Morgunblaðið - 08.09.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.09.1999, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LISTIR Repúblikanar vilja þingrannsókn vegna nýrra upplýsinga um Waco Farið fram á afsögn dómsmálaráðherrans Washington. AP. The Daily Telegraph. BANDARÍKJAÞING kemur saman nú í vikunni og eru repúblikanar staðráðnir í að þingið eigi að hefja rannsókn á umdeildum upplýsingum, er fram hafa komið nýlega um aðgerð- ir bandarísku al- ríkislögreglunnar, FBI, í Waco-harm- leiknum svonefnda í Texas fyrir sex árum. Segja sumir að Janet Reno dómsmálaráðherra hljóti að segja af sér vegna þessara upplýsinga, því vegna þeirra „standi ekki steinn yfir steini" í ráðuneytinu. Demókratar eru þó annarrar skoðunar, og sagði öldungadeildar- þingmaðurinn Charles Schumer að hann hefði farið þess á leit við fram- mámenn repúblikana að ekki verði efnt til þingrannsóknar fyrr en óháð- ur rannsakandi hafi lokið athugun á þessum nýju upplýsingum. Sagðist Schumer telja líklegt að þingrann- sókn myndi leysast upp í flokka- drætti. „Eg óttast að þingrannsókn kyndi fremur undir málinu en varpi ljósi á það,“ sagði hann. En Phil Gramm, öldungadeildar- þingmaður repúblikana, sagði aftur á móti að þingið yrði að láta til sín taka. „Það er ekki hægt að dóms- málaráðuneytið og FBI blekki þjóð- ina í sex ár og þingið geri ekkert í málinu," sagði hann. íkveikjusprengjur FBI greindi nýlega frá því að lög- reglumenn hefðu varpað nokkrum íkveikju- og táragassprengjum að búgarði trúarleiðtogans Davids Kor- eshs og fylgjenda hans þegar ráðist var þar til inngöngu eftir langt um- sátur í mars 1993. Nokkru seinna kom upp eldur í búgarðinum. Lög- reglan og dómsmálaráðuneytið hafa jafnan haldið því fram að ekkert bendi til þess að aðgerðir lögregl- unnar hafi orðið kveikjan að eldin- um. Um 80 manns létust af völdum skotsára eða eldsins. Ráðuneytið fullyrðir að ekkert hafi komið fram sem breyti þeirri niður- stöðu að Koresh og fylgjendur hans hafi sjálfir orðið valdir að eldinum. Ný rannsókn, sem Reno hefur fyrir- skipað, mun beinast að því hvort handvömm eða vísvitandi yfirhylm- ing hafi orðið til þess að hinar nýju upplýsingar hafi ekki komið fram fyr. Beinist einnig að Reno Talið er öruggt að þingrannsókn myndi einnig beinast að hæfni Renos í starfi, sem hefur átt í hörðum deil- um við repúblikana vegna ýmissa annarra mála. Repúblikanaþingmað- urinn Orrin Hatch sagðist hafa glatað traustinu á leiðtogahæfileika Renos. „Það stendur ekki steinn yfir steini í dómsmálaráðunejdinu." En Hatch sagði að Louis Freeh, yfirmaður FBI, væri „afburða stjórnandi". Gramm sagði aftur á móti að ef til vill væri líka við Freeh að sakast. „Kannski ættu þau bæði að taka pokann sinn.“ Búist er við að Reno útnefni óháðan rannsakanda í vik- unni, og leggi áherslu á óhlutdrægni hans. Ef til vill verði um að ræða repúblikana sem njóti virðingar í báðum flokkum. Kann að kosta milljarð Lögfræðingar segja að það kunni að kosta stjórnvöld meira en milljarð dollara að FBI skyldi ekki hafa greint frá öllum gögnum um málið. Þetta er sú upphæð sem farið hefur verið fram á fyrir hönd flestra þefrra sem létust í harmleiknum. í næsta mánuði hefjast réttarhöld í máli, sem höfðað hefur verið af rúmlega hundrað ættingjum og erf- ingjum margra þeirra sem fórust. Lögskýrendur telja líklegt að það muni verða stjórnvöldum mjög í óhag að FBI skuli fyrst núna hafa viðurkennt tilvist umræddra gagna. Murdoch vekur reiði Tíbeta New York. The Daily Telegraph. MANNRÉTTINDASAMTÖK og Tí- betbúar, sem búsettir eru í Banda- rikjunum, fordæmdu í gær ástr- alska fjöhniðla- kónginn Rupert Murdoch harka- lega eftir að hann gagnrýndi Dalai Lama og lét sér hernám Kínverja á Tíbet í léttu rúmi liggja. Murdoch, sem vill gjarnan koma ár viðskiptaveldis síns vel fyrir borð í Kína, hafði í viðtali við glanstímaritið Vanity Fair látið þessi orð falla um trúar- leiðtoga Tíbeta: „Ég hef heyrt háðska menn lýsta honum sem af- ar pólitískum, ævafornum munki sem spásserar um í Gucci-skóm.