Morgunblaðið - 08.09.1999, Side 12

Morgunblaðið - 08.09.1999, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landssíminn kynnir nýjan þjónustuvef Félag- íslenskra bifreiðaeigenda Gagnrýn- ir orku- spár í fjárlögum FÉLAG íslenskra bifreiðaeig- enda gagnrýnir hvernig staðið hafi verið að gerð áætlana um tekjur ríkissjóðs af bensínsölu á þessu ári. Runólfur Olafs- son, framkvæmdastjóri FIB, segir að áætlanirnar, sem gengið hafi verið út frá í fjár- lögum, hafi verið unnar út frá spám um mun hærra elds- neytisverð en hægt hafi verið að vænta. Miðað við forsendur fjár- laga hafi verið gengið út frá því að meðalheimsmarkaðs- verð á tonni af bensíni yfir ár- ið yrði um 190 dollarar. „Heimsmarkaðsverðið er und- ir þessu jafnvel þegar mesta toppinum er náð í júlí 1998. Allar orkuspár á síðastliðnu hausti gengu einnig út frá því að verð myndi hríðfalla sem það og gerði seinnipart haustsins. Einnig var því spáð að fram eftir þessu ári yrði orkuverð almennt lágt,“ segir Runólfur. Hann segir að sú spuming hljóti að vakna út frá hvaða forsendum tekjur ríkissjóðs af bensínsölu séu reiknaðar inn í fjárlög. Ekkert hafi gefið væntingar um þær tekjur sem gert hafi verið ráð fyrir í fjár- lögum. Hægt að fylgjast með sím- notkun frá degi til dags Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórarinn V. Þórarinsson forstjóri Landssimans kynnir nýjan Þjónustuvef Símans. Með honum á myndinni eru Þór Jes Þórisson ('ramkvæmdasfjóri tal- og gagnaflutningsþjónustu (t.v.) og Ólafur Þ. Stephensen upplýs- ingafulltrúi fyrirtækisins. LANDSSÍMINN kynnti í gær Þjón- ustuvef Símans á Netinu sem verður opnaður 16. september nk. Þar með fá viðskiptamenn fyrirtækisins að- gang að tölvutækum upplýsingum og geta kannað viðskipti sín hjá fyrir- tækinu. Aður en langt um líður verð- ur hægt að tengjast og aftengjast ýmiss konar þjónustu og greiða sím- reikninga í gegnum vefinn. Möguleikar á Þjónustuvefnum eru margvíslegir og miða, að sögn Þórar- ins V. Þórarinssonar forstjóra Landssímans, að því að spara ein- staklingum spor og tíma. Til dæmis verður hægt að fylgjast með notkun frá degi til dags en allar símatal- færslur eru færðar úr símstöðvum inn í kerfið síðdegis. Einnig verður hægt að fylgjast með stöðu þjónustu- beiðna og hvenær þær verða af- greiddar. Þá verður hægt að skoða útgefna reikninga, fylgjast með skuldastöðu og skoða greiðsluyfirlit undanfarinna mánaða. Þórarinn segir opnun Þjónustu- vefjarins nú þátt í því að auka hlut rafrænna viðskipta og þjónustu í starfsemi fyrirtækisins. Með nýrri þjónustu gefist viðskiptavinum kost- ur á beinum og öruggum aðgangi að upplýsingum og geti aflað sér þjón- ustu beint án þess að þurfa samband símleiðis eða koma á staðinn. „Þjón- ustuvefnum er ætlað að verða afar mikilvæg brú yfir Netið og er liður í lifandi tengslum okkar við okkar við- skiptavini,“ sagði Þórarinn. Mikil áhersla er lögð ó öryggi upp- lýsinga og er notaður svokallaður 40 bita brenglunarlykill frá VeriSign, sambærilegur þeim sem notaður er í heimabönkum hérlendis. Aðgangs- og lykilorð munu síðan tryggja að upplýsingar verði ekki aðgengilegar öðrum en þeim sem þær eru ætlaðar. Þjónustuvefur Símans er sam- starfsverkefni Landssímans, IBM og Nýherja og Einars J. Skúlasonar. Hægt er að sækja um aðgang að Þjónustuvefnum nú þegar á vef Sím- ans, www.simi.is, og verður þeim sem sækja um sent notendanafn og lykilorð þegar vefurinn verður opn- aður 16. september. Aðgangur að vefnum er gjaldfrjáls. Um 16% sjúklinga í áfengismeðferð