Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 44
4 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LJÓST er hverju mannsbami hér á landi að möguleikar á að ál- ver rísi á Austfjörðum eru vaxandi. Og það setur að manni hræði- legan ugg. En um leið hefur maður haft þá trú á stjómvöldum hingað til að þau geri mffg ekki sek um skammsýni og eygi aðra möguleika til hjálpar atvinnulífi á Austfjörðum. . Ef sú leið verður valin að eyðileggja óbætanleg- ar náttúrugersemar til þess eins að auðga at- vinnulíf í einum landsfjórðungi með álveri, sem veður orðið að ryðhrúgu eftir eitthundrað ár, þykir mér heimskulega hugsað. Mig langar til að benda á þá stað- reynd að enginn maður á að taka sér það bessaleyfi að eyðileggja það sem hann á ekki. Og þegar ég segi „á ekki“ á ég við að ís- land á sig sjálft og við eram hér til að lifa af því og hlúa að því um leið. Einföld athöfn alls lífs að gefa og taka. Að eyðileggja vísvitandi það sem maður á ekki er glæpur, í þessu til- viki þjóðarglæpur, fyrst og fremst vegna komandi kynslóða. Við vitum öll örlög geirfuglsins á síðustu öld, þar sem vamar- lausu dýri var mis- kunnarlaust eytt þar til ekkert var eftir. Óg öld síðar safnar öll þjóðin fyrir því að eignast uppstoppaðan geirfugl. Kaldhæðnislegt eða einfaldlega dæmigert. Einnig mætti nefna hvernig komið er fyrir urriðanum í Þingvallavatni og Soginu; þar er stórmerkilegur ísaldarstofn á barmi útrýmingar vegna virkjana- Landvernd Það er heimskulegt, segir Herdís Benediktsdóttir, að fórna óbætanlegum gersemum náttúrunnar fyrir álver sem verður orðið að ryðhrúgu eftir 100 ár. gerðar fyrir nokkrum áratugum. Við vitum öll að við vitum ekki hvað við höfum átt fyrr en við missum það. Mér sýnist svo vera um náttúruna okkar. Hún er ein- stök í heiminum og innst inni vitum við það. En hvað veldur að það komi til greina að fóma henni á alt- ari skammsýnna sjónarmiða? Ég skil það ekki og vorkenni í raun þeim einstaklingum sem era í þann mund, að því er virðist, að fremja landsglæp. Ég verð að horfa til þeirra orða sem sögð vora fyrir 2000 árum: „Fyrirgef þeim því þeir vita ekki hvað þeir gjöra“. Höfundur er húsmóðir. V egna hinna óbornu Herdís Benediktsdöttir Samkeppnisstofnun reynir að drepa gagnrýni á dreif FORSVARSMENN Samkeppnisstofnunar hafa undanfama daga reynt að beina athygl- inni frá aðalatriðunum í bréfi því, sem Þórarinn V. Þórarinsson, stjóm- arformaður Landssíma íslands hf., sendi Finni Ingólfssyni viðskipta- ráðherra í síðustu viku. Þar var m.a. gagnrýnt að samkeppnisráð gæfi íyrirtækjum, sem það ber þungum sökum, ekki færi á að kynna sér álit þess og ákvarðanir áður en þær era sendar fjölmiðlum. Jafnframt var gagnrýnt að íjöl- miðlum væru sendir útdrættir með helztu atriðum úr skýrslum, sem era tugir blaðsíðna að lengd, en að fyrir- tækin, sem skýrslumar beinast gegn, fengju enga slíka þjónustu og stæðu því illa að vígi þegar fjölmiðlar hefðu sam- band og bæðu um svör. Samkeppnisstof nun svarar ekki gagnrýni Þannig háttaði t.d. til 10. júní síðastliðinn, þegar Samkeppnisráð gaf út ákvörðun sína um GSM-þjónustu Landssímans og álit um meintan ríkisstyrk til fyrirtækisins, að forsvarsmenn Lands- slmans voru komnir með plöggin bæði, sem eru yfir 120 síður að lengd, í hendur upp úr kl. 15 en símhringingar frá fjölmiðl- um hófust upp úr kl. 16 og voru fjölmiðlamenn þá búnir að lesa út- drátt Samkeppnisstofnunar og bet- ur inni í málinu en stjórnendur Ólafur Þ. Stephensen Skemmdarverk gagnvart atvinnulífinu í UMRÆÐUM að undanfömu um nýting- arstuðla vinnsluskipa hef ég orðið þess var að margir, þar á meðal rit- stjóm DV, vita ails ekki um hvað þetta mál snýst. Ég tel rétt og skylt að reyna að skýra þetta eftir föngum. Afkakvótum er út- hlutað með tvennum hætti. Hjá þeim sem landa aflanum í fiski- höfnum landsins er •-jjptta einfalt. Landaður afli er dreginn frá kvóta viðkomandi skips. Hjá vinnsluskipunum er þetta flóknara. Afurðir skipanna era bakreiknaðar sam- kvæmt ákveðnum