Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 43

Morgunblaðið - 08.09.1999, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999 43 Fást i byggingavöruverslutwm um land allt KÍNAFERÐ LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS & GÓLFEFNABÚÐIN Mikið urval fallegra flísa Borgartún 33 • RVK Laufásgata 9 • AK VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 8900. Myndsendir: 560-8910.Veffang: www.vib.is Vilborg Lofts aðstoðarframkvæmdastjóri VÍB Sturtuklefar Ifö sturtuklefarnir eru fáanlegir úr plasti eða öryggisgleri í mörgum stærðum og geröum. Ifö sturtuklefarnir eru trúlega þeir vönduðustu á markaðnum fdag. Ifö - Sænsk gæðavara lehf. Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 564 1088 • Fax-. 564 1089 einhverjum mæli. Eins og gefur að skilja var nokkuð misjafnt hvað fólk tók sér fyrir hendur. Sumir skoðuðu gamla bæjarhluta Peking, Hutong, sem eru lágreist húsakynni og húsa- sund Kínverja, er bjuggu utan for- boðnu borgarinnar og búa þar enn í dag. Aðrir nýttu daginn til þess að fara í Purpura Bambus garðinn, Zizhu- yuan Gongyuan, sem er vinsæll úti- vistarstaðui- Pekingbúa, en upphafs- atriði kvikmyndarinnar „Red Corn- er“, sem m.a. fjallar um lögfræðinga í Kína, er einmitt tekið þar. Til þess að komast á hina ýmsu áfangastaði frá „Landmark-hótel- inu“ varð annaðhvort að fara gang- andi eða í leigubíl. Kínverskir leigu- bílstjórar tala ekki ensku og því var okkur úthlutað miðum með kín- verskum táknum, nöfnum helstu áfangastaða verzlunarglaðra Vestur- landabúa í Peking. Síðan var bent á kínversku táknin, tákn staðarins, sem ætlunin var að fara á og vonað að maður lenti þar að lokum, en leigubílstjórar í Peking eiga það því miður til að fara í „kynnisferðir" um Peking með útlendinga, sem ekki rata. Best var að semja um fargjald áður en lagt var af stað. Yfirleitt vor- um við þó heppin með leigubílstjóra. Verzlunar- og aðrar skemmtiferð- ir flestra enduðu á einhverjum hinna fjölmörgu veitingastaða í Peking. Sumarhöllin í lok ferðarinnar, hinn 25. apríl, skoðuðum við, Kínafararnir, Sumar- höllina. Það var keisarinn Qianlong (1736-1795), sem lét leggja 292 hektara garð, Yuanmingyuan, í norð-vesturhluta Peking. I yfir 150 ár kom Qing-keisaraættin þangað til að hvíla líkama og sál. Tugir smá- halla, skála og hofa, voru innan um manngerðar hæðir og vötn. í síðara Ópíumstríðinu, árið 1860, fyrirskipaði Lord Elgin, yfirmaður breska hersins að Yuanmingyuan skyldi brennd til þess að refsa keis- arafjölskyldunni fyrir að banna er- lendum kaupmönnum að verzla við Kína. Keisaranum Xianfeng og hirð hans, þ.á m. hjákonu hans CiXi, rétt tókst að flýja til Chengde. Sumarhöllin, sem við sáum, Yi- heyuan, var byggð af CiXi, hjákonu Xianfengs, sem komst til valda við hans, árið 1861. Hún stjórnaði Kína í skjóli ungs sonar síns og eina erf- ingja keisarans, Tongzhi og síðar í skjóli systursonar síns, Aisin Gioro Pu Yi, síðasta keisarans í Kína. CiXi gerði föður Pu Yi, Chun að foringja yfir kínverska flotanum og kúgaði hann síðan um peninga til þess að 'unnt væri að koma upp kínverskum flota. Peningana, er hún fékk, notaði hún hins vegar til að byggja nýja Sumarhöll, árið 1888 og bjó þar næstu 20 árin. Fyrir flotapeningana var aðeins smíða eitt skip, hið fræga marmaraskip CiXi, Qingyuanfang, en byggingai'efnið var marmari og sigldi skipið því skiljanlega