petrosian, fyrrum heimsmeistara, í Moskvu. Kepp- endur era allir stórmeistarar sem eiga það sameiginlegt að hafa teflt við Petrosian og verið mikið í sviðsljósinu á svipuðum tíma og hann. Þann 17. júlí verða 70 ár frá fæðingu Petrosians, en hann fæddist árið 1929. Nafn Petrosi- ans var gjarnan tengt við nákvæma varnartaflmennsku og að geta skynjað hætturnar löngu á undan öðram. Hann tapaði því örsjaldan skák, en sættist hins vegar oft á skiptan hlut og það varð stundum til þess að hann missti af efsta sætinu á skákmót- um. Fimm umferðum er nú lokið á mótinu og staðan er þessi: 1 Borislav Ivkov 3 v. 2 Lajos Portish 3 v. 3 Yuri Balashov 2'A v. 4 Vlastimil Hort 2V6 v. 5 Mark Taimanov 2/2 v. 6 Vitaly Tseshkovsky 2'A v. 7 Vassily Smyslov 2/2 v. 8 Boris Spassky 2/2 v. 9 Svetozar Gligoric 2 v. 10 Bent Larsen 2 v. Það er vissulega gaman að sjá þessar gömlu kempur enn einu sinni við skákborðið. Það er hins vegar athyglisvert að í fyrstu fímm umferðunum hefur öllum skákun- um lokið með jafn- tefli nema þremur. Jónsmessumót á morgun Jónsmessumót Hellis verður haldið á morgun, föstudag- inn 25. júní. Taflið hefst ekki fyrr en klukkan 10 að kvöldi og teflt verð- ur fram eftir nóttu. Tefldar verða 9x2 umferðir, hraðskák. Heildarverðlaun era kr. 10.000. Mót- ið er opið öllum skákmönnum 18 ára og eldri. Bikarkeppnin - Skákþing Garðabæjar Boðsmóti T.R. er nú lokið, en næsta Bikarmót er skammt und- an. Skákþing Garðabæjar verður haldið fyrstu helgina í júlí. Fyrst eru tefldar þrjár atskákir með 25 mínútna umhugsunartíma og síðan verða fjórar lengri skákir með umhugsunartíma 90 mínútur á 30 leiki og síðan 30 mínútur til að ljúka skákinni. Samtals er því mótið 7 umferðir. Mótsstaður verður Garðaskóli í Garðabæ. Góð verðlaun verða í boði. Þátttaka tilkynnist í tölvupósti (pall@vks.is) með titlinum „Skráning“ og nafni viðkomandi í texta, eða í síma 861 9656 (Páll Sigurðsson). Mótið er opið öllum skákmönnum. Nánari upplýsingar verða á heimasíðu Taflfélags Garðabæj- ar, www.vks.is/tg. Skákmót á næstunni Tilkynningar um skákmót og aðra viðburði sendist til umsjón- armanna skákþáttar Morgun- blaðsins. Tölvupóstfangið er dadi@vks.is. Einnig má senda annað efni og athugasemdir við skákþættina á sama póstfang. 25.6. Hellir. Jónsmessumót kl. 22 2.7. Skákþing Garðabæjar kl. 19:30 5.7. Hellir. Atkvöld kl. 20 Daði Orn Jónsson Harines Hlífar Stefánsson Tigran Petrosian
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.