“ Murdoch lýsti einnig yfir stuðn- ingi við hernám Kína á Tíbet með Lét miður falleg umrnæli falla um Dalai Lama því að varpa fram efasemdum um að menning Tíbets væri þess virði að bjarga úr ánauð. „Kannski er ég einfaldlega of ginnkeyptur fyr- ir áróðri þeirra,“ sagði Murdoch um kínversk stjórnvöld, „en samfé- lagið í Tíbet var einræðislegt mið- aldasamfélag þar sem ekki var að finna ýmsa grundvallarþætti nú- tíma þjóðfélags." Kvaðst hann jafnframt telja að hálfur vandi Tíbeta fælist í því að „um helmingur fólksins telur enn að Dalai Lama sé einkasonur guðs“. Málstaður Tíbetbúa hefur sjald- an notið jafn mikils stuðnings í Bandaríkjunum og einmitt nú og því þykir Murdoch ekki hafa sýnt ýkja mikla háttvisi með ummælum sínum. Tíbctbúar, sem búsettir eru í Bandaríkjunum, brugðust enda ókvæða við ummælunum og köll- uðu þau „heimskuleg", „kaldrana- Ieg“ og sýna að Murdoch hugsaði einungis um eigin hag. I viðtalinu í Vanity Fair bar Murdoch jafnframt blak af stefnu Kínastjórnar í mannréttindamál- um þegar hann sagði að venjuleg- um íbúa Kína væri fremur umhug- að um að hafa fyrir salti í grautinn en um lýðræði. Murdoch hefur áður verið sakað- ur um að setja viðskiptahagsmuni sína ofar lýðfrelsi almennings. I fyrra skipaði hann t.d. útgáfufyrir- tæki sínu HarperColIins að hætta við útgáfu á endurminningum Chris Pattens, síðasta ríkisstjóra Hong Kong, vegna þess að þar þótti lionum Patten einum of gagnrýninn í garð kínverskra stjómvalda. Rupert Murdoch Yfírheyrslum EÞ yfír nýrri framkvæmdastjúrn ESB lokið Fyrirheit um róttæk- ar umbætur ítrekuð Brussel. Reuters. YFIRHEYRSLUM Evrópuþingsins (EÞ) yfir þeim 19 einstaklingum sem ætlað er að taka sæti í nýrri fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB), auk Romanos Prodis sem fara mun fyrir henni, lauk í gær. Bretinn Neil Kinnock, sem var síð- astur til að svara spurningahríð þingmanna, hét því að gera það sem í sínu valdi stæði til að koma róttæk- um umbótum á stjórnsýslu sam- bandsins í framkvæmd. Kinnock, sem ætlað er að hafa yf- irumsjón með umbótastarfinu, sagði engan vafa leika á því að hann myndi „standa sína pligt" ef þingið veitti nýju framkvæmdastjórninni sam- þykki sitt í atkvæðagreiðslu sem áformuð er hinn 15. september. Með yfirheyrslunni yfir Kinnock, sem gekk vandkvæðalaust fyrir sig, lauk vikulangri törn slíkra yfir- heyrslna. Að henni afstaðinni þykir fátt því til fyrirstöðu að tilskilinn meirihluti þingheims veiti nýju fram- kvæmdastjórninni samþykki sitt og bindi þar með enda á stjórnsýslu- kreppu Evrópusambandsins sem staðið hefur yfir í hálft ár, eða frá því framkvæmdastjórn Jacques Santers sagði af sér í marz sl. vegna ásakana um spillingu innan hennar. „Mér sýnist ljóst að við munum lýsa stuðningi við framkvæmda- stjórnina eins og hún er skipuð núna,“ sagði Hannes Swoboda, vara- formaður þingflokks sósíalista á Evrópuþinginu, sem nú er næst- stærsti þingflokkurinn. „Við höfum lært okkar lexíu," sagði Kinnock við upphaf hinnar þriggja tíma löngu yfirheyrslu í gær. „Hljóti framkvæmdastjórn Prodis staðfestingu þessa þings (...) mun hún hrinda í framkvæmd róttækum, umfangsmiklum og varanlegum um- bótum og álíta þær eitt grundvallar- atriða embættisumboðs síns,“ tjáði hann yfirheyrslunefndinni. Athugasemdir ekki veigamiklar Þrátt fyrir að allnokkrir þingmenn hafi lýst efasemdum