aldrei. Er við komum var marmaraskipið „í slipp“ við Sumarhöllina vegna við- gerða á því fyrir 50 ára byltingaraf- mælið, er haldið verður hátíðlegt um allt Kína 1. október 1999. Marmara- skipið var hulið grænu öryggisneti og var því lítið hægt að skoða það. Næst fórum við í siglingu á hinu manngerða Kunming-vatni, við Sumarhöllina. Vatnið bærðist vart, enda er lögð áherzla á kyrrð og frið í Kína. Loks litum við inn í postulíns- verksmiðju, rétt hjá Sumarhöllinni og fylgdumst um stund með postu- línsvasagerð. Himnahofið Himnahofið (Tiantan) er sá staður þar sem keisarar af Ming- og Qing- íslenskir lögfræðingar í heimsókn í Hæstarétti Kína. keisaraættunum tilbáðu himinn og báðu fyrir metuppskerum. Tvisvar á ári yíirgaf glæsileg skrúðganga 1.000 geldinga, hirðmanna og ráð- herra keisarahöllina (Gugong) til að fylgja keisaranum í gegnum vestur- hlið Himnahofsins. Keisarinn dvaldi eina nótt í bindindishöllinni (Zhaigong), þar sem hann fastaði og hélt sig frá tónlist, áfengi og konum, vegna undirbúnings fyrir helgiat- hafnir og fórnir, sem fram fóru næsta dag. Við vetrarsólstöður þakkaði keis- arinn guðunum fyinr næstu upp- skeru á undan, en á 15. degi hins fyrsta mánaðar bað hann guði sólar, tungls, skýja og rigningar, þruma og eldinga að blessa komandi upp- skeru. Norðurhluti Tiantan liggur í hálf- hring, en suðurhlutinn er rétthyrnd- ur. Þetta form Tiantan-svæðisins er í samræmi við þá fornu trú að him- inninn væri hringlaga og jörðin ten- ingslaga. í norðurhlutanum er gull- falleg 40 metra há trébygging með þrílaga bláu þaki, Qiniandian. Blái litur þaksins er tákn himinsins. Qini- andian, sem í raun er hið eiginlega himnahof, var byggt án þess að not- aður væri einn einasti nagli og er það eitt helsta meistaraverk kín- verskrar byggingarlistar. í suðurhluta Tiantan er hvít marmaraverönd, Himnaaltarið, þar sem keisarinn baðst fyrir við vetrar- sólstöður. Þar er einnig bergmáls- veggurinn, sem frægur er fyrir hljómburð sinn. Sagt er að ef staðið sé við annan enda veggjarins, heyr- ist allt í hinum endanum, þ.e. þegar ekki er mannmargt en svo er nánast aldrei og vai’ ekki þegar við vorum þar, því Tiantan er ekki einvörð- ungu heimsótt af ferðamönnum heldur og mjög vinsæll staður meðal Kínverja. Af öðru markverðu, sem við sáum í Tiantan-garðinum var 60-ára hliðið og 70-ára dyrnar, sem byggðar voru til þægindaauka fyrir hinn veik- burða Qianlong, sem var einn af fá- um keisurum í Kína, sem náði því að verða 70 ára gamall. Bygging Tiantan hófst árið 1420. Það hefir ekki farið varhluta af reiði himnanna, því það hefur eyðilagst nokkrum sinnum, m.a. af eldingu. Síðasta endurbygging fór fram árið 1890. Tiantan-garðurinn, með sinn mikla fjölda kýprusviðartrjáa - tákni langlífís samkvæmt kínverskri speki - hefur verið opinn almenningi frá árinu 1949 og lýstu Sameinuðu þjóðirnar því yfir árið 1998, að hann væri hluti af arfleifð heims. Óperan í Peking Að loknum sameiginlegum kvöld- verði á Yuyang-hótelinu fórum við í Chang’an-óperuhúsið, í Peking. Þar fylgdumst við um stund með einni uppfærslu Peking-óperunnar. Rekja má uppruna Peking-óper- unnar til Tang-keisaratímabilsins (618-907). Áður fyrr var óperan flutt á götum Peking, en það skýrir e.t.v. hversu óformlegur atburður Frábært leikár í fersku leikhúsi - IÐNÓ 1999-2000 3.symng Handhafi: Sigurður Kart Pálsson Frankie og Johnny Stjömur á