Morgunblaðið - 08.09.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.09.1999, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Skoðanakönnun Gallup um framkvæmdir í Laugardal Mikil andstaða við byggingar í dalnum NYLEG skoðanakönnun Gallup sem gerð var fyrir samtökin Vernd- um Laugardalinn sýnir nokkuð af- gerandi andstöðu borgarbúa gegn byggingaframkvæmdum í dalnum. Um 81% þeirra sem tóku afstöðu lýstu sig andsnúna áformum um byggingu á lóðum í dalnum. Urtak skoðanakönnunarinnar voi-u 474 Reykvíkingar og þar af svöruðu 305. Spurt var tveggja spuminga og var helmingur þátt- takenda spurður hvort hann væri hlynntur eða andvígur því að byggja í austurhluta Laugardalsins. 6,2% sögðust vera mjög hlynnt byggingu, 9,6% frekar hlynnt, þeir sem voru hvorki hlynntir né, eða í meðallagi, voru 13% en frekar and- vígir voru 19,9% og mjög andvígir voru 51,4%. Hinn helmingur þátt- takendanna var spurður hvort hann væri hlynntur eða andvígur því að byggja í austurhluta Laugardals eða hvort skoðun hans væri háð því um hvers konar hús væri að ræða. 3,4% sögðust vera mjög hlynnt byggingu, 2,7% frekar hlynnt, 9,5% voru hvorki né, eða í meðallagi, 14,2% voru frekar andvíg, 45,3% voru mjög andvíg og 25% sögðu skoðun sína vera háða tegund húss. Afdráttarlaus skilaboð Júlíus Vífill Ingvarsson borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagðist gleðjast yfir niðurstöðu skoðana- könnunarinnar. „Pessar niðurstöð- ur sýna að borgarbúar eru sammála okkar sjónarmiðum í þessu máli og þær eru jafnframt afdráttarlaus skilaboð til borgarstjóra um að láta af fyrirhuguðum byggingaráform- um í austurhluta Laugardals," sagði hann. „Það að 30 þús. manns hafa skrifað undir mótmæli vegna fyrir- hugaðra bygginga á þessum stað er einstakt í sögu Reykjavíkur. Svo sterk rödd hefur aldrei áður heyrst frá borgarbúum varðandi nokkurt mál. Það er útilokað annað en að borgarstjóri og meirihluti borgar- stjómar taki fullt tillti til þessarar sterku raddar.“ Morgunblaðið/Guðmundur St. Valdimarsson Um það bil 52 mflur norðnorðvestur af Straumnesi sigldi Ægir fram á þennan risastóra borgarísjaka sem er um fímmtíu metrar á hæð. Skipið, sem rís 25 metra yfír sjávarborð, virðist örsmátt við hliðina á fsjakanum. Skotið á borgarísjaka SKIPVERJAR á varðskipinu Ægi æfðu sig í að skjóta úr fallbyssu með því að skjóta á borgarísjaka um 48 mflur norður af Straum- nesi á dögunum. Mikið er um borgarís undan Vestfjörðum um þessar mundir. Fimm skyttur hleyptu samtals af 36 skotum, flestum af 500- 1000 metra færi, úr fallbyssu skipsins en áhafnir varðskipanna æfa reglubundið meðferð fall- byssu við margbreytilegar að- stæður. Varðskipsmenn á Ægi hleypa af skoti úr fallbyssu skipsins. Þriggja manna áhöfn er á byss- unni þegar hleypt er af en hún getur mest skotið 120 skotum á mínútu og dregur allt að 11.300 metruin. Meðallaun opinberra starfsmanna 1987-1998 —i-----1----1----1----1----1----1----1----1----1----1---1— 95 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 Launakjör opinberra starfsmanna Heildarlaun hækk- uðu um 18% í fyrra HEILDARLAUN opinberra starfs- manna námu rétt tæpum 190 þús- und krónum á mánuði að meðaltali í fyrra og hækkuðu um rúm 18% frá árinu áður. Dagvinnulaun hækkuðu ennþá meira hlutfallslega eða um tæpan fjórðung, úr 105.545 kr. á mánuði í 131.229 kr. að meðaltali, sem jafngildir 24,33% hækkun, en þess ber að geta að launakerfis- breyting hjá n'kisstarfsmönnum í kjölfar síðustu kjarasamninga fól í sér að yfirvinnugreiðslur voru að hluta til felldar inn í dagvinnulaun. Þessar upplýsingar koma fram í nýju fréttabréfi Kjaranefndar opin- berra starfsmanna yfir launatölur á árinu 1998. Þar kemur ennfremur fram að bæði kaupmáttur heildar- launa og kaupmáttur dagvinnu- launa opinberra starfsmanna er miklu hærri en hann hefur áður verið eða amk. frá árinu 1987, en upplýsingar koma ekki fram um kaupmáttinn fyrir þann tíma. Kaup- máttur dagvinnulauna