Morgunblaðið - 24.06.1999, Page 64
»
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF S691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Atvinnumiðstöð
námsmanna
527 leita
enn vinnu
2.060 NÁMSMENN hafa skráð
sig hjá Atvinnumiðstöðinni í leit
að sumarstarfi það sem af er
sumri. Hluti þessa hóps hefur
fengið sumarstarf eftir öðrum
leiðum en á vegum Atvinnumið-
stöðvarinnar og Nýsköpunar-
sjóðs námsmanna hafa um 480
námsmenn fengið sumarstarf.
20 námsmenn skrá sig á
hverjum virkum degi og 23. júní
sl. voru 527 á skrá Atvinnumið-
stöðvarinnar. A sama tíma í
fyrra voru 394 námsmenn enn
að leita að starfí sem þýðir um
34% aukningu í skráningu frá í
Vf" fyrra.
■ Biðu/12
--------------
Kostakaup á Selfossi
Svipað verð
og í Bónusi
^ÍOSTAKAUP, sem opnuð voru á
Selfossi 16. júní síðastliðinn, bjóða
viðskiptavinum sínum sama verðlag
og sambærilegar verslanir á höfuð-
borgarsvæðinu gera. Þetta kom
fram í verðkönnun sem Morgunblað-
ið gerði dagana 21.-22. júní í Kosta-
kaupum, Bónusi og Nettó. Verðmun-
reyndist yfírleitt lítill.
■ Stenst verðsamkeppni/20
A
Nám í íslensku fvrir erlenda stúdenta við Háskóla Islands
Eftirspurn
langt umfram
framboð
EFTIRSPURNIN eftir námi í ís-
lensku fyrir erlenda stúdenta við
Háskóla íslands er langt umfram
framboð og þarf skólinn því að vísa
fjölda nemenda frá á hverju ári.
Mun það aðallega vera takmarkað
kennslurými sem kemur í veg fyrir
að hægt sé að veita fleiri umsækj-
endum inngöngu.
Að sögn Hreins Pálssonar, próf-
stjóra við Háskóla íslands, sóttu að
þessu sinni 237 um að fá að hefja
nám á hausti komanda í íslensku
fyrir erlenda stúdenta og mun það
vera örlítil fjölgun frá undanfórn-
um árum. Hins vegar er aðeins
hægt að veita 72 umsækjendanna
inngöngu og þarf því að vísa 165
þeirra frá. Sagði Hreinn um helm-
ing þeirra sem fá inngöngu vera
styrkþega á vegum menntamála-
ráðuneytisins, en aðra þyrfti að
velja úr þeim nálega 200 umsókn-
um sem eftir stæðu.
Við það val mun aðallega vera
miðað við menntun umsækjenda,
þ.e. hversu langt þeir eru komnir í
námi og þær einkunnir sem þeir
hafa hlotið. Kvað Hreinn það vera
ákaflega erfitt að þurfa að vísa svo
mörgum frá sem raun ber vitni, en
gat þess jafnframt að ekki væri víst
að þörf væri á að koma upp náms-
aðstöðu fyrir um 200 nemendur.
„Það nám sem við bjóðum upp á
hér er þriggja ára akademískt nám,
en margir þeirra sem leita til okkar
vilja fyrst og fremst ná tökum á ís-
lensku til að tjá sig; lesa, skilja og
skrifa. Það er því spurning hvort
ekki sé þörf fyrir einhvers konar
einfaldari útgáfu, þ.e.a.s. einfaldan
málaskóla. Markaðurinn og áhug-
inn eru til staðar, en ég held að ekki
sé ástæða til fyrir allan þennan
fjölda að fara í hið fræðilega ís-
lenskunám við Háskólann, sem er
kjörið t.d. fyrir þá sem leggja stund
á fornnorrænu," sagði Hreinn.
Hann vildi þó einnig taka fram að
Endurmenntunarstofnun Háskóla
íslands og Námsflokkar Reykjavík-
ur hefðu boðið upp á námskeið í ís-
lensku fyrir útlendinga og mættu
þau hluta þeirrar þarfar sem til
staðar væri fyrir nám utan háskóla-
stigsins.
