Morgunblaðið - 08.09.1999, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Daníel Hansen
Frá Norðurlandamóti barnaskólasveita í skák.
Norðurlandamót barnaskólasveita í skák
Sigurliðið frá íslandi
Eyja- og Miklaholtshreppi - Um
siðustu helgi fór fram Norður-
landamót barnaskólasveita í
skák í Hótel Eldborg á Snæfells-
nesi. Þetta er í tíiinda sinn sem
keppt er í þessum flokki, þ.e. 12
ára og yngri. Eru þessi mót
haldin á Norðurlöndunum til
skiptis.
A síðastliðnum vetri var
keppni milli grunnskólanna í
hverju landi og sigurvegarar
hvers lands öðluðust rétt til að
keppa á þessu móti. Lið Mela-
skólans í Reykjavík sigraði hér á
landi og í öðru sæti var lið Kárs-
nesskóla í Kópavogi. I ár mætti
ekki lið frá Færeyjum svo Islend-
ingar fengu að senda tvö lið þar
sem keppnin er haldin hér á
landi. Voru því tvö efstu liðin í
keppninni.
Sigurlið hvers lands hefur æft
mikið í sumar og komu íslensku
liðin því sterk til leiks. I hópnum
er að finna okkar efnilegustu
skákmenn og vafalaust eru í
hópnum verðandi stórmeistarar.
íslenskur sigur
Skáksveit Melaskólans varð
sigurvegari í ár og er þetta í
þriðja sinn sem íslendingar hafa
orðið sigurvegarar. I öðru sæti
var sveit Svía og í þriðja sæti var
sveit Kársnesskóla. Svíar liafa
einnig sigrað þrisvar sinnum. I
sigursveitinni eru Dagur Arn-
grímsson, Hilmar Þorsteinsson,
Viðar Berndsen, Arnljótur Sig-
urðsson, Víkingur Fjalar Eiríks-
son og Aron Óskarsson.
Sveitarfélög sigurliðanna, þ.e.
Reykjavíkurborg og Kópavogur,
styrkja keppnina og Skáksam-
band Islands gefur verðlaunin.
Morgunblaðið/Birna Mjöll
Líðan ökumanns
ágæt eftir bflveltu
ÖKUMAÐUR vörubifreiðarinnar,
sem valt á veginum um Hálfdán milli
Tálknafjarðar og Bíldudals á laugar-
daginn, er á batavegi á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og er líðan hans ágæt.
Búist er þó við að hann þurfi að
dvelja á sjúkrahúsi að minnsta kosti
í eina viku til viðbótar, að sögn lækn-
is hans. Hann lá fastur í flakinu í á
fjórða tíma áður en tókst að losa
hann og var hann fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús.
Búið er að fjarlægja flak vörubif-
reiðarinnar og var það sent til
Reykjavíkur í skoðun fljótlega eftir
óhappið.
Kveðjumessa séra Ingimars
Þórshöfn - Séra
Ingimar Ingimars-
son kvaddi sóknar-
böm sín í kveðju-
messu síðasta
sunnudag ágúst-
mánaðar en hann
hefur þjónað í
prestakafiinu í tæp
þrjátíu ár, þar af
sem prófastur síð-
ustu þrjú árin.
Þórshafnarkirkj a
hin nýja var fullset-
in við þessa athöfn því söfnuðurinn
fjölmennti til að kveðja prest sinn,
sem nú lætur af störfum vegna ald-
urs eftir langa þjónustu.
Eftirmaður séra Ingimars sem
prófastur í Þingeyjarprófastsdæmi
verður séra Pétur Þórarinsson í
Laufási, en ekki hefur verið gengið
frá ráðningu prests í stað séra
Ingimars. Að sögn sóknarnefndar
verður það gert innan tíðar en ein
umsókn um stöðuna liggur fyrir.
Baugur hf. fær lán hjá Norræna fjárfestingarbankanum
Fjármagnar kaup á SMS
BAUGUR hf. og Norræni fjárfest-
ingarbankinn undirrituðu í gær
samning um að bankinn veiti Baugi
lán til að standa straum af kaupum
fyrirtækisins á 50% hlutafjár í
SMS-verslunarkeðjunni í Færeyj-
um. Bankinn lánar fyrir helmingi
kaupverðsins og er lánsupphæðin
10 milljónir danskra ki'óna, jafnvii’ði
um 104 milljóna íslenskra króna, og
veitt til 7 ára.
I tilefni af undirritun samnings-
ins sagði Jón Sigurðsson, banka-
stjóri Norræna fjárfestingarbank-
ans, að forráðamenn bankans teldu
þátttöku hans í þessum viðskiptum
vera ánægjuefni. „Þetta er fyrsta
verkefnið sem bankinn lánar til og
felur í sér að Island og Færeyjar
tengjast í viðskiptalegum skilningi.
Við teljum þetta vera mjög jákvæða
þróun og erum trúaðir á það að
vesturhluti Norðurlanda geti notið
góðs af því að leysa verkefni af
þessu tagi sameiginlega," sagði Jón
Sigurðsson.
Hann sagði aðspurður að verk-
efnið félli vel að markmiðum bank-
ans þar sem um sé að ræða sam-
starfsverkefni er varði hagsmuni
tveggja landa og fyrirtækja í þeim
báðum.
„Ég vona að þetta geti orðið upp-
hafið að samstarfi bankans við Baug
og SMS og að framhald verði á sam-
vinnu Islendinga og Færeyinga í at-
vinnu- og viðskiptamálefnum. Ég er
viss um að það er margt sem aðilar í
þessum tveimur löndum geta betur
gert saman en hvorir í sínu lagi,“
sagði Jón Sigurðsson meðal annars.
Jón Asgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, segir að í framhaldi af
því að Baugur eignast SMS verði
unnið að því að styrkja fyrirtækið
og færa út kvíamar í Færeyjum.
„SMS rekur nú fimm verslanir í
Færeyjum og við teljum að þar séu
tækifæri á sviði sérvörusölu í anda
Hagkaups," sagði Jón Asgeir við
undirritunina í gær.
Frá undirritun samningsins í gær: Jón Sigurðsson, f.h. Norræna fjárfestingarbankans, Tryggvi Pálsson og
Jón Ásgeir Jóhannesson, f.h. Baugs.
Viacom og CBS tilkynna um samruna
Eitt stærsta fjöl-
miðlunarfyrir-
tæki heims
BBC Online
Bandaríska fjölmiðlunarfyrirtæk-
ið Viacom og sjónvarpsstöðin CBS
hafa tilkynnt um fyrirhugaðan
samruna og á honum að vera lokið
í upphafi næsta árs. Við samrun-
ann verður til eitt stærsta fjöl-
miðlunarfyrirtæki heims sem met-
ið er á 80 milljarða bandaríkjadoll-
ara, jafnvirði um 5800 milljarða ís-
lenskra króna. Starfsemi nýs sam-
einaðs fyrirtækis mun verða á
sviði sjónvarpsreksturs, kvik-
myndaframleiðslu, bókaútgáfu,
myndbandaleigu og Netsins. Til
samanburðar má nefna að fyrir-
tækið mun verða svipað að vöxtum
og Walt Disney.
Samkvæmt tilkynningu forráða-
manna fyrirtækjanna tveggja er
um að ræða samruna á jafningja-
grundvelli en ekki yfirtöku, enda
þótt samruninn eigi sér stað undir
nafni Viacom. Viacom á þegar
nokkrar sjónvarpsstöðvar, þ.á.m.
MTV og VHl sjónvarpsstöðvarnar,
auk þess sem fyrirtækið á Para-
mount-kvikmyndaverin. Eftir sam-
eininguna mun fyrirtækið einnig
eiga meirihluta í stærstu mynd-
HILTON-hótelkeðjan í Bandaríkj-
unum hefur tilkynnt áform sín um
að kaupa Promus Hotel Corp.-hót-
elkeðjuna fyrir um 295 milljarða
króna. Með þessu verður til risa-
stórt hótelfyrirtæki með um 1.700
bandaleigukeðju heimsins, Block-
buster Video.
Reglum um eignarhald breytt
Tilkynningin um samruna Vi-
acom og CBS er gefin út mánuði
eftir að nefnd á vegum bandaríska
alríkisins, Federal Communications
Commission (FCC), rýmkaði reglur
um eignarhald á sjónvarpsstöðvum.
Fyrir nokkrum árum voru einnig
afnumdar reglur sem bönnuðu
sjónvarpsstöðvum að eiga fyrirtæki
sem framleiddu sjónvarpsefni.
Talið er að frekari samrunar fyrir-
tækja á sviði fjölmiðlunar muni
verða á næstunni vegna þessara
breytinga.
Summer Redstone, sem tók við
stöðu forstjóra Viacom árið 1987,
mun verða stjórnarformaður og að-
alframkvæmdastjóri hins nýja sam-
einaða fyrirtækis en hann er 75 ára
að aldri. Forstjóri og rekstrarstjóri
fyrirtækisins kemur aftur á móti úr
röðum CBS og heitir Mel Kara-
mazin og er 56 ára. því er spáð að
Mel Karamazin eigi síðar eftir að
taka við af Redstone.
hótel og aðrar rekstrareiningar í
nánast öllum hlutum hótelgeirans.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins verða í
Beverly Hills í Kalifomíu, en tals-
vert skrifstofuhald verður einnig í
Memphis í Tennesee.
Toyota sækir fram
á fjármálamörkuðum
Skráð í
kauphöll-
unum í
London
og New
York
TOYOTA-bifreiðaframleið-
andinn í Japan hyggst skrá
hlutabréf sín í kauphöllunum í
New York og London, sem
hluta af þeirri viðleitni fyrir-
tækisins að verða hnattrænt
fyrirtæki og til að styrkja
stöðu þess meðal leiðandi bif-
reiðaframleiðenda í heimin-
um, að því er fram kemur á
fréttavef CNN-fn.
Veita fjárfestum aðgang
að hlutabréfum
Fyrirtækið hyggst skrá
bréf sín þann 29. september
næstkomandi, og verður það
annað japanskra bílaframleið-
enda til að skrá hlutabréf sín í
þessum kauphöllum á eftir
Honda-fyrirtækinu. Talsmað-
ur Toyota sagði tilgang
skráningarinnar vera þann að
veita fjárfestum aðgang að
hlutabréfum fyrirtækisins, en
ekki þann að verða fyrirtæk-
inu úti um fjármagn. Fyrir-
tækið hefur handbært fé upp
á tæpa 1.770 milljarða króna
og þarf því í sjálfu sér ekki á
fjármagni að halda frá sölu
hlutabréfa í kauphöllunum í
New York og London, en sér-
fræðingar segja að skráning-
in sé til að styrkja ímynd
Toyota sem alvöru þátttak-
anda í sífellt harðnandi sam-
keppni á hnattrænum bif-
reiðamörkuðum.
Hilton-hótelkeðj an
kaupir Promus
Rcuters