Morgunblaðið - 24.06.1999, Blaðsíða 54
^54 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
í!ls ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Sýnt á Stóra sóiii Þjóðteikhússins kt. 20.00:
MAÐUR í MISLITUM SOKKUM - Arnmundur Backman
Aukasýningar fös. 25/6 — lau. 26/6. Allra síðustu sýningar.
Sýnt i Loftkastata kt. 20.30:
RENT — Skuld — söngleikur e. Jonathan Larson
Fös. 25/6 — lau. 26/6 — lau. 3/7. Síðustu sýningar leikársins.
Mlðasalan er opin mánudaga—þriðiudaga kl. 13—18,
miðvikudaga—sunnudaga kl. 1 í 20.
Símapantanir frákl. 10 virka daga. Sími 551 1200.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Á SÍÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hátfvirði.
Stóra svið kl. 20.00:
Litlá kujtlinýíbúðiú
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
í kvöld fim. 24/6, aukasýning,
uppsett,
fös. 25/6, uppselt,
lau. 26/6, uppselt,
fös. 2/7, ath. kl. 21.00,
lau. 3/7, uppselt,
sun. 4/7, aukasýning.
fim. 8/7, fös. 9/7, lau. 10/7.
U I SVCtt
Félagsheimilinu Blönduósi
í kvöld fim. 24/6,
Klifi Ólafsvík
Fös. 25/6
Félagsheimilinu Hnrfsdal
Lau. 26/6 og sun. 27/6
Dalabúð Búðardal
Mán. 28/6
Þingborg í Ölfusi
Mið. 30/6
Sindrabæ Höfn í Hornafirði
Fim. 1/7
Egilsbúð Neskaupstað
■ Fös. 2/7
Herðubreið Seyðisfirði
Lau. 3/7.
Forsala á Akureyri í síma
4621400
Forsala á aðrar sýningar í sima
568 8000
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
Ósóttar pantanir seldar fyrir sýningu
Athugið: Siðasta sýning fyrir
sumarleyfi
lau. 26/6 kl. 20.30
lau. 3/7 kl. 20.30
Síðustu sýningar leikársins
10 — 18 og fram að sýningu sýningardaga
Midapantanir allan sólarhringinn.
KaííilfjKMsift
Vesturgötu 3
I HLAÐVARPANUM
Ziegler-Scheving
jazzkvintett
( kvöld fim. 24/6 kl. 21.00
Rússibanar
Auf uiiedersehen Tatu tónteikar
fös. 25/6 kl. 21.00
Rússibanadansteikur
lau. 26/6 kl. 23.00
Miðapantanir í símum
551 9055 og 551 9030.
30 30 30
Mðasáa opin tra 12-18 og iram að sýningu
sýrtngardaga. Dpið Ira 11 lyrtr I
HneTRn
kl. 20.30. Lau 26/6 örfá sæti laus
Sun 27/6 UPPSELT,
Allra síðustu sýningar
HADEGISLEIKHUS - ki. 12.00
Fim 24/6 UPPSELT
Fös 25/6 UPPSELT
Lau 26/6 AUKASÝNING
Mið 30/6 UPPSELT
Rm 1/7 örfá sæti laus
Fös 2/7 örfá sæti laus
TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA!
20% afeláttur af mat fýrir leikhúsgesti í Iðró.
Borðapantanir í síma 562 9700.
* Kysstust á almannafæri
► ROKKARINN
Mick Jagger og
ofurfyrirsætan
Jerry Haii standa
nú í skilnaði sem
þykir fremur
sóðalegur, meira
að segja á
Hollywood-mæli-
kvarða. Dropinn
sem fyllti mælinn í
stormasömu
'^hjónabandi þeirra
var sú yfirlýsing
brasilísku fyrir-
sætunnar Luciönu Morad að Jag-
ger væri barnsfaðir hennar.
En þrátt fyrir alla misklíð og
erfiðleika fór vel á með þeim
Hall og Jagger þegar þau hittust
sí veislu í Hollywood fyrir fáein-
um dögum. Sjónarvottar segja
MICK Jagger og Jerry Hall
saman á tískusýningu.
þau hafa brosað þegar þau spjöll-
uðu saman og að Hall hafí meira
að segja kysst Jagger á kinnina.
FÓLK í FRÉTTUM
Danski djassfiðlarinn Finn Ziegler
Djassari í
hjartanu
frá upphafi
Finn Ziegler er mættur með fíðluna
og stórgóðan píanóleikara, Olivier
Antunes, í farteskinu. Þeir halda
*
þrenna tónleika á Islandi í félagi
við íslenska djassara.
FYRSTU tónleikar Zieglers og félaga verða haldnir í
Kaffileikhúsinu í kvöld kl. 21. A laugardagskvöld leika
þeir á Djasshátíðinni á Egilsstöðum og enda Islands-
heimsóknina á öðrum tónleikum í Kaffileikhúsinu á
sunnudagskvöld.
