Morgunblaðið - 08.09.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
202. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
A fjórða tug manna lét lífíð í öflugum jarðskjálfta sem reið yfír Aþenu
Enn von um að
finna fólk á lífí
Aþenu. Reuters, AFP, AP.
ÖFLUGUR jarðskjálfti, sem mæld-
ist 5,9 á Richter, reið yfir Aþenu,
höfuðborg Grikklands, klukkan
þrjú eftir hádegi að staðartíma í
gær með þeim afleiðingum að á
fjórða tug manna lét lífið og hátt á
annað hundrað manns var saknað
seint í gærkvöldi. Átti skjálftinn
upptök sín um tuttugu km norður
af miðborg Aþenu. Björgunarsveit-
ir, lögreglumenn, slökkviliðsmenn
og íbúar borgarinnar leituðu ákaft í
rústum um 50 húsa og verksmiðja
er eyðilögðust í hamförunum og
eygðu menn enn von um að finna
fólk á lífí.
Björgunarsveitir voru enn við leit-
arstörf í nótt en víða greindu menn
raddir úr rústum húsa. Síðdegis
tókst að bjarga fólki úr verksmiðjum
í einu úthverfa Aþenu. Á meðal
þeirra er létust voru þrjú börn er
voru að leik á barnaheimili.
Costas Simitis, forsætisráðherra
Grikklands, bað Grikki að sýna still-
ingu og vinna saman í hörmungun-
um er dunið hefðu yfír. „Umfangs-
miklar björgunaraðgerðir standa nú
yfir. Leitarhópar munu starfa í alla
nótt. Á morgun hefjumst við handa
við að meta tjónið," sagði Simitis í
gærkvöldi.
Óttaslegnir íbúar Aþenu þustu út
á götur síðdegis í gær er hrina eftir-
skjálfta dundi yfir borgina. Almenn-
ingsgarðar fylltust af fólki þar eð
margir hugðust gista utandyra í
nótt. Greindu jarðskjálftafræðingar
um tuttugu eftirskjálfta í gær og
vildu ekki útiloka annan sterkan
skjálfta á næstu dögum.
Aðeins eru liðnar um þrjár vikur
síðan gífurlegur jarðskjálfti olli
dauða þúsunda manna í Tyrklandi og
sendi Bulent Ecevit, forsætisráð-
herra landsins, Grikkjum samúðar-
kveðjur og bauðst til að aðstoða
þjóðina af öllum mætti. Talsmenn
grískra stjórnvalda sögðu ennfremur
að stjórnvöld í Tékklandi, Rússlandi
og Frakklandi hefðu boðist til að að-
stoða við hjálparstörf. „Við finnum
til og deilum með ykkur sársaukan-
um vegna missis mannslífa í jarð-
skjálftanum í dag í ljósi þeirra hörm-
unga er yfir okkur dundu nýlega,“
sagði Suleyman Demúel, forseti
Tyrklands, í gær.
Bosnía-Hersegóvína
Poblasen
virðir bann
Dodiks að
vettugi
Banja Luka. AP, Reuters.
Harðlínumaðurinn Nikola
Poblasen, sem vísað var úr
embætti forseta í hinum
serbneska hluta Bosníu-Her-
segóvínu í mars, mætti til
vinnu sinnar í forsetahöllinni í
Banja Luka í gær þrátt fyrir
að stjórnvöld hefðu tilkynnt
að þau hefðu gripið til ráðstaf-
ana til að koma í veg fyrir að
hann héldi áfram að sinna
störfum sínum eins og ekkert
hefði í skorist.
Milorad Dodik, forsætisráð-
herra í serbneska lýðveldinu,
sem er annað sambandsríkja
Bosníu-Hersegóvínu, hafði
fyrr í gær sagt að ákveðið
hefði verið að grípa í taumana
vegna þess að „Poblasen virð-
ist ekki gera sér grein fyrir að
hann er ekki lengur forseti“.
Hefur haldið áfram
að haga sér sem forseti
Fulltrúi vesturveldanna í
Bosníu-Hersegóvínu hefur
skv. Dayton-friðarsamkomu-
laginu frá 1995 umfangsmikil
völd og það var hann sem vís-
aði Poblasen úr embætti í
mars á þeim forsendum að
hann hefði reynt að standa í
vegi fyrir því að friður yrði
treystur í sessi í landinu.
Poblasen hefur hins vegar alla
tíð neitað að viðurkenna
ákvörðunina, og hefur haldið
áfram að haga sér eins og
hann væri enn forseti.
Óvíst er hvernig Dodik
hyggst framfylgja ákvörðun
ríkisstjórnar sinnar í gær en
þó er fullyrt að búið sé að loka
fyrir allar símalínur til for-
setahallarinnar og ennfremur
mun vera nokkuð um liðið síð-
an fulltrúi vesturveldanna tók
Poblasen af launaskrá.
Gusmao biður umheiminn um aðstoð við að binda enda á „þjóðarmorð“ á A-Tímor
Indónesíustjórn setur herlög
Dili, Jakarta, SÞ. Reuters, AP, AFP.
