Morgunblaðið - 08.09.1999, Page 28

Morgunblaðið - 08.09.1999, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Að lesa í málverk SJALFS- MYND 1652 Rembrandt I SUMAR hefur einn stærsti viðburður á myndiistarsviði í London, og Evrópu um leið, verið sýning á sjálfsmyndum Rembrandts í Sainsbury væng Þjóðlistasafnsins. Þótt sýning- unni sé lokið í London er henni þó engan veginn lokið, því hún mun verða opnuð aft- ur í heimalandi listamannsins, nánar tiltekið Konunglegu málverkahirzlunni, Maurits- huis, í den Haag 25. septem- ber, og stendur til 9. janúar árið 2000. Löngu hefur verið fjallað um sýninguna sjálfa í Lesbók Morgunblaðsins og verður hér einungis vikið að lestri sjálfsmyndanna sam- kvæmt nýjum skilningi, og ein þeirra tekin lítillega til með- ferðar. Hafa sérfróðir komist að ýmsu í rannsóknum sínum hin síðari ár, sem mikil áhersla er lögð á bæði í hinni eindæma vel skrifuðu, skil- virku og glæsiiegu sýningar- skrá, sem mikið og verðskuld- að lof liefur verið borið á, og skýringartextum við sjálfar myndirnar. Hið fyrsta sem nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir varðandi þennan hátind meist- araverka sem málverkið hefur framborið í sjálfsmyndagerð, er hið alltyfírgnæfandi vægi skilnings Iistamannsins á eðli myndverksins. Fyrir hið fyrsta, að veigurinn lá í út- færslu þess en ekki sjálfu myndefninu hveiju sinni, í þessu tilviki af hveijum mynd- in væri. Ekki er síður mikil- vægt, að gera sér grein fyrir, að sjálfsímyndin var nokkuð önnur á þeim tímum en nú gerist, og að til eru öllu vits- munalegri útlistanir á hinni viðvarandi áráttu Rembrandts að mála sjálfan sig, en áhugi hans á eigin sjálfí. Og þrátt fyrir að það liggi um það bil hundrað sjálfsmyndir eftir hann, sem greinast í málverk, teikningar og grafísk blöð, og liann væri einn samtíðar- og sporgöngumanna sinna að skilja eftir sig slík býsn meist- araverka í þeirri grein, eru menn lítið nær um manninn að baki verkanna. Að öllu samanlögðu geta menn trauðla sett sig í spor lista- mannsins og rakið slóðina, því á tímum Rembrandts litu menn einfaldlega ekki á sjálfs- myndir sem myndir af sjálfum sér, og alls ekki eigin sjálfi, þar sem sjálfið eins og við þekkjum það og skilgreinum á nýrri tímum var að því best er vitað ekki til, átti eftir að mót- ast og taka á sig form. En í heildarhugsun og fagurfræði- legri gerð myndverksins sæk- ir list Rembrandts föng sín og upphaf til meistara endur- reisnar og þann markaða skilning, að allt sem listamað- ur skapar sé hluti af honum sjálfum, í þröngum skilningi, sjálfsmynd. Til að meðtaka og lesa myndir Rembrandts, verður skoðandinn þannig að vaxa yf- ir þá ímynd nútímamannsins um sjálfsnánd, að hver sé sjálfum sér næstur. Ut frá þeim viðtekna og almenna skilningi, er næsta auðvelt að misskilja hina stigmagnandi sjálfsskoðun í myndum Rembrandts í áranna rás. Menn hafa fram að þessu lesið eigin ímynd og skilning á sjálfínu í myndum listamanns- ins, nokkurs konar rýni í djúp sálarkirnunnar, og eðlilega fyllst andakt á þessu yfír- burða en ímyndaða innsæi listamannsins. Það hefur einnig vakið upp þá spurn- ingu, livort hér sé ekki komið dæmi um upphaf nýrri tíma skynjunar á taugakerfínu. Fyrsta áþreifanlega landnám rannsókna á sjálfínu og eðli mannsins og hvort Rembrandt sé ekki einmitt maðurinn sem í