héldu bindindi í 28 mánuði Telur nauðsyn- legt að þrða nýja meðferð UM 16% sjúklinga sem innrituðust í áfengismeðferð frá desember 1991 til september 1992 héldu bindindi í 28 mánuði, samkvæmt niðurstöðum rannóknar Kristins Tómassonar, læknis á geðdeild Landspítalans, á 351 sjúklingi. Sjúklingarnir höfðu laggt inn á meðferðardeildir Land- spítalans og sjúkrahús SAA að Vogi og var árangur nokkuð breytilegur milli stofnana, sem skýrist að mati Kristins af því að þar dvöldu einstak- lingar með mismunandi drykkju- og félagssögu. Þórarinn Tyrfíngsson, yfirlæknir og formaður SÁÁ, gagn- rýnir framsetningu niðurstaðnanna og fleira varðandi rannsóknina. Hann segir að niðurstaðan sé sú að 26% sjúklinga á Vogi haldi bindindi í tvö ár en 11% sjúklinga Landspítal- ans. Þannig hefði átt að kynna niður- stöðurnar en Þórarinn kallar könnun þessa könnun á afdrifum sjúklinga en ekki á árangri af meðferð. í grein um niðurstöður rannsókn- arinnar í nýútkomnu Læknablaði, kveðst Kristinn Tómasson telja nú- verandi árangur áfengismeðferðar ekki nægilega góðan. Nauðsynlegt sé að þróa og reyna nýja meðferð vímusjúkra, jafnframt því að vinna að auknum forvörnum. Fráskildir féllu oftast Ki'istinn ræddi við sjúklingana 4-10 dögum eftir innlögn, en jafn- framt ítarlegu geðgreiningarviðtali voru sjúklingar spurðir um fyrri meðferðarsögu, drykkjusögu, hjú- skaparstöðu við upphaf veikinda og hversu margar vikur á síðastliðnum sex mánuðum þeir hefðu unnið. Sjúk- lingar voru ennfremur spurðir hvort þeir hefðu í tengslum við drykkju misst áhuga á fjölskyldunni, slitið sambúð, ekið ölvaðir, lent í slagsmál- um, orðið heimilislausir, verið hand- teknir fyrir ölvun á almannafæri eða misst vinnu. Sextán mánuðum eftir að sjúklingur leitaði meðferðar fékk hann sent bréf með spurningum um hvort hann hefði hafið drykkju eða neyslu annarra vímuefna að nýju, og aftur 28 mánuðum eftir upphaf með- ferðar. Samkvæmt niðurstöðum rann- sóknarinnar náðu bestum árangri ungir, giftir, fullvinnandi einstak- lingar sem ekki höfðu aðrar geð- greiningar en áfengissýki, en 22-28% þeirra héldu bindindi. Lökustum árangri náðu fráskildir eða síkomusjúklingar, en aðeins 7% þeirra náðu að halda bindindi í 28 mánuði. Svipað hlutfall sjúklinga frá öllum stöðunum lagðist inn aftur, eða 42% til 54%, heldur fleiri konur en karlar. Hjá giftum einstaklingum var árangur áberandi bestur á Vogi, eða 42,1% samanborið við 12,0% á Vífils- stöðum og 23,1% á deild 33A á Land- spítala. Hins vegar var árangur þeirra sem voru fráskildir alls staðar svipaður, aðeins 5-7% héldu bindindi í tvö ár. Þeir sem voru að leggjast •inn í sín fyrstu skipti vegna áfengis- sýki, þ.e. áttu að baki þrjár komur eða færri, náðu bestum árangri á Vogi og héldu um 33% bindindi, en 12-18% á hinum meðferðarstöðun- um. Meðal þeirra sem áttu fleiri komur að baki var árangurinn um og innan við 10% á öllum stofnunum. „Sé hópurinn athugaður enn frek- ar kemur í ljós, að meðal þeirra sem voru í fyrstu meðferð sinni og ekki höfðu lent í skilnaði, er árangurinn um 39% á Vogi, 20% á Vífilsstöðum, en 13% á deild 33A. Meðal síkomu- sjúklinga og fráskilinna var árangur alls staðar slakur eða innan við 14%, svipaður á öllum meðferðarstöðun- um. Árangur fráskilinna var slakur hvort sem um var að ræða fyrstu komur eða margendurteknar kom- ur,“ segir í greininni. Kristinn bendir á að árangur sjúk- linganna eftir áfengismeðferð sé mjög breytilegur eftir sögu hvers og eins, en jafnvel meðal þeirra sem hafa bestar horfur sé núverandi ár- angur ekki nægjanlega góður. Breyta þarf meðferð „Varast ber að líta á niðurstöður rannsóknarinnar sem áfellisdóm yfir meðferðinni. Afeitrunin ein er lífs- nauðsynleg. Ekki ó heldur að lýsa yfir sigri hvernig sem árangur með- ferðar þessara sjúkdóma hefur verið. Hins vegar þarf að efla þróun og leita að betri og öflugri meðferðar- formum fyrir fíknisjúklinga," segir Kristinn. 