var 138,99 stig í fyrra, en hafði áður orðið hæstur 117,12 stig á árinu 1987. Hann var rétt rúm 100 stig á árinu 1994. Kaupmáttur heildarlauna op- inberra starfsmanna hefur einnig ekki verið hærri. Hann var 137,84 stig á síðasta ári samanborið við 118,56 árið áður, en hafði þar áður orðið hæstur 115,94 árið 1987. Svo dæmi séu tekin af launum nokkurra starfshópa opinberra starfsmanna þá voru heildarlaun fé- laga í Félagi íslenskra leikskóla- kennara tæpar 147 þúsund krónur í október í fyrra. í sama mánuði voru heildarlaun lögreglumanna tæpar 240 þúsund kr., heildarlaun sjúkra- liða rúm 143 þúsund, heildarlaun í Starfsmannafélagi ríkisstofnana að meðaltali 150 þúsund kr., heildar- laun hjúkrunarfræðinga rúm 213 þúsund, heildarlaun framhaldsskóla- kennai-a í Hinu íslenska kennarafé- lagi rúm 209 þúsund kr., heildarlaun flugumferðarstjóra rúmar 473 þús- und kr., heildarlaun sjúkrahúslækna 399 þúsund kr. og heildarlaun pró- fessora tæpar 282 þúsund kr. Framkvæmdir í Laugardal Yfír 30.000 hafa undirritað mótmæli YFIR 30 þúsund Reykvíkingar hafa skrifað undir mótmæli vegna fyrir- hugaðra byggingaáforma í austur- hluta Laugardals, samkvæmt upp- lýsingum frá samtökunum Vemd- um Laugardalinn. „Við erum að vonast eftir að fá einhver viðbrögð frá borgaryfir- völdum við þessu,“ sagði Skúli Vík- ingsson formaður samtakanna Verndum Laugardalinn. „Við get- um ekkert annað gert en að halda áfram að safna undirskriftum en þegar hafa um 30 þús. manns skrifað undir mótmælin. í raun hefur aldrei verið neinn kraftur í söfnuninni og engin smölun. Und- irskriftirnar hafa streymt inn.“ Sagði hann að listar lægju frammi m.a. í Glæsibæ, Kringlunni, Blómavali og í verslunum Penn- ans. HLUTABRÉFASJÓÐUR BÚNAÐARBANKANS HF 31% OKKAR SÉRFRÆÐINGAR *(1.10. 1996-31.07. 1999) 35% 30% 25% 20% 15% 31% Lands- Kaupþing Hlutabréfa- Fjár- Kaupþing bréf Norður- sjóður vangur lands Búnaðar- bankansM 27% VÍB Samanburöur á ávöxtun Hlutabré/asjóðs Búnaðarbankans og annarra sambærilegra hlutabréfasjóða. BÚNAÐARBANKINN VERÐBRÉF Islendingur, sem hvarf í London í vor Eftirlýstur hjá Interpol EFNAHAGSBROTADEILD rík- islögreglustjóra hefur tekið þá ákvörðun að lýsa eftir Ragnari Sig- urjónssyni, 57 ára kaupsýslumanni um víða veröld, sem hvarf í London í byrjun apríl á þessu ári. Voru boð þess efnis send til alþjóðalögregl- unnar Interpol frá ríkislögreglu- stjóra í gær. Fyrir liggur beiðni héraðsdóms um handtöku Ragnars og beiðni dómsmálaráðuneytisins um framsal hans. Samkvæmt upp- lýsingum frá embætti ríkislög- reglustjóra var umrædd ákvörðun tekin í því skyni að reyna að ljúka sakamáli Ragnars sem hann á ólokið hérlendis vegna fjársvika. Ragnar var ákærður af ríkislög- reglustjóra í desemberbyrjun 1998 en var farinn úr landi þegar aðal- meðferð í máli hans átti að hefjast fyrir Héraðsdómi Reykjaness í vor. Seldi 1000 sekki af þurrkuðum þorskhausum án þess að eiga þá Ragnar er ákærður fyrir að hafa gert samning við forsvarsmann nígerísks íyrirtækis um að selja honum 1000 sekki af þurrkuðum þorskhausum og í blekkingarskyni sýnt honum söluvöruna hérlendis, án þess að hafa eignarrétt yfír henni eða ráðstöfunarrétt, og þannig blekkt hann tfl að greiða inn á einkareikning sinn rúmlega hálfa aðra milljón króna. Ennfrem- ur er Ragnar grunaður um að hafa haft rúmar tvær milljónir af Níger- íumanninum til viðbótar. Voru brotin framin á síðari hluta ársins 1996. Eftir að Ragnar hvarf í London í aprflbyrjun hóf breska lögreglan leit að honum að beiðni utanríkis- ráðuneytisins eftir að ættingjar hans höfðu tilkynnt um hvarf hans á sínum tíma, en ekki var um glæparannsókn að ræða hjá bresku lögreglunni heldur eingöngu rann- sókn á mannshvarfi. Leit lögregl- unnar stóð yfir án árangurs í á fjórða mánuð eða allt þar til Ragn- ar hafði samband við ættingja sína í júlí sl. Engar fregnir hafa síðan borist af því hvar Ragnar hefur dvalist.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.