INDÓNESÍUSTJÓRN lýsti því yfir
Franskur landbúnaður
Barist gegn
refsitollum
Toulouse. Reuters.
JOSE Bove, leiðtogi franskra
bændasamtaka, sem handtekinn
var í síðasta mánuði fyrir að um-
turna byggingarsvæði McDonald’s-
skyndibitakeðjunnar, var í gær lát-
inn laus úr fangelsi í Toulouse og
lýsti því samstundis yfir að hann
myndi halda ótrauður áfram barátt-
unni gegn bandarískum refsitollum
á evrópskar landbúnaðarafurðir,
s.s. Roquefort-ost sem framleiddur
er í Frakklandi.
Sagðist Bove ætla að halda bar-
áttu franskra bænda áfram og beina
næst spjótum sínum að næstu
samningalotu Heimsviðskiptastofn-
unarinnar (WTO) sem hefst í
Seattle í desember nk. „Við munum
halda til Seattle. Við viljum gæða-
landbúnað. Við höfnum forugu
fæði,“ sagði Bove á tröppum fang-
elsisins í gær.
í gær að hún hefði sett herlög á
Austur-Tímor til að reyna að
stemma stigu við vargöld þeirri er
ríkir í höfuðstaðnum Dili og víðar.
Þá frelsuðu stjórnvöld í Jakarta
sjálfstæðisleiðtogann Xanana Gus-
mao úr stofufangelsi. Kofi Annan,
aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna (SÞ), lýsti því yfir í gær að
Indónesíustjórn hefði tvo sólar-
hringa til að koma á reglu á A-Tímor
áður en ákvörðun yrði tekin um að
senda alþjóðlegt friðargæslulið til
eyjarinnar, en herlögin sem sett
voru í gildi í gær eru almennt talin
veita öryggisráðinu nokkurra daga
gálgafrest til að taka ákvörðun um
komu friðargæsluliðs. Utanríkisráð-
herrar Bandaríkjanna, Bretlands og
Asíu- og Kyrrahafsríkja munu hitt-
ast á Nýja-Sjálandi í dag og ræða
hvaða leiðir séu færar til að koma í
veg fyrir ógnar-
ástandið.
Peter van
Walsum, fulltrái
Hollands sem nú
fer með for-
mennsku í örygg-
isráðinu, ítrekaði
í gær að ráðið
myndi ekki verða
við kröfum um
að senda friðar-
gæslulið til Aust-
ur-Tímor fyrr en fyrir lægi að
Indónesíustjórn veitti samþykki sitt
en vonaðist til að stjórnvöld myndu
fallast á umleitanir SÞ um að leyfa
komu friðargæsluliðs.
Gusmao var ekið til sendiráðs
Bretlands í Jakarta eftir að hann
var leystur úr haldi og á blaða-
mannafundi bað hann umheiminn
náðarsamlegast um aðstoð við að
stöðva „þjóðarmorðið" á A-Tímor.
Sagðist hann vera reiðubúinn að
starfa með Indónesíustjórn svo
koma mætti í veg fyrir þjáningar
íbúa eyjarinnar.
fbúar fluttir frá A-Tímor
gegn vilja sínum
Ekkert virtist geta komið í veg
fyrir morð og óhæfuverk ofstækis-
fullra stuðningsmanna Indónesíu-
stjórnar á A-Tímor í gær og mæltist
ákvörðun stjórnvalda í Jakarta um
að eftirláta Indónesíuher alla stjórn
á eyjunni illa fyrir þar eð sjónarvott-
ar og alþjóðlegt starfslið bera því
vitni að herinn standi að baki ofbeld-
isverkum. Hefur verið fullyrt að her-
sveitir hafi skipað tugum þúsunda
manna að hverfa frá A-Tímor og
sagði Ian Martin, talsmaður skrif-
stofu SÞ á eyjunni (UNAMET), að
íbúum væri skipað „gegn vilja sín-
um“ að hverfa til Vestur-Tímor. Ta-
tang Razak, talsmaður Indónesíu-
stjórnar hjá Sameinuðu þjóðunum,
sagði hins vegar að hersveitir væru
að aðstoða það fólk er vildi hverfa frá
A-Tímor.
Herminio da Silva da Costa, einn
þehra er leiða flokka ofstækisfullra
stuðningsmanna Indónesíustjómar á
A-Tímor, sagði í viðtali við AFP í gær
að sínir menn myndu „brenna allt til
grunna“ ef kosningamar um sjálf-
stæði A-Tímor frá því í liðinni viku
yrðu ekki ógiltar og kosið yrði að nýju.
Talsmenn Alþjóðaráðs Rauða
krossins sögðu í gær að alls hefðu
um 40.000 manns flúið til V-Tímor
síðustu tvö dægrin og að ekki væri
fyrirséð að flóttamannastraumurinn
mundi minnka í bráð miðað við
óbreytt ástand.
■ Vesturlönd tvístígandi/22
Xanana
Gusmao