list sinni rís upp yfir armæðu líðandi stundar og persónuleg Sjálfsmynd 1652, olía á léreft 112,1 x 81 sm. Listsögusafnið í Vínarborg. Hlutföll ljóss og skugga í sjálfsmyndinni eru 1/8 á móti 7/8. skipbrot. Og skyldu verk Rembrandts í ljósi þess þá ekki vera eins konar guðfræði sjóntauganna á mannleg hlut- skipti, öflug rannsókn á ytri fyrirbærum með tilheyrandi undrun á hinni að virðist óendanlegu og tilgangslausu vegferð mannsins? Listsögulegur grunnur sýn- ingarinnar, tilefni hennar og viðburðargildi, hafnar alfarið þessari skilgreiningu, segir hreint nei. Boðar frelsun lista- mannsins frá þessari stiga- myllu tilvistarkenningarinnar, sem lokar listamanninn innan í sjálfum sér. Nærvera Rembrandts sem myndefnis í eigin verkum er hins vegar út- skýrð með listfélagslegum kringumstæðum þeirra. Og hvað hinar mörgu sjálfstúdíur Rembrandts áhrærir, sem bregða upp margvíslegum geðshræringum - undrun, reiði, leiða, kátínu, er um að ræða það sem í sýningarskrá er nefnt, tronier, nokkurs konar táknsögulegt grip eða haldreipi, sem notað er í reitn- um milli sögumálverks og mannamyndar. Myndirnar voru einfaldlega ekki málaðar fyrir hann sjálf- an heldur listamarkað tím- anna, og sá markaður var afar þröngur og byggðist á hópi manna með háþróað fagur- fræðilegt innsæi, leiðandi á opinberum vettvangi með kenniheitið „Liefhebbers van der Scilderkunst“ sem út- leggja má; stóráhugainenn um list lýsingarinnar. Astríða þeirra hverfðist framar öðru um einn snertipunkt, verk sem greinilegast afhjúpaði snilli Rembrandts og undir- strikaði um leið nafn lista- mannsins. Fátt gátu þeir feng- ið betra upp í hendurnar en mynd eftir Rembrandt í orðs- ins eiginlegustu merkingu, sem var mynd eftir Rembrandt af Rembrandt. Og í anda túnanna skipti það sem fyrr segir meira máli hvernig myndin var máluð en af hveiju hún væri. Rembrandt gekk afar vísindalega til verks í myndum sínum, sem voru nokkur skonar skuggaskipta- málverk (clairs obscurs). Hjá honum var skiptingin milli birtu og skugga afar skýr og byggðist á Ijósgráu sem var jafn langt frá ljósi og dimmu. Þetta kemur vel fram í mynd- inni sem fylgir skrifínu og er áréttað með kringlóttu skýr- ingarmyndinni, þar sem hlut- ur Ijóssins er 1/8 en skugg- anna 7/8. Það er sem Ijósið hafí megnað að þrengja sér yfír þröskuld myrkursins og skuggarnir marki fortíð, með- göngutíma og gerjun en ljósið hold og blóð, lífíð sjálft. Líkast áréttingu um að ljósið sé þessa heims, en allt komi frá djúpi myrkurs og tóms, verði að lífi fyrir undursamleg nátt- úrusköp. Klæðnaður listamannsins ber einkenni tímanna en var þó ekki tiskuklæðnaður, gæti allt eins verið vinnukyrtill og á höfði ber hann svoneft Barrett, sem var flöt húfa úr mjúku efni og frekar í móð á öldinni áður. Rembrandt er hér 46 ára að aldri og á há- tindi ferils síns, sjálfsöruggur óg keikur eins og meistara sæmir. Horfír spyrjandi út úr myndinni og á þann veg að það þrátt fyrir að borðleggj- andi sé að vægi málverksins sé hér meira en myndefnisins, er afar freistandi að fallast á fyrri og rómantískari skil- greiningar á sjálfsmyndum hans. Að hér sé komið frábært dæmi um listræna útrás per- sónuleikans, hvernig mann- eskja verður til, hvernig hún mótast og tekur á sig mynd, út frá sjálfri sér... Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.