reglum. þ.e.a.s. reynt er að reikna hve mikið af fiski hafi komið upp úr sjónum til þess að flfemleiða þessa vöru. Reglurnar sem notaðar era voru á sínum tíma samdar af Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Þessar reglur eru í sjálfu sér rökréttar og ágætar, aðeins er einn galli á, að vísu nokkuð stór. Til að tryggja að farið sé að þessum reglum þyrftu eftirlitsmennirn- ir um borð að vera álíka margir og skipshöfnin, og þar stendur hnífur- inn í kúnni. Fyrir sjö árum, nokkru eftir að þessar reglur voru settar, benti ég á það hér í Mbl., að þessi kvóta- reikningur gæti í fram- kvæmd aldrei orðið annað en hrein della. Á umliðnum árum hef ég gert ótal tilraunir til þess að fá stjórn- völd til að breyta þeim og koma ein- hverri vitrænni skipan á þessi mál, en það hefur ekki tekist. Ég hef að Kvótaúthlutun Ég fullyrði að villan í útreikningi kvótanna til vinnsluskipanna, segir Einar Oddur Kristjánsson, sé 20-30%, mismunandi eftir tegundum. vísu margoft fengið loforð um að svo yrði gert, en efndirnar hafa ver- ið engar. Ég fullyrði að villan í útreikningi kvótanna til vinnsluskipanna sé 20-30%, mismunandi eftir tegund- um. (Vitleysan er langmest í grá- lúðu.) Ég þekki þá, þar á meðal menn úr sjóeftirlitinu, sem telja þetta ýkjur hjá mér. Vissulega sé þarna villa, segja þeir, en hún sé bara 15-20%. Það er allt í lagi að halda sig við þessar lægri tölur, að villa sé bara 15-20%. Það að takmörkuð kvóta- eign útgerðarfyrirtækis nýtist 15-20% betur með því að veiða afla og vinna hann um borð í vinnsluskipi en landa honum og vinna síðan afla í landi ýtir að sjálfsögðu allri fisk- vinnslu út á sjó. Það gefur augaleið. Hver reynir ekki að bjarga sér? Þannig hefur þessi þróun verið og þannig verður hún áfram, sé ekkert að gert. í okkar góða, frjálsa markaðskerfi jafnast það á við hrein skemmdar- verk gagnvart efnahagslífinu að skekkja samkeppnisstöðu atvinnu- veganna og afvegaleiða fjármagnið. Ég er þess fullviss að Samkeppn- isstofnun gerði fátt betra en gaum- gæfa þessa hluti vel. Höfundur er alþingismaður. Einar Oddur Kristjánsson Samkeppnisstofnun Samkeppnisstofnun reynir að beina athyglinni frá aðalatriðum gagnrýni á hendur sér, segh* Olafur Þ. Stephensen og fagnar því að viðskiptaráðherra skuli hafa hvatt stofnunina til að setja sér reglur um birtingu ákvarðana sinna. Landssímans. Það segir sig sjálft að enginn setur sig inn í jafnflókið og ýtarlegt mál á klukkutíma - jafnvel ekki þótt þeir væru tveir eða þrír. Þetta er ekki eina dæmið um að svona sé unnið hjá Sam- keppnisstofnun, því að oftar en ekki eru ákvarðanir hennar enn að renna í gegnum faxtæki Landssím- ans þegar fréttir af þeim eru lesnar í útvarpi. Þessari gagnrýni hefur Sam- keppnisstofnun ekki svarað. Þess í stað hefur hún reynt að slá ryki í augu fólks með því að reyna að gera samskipti samgönguráðuneytisins og Landssímans tortryggileg. Guð- mundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofn- unar, lét í veðri vaka í samtali við Morgunblaðið sl. sunnudag að eitt- hvað væri óeðlilegt við það að Landssíminn hefði fengið vitneskju frá samgönguráðuneytinu um annað hinna löngu plagga frá samkeppnis- ráði, 70 síðna skýrslu um meintan ríkisstuðning við fyrirtækið, áður en hún var send Landssímanum form- lega. Enginn „leki“ Það er ekkert leyndarmál að Landssíminn fékk vitneskju um um- rætt álit samkeppnisráðs frá sam- gönguráðuneytinu og fráleitt að tala um „leka“ eins og gert hefur verið í fjölmiðlum. Eins og Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra segir frá í samtali við Morgunblaðið þriðjudaginn 22. júní leituðu starfsmenn ráðuneytis- ins upplýsinga hjá Landssímanum vegna álitsins, undir hádegi fimmtu- daginn 10. júní. Ráðuneytinu var ekki sent álitið sem trúnaðarmál og samkvæmt upplýsingalögum var það auðvitað opinbert plagg. Það var því ekkert óeðlilegt við það að Landssímanum væri greint frá efni álitsins, sem varðaði bæði fyrirtækið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.