Morgunblaðið - 08.09.1999, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 08.09.1999, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ________________FRETTIR_____ Ráðherra hafnar fullyrð- ingum Lögreglufélagsins Morgunblaðið/Kristinn Dómsmálaráðherra sagði rangt að laun lögreglumanna hefðu Iækkað á árinu. Töluverður hópur lögreglumanna safnaðist saman þar sem blaða- mannafundurinn fór fram. SÓLVEIG Pétursdóttir dóms- og kirkjumálaráðherra vísaði í gær á bug fullyrðingu formanns Lögreglu- félags Reykjavíkur um að embætti lögreglustjóra í Reykjavík væri komið að fótum fram hvað löggæslu og fjárhag varðaði. Ráðuneytið efndi til blaðamanna- fundar í tilefni af auglýsingu Lög- reglufélags Reykjavíkur í Morgun- blaðinu á sunnudag og vegna um- mæla Óskars Bjartmarz, formanns Lögreglufélags Reykjavíkur, í fjöl- miðlum undanfarna daga. A fundin- um sagði ráðherra m.a. fjárframlög til embættis lögreglustjóra hafa hækkað um 7% á árinu, sem og með- altekjur lögreglumanna. Þá hefði stöðugildum innan lögreglunnar ekki fækkað nema um 1% á sl. ári. Laun hækkuðu á árinu Ráðherra kvað rangt að laun lög- reglumanna hefðu lækkað undan- farna mánuði um 40-50 þúsund krónur eða 25-30%. Raunin væri sú að þegar tekjur 207 lögreglumanna fyrstu átta mánuði þessa árs og þess síðasta væru skoðaðar kæmi í Ijós að meðaltekjur hefðu hækkað um 1,42%, þrátt fyrir að heildargreiðsl- ur yfírvinnu hefðu lækkað um 3,36%. Launin hefðu því að meðal- tali hækkað úr kr. 248.108 í kr. 251.629 á áðurgreindu tímabili. Þá sagði hún nefnd nú vera að störfum við að yfirfara kjaramál lögreglu- manna. Skipulagsbreytingar innan lög- reglunnar hafa m.a., að því er ráð- herra sagði, í för með sér minni yfir- vinnu fyrir lögreglumenn. Þess á þó að vera vandlega gætt að sú skerð- ing bitni ekki á mikilvægustu verk- efnum lögreglunnar, eins og t.d. baráttunni gegn fíkniefnum. Verk- efnum sé líka stöðugt forgangsraðað á nýjan leik hjá lögreglunni. Aðhaldsaðgerðir kalla á óöryggi Ráðherra sagði uppátæki stjórnar Lögreglufélagsins um síðustu helgi hafa komið sér á óvart. Það kallaði á neikvæða umfjöllun um löggæslu í Reykjavík. Dómsmálaráðuneytinu væri ennfremur ekki kunnugt um að könnun hefði verið gerð á vilja lög- reglumanna til að leita sér annarra starfa. Sú skoðun og fullyrðing for- manns Lögreglufélagsins yrði því ekki rökstudd með uppsögnum lög- reglumanna úr starfi. I máli lögreglustjórans í Reykja- vík, Böðvars Bragasonar, kom fram að óánægju lögreglumanna mætti í einhverju rekja til lítilsháttar um- frameyðslu stjórnenda á fyrrihluta árs, sem hefði haft í för með sér nú- verandi aðhaldsaðgerðir. Hann sagðist finna fyrir ákveðinni ólgu meðal lögreglumanna og sagði ástæðuna þá að lögreglumenn fyndu nú fyrir óöryggi vegna óvissu um fjölda yfirvinnutíma á komandi mán- uðum. Lögreglumenn enn óánægðir Stjóm Lögreglufélagsins fundaði með dóms- og kirkjumálaráðherra, lögreglustjóra og öðrum embættis- mönnum að loknum blaðamanna- fundi. Óskar Bjartmarz sagði málin hafa verið rædd þar af hreinskilni, en fátt hefði komið fram á fundinum sem slægi á óánægju lögreglu- manna. Þá kvaðst hann ekki vera í aðstöðu til að tjá sig um þær tölur sem ráðherra lagði fram á fundin- um. Töluverður hópur lögreglumanna safnaðist saman við Borgartún 6 þar sem blaðamannafundurinn fór fram og er það mat Óskars að með þeim aðgerðum hafi þeir viljað sýna stjórn Lögreglufélagsins stuðning. Stjórnarfundur félagsins verður haldinn í dag, en auk