Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 39
I -I MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 39^ UMRÆÐAN „dirfsku" þeirra til aðgerða og ekki síður vopnaðra sveita serbneska minnihlutans. Þegar kom að hinum svokölluðu friðarsamningaviðræð- um í Rambouillet í Frakklandi, síð- ast liðið haust, komu Bandaríkin í veg fyrir friðarsamkomulag með því að gera kröfur um alger yfirráð sín í Kosovo, en gerðu í staðinn hernaðarbandalag við KLA. Milosevic Það er sjaldnast útskýrt hvað sé svona slæmt við Milosevic. Hann er bara kallaður einræðisherra, og honum líkt við Hitler og jafnvel djöfulinn sjálfan. í hverju skyldi „illska“ hans vera fólgin? Sök hans er sú að hafa í byrjun þessa áratugar skapað þá von meðal Serba að það væri hægt I að halda Júgóslavíu saman. Serbar I bjuggu í dreifðum litlum einingum I um alla gömlu Júgóslavíu og óttuð- 1 ust, ef landið klofnaði í mörg smá- ríki, að þá mundu þeir verða ofsótt- ir sem minnihluti í þessum ríkjum. Þeir trúðu á að Milosevic yrði sá foringi sem mundi ráða við að halda Júgóslavíu saman. Þeir og reyndar margir aðrir Júgóslavar kusu hann foringja sinn í tvígang í þessu skyni. Sjálfur er ég á móti því að nota hervald við lausn deilumála og taldi rangt af Milosevic að nota herinn til að halda Júgóslavíu saman. Hins vegar er þetta viðtekin aðferð með- al flestra þeirra sem stóðu að loft- árásunum og grundvöllur hemað- arbandalagsins NATO. NATO hefur gert það að mark- miði sínu að koma Milosevic frá. Til þess dugði ekki að sprengja allt í loft upp og gera Júgóslava að fá- tækustu þjóð Evrópu, eins og þeir orða það sjálfir. Nú býður NATO Júgóslövum peninga ef þeir losi sig við kjörinn forseta, og alls ekki að hafa kosningar. Kosningar eru víst orðnar eitt af lymskubrögðum Milosevic. Hvers vegna sprengjum við allt í loft upp í Júgóslavíu, hvers vegna deilum við og drottnum til að etja þjóðarbroti gegn þjóðarbroti, hvers vegna bjóðum við gull og græna skóga til að brjóta niður þjóðríki þegar sprengjuárásirnar duga ekki. Þessara spuminga hljótum við að spyrja okkur, hér í NATO-löndun- um. Ég finn ekki nema eitt svar við þessum spurningum. Bandaríkin með NATO í farteskinu þurftu að ná ítökum í þessum heimshluta. Júgóslavía hefur langa reynslu af hlutleysi í átökum heimsveldanna og var með tilburði til að halda sjálfstæði sínu áfram. NATO gat ekki þolað, að þetta ríki kæmist upp á milli NATO-ríkisins Tyrk- lands í austri og annan’a NATO- ríkja. Óhróður um Serba og Albana Áróður NATO til að fiiTa sig ábyi-gð á voðaverkum sínum á Balkanskaga bitnar ekki bax’a á Sei-bum, líka á Albönum. Menn eiga að trúa því að þarna séu allir brjálaðir, og það þurfi NATO til að skilja þá að. Heimsveldin notuðu alltaf þá að- ferð að niðurlægja fólkið í nýlend- unum, gerðu samninga við ógnar- hópa, báru á þá peninga og vopn, til að ráðast á landa sína og sundra þeim. Við áttum að trúa því að þetta væi-i ófullkomið fólk og óhæft að stjórna sér. Vonandi hríf- ur svona málflutningur ekki leng- ur. Serbar og Albanar eru yndisleg- ar manneskjur. Auðvitað er til meðal þeirra fólk sem framkvæmir grimmdarverk við ákveðnar