um hæfi nokk- urra þeirra sem setjast eiga í fram- kvæmdastjórnina - einkum fengu Belginn Philippe Busquin, Frakkinn Pascal Lamy og Spánverjinn Loyola de Palacio að kenna á slíku - voru þær efasemdir ekki það alvarlegar að þær þættu réttlæta að þingið beitti neitunarvaldi gegn staðfest- ingu framkvæmdastjórnarinnar í heild sinni. Mótettukór Hallgrímskirkju. Hallgrímsóratóría samin fyrir Mótettukórinn styrk frá kristnihátíðar- nefnd. Fyrsta framlag kórsins til kristnitökuhátíðahald- anna var flutningur á H- moll messu Bachs í ágúst sl. I heiðursskyni við minningu Bachs mun kórinn fiytja kantötur í sérstökum kan- tötuguðsþjónustum og Jó- hannesarpassíuna í dymbil- Hallgrímsson viku. Árlegir jólatónleikar MOTETTUKOR Hallgríms- kirkju er nú að hefja sitt átj- ánda starfsár. Verkefni vetr- arins tengjast margháttuðum hátíðahöldum ársins 2000, þegar fagnað verður 1000 ára kristni á íslandi, og lýkur þeim þætti með frumflutningi á óratóríu eftir Hafliða Hall- grímsson undir lok ársins 2000. Þá verður 250. dánar- dags J.S. Bach minnzt og Reykjavík er menningarborg Evrópu. Hallgrímsóratóríuna semur Hafliði Hallgrímsson að beiðni List- vinafélags Hallgrímskirkju og með verða haldnir helgina 18.-19. des- ember, en þar verður flutt fjöl- breytt jólatónlist til styrktar tón- listarlífi Hallgrímskirkju. Hátíðartónleikar Listahátíðar í Reykjavík Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir Kristinn Sigmundsson og Kristján Jóhannsson í hlutverkum sínum í Grímudansleik eftir Verdi í Þjóðleikhúsinu fyrir Ijórtán árum. Með þeim á myndinni er Katrín Sigurðardóttir. Fjórir af fremstu söngvurum þjóðar- innar saman á sviði EFNT verður til hátíðartónleika á lokakvöldi Listahátíðar í Reykjavík árið 2000, þar sem fram koma fjórir af ástsælustu söngvurum þjóðarinn- ar, Kristinn Sigmundsson bassbarít- on, Kristján Jóhannsson tenór, Rann- veig Fríða Bragadóttir messósópran og Sigrún Hjálmtýsdóttfr sópran. Tónleikarnfr verða í Laugardalshöll 8. júní og eru í samvinnu við Reykja- vík, menningarborg Evrópu 2000. Tilefnið er þrjátíu ára afmæli Listahátíðar og mun Sinfóníuhljóm- sveit Islands leika með söngviminum undir stjórn Ricos Saccanis, aðal- hljómsveitarstjóra. A efnisskrá verða valin atriði úr ítölskum og frönskum óperum, sum verkin verða alkunn og vinsæl en önnur minna þekkt, að sögn Höllu Sverrisdóttur ritara Listahátíð- ar, en verið er að setja hana saman. „Endanleg efnisskrá liggur ekki fyrir en lögð verður höfuðáhersla á að allir söngvaramir fái notið sín,“ segir Halla. Kristinn og Kristján hafa um langt árabil verið atkvæðamestir íslenskra söngvara í stórum óperuhúsum er- lendis en langt er síðan þeir hafa staðið saman á sviði. Að því er næst verður komist var það í uppfærslu Þjóðleikhússins á Grímudansleik Verdis veturinn 1985-86. Kristján söng þá hlutverk Gustavos III, kon- ungs Svíþjóðar, en Kristinn Renatos Anckarströms. Sinfónían á tónleikaferð Á HVERJU ári fer Sinfóníuhljóm- sveit Islands í tónleikaferðir um landið og nú í byrjun starfsársins verður farið um Norðurland eystra. Hljómsveitin spilar fyrst í Iþrótta- höllinni, Húsavík, kl. 20:30, fimmtu- daginn 9. september; síðan er haldið að Reykjahlíð við Mývatn og tónleik- ar haldnir í íþróttahúsinu kl. 20:30, fostudaginn 10. september. Síðustu tónleikarnir að þessu sinni verða í Akureyrarkirkju laugardaginn 11. september kl. 15. Flutt verða verkin L’Arlesienne, úr svítu 1 & 2 eftir Ge- orges Bizet, Trompetkonsert eftir Alexander Arutunian og 8. sinfónía Dvorák. Einleikari er Ásgeir Stein- grímsson en hann er fæddur og upp- alinn á Húsavík og stjórnandi er Bernharður Wilkinson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.