þess hafa lög- reglumenn óskað eftir félagsfundi og verður hann haldinn síðar í vik- unni. Óskar sagði frekari aðgerðir Lögreglufélagsins verða ræddar á þeim fundum. Borgaryfirvöld lýsa yfir áhyggjum Á fundi borgarráðs í gær var gerð bókun um málefni lögreglunnar í Reykjavík. Borgaryfirvöld lýsa þar yfir áhyggjum af núverandi stöðu og telja með öllu óviðunandi að lögregl- an geti ekki sinnt skyldum sínum við borgarbúa og haldið uppi eðlilegri starfsemi. í þessu sambandi er minnt á auk- in verkefni lögreglu og vakin at- hygli á að hætt sé við að þeim sé ekki sinnt sem skyldi vegna ann- arra brýnni mála. Þá ítreka borgar- yfirvöld bréf sem borgarstjóri af- henti dóms- og kirkjumálaráðherra í byi’jun sumars. Þar var lýst yfir áhyggjum af löggæslu í Reykjavík í framhaldi af fundi með lögreglu sl. vor. í bókun sinni skora borgaryfir- völd á dómsmálaráðherra, lögreglu- stjórann í Reykjavík og forystu Lögreglufélags Reykjavíkur að leita leiða til að bæta starfsskilyrði lög- reglunnar og tryggja viðunandi lög- gæslu í borginni. Stj órnarformaður Orca SA um forval vegna sölu á FBA Oljósar yfírlýs- ingar „ÉG TEL að þessar yfirlýsingar um hvort og þá hvað ráðherramir séu búnir að koma sér saman um að gera séu svo óljósar að yfiriýsingar um íyi-irætlanir verði að bíða eftir því að skýrari mynd komist á málið,“ sagði Eyjólfur Sveinsson, stjórnarformaður Orca SA, þegar hann var- spurðui’ hvort til greina kæmi að Orca tæki þátt í forvali vegna sölu á hlut ríkisins í Fjárfestingabanka atvinnulífsins. Forsætisráðherra sagði á mánu- dag að ákveðið væri að selja hlut rík- isins í FBA í einu lagi en dreifðum hópi og færi forval vegna sölunnar fram eftir eina til tvær vikur og sal- an nokkrum vikum síðar. Guðmundur Hauksson sparisjóðs- stjóri SPRON og stjórnarformaður Scandinavian Holding segir að ekki hafi verið rætt innan fyrirtækisins hvort til greina komi að taka þátt í forvali vegna sölu á hlut ríkisins í Fjárfestingabanka atvinnulífsins. Guðmundur var utanbæjar þegar Morgunblaðið ræddi við hann og kvaðst hann fyrst ætla að skoða mál- in þegar hann kæmi aftur til Reykja- víkur. Engar ráðstafanir hefðu verið gerðar í þessu sambandi innan SPRON. „Við höfum ekkert farið í stöðuna í þessu máli,“ segii- hann. „Við höfum hins vegar alltaf lýst því yfir að við teldum FBA mjög heppi- legan fjárfestingarkost og aldrei fall- ið frá þeim hugmyndum að samein- ing bankans og Kaupþings gæti ver- ið skynsamleg. Hins vegar liggur ekkert fyrir í eina átt eða aðra, hvað við gerum.“ ------------- Finnur Ingólfsson um sölu FBA Tjáir sig ekki meðan málið er í vinnslu FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kvaðst í gær ekki vilja tjá sig um ummæli Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. á mánudag um að ákveðið hefði verið að hlutur ríkisins í Fjárfestingar- banka atvinnulífsins yrði seldur í einu lagi en dreifðum hópi. „Svar mitt við þessu öllu saman er einfalt," sagði Finnur. „Málið er í vinnslu hjá einkavæðingarnefndinni og í ríkisstjórn og á meðan svo er segi ég ekkert um það.