Ziegler er ekki einn á ferð, með honum kemur ungur
djasspíanisti, Olivier Antunes. „Eg spila með honum af
því að mér finnst hann bestur í evrópska djassinum í
dag,“ segir fiðlarinn. Olivier er nýjasta djassstjarna
Dana, fæddur í Frakklandi af portúgölskum uppruna en
alinn upp í Danmörku, þar sem hann lærði píanóleik í Es-
bjerg, auk þess að hljóta leiðsögn bandarískra djass-
meistara. Nýlega hlaut hann Ben Webster-verðlaunin
ásamt bassaleikaranum Niels-Henning 0rsted Pedersen
og trommaranum Alex Riel en Ziegler hefur einmitt gef-
ið út nokkra geisladiska með þeim félögum.
Þrír íslenskir djassarar mynda kvintett með Dönunum,
þeir Ami Seheving víbrafónleikari, sonur hans Einar Val-
ur Seheving trommuleikari og Gunnar Hrafnsson bassa-
leikari.
Alltaf á ferðinni
„Ég byrjaði að spila á fiðlu níu ára þegar ég byrjaði í
Konunglega tónlistarskólanum í Kaupmannahöfn. Þar
lærði ég klassíska tónlist en ég hef verið djassari í hjart-
anu frá upphafi,“ segir Ziegler sannfærandi. „I millitíð-
Morgunblaðið/Jim Smart
OLIVIER Antunes og Finn Ziegler með Árna
Scheving á milli sín sem tók á móti þeim við
komuna til landsins.
inni lék ég líka á víbrafón en ég er orðinn alltof gamall og
lúinn til að bera svona þungt hljóðfæri svo ég held mig við
fiðluna," segir hann og hlær.
Ziegler rekur djassbúlluna Finn Zieglers Hjorne í
Frederiksberg í Kaupmannahöfn, þar sem hann leikur ein-
staka sinnum, en segist mest vera á tónleikaferðalögum
um allan heim. „Ég er nýkominn heim frá París þar sem ég
lék í Caveau de l’Huchette djassklúbbnum með nokkrum
af bestu frönsku djössurunum, það var mjög gaman.“
Djassfiðlarinn danski hefur komið víða við á ferlinum.
Hann útsetti og stjómaði Stórsveit danska ríkisútvarpsins
í nokkur ár, hefur unnið bæði í leikhúsi og samið tónlist
fyrir kvikmyndir en eftir hann liggja um tvö hundruð lög.
Og ætli íslendingar fái að heyra eitthvað af þeim? „Já,
kannski við leikum eitt eða tvö þeirra,... kannski þijú.“
- Og hlakkstr þú til að korna og spila fyrir okkur?
„Já, andskotakomið, já, já, já, já, mjög mikið,“ segir
Ziegler að lokum og lofar stórgóðum tónleikum á Islandi
þar sem nútíma svingtónlist verður í hávegum höfð.
■ CAFÉ Amsterdam Föstudags- og
laugardagskvöld mun DJ Birdy
þeyta skífum og diskum.
■ CAFÉ Riis, Hólmavík Pöbbinn
opinn föstudags- og laugardags-
kvöld. Sunnudagskvöld verða tón-
leikar kl. 21 með Tríó Sigga Bjöss.
ásamt Þorieifi Guðjónssyni úr KK á
kontrabassa.
■ CATALÍNA, Hamraborg Föstu-
dagskvöld spila Guðmundur og Örn.
Laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Leyniþjónustan fyrir dansi.
■ EGILSBÚÐ, Neskaup-
stað Dansleikur með hljóm-
sveitinni 8-villt laugardags-
kvöld.
■ EYRIN, ísafirði Föstu-
dags- og laugardagskvöld
skemmtir hljómsveitin
Heiðursmenn ásamt söngv-
urunum Ágústi Atla og
Kolbrúnu Sveinbjörns.
■ FÉLAGSHEIMILIÐ
KLIFI, Ólafsvík Föstudags-
kvöld verður stórdansleikur
með Stuðmönnum. Auk
þeirra koma fram Úlfur
Eidjárn, plötusnúðarnir Sér-
fræðingamir að sunnan,
Gó-Gó meyjarnar Abba og
Dabba auk fleiri skemmti-
krafta. Stuðmenn skarta nú
fúllkomnasta hljóð-, Ijósa- og mynd-
varpakerfi landsins í dagskrá sem
spannar allan feril hljómsveitarinnar.
■ FINNABÆR, Bolungarvík
Hljómsveitin írafár heldur ball með
18 ára aldurstakmarki laugardags-
kvöld.
■ FJÓRIR félagar, Súðavík Þriðju-
dagskvöld heldur Djasssveitin
Svartfugl tónleika. Miðvikudags-
kvöld skemmtir KK.
■ GAUKUR a Stöng í kvöld verður
útgáfuteiti Á móti sól í tilefni plöt-
unnar 1999 kl. 23. Föstudags- og
laugardagskvöld skemmta Geimfar-
arnir. Sunnudagskvöld skemmta
Bluesmenn Andreu. Þriðjudags-
kvöld verður „lágmenningarveisla" í
boði Hljómalindar. Þrír amerískir
pönkarar sem kalla sig „Unwound",
og leika tónlist í anda Sonic Youth
og Shellack. Miðvikudagskvöld sér
„kóngurinn um pilsnerinn" ásamt
„Bris“.
