Morgunblaðið - 24.06.1999, Side 45

Morgunblaðið - 24.06.1999, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999 45 UMRÆÐA og ráðuneytið. Haldi Guðmundur Sigurðsson að svo sé er hann illa að sér í öðrum lögum en samkeppnis- lögunum. í umræddu áliti var vísað til ákvörðunar, sem ætti að birta Landssímanum. Af þeim sökum hafði lögfræðingur Landssímans samband við Samkeppnisstofnun (m.a. í ljósi fyrri reynslu) og spurði hvenær mætti vænta þess að fyrir- tækið fengi ákvörðun þessa í hend- ur. Síðar um daginn komu svo bæði álitið og ákvörðunin frá Samkeppn- isstofnun, samtals yfir 120 síður, en án útdráttarins sem fjölmiðlar fengu í hendur. „Upplýsingar um málavexti?" I áðurnefndu bréfí stjórnarfor- manns Landssímans til viðskipta- ráðherra var gagnrýnt að stofnunin stillti sér upp við hlið keppinauta Landssímans og tæki fullan þátt í opinberum umræðum um úrskurði sína. Var þar m.a. vísað til yfírlýs- ingar Samkeppnisstofnunar, sem birtist í Morgunblaðinu 15. júní. Þessu vísar Guðmundur Sigurðsson á bug í samtali við Morgunblaðið 22. júní og segir að birting þessarar yfirlýsingar hafi verið liður í því hlutverki stofnunarinnar að „upp- lýsa almenning um málavexti". Það verður að teljast harla hæpið að t.d. eftirfarandi tilvitnun í yfirlýs- inguna sé „upplýsingar um mála- vexti“: „Ef samkeppnisráð hefði haldið að sér höndum vegna aðgerða og aðstæðna Landssímans má ganga að því vísu að verð til neyt- enda myndi hækka og þjónusta versna þegar markmið fyrirtækisins með aðgerðum sínum hefði náð fram að ganga.“ Samkeppnisstofnun gerir Lands- símanum m.ö.o. upp það markmið að vilja drepa keppinautana til þess að geta hækkað verðið til neytenda og veitt þeim verri þjónustu! Það þarf varla að taka fram að aðdróttanir af þessu tagi eru fjarri öllum sanni og jaðra við róg. Landssími íslands tel- ur þvert á móti æskilegt að fá sam- keppni til þess að þjónusta og verð- lagning fyrirtækisins njóti innlends samanburðar og fyrirtækið og starfsfólk þess þeirrar hvatningar, sem felst í samkeppninni. Von á vandaðri vinnubrögðum Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra hefur nú beint því til Sam- keppnisstofnunar, skv. fréttum Rík- issjónvarpsins mánudaginn 21. júní, að hún setji reglur um birtingu efnis frá samkeppnisyfirvöldum. í sjón- varpsfréttinni var haft eftir raðherr- anum að hann og Georg Olafsson, forstjóri Samkeppnisstofnunar, hefðu á fundi orðið sammála um nauðsyn slíkra reglna. Þar með virð- ist Samkeppnisstofnun í raun hafa tekið gagnrýni Landssímans til greina, a.m.k. að hluta til, og er það vel. Vonandi mega þau fyrirtæki, sem Samkeppnisstofnun fjallar um í framtíðinni, eiga von á vandaðri vinnubrögðum en tíðkazt hafa þar á bæ hingað til. Höfundur er forstöðumaður upplýs- inga- og kynningarmála hjá Lands- síma fslands. Hágæða flísbuxur stardagar iH I á Flíspeysur verð frá 989 kr. Joggingpeysur verð frá 1.295 kr. Joggingbuxur verð frá 989 kr. Sportskór verð frá 1.995 kr. Barnasportskór verð frá 1.495 kr. Dömu- og herra- regngallar verð frá ágæða flíspeysu HAGKAUP Meira úrval - betri kaup GfunsfUFr (* klein cateye suimnno' hjólaðu í nýtt hjól Hjólaðu í nýtt hjól fráTrek, Gary Fisher eða Klein. Topphjól með vönduðum búnaði og ævilangri ábyrgð á stelli og gaffli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.