26% sjúklinga SÁÁ héldu bind- indi en 11% á Landspítala Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi og formaður SÁÁ, segir að niðurstöður könnunar Kristins hafi verið kynntar á klaufalegan hátt, sem hafi verið til þess fallinn að veikja tiltrú á áfengismeðferð. „Það er sagt og því haldið á lofti að árang- ur af meðferð samkvæmt mælistik- um Kristins sé 16% en hið rétta er að það er 26% hjá SÁÁ en 11% hjá Landspítalanum. Þannig hefði átt að kynna það, sérstaklega gagnvart okkar starfsfólki, okkar stofnun og okkar sjúklingum. Það er mikill munur á 26% og 16%.“ Ekki nægilega góð mælistika „I annan stað er mælistikan sem Kristinn notar til að mæla árangur meðferðar ekki nægilega góð,“ segir Þórarinn. „Margir, sem í úrtakinu voru, höfðu ekki lokið meðferð og luku ekki áfengismeðferð og fóru í mörgum tilvikum ekki í þá áfengis- meðferð, sem þeim var ráðlagt. Það þýðir auðvitað að könnunin er í sjálfu sér góð afdrifskönnun á þeim sjúk- lingum, sem koma hér inn á Vog, og niðurstaðan er sú að 26% allra þeirra sem ganga hér um dymar eru edrú eftir tvö ár, hvort sem þeir hafa verið oft eða sjaldan í meðferð og burtséð frá því hvort þeir fara í þá meðferð sem þeim er ráðlagt og hvort þeir ljúka meðferðinni." „Ef aðeins eru teknir þeir sem koma hér í meðferð og fara í þá með- ferð og ljúka þeirri meðferð sem er tilskilið þá er árangurinn miklu betri; við höfum sýnt fram á það í okkar könnunum. Síðast þegar við athuguðum þetta var árangur þeirra sem luku fullri meðferð, t.d. að Stað- arfelli og Vík, voru að leita sér að meðferð í fyrsta sinn og voru á aldr- inum 25-55 ára, um 60%, samkvæmt svipuðum mælikvörðum og Kristinn notar. Hann setur líka þessar ströngu kröfur að krefjast þess að þeir haldi bindindi í tvö ár. Það er aftur vafa- samur mælikvarði á það hvort með- ferð hefur dugað eða ekki. Það má segja að við stöndum frammi fyrir ákveðnu vandamáli varðandi mæli- kvarða en þá reyna menn yfirleitt að mæla hvort sjúklingar séu heilsu- betri, hvort afköst þeirra eru betri hvað vinnu varðar og hvernig líðan þeirra og annað er. Það skiptir miklu máli því þetta er mjög flókið mat. Oft eru menn að mæla árangur af krónískum sjúkdómi, líkt og um skyndisjúkdóm væri að ræða. Menn þurfa aðra mælikvarða um króníska sjúkdóma en skyndisjúkdóma. Þeir mælikvarðar hafa ekki verið skil- greindir nægilega vel gagnvart áfengissýki." Þórarinn sagði að nánari tölulegur samanburður hefði verið gerður á þessu máli á heimasíðu SÁA, saa.is. „Það sem skiptir mestu er að ein svona rannsókn segir í sjálfu sér ekki neitt, það eru margar rannsókn- ir sem leiða hið sanna í ljós.“ Þórarinn sagði heldur ekki hægt að fullyrða um ástæður þess mikla munar sem könnunin leiði í Ijós á meðferð hjá Landspítalanum og SÁÁ. „Hið sanna er að Kristinn skil- greindi ekki hvað meðferð er, hann athugar árangur þeirra sem voru fimm daga á Vogi og Landspítalan- um, en reynir ekki að halda því til haga í hvaða meðferð þeir fóru. Þess vegna getur þetta ekki verið árang- urskönnun. Þetta er afdrifskönnun. Það er mikill munur á því.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.