■ GRAND ROKK í kvöld leikur
hljómsveitin Blues Expresskvöld.
Bandið skipa Matthías Stefánsson,
gítar, Ingvi R. Ingvason, trommur,
söngur, Atli Freyr Ólafsson, bassi,
Gunnar Eiriksson, munnharpa og
Frá A til Ö
söngur og Jóhann Ólafur Ingvason,
hljómborð.
■ GULLÖLDIN Um helgina
skemmtir Sælusveitin. Sveitina
skipa Hermann Arason og Niels
Ragnarsson.
■ HAFNARBARINN, Þórshöfn
Mannakornin Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson skemmta kl. 23 á
föstudagskvöld.
■ HLÖÐUFELL, Húsavík Dansleik-
ur með hljómsveitinni Landi og son-
um föstudagskvöld.
■ HITT Húsið Á Taltónleikum Hins
Hússins og Rásar 2 á miðvikudag
spila Jagúar og Maus. Tónleikarnir
hefjast kl. 17. Okeypis aðgangur.
■ HÓTEL Akranes Dansleikur með
hljómsveitinni Buttercup laugar-
dagskvöld.
■ HÓTEL Tangi, Vopnafirði
Mannakornin Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson skemmta kl. 23 á
laugardagskvöld.
■ HREÐAVATN SSKÁLI, Borgar-
firði Laugardagskvöld verður
stórdansleikur með hljómsveitinni
Úlrik ásamt Tóna Ingvari.
■ HÖFÐABORG, Hofsósi Stórdans-
leikur með hljómsveitinni Stuð-
mönnum á laugardagskvöld.
■ HÖFÐINN, Vestmannaeyjum
Laugardagskvöld verður dansleikur
með hljómsveitinni Súldögg.
■ ÍRAFÁR verður með 16 ára ball
norður á Ströndum föstudagskvöld.
■ KAFFI Knúdsen, Stykkishólmi
Laugardagskvöld skemmtir hljóm-
sveitin Poppers.
■ KAFFI Reykjavík Fimmtudags-,
fóstudags- og laugardagskvöld leikur
Stuðbandalagið fyrir dansi. Sunnu-
dags- og mánudagskvöld skemmta
Ruth Reginalds og Magnús Kjartans-
son. Þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld skemmtir Blátt áfram.
■ KAFFI Thomsen Föstudagskvöld
skemmta Andrés & Margeir. Laug-
ardagskvöld verður „Hugarástands-
kvöld“ Arnar & Frímann ásamt
Árna E. á efri hæðinni. Sunnudags-
kvöld stjórnar breski plötusnúðurinn
Miles Copeland plötuvalinu ásamt
DJ Tomma.
■ KRINGLUKRÁIN í
kvöld og sunnudagskvöld
skemmta Ómar Diðriksson
og Halldór Halldórsson.
Föstudags- og laugardags-
kvöld skemmtir hljómsveit-
in Taktík.
■ NAUSTKRÁIN Föstu-
dagskvöld skemmtir Hljóm-
sveit Geirmundar. Laugar-
dagskvöld skemmtir hljóm-
sveitin Blátt áfram.
■ LIONSSALURINN, Auð-
brekku 25, Kóp. í kvöld
verður síðasta línudansæf-
ing fyrir sumarfrí. Elsa sér
um tónlistina.
■ REYKJAVÍKURSTOFA
er opin frá kl.18
■ NÆTURGALINN, Smiðjuvegi 14
Föstudags- og Iaugardagskvöld leika
Hilmar Sverrisson og Anna Vil-
hjálms. Opið frá kl. 22-3.
■ PÉTURSPÖBB Föstudags- og
laugardagskvöld skemmtir Rúnar
Þór.
■ RÉTTIN, Úthlfð Jónsmessuhátíð
helgina 25. og 26. júní. Hljómsveitin
Sixties föstudagskvöld og Geir-
mundur Valtýsson laugardagskvöld.
Frítt á tjaldstæðin.
■ SKOTHÚSIÐ, Keflavfk Dansleik-
ur með hljómsveitinni Sixties laug-
ardagskvöld.
■ KAFFI Nielsen, Egilsstöðum
Mannakornin Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson skemmta kl. 21 í
kvöld.
■ SJALLINN, Akureyri Dansleik-
ur, „Frelsisball" með hljómsveitinni
Landi og sonum laugardagskvöld.
■ VÍKIN, Höfn Hornafirði Föstu-
dagskvöld verður dansleikur með
hljómsveitinni Sóldögg.
■ VÍKURRÖST, Dalvík Laugar-
dagskvöld verður dansleikur með
hljómsveitinni Lausir og liðugir. Á
föstudagskvöld koma þeir fram á
Skjál.
HLJÓMSVEITIN 8-villt tryllir alla í Egilsbúð í
Neskaupstað á laugardag.