að- stæður. En svo er það nú líka hjá okkur. í öllum þjóðfélögum geta konúð upp aðstæður þar sem grimmdin verður ofan á. I þessu tilviki á Balkanskaga bjuggu Bandaríkin og NATO til þessar að- stæður. Höfundur er jarðeðlisfræðingur. Framtíð Austurlands, framtíð mín NÚ SEM áður horfa Austfirðingar til fi’amtíðar. Hvað blasir við í nánustu framtíð? Hverjir eru möguleik- ar Austfirðinga til fjölgunar og uppbygg- ingai'? Mörgum lands- mönnum hefur reynst erfitt að skilja að Aust- urland hefur sömu þörf og aðrir lands- hlutar til fi-amfara. Fólksfjöldi ýmist stendur í stað eða fólki fækkar. Að líta til framtíðar fyrh’ ungan Austfii’ðing er ekki spennandi. Hyggist ungur Aust- firðingur ganga til mennta þessa dagana eru litlar h'kur á að fjórð- ungurinn endxn-heimti þá krafta sem hann hefur upp á að bjóða er hann hefur lokið námi á suðvestur- horni landsins. Atvinnuhf Austur- lands er fábreytt og einhæft. Eini möguleikinn til vaxtar virðist vera sá að fá ný jám í eldinn. Meiri fjöl- breytni, störf sem krefjast háskóla- menntaðs fólks, og aðeins þá mun Austurland dafna. Ekki get ég séð að verkamenn og fiskvinnlufólk fjórðungsins komi upp með bylt- ingu í atvinnumálum frekar en áð- ur. Það sem fjórðunginn sárvantar er menntafólk sem hefur þekkingu til að halda uppi öflugu atvinnuhfi. Sá doði og vonleysi sem ríkt hef- ur yfir Austurlandi síðustu ár er orðinn óbærilegur. Það er óþolandi að fá ekki að njóta þenslu og hag- vaxtar á tímum sem það þykir sjálfsagður hlutur annars staðar á landinu. Höfum við Austfirðingar Eru rimlagardínurnar óhreinar! Vib hreinsum: Rimla, strimla, plíseruö og sólargluggatiöld. Setjum afrafmagnandi bónhú&. Sækjum og sendum ef óskab er. J Nýj° tJ taBimihmmmm SMIwlmar U • Kmh 5M 56M • GSM: «97 5*54 Einar Þorsteinsson ekki rétt á okkar upp- sveiflu? Þurfum við ef til vill að segja okkur úr lögum við landið til að fá okkar fi-am- gengt? Það er ljóst að virkjun Eyjabakka tel ég vera þá fórn sem hægt er að telja rétt- mæta nú og næstu ár- in. Virkjun Eyjabakka og álver í Reyðarfirði er það atvinnutæki sem Austfirðinga sár- vantar. Önnur tæki munum við ekki eign- ast næstu áratugi til að endurheimta okkar fólk úr námi og stuðla þannig að vexti Austux-lands. Þetta fólk mun svo halda áfram uppbyggingu at- vinnuhfsins á víðari grundvelh. Það þarf sökkul undir uppbyggingu at- vinnulífs á Austurlandi, það er öll- um ljóst. Sú eftirvænting sem nú ríkir í augum Austfirðinga er til marks um hvað skal verða næst á döfinni. Hvað þykjast umhverfísverndar- sinnar suðvesturhornsins vita um það vonleysi og doða sem ríkt hef- ur yfir Austurlandi undanfarin ár. Eiga nokkrir vegagerðarskúrar fyrir túrista uppá Eyjabökkum að leysa okkar vandamál? Umhverfis- Stóriðja Virkjun Eyjabakka og álver í Reyðarfirði er að mati Einars Þor- steinssonar það at- vinnutæki sem Aust- firðinga sárvantar. verndarsinnai’ með Ómar Ragn- arsson, Steingrím Hermannsson, Vigdísi Finnbogadóttur, biskup ís- lands og fleiri staðnaða fagurkei’a í broddi fylkingar vii’ðast vera að slá Austurlandi hið hinsta rothögg. Höfundur stundar nám við Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.