motgunhimni Sjeikspir eins og hann leggur sig Leikir Kýldu á IÐNÓ-kortið og þú drífur þig i leikhús Aðeins 7500 kr. ef greitt er með VISA kreditkorti Hríngdu i 5303030 I 'h FRÍÐINDA i' KLÚBBUIUNN sýningin á Chang’an var. Fólk gekk inn og út og var ekki sérlega spari- búið. Peking-óperan var í mörgum tilvikum eina tækifæri alþýðunnai- á að fræðast um fólk og atburði utan síns daglega lífs í Peking. Óperan gegndi því hlutverki fréttamiðils og varðveitti sögusagnir, sem gengu manna á milli. Það eru 4 mismunandi flokkar að- alhlutverka í óperunni, sheng, karl- hlutverk, dan, kvenhlutverk, jing, málaðs andlits-hlutverk og chou trúðshlutverk. Hver flokkur skiptist síðan í undirflokk. Dan, kvenhlut- verkið er það mikilvægasta og eru ástæðurnai’ tvær. Konan er yfirleitt miðdepill athyglinnar í sögum, sem óperan byggir á og jafnframt er hefð fyrir að kona gegni aðalhlut- verki í kínverskum sorgarleikum. Dan hlutverkin voru áður fyn’ oftast leikin af karlmönnum, með hvítmál- uð andlit. Á sl. 40 árum hefir slíkt verið bannað, þar sem það hefir ver- ið stimplað öfuguggaháttur. Leikbúningar Peking-óperunnar eru eftirlíkingar af hirðklæðnaði Han, Tang, Song og sérstaklega Ming-keisaraættarinnar (1368-1644). Við skildum auðvitað ekki orð af því sem var sungið - en í Kína segist fólk yfirleitt fai’a til að hlusta á óp- eru - sjaldnar er sagt að farið sé til að sjá óperu. Við urðum að láta okk- ur nægja að sjá hana, en greina mátti manngerðir á litum leikbún- inga. Rauði liturinn er þannig tákn góðrar og tryggrar persónu, blár, litur hugrekkis, gulur, litur hroka og hvíti liturinn táknar vöntun á sjálf- saga, svik og kænsku. Þrátt fvrir mikla hrifningu og áhuga okkar, urðum við því miður að hverfa allt of fljótt af óperusýn- ingunni, því langt ferðalag heim til Islands var framundan. Heimferð Á leiðinni út á Shodu-flugvöll fengum við að vita fyrir hvað kín- verski fáninn stæði. Á kínverska fánanum eru 5 gular stjörnur á rauðum grunni. Rauði liturinn í þjóðfána Kína er tákn byltingarinn- ar, sem markar upphaf stofnunar Alþýðulýðveldisins IGna, 1. október 1949. Guli liturinn er hins vegar lit- ur sólarinnar, dögunar, nýs upphafs. Draga verður kínverska fánann að húni á nákvæmlega 2 mínútum og 7 sekúndum, sem er sá tími sem það tekur sólina að rísa upp yfir sjón- deildarhring. Stærsta stjarnan á fánanum er tákn kínverskrar al- þýðu, en hinar 4 tákn fjögurra minnihlutahópa í Kína. Þjóðfáni Kína er og tákn stjórnar kommún- istaflokksins og einingar alþýðu manna. Þarna höfðum við það. Flugið frá Peking til Kaupmanna- hafnar tók 9 tíma. Við urðum að færa tímann aftur um 6 tíma og síð- an aftur um aðra 2 er við lentum í Keflavík að kvöldi 26. apríl. Við vor- um komin heim. Frábærri ferð til Kína var lokið. Röng grein birtist í þriðjudags- blaðinu 17. ágúst sem síðari grein um Kínaför Lögfræðingafélags Is- lands og er beðist velvirðingar á mistökunum. Höfundur er lögfræðingur. Hefur þú áhuga? Komdu við i dag! Hæsta ávöxtun innlendra veröbrefasjóða Sjóður 6 er sá verðbréfasjóður sem skilað hefur hæstu ávöxtun frá upphafi (stofnaður árið 1991). Ávöxtun sjóðsins fylgir ávöxtun hlutabréfa á Verðbréfa- þingi Islands. Sjóður 6 er fyrir þá sem eiga sparifé fyrir, eru tilbúnir að taka nokkra áhættu með hluta þess og horfa til lengri tíma í von um háa ávöxtun. Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.