Morgunblaðið - 24.06.1999, Side 58
*38 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Tvöfalt
systkinabruðkaup
Búðardalur.
SYSTURNAR ÁshUdur og Aðalheið-
ur Hanna Bjömsdætur gengu að eiga
bræðurna Bjama og Hall Krist>
mundssyni við hátíðlega athöfn hinn
12. júní í Stóra-Vatnshomskirkju í
Haukadal.
Samkvæmt hefðinni biðu brúðgum-
amir ásamt föður sínum, Kristmundi
Jóhannessyni, eftir því að faðir brúð-
anna, Bjöm Gunnarsson, leiddi dæt-
urnar sér við hönd inn kirkjugólfið.
Séra Óskar Ingi Ingason, sóknar-
prestur í Búðardal, gaf fyrst Áshildi
og Bjama saman og síðan Aðalheiði
og Hall. í ræðu sinni vék hann að því
þama mynduðust einstaklega sterk
fjölskyldubönd þar sem um tvöfalt
systkinabrúðkaup væri að ræða og að
verið væri að staðfesta heit sem löngu
áður vom gefin.
Áshildur kynntist Bjama árið 1990
og hófu þau sambúð ári síðar að Gilja-
landi í Haukadal, en þaðan em bræð-
umir. Þau eiga saman fjóra syni á
aldrinum tveggja til átta ára, auk son-
ar Áshildar sem er þrettán ára.
Aðalheiður kynntist síðan Halli
þegar hún kom vestur til þess að
passa fyrir stóm systur sína. Þau
fóra að vera saman 1995 og eiga einn
tveggja ára son. Þau eiga heimili í
Reykjavík.
Það var því sannarlega kominn tími
til að láta pússa sig saman. Stóra-
Vatnshomskirkja varð fyrir valinu en
tíu ár era liðin frá því að seinast voru
þar gefin saman hjón.
Systkinin héldu auðvitað sameigin-
lega veislu og buðu til matar í Árbliki
sem er félagsheimili í Miðdölum. Þar
komu yfir hundrað veislugestir til að
heiðra brúðhjónin.
^ Morgunblaðið/V ala
SR. OSKAR Ingi Ingason ásamt bniðhjónunum Áshildi Björnsdóttur og
Bjama Kristmundssyni og Aðalheiði Hönnu Bjömsdóttur og Halli
Kristmundssyni. Með þeim á myndinni em Guðni Freyr Pálmason,
Kristbjöra Snær Bjarnason, Bjarni Rúnar Bjamason, Sigurjón Tryggvi
Bjamason, Jóhannes Atli Bjarnason og Hallur Kristinn Hallsson.
KRINGLUNNI - LAUGAVEGI
BRJALAD KRIIMGLUKAST
23.-26. júní
Buxur hvítar, gráar, svartar
áúuf^;9ío nú aðeins 3.990
„Quart“ buxur
J&wh5r99ir nú aðeins 2.990
Leður „look“jakkar
_iður#39iT nú aðeins 4.990
Hörskyrtur
iðuf^gö nú aðeins 3.990
Hörkjólar
áður 8.^90 nú aðeins 4.990
Hlýrabolir margir litir
_áðuM^9iT nú aðeins 790
o.fl. o.fl. frábær tilboð
MYNDBÖND
Dönsk
vísinda-
skáldsaga
Skugginn
(Skyggen)________
V í s i n d a t ry 11 i r
★★
Framleiðandi: Soren Juul Petersen.
Leikstjóri: Lars Borch Nielsen. Hand-
ritshöfundur: Lars Borch Nielsen.
Kvikmyndataka: Lars Beyer. Tónlist:
Ame Schultz. Aðalhlutverk: Lars
Bom, Puk Scharbau, Karin Rorbech,
Jorgen Kiil. (98 mín.) Danmörk. Mynd-
form, 1999. Bönnuð innan 12 ára.
DANIR era ekki þekktir fyrir
mikla framleiðslu á vísindaskáldsög-
um en Skugginn er ein slík og fjallar
hún um tölvuþrjót
sem hefur verið
ráðinn til starfa
hjá fyrirtæki sem
hann braust inn í.
Þegar ókunnugur
einstaklingur
brýst inn á tölvu
fyrirtækisins og
fremur morð ber-
ast allra augu að
tölvuþrjótnum fyrrverandi JB (Lars
Bom).
Allt frá byrjun þessarar myndar
sést að leikstjórinn, Lars Borch Ni-
elsen, sækir efnivið sinn vestur yfir
haf, en upphafssenan er greinilega
stolin úr „Seven“. Myndin er ágæt-
lega unnin í tæknilegum skilningi en
líður fyrir stirðbusalegan leik og
slappt handrit. Þetta gæti verið at-
hyglisverður fyrsti kafli í vísinda-
kvikmyndamenningu Dana eða til-
raun sem misheppnaðist.
Ottó Geir Borg
Þarftu að
skipta um
bremsu-
klossa?
15% afsláttur