“ Forval vegna sölu 1 FBA með svipuðum hætti og við einkavæðingu Skýrr hf. Auglýst eftir tilboðum og þrír kannaðir nánar FORSÆTISRÁÐHERRA hefur lýst því yfir að forval fyrir sölu á hlut ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins verði með svipuðum hætti og við einkavæðingu Skýrr hf. í því sambandi er vert að rifja upp undirbúning sölu á hlut ríkis og Reykjavíkurborgar í Skýrr hf. á sínum tíma. I upphafi undirbúningsins var Kaupþingi falið að undirbúa tilboðs- gerð og óska eftir tilboðum í ríflega helming, eða 56%, af eignarhlut borgar og ríkis í fyrirtækinu. Fyrsti hluti einkavæðingar Skýrr hf. fór fram með þeim hætti að Reykjavík- urborg og ríkið seldu starfsmönnum fyrirtækisins um 5% hlut í því í jan- úar 1997 og keyptu um 130 af þá 150 starfsmönnum. Hlutabréfin voru alls tíu milljónir króna að nafn- virði og voru seld á genginu 1,3, eða fyrir um 13 milljónir króna. Tvískipt ferli I kjölfarið vai' auglýst eftir tilboð- um í 51% hlutafjárins, sem selt skyldi einum aðila. Um tvískipt ferli var að ræða. Á fyrri hluta útboðs- tímans, 20. janúar til 14. mars 1997, var kallað eftir áhugasömum aðilum sem kynnu að vilja kaupa meirihlut- ann í Skýrr hf. Þeir voru beðnir að skila inn bindandi verðtilboðum, viðskiptaáætlun með upplýsingum um framtíðarsýn og fjárhagslegum upplýsingum um sjálfa sig. Á seinna tímabilinu, 24. mars til 16. maí, voru þrír tilboðsgjafar teknir til nánari athugunar, jafnframt því sem þeim gafst kostur á að kynna sér nánar rekstur Skýrr og fengu tækifæri til að hækka tilboð sitt. Þrjú tilboð höfðu borist þegar til- boðsfrestur í fyrri hluta kaupanna rann út, öll frá innlendum fyrir- tækjum, og voru þau á bilinu 60 til 81.6 milljónir króna. Hæsta tilboð áttu Opin kerfi hf., næsthæsta, 75,1 milljón, áttu þrjú fyrirtæki í sam- einingu, Kögun hf., Nýherji hf. og Olíufélagið, en lægsta tilboðið áttu Tölvumyndir hf., Hlutabréfasjóður- inn hf. og Vaxtarsjóðurinn hf. Mat Kaupþings hf. var að tilboðin sem lögð voru fram endurspegluðu ekki verðmæti Skýrr, en aðilarnir sem stóðu að þessum þremur tilboðum komust allir í seinni hluta útboðsins, enda gert ráð fyrir í söluskilmálum að þrír aðilar kæmust áfram. í kjöl- farið var ákveðið að ganga að tilboði Opinna kerfa hf., sem hljóðaði upp á 161.6 milljónir króna og miðaðist við staðgreiðslu, en aðeins var gefinn kostur á slíkum tilboðum í hluta- fjársölunni. Nafnverð hlutarins var 102 milljónir króna og bréfin því seld á genginu 1,58. Einungis 11% munur var á hæsta tilboði og því lægsta, sem hljóðaði upp á 145 milljónir króna. Eftirspurn þrettán sinnum meiri en framboð I framhaldi af þessum viðskiptum var ráðist í sölu á þeim hluta ríkis og borgar í fyrirtækinu sem eftir stóð, alls 44%. Boðið var til sölu hlutafé fyrir 78 milljónir að nafn- virði í dreifðri áskriftarsölu á geng- inu 3,20 en 10 milljónir að nafnvirði í tilboðssölu. Alls skráðu um 7.800 manns sig fyrir hlut í áskriftarhluta hlutafjárútboðs Skýrr hf. áður en tilboðsfrestur rann út um miðjan nóvember 1998. Eftirspurnin var þrettán sinnum meiri en framboðið og varð að skerða flest tilboðin vegna þessarar miklu þátttöku. Gengi hlutabréfanna var 3,20 eins og áður sagði og fékk hver tilboðs- gjafi að kaupa hlut í fyrirtækinu fyrir um 10 þúsund krónur að nafn- virði, eða 32 þúsund krónur að markaðsvirði. Fyrir söluna varð talsvert vart við kennitölusöfnun. Hæsta tilboð í tilboðshlutanum miðaðist við 4,20 og kom það frá Handsali hf., sem bauð í og fékk fjórar milljónir króna að nafnvirði, en næsthæsta boðið átti Fjárfest- ingarbanki atvinnulífsins, sem fékk hlutabréf fyrir sex milljónir króna að nafnvirði á genginu 4,12. Miðað við það gengi um það bil þrefaldað- ist markaðsverðmæti Skýrr hf. á einu og hálfu ári, eða frá því í maí 1997, þegar Opin kerfi hf. keyptu áðurnefndan 51% hlut á genginu 1,58.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.