Kennslurými leyfír ekki
fleiri nemendur
Þóra Björk Hjartardóttir, for-
maður skorar íslensku fyrir er-
lenda stúdenta, segir hagkvæmnis-
ástæður liggja fyrir því að ekki sé
hægt að veita fleiri nemendum inn-
göngu. „Það er í raun og veru fjöldi
plássa í málveri Háskólans sem
ræður þessu. Við skiptum þessum
72 fyrsta árs nemum niður í þrjá
undirhópa og hver þessara hópa
skiptist síðan niður í tvo minni hópa
með tólf nemendum í hverjum hóp,
en fleiri getum við ekki haft í mál-
verinu í einu,“ sagði Þóra Björk og
bætti við að stærð málversins
byggðist á kennslufræðilegum for-
sendum þar sem ekki væri æskilegt
að hafa fleiri en 12 manns í einu
inni í kennslustofu þar sem verið
væri að þjálfa talmál.
Bænhúsið
við Núpstað
PRESTAR á prestastefnu gengu
4U altaris í bænhúsinu á Núpstað
við Lómagnúp í gær. Bænhúsið
rúmar aðeins 35 manns og þurftu
prestar því að bíða í rigningunni
eftir að meðtaka sakramentið.
Stefnt að byggingu Vatnsfellsvirkjunar á 28 mánuðum
Gengið til samninga við
Islenska aðalverktaka
STJÓRN Landsvirkjunar hefur
ákveðið að ganga til samninga við ís-
lenska aðalverktaka hf. um byggingu
Vatnsfellsvirkjunar og Amarfell ehf.
um gröft frárennsjisskurðar. Samn-
ingsupphæðin við Islenska aðalverk-
taka hf. nemur rúmlega 3.050 milijón-
um króna, en samningsupphæðin við
Amarfell ehf. er tæplega 470 milljón-
ir. Stefnt er að því að ljúka byggingu
virkjunarinnar á aðeins 28 mánuðum.
Aætlaður kostnaður við Vatnsfells-
virkjun var um 8 milljarðar. Nú þeg-
ar tilboð í virkjunina liggja fyrir
stefnir í að kostnaðurinn verði um
70% af kostnaðaráætlun eða innan
við 6 milljarðar.
Kínverska íýrirtækið China
National Water Resources and
Hydropower Engineering Corpor-
ation átti lægsta tilboðið í alla verk-
þætti með afslætti. Tilboðið hljóðaði
upp á 3.250 milljónir króna sem er
63,4% af kostnaðaráætlun.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, sagði að þegar Utið
væri til allra sjónarmiða væri það
mat Landsvirkjunar að tilboð ís-
lenskra aðalverktaka hefði verið hag-
stæðast í tvo af þremur verkþáttum.
Mjög lítill munur hefði verið á kostn-
aðaráætlun fyrirtækjanna varðandi
byggingu stíflunnar, en hins vegar
hefði verið nokkur munur á tilboðun-
um þegar kom að byggingu stöðvar-
hússins.
Þá ákvað Landsvirkjun að ganga
til samninga við Lahmeyer
Intemational, VSÓ Ráðgjöf og Al-
mennu verkfræðistofuna hf. um eftir-
lit með framkvæmdum við Vatnsfells-
virkjun. Aætlaður kostnaður við
þennan samning er um 300 milijónir.
■ Næstlægsta/10
Morgunblaðið/Sverrir
nýmálaða
veggi
UÐAÐ var á nýmálaða veggi bfl-
skýla við Keilugranda og Reka-
Sranda í Reykjavík í fyrrinótt.
lafur Klemenzson, íbúi við
Keilugranda, segir að þetta sé
sérlega hvimleitt þar sem nýbúið
var að mála bflskýlin.
Ólafur segist búast við að
verknaðurinn verði kærður enda
hafi lögreglan oft vísbendingar
um hverjir séu að verki við þessa
iðju. Hann segir nokkuð hafa
borið á veggjakroti í þessum
hluta bæjarins. Hann segir nú
unnið að málningu bflskýlanna
og kosti verkið allt kringum tvær
miHjónir króna. Fyrri umferð
hafi verið máluð á þriðjudag og í
framhaldi af því hafi verkið verið
unnið, trúlega í fyrrinótt. Ólafur
segir að hreinsa verði veggina
áður en ný umferð er máluð og
líklega verði að endurtaka verkið
að fullu þar. Hann telur að kostn-
aður af lagfæringunum geti
numið tugum ef ekki hundruðum
þúsunda króna.
Morgunblaðið/Jim Smart
f FYRRINÓTT var úðað á veggi
bflskýla við Keilugi-anda og
Rekagranda sem nýlega var bú-
ið að mála.
Úðað á