Morgunblaðið - 08.09.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
ÞESSIR apar tveir eru ekki sakaðir um að hafa stolið indverskum rík-
isleyndarmálum, heldur voru þeir handteknir og settir í járn fyrir að
dreifa eiturlyfjum í Dhaka, höfuðborg Bangladesh. Voru þeir að sjálf-
sögðu á snærum eiturlyfjasala, sem höfðu þjálfað þá í útburðinum.
Apar ráðast til
atlögu í Nýju-Delhí
The Daily Telegraph.
MIKILL bardagi er nú háður í
híbýlum indversku ríkisstjórn-
arinnar en svo virðist sem her-
sveitir apa hafi blásið til atlögu
gegn stjórnvöldum landsins.
Auk þess sem aparnir eru sak-
aðir um að stela ríkisleyndar-
málum eru þeir sagðir hafa
eyðilagt símalinur valdamanna
og skemmt tölvukapla sem
flytja viðkvæmar upplýsingar á
milli valdaherra í Nýju-Delhí.
Upp komst um öryggislek-
ann þegar starfsfólk varnar-
málaráðuneytisins kom að
hrúgu af skjölum er geyma
ríkisleyndarmál, sem fleygi
hafði verið um öll gólf. Einnig
komu ítrekað upp tilvik þar
sem símasamband milli hátt-
settra stjórnarerindreka rofn-
aði í miðju samtali og yfirmenn
í hernum, sem unnu með við-
kvæm skjöl, komu að gögnum
sínum gjörónýtum.
Áhyggjufullir yfirmenn ind-
verskra varnarmála grunaði í
fyrstu að skemmdarstarfsemi
þessi væri runnin undan rifjum
Pakistana - en Indland og
Pakistan hafa lengi eldað grátt
silfur saman - og hófu rann-
sókn á málinu. Þá fyrst varð
hins vegar handagangur í öskj-
unni. Einn starfsmaður varnar-
málaráðuneytisins var bitinn í
handlegginn er hann kom
kvenapa í opna skjöldu, og í ut-
anríkisráðuneytinu - þar sem
engum var kunnugt um að einn
apanna hafði dottið ofan í
drykkjarvatnstank - fékk heil
herdeild af riturum gulusótt.
Opinberir starfsmenn hafa
nú gert hernaðaráætlun um
hvernig ráða megi niðurlögum
hinna illviðráðanlegu apa.
Pakistönsk stjórnvöld aftóku
hins vegar að þau stæðu á bak-
við innrás apanna. „Hér er
sannkallað apaspil á ferðinni,"
sagði talsmaður stjórnvalda í
Islamabad. „Svo virðist sem
okkur sé alltaf kennt um allt.“
Friðarumleit-
anir á N-Irlandi
af stað á ný
Belfast. AFP, Reuters.
GEORGE Mitchell, fyrrverandi
öldungadeildarþingmaður frá
Bandaríkjunum, hitti í gær leið-
toga stjórnmála-
flokka sem
tengsl hafa við
öfgahópana á
Norður-írlandi
en Mitchell, sem
var sáttasemjari
í friðarviðræðum
í fyrra, sem lauk
með samþykkt
Belfast-friðar-
samkomulagsins,
sneri aftur til
héraðsins á mánudag í því skyni að
stýra lögformlegri endurskoðun á
samkomulaginu. Mitchell sagðist
við það tækifæri ekki hafa yfir að
ráða neinum töfrasprota en að
hann teldi þó að mögulegt væri að
leysa þau vandamál sem standa
friðarumleitunum á N-írlandi fyrir
þrifum.
Boðað var til endurskoðunar á
friðarsamkomulaginu eftir að til-
raunir til að mynda heimastjórn
með aðild allra flokka runnu út í
sandinn í júlí vegna deilna um af-
vopnun öfgahópa. Er markmið
Mitchells að kalla stjórnmálaflokk-
ana á N-írlandi á sinn fund og
finna leið til að mjaka málum
áfram í friðarátt.
„Hvorki ég né nokkur annar hef-
ur í fórum sínum töfrasprota sem
mun fá öll þessi vandamál til að
hverfa eins og dögg fyrir sólu. En
ég trúi því að hægt sé að vinna bug
á vandamálunum. Hvort það síðan
er gert veltur á stjórnmálaleiðtog-
unum,“ sagði Mitchell á mánudag.
Mitchell ítrekaði síðan í gær að
hann hygðist ekki eyða neinum
tíma til einskis og lagði áherslu á
að hann myndi einblína á hvernig
hægt sé að koma heimastjórn í
héraðinu á laggirnar og sjá til þess
að öfgahópar afvopnist fyrir maflok
á næsta ári, eins og friðarsam-
komulagið kveður á um.
George Mitchell
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 21
Broyhill
með
Við kynnum #Broyhilí. Amerísk húsgögn þar sem
stíll, gæði, falleg hönnun, úrval og þægindi fara saman.
Komdu í heimsókn og skoðaðu glæsilega verslun okkar.
Oak Hill sjónvarpsskápur.
-
..
NaíSðn Lenoir er ný lina frá S Broyhili sem cinkennist af fcrskri hönnun med frönsku 18. aldar ivafi
Stóll
módel 9700
Sófi módel 370S einnig fáanlegur 2ja saeta
Sófaborð módel 3821-2
RaBgraiSsiur I alh 10 36 min
HÚSGAGNAHÖLUN
-Jyrirfalleg heimili
Bildshöfði 20 - 112 Reykjavik Simi 